Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Vonast til að heimsókn Bills Clinton til Norður-Irlands festi friðarferlið í sessi
Belfast. Reuters.
FLESTIR stjómmálamenn á Bret-
landseyjum fognuðu í gær yfirlýs-
ingu Gerrys Adams, leiðtoga Sinn
Féin, sem sagði í gær að flokkurinn
hefði skipað Martin McGuinness sem
fulltrúa í viðræðum um afvopnun
öfgahópa. Var tíðindum þessum
fagnað mjög enda hafa lýðveldissinn-
ar ekki áður viljað ljá máls á afvopn-
un. Sagðist t.d. David Ervine, leið-
togi PUP-flokksins, sem tengsl hefur
við öfgahópa sambandssinna, telja
yfírlýsingu Sinn Feín mikil tímamót.
f fyrradag lýsti Adams því yfir að
ofbeldi yrði nú að „heyra til liðinni
tíð, vera lokið fyrir fullt og allt“ og
þykja yfirlýsingar þessar marka
tímamót. Talið er að Gerry Adams
hefði ekki gengið eins langt og raun
ber vitni án a.m.k. þegjandi sam-
komulags æðstu stjórnar IRA.
Sinn Féin mun
ræða afvopnun
Viðbrögð Davids Trimble, leiðtoga
Sambandsflokks Ulster (UUP) og
forsætisráðherra N-írlands, hafa
reyndar verið vai'kár og sögðu tals-
menn hans í gær að orð væru ekki
nóg, Sinn Féin yrði að láta verkin
tala. Sambandssinnar hafa hingað til
útilokað að Sinn Féin fái sæti í ríkis-
stjórn, þegai- n-írska þingið kemur
saman á nýjan leik seinna í mánuðin-
um, nema flokkurinn lýsi því yfir
fyrst að stríði IRA sé lokið, og að af-
vopnun sé hafin.
Árangurinn sem hefur náðst í
þessari viku er ekki síst þakkaður
Bill Clinton, forseta Bandaríkjanna,
sem mjög hefur beitt sér á síðustu
árum í þágu friðar á N-írlandi.
Bresk og írsk stjómvöld hafa lagt
hart að deilendum að mjaka friðar-
ferlinu áfinm í tilefni heimsóknar
Clintons til írlands, sem hefst í dag.
Forsetinn mun flytja ræðu í
Belfast og síðan skunda til Omagh,
þai- sem tuttugu og átta fórust í
sprengjutilræði 15. ágúst síðastlið-
inn, áður en hann heldur suður yfh-
landamærin til fundar _\'iö Bei-tie
Ahern, forsætisráðherra Irlands.
Munu fornir fjendur
takast í hendur?
Auknar líkur eru taldar á að þeir
Adams og Trimble hittist augliti til
auglitis í fyrsta skipti innan
skamms, en slíkur fundur er talinn
mikilvægt og óhjákvæmilegt skref
eigi raunverulegar sáttir að takast,
og hafa getgátur verið uppi um að
„sögulegt handtak" mannanna
tveggja muni e.t.v. eiga sér stað á
meðan á heimsókn Bill Clintons
stendur. Olíklegt er hins vegar talið
að af þessu verði en The Irish Tinies
greindi frá því í gær að sennilega
myndu leiðtogarnir þó láta mynda
sig saman með Clinton.
Reuters
HILLARY Clinton kom til
Belfast í gær, einum degi á und-
an manni sínum. Hún ávarpaði
þá fund um stöðu kvenréttinda í
lýðræðisríkjum. Bill Clinton
kemur til N-Irlands í dag.
Annar
hver Finni
á farsíma
Helsinki. Reuters.
FINNLAND er fyrsta landið í
heiminum, þar sem hlutfall
farsímaeignar fer upp fyrir 50
á hverja 100 íbúa. Samkvæmt
nýjum tölum sem finnska
samgöngu- og fjarskiptamála-
ráðuneytið birti var þetta
hlutfall komið í 50,1% í ágúst.
I ágústmánuði voru skráðar
2,57 milljónir farsíma í Finn-
landi. Heildaríbúafjöldi lands-
ins er 5,15 milljónir. „Búizt er
við því að hlutfallið fari yfir
60% í júlí 1999,“ segir í til-
kynningu ráðuneytisins. í
hverjum mánuði skrást 1,5%
fleiri finnskir farsímanotend-
ur. Hafa ber þó í huga, að þar
sem sumir era skráðir fyrir
fleirum en einum farsíma er
raunveralegt hlutfall farsíma-
notenda lægra en heildartala
skráðra farsíma segir til um.
Um þrír af hverjum fjóram
farsímum í Finnlandi era
skráðir til einkaafnota.
Fimm lönd skera sig úr
hvað varðar farsímaeign.
Þessi lönd eru, auk Finnlands,
Svíþjóð með 44,5% og Noreg-
ur með 42,5%. Þá kemur ísra:
el og Hong Kong með 42%. í
Bandaríkjunum er þetta hlut-
fall aðeins 23%.
Plötu-
smíði
HONNUN
SMIÐI
ÞJONUSTA
VIÐGERÐIR
s HÉÐiNN =
SM I ÐJA
Stórási 6 «210 Garðabæ
sími 565 2921 • fax 565 2927
www.mbl.is