Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 23
Hrina dauðsfalla á
Mont Blanc
Fjallgöngn-
mönnum
bönnuð
uppganga
London. The Daily Telegraph.
ÞRÝST er nú á héraðsyfirvöld í
franska Alpahéraðinu Haute Savoie
að banna fjallgöngumönnum að
reyna að klífa Mont Blanc, hæsta
fjall Evrópu, eftir að fímmtán
manns hafa farizt þar á síðasta
hálfa mánuði. Viðsjárverður jökulís
á fjallinu er talinn hafa valdið þess-
um dauðaslysum.
Þrátt fyrir að lögregla hafl gefið
út áskorun til fjallgöngufólks að láta
vera að reyna uppgöngu á fjallið
unz aðstæður batna, freista þess um
150 manns á dag að komast á tind-
inn. A sunnudaginn hrapaði ungur
Pólverji til bana við Mont Maudit-
tind, á einni fjölfórnustu leiðinni
upp á Mont Blanc, aðeins örfáum
sólarhringum eftir að áskorun lög-
reglunnar var birt. Fjórir Frakkar
og ellefu manns frá Þýzkalandi,
Tékklandi, Ungverjalandi, Ítalíu og
Póllandi hafa hrapað til dauða á
fjallinu á síðustu dögum.
Að sögn lögreglunnar hefur há-
loftarigning með heiðríkju á milli
gert efstu hlíðar fjallsins að flug-
hálu svelli.
♦ ♦♦
Denktash vill
ríkjasamband
RAUF Denktash, leiðtogi Kýpur-
Tyrkja, skoraði á mánudag á Kýp-
ur-Grikki að samþykkja tillögu um
stofnun tveggja sambandsríkja á
eynni til þess að hægt yrði að leggja
niður deilur þar. Samkvæmt tillögu
Denktash myndu Grikkland og
Tyrkland sjá um öryggisgæslu á
eynni, en deilur hafa staðið þar síð-
an 1974. Grísk stjómvöld sögðu að
ef farið yrði að tillögu Denktash
myndu deilurnar á Kýpur einungis
harðna. í raun væri Denktash að
leggja til að skipting eyjarinnar yrði
samþykkt opinberlega. Þá væri til-
lagan ekki í samræmi við samþykkt
Sameinuðu þjóðanna um Kýpur.
£UMENIA\
EUMENIA
Euronova þvottavél
• 3 kg af þvotti
• vinduhraði 600 snún./min.
eða 800 snún./mín.
• mál 67 x 46 x 45 cm
Verð frá
kr. 59.900 stgr.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SlMI 5691500
www.ht.is
Umboð8menn um land allt
ERLENT
Niðurstaða rannsóknar brezkra kjarnorkusérfræðinga
• •
Oryggismál í
Dounreay harka
lega gagnrýnd
BREZKA kjarnorkuendurvinnslu-
stöðin í Dounreay nyrst á
Skotlandi á við „mörg ólæknandi
öryggisvandamál" að etja, að sögn
sérfræðinga brezkra stjórnvalda.
Eftir þriggja mánaða rannsókn
hafa sérfræðingar heilbrigðisyfir-
valda og skozku umhverfisverndar-
stofnunarinnar lagt fram skýrslu,
þar sem ekki er talið að stórkostleg
hætta sé yfirvofandi, en harða
gagnrýni er að finna í garð þeirra
sem sjá um rekstur endurvinnslu-
stöðvarinnar, kjarnorkumálastofn-
unar Bretlands (UKAEA). Segir
meðal annars í skýrslunni, að hlut-
ar stöðvarinnar hafi verið reknir
„án skýrrar vitneskju um hvað
gæti farið úrskeiðis".
í skýrslunni eru bornar fram 143
ráðleggingar um úrbætur, og
UKAEA er hvött til að leggja
„verulegan tíma og fé“ í að bæta
öryggi stöðvarinnar. Donald Dew-
ar, Skotlandsmálaráðherra í
brezku stjóminni, brást við þess-
um niðurstöðum með því að krefj-
ast þess að tafarlaust yrði gripið til
aðgerða til að auka öryggið í Doun-
reay.
Þetta er gagnrýnasta skýrslan
sem gerð hefur verið um Dounr-
eay-stöðina frá því hún hóf starf-
semi fyrir fjórum áratugum. Þar
er sagt meðal annars, að stöðin sé
of háð verktökum, að hún hafi
enga heildarlausn á því hvað gera
skuli við kjarnorkuúrgang og að
rekendum hennar hafi mistekizt
að ná fullnægjandi árangri í að
draga úr starfseminni. Fyrr á
þessu ári ákváðu brezk stjórnvöld
að endurvinnslu kjarnorkuúr-
gangs skyldi hætt í stöðinni.
Rannsóknin á öryggismálum
hennar hófst í júnímánuði, eftir að
skurðgrafa rauf rafmagnsleiðslu,
sem olli því að endurvinnslubún-
aður stöðvarinnar var rafmagns-
laus í 16 tíma.
3 Erikur
kr. 999,-
Hentar úti og inni
Margir þekkja Erikuna
sem blómstrandi stofulyng.
Hún hentar ekki síður í
kirkjugarðinum eða í úti-
kerin. Þargeturhún
haldið blómlitnum langt
fram á vetur.
Drekatré
kr. 399,-
Schefflera
(stór)
kr. 799,