Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 40
3 40 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ÞEGAR daginn tekur að stytta og skyggja tekur á kvöldin kviknar einhver þörf fyrir að kljást við skapandi og persónuleg verkefni. Oftar en ekki eru pijónarnir ofarlega á lista hjá mörgum og fallegar uppskriftir af pijón- 5 uðum flíkum hafa mikið aðdráttarafl fyrir áhugasamar pijónakonur. Hver kannast ekki við pijónandi konu þar sem hún situr tímun- um saman og er hreinlega svo dáleidd af verkefni sínu að ekkert annað kemst að. Að geta fallið í slíkt hugarástand eru forréttindi og getur veitt viðkomandi ótrú- lega mikla fróun. Talandi um fallegar pijónaðar flíkur þá bíð- ur Spuni septembermánaðar uppá hlýlegt sett sem sam- anstendur af húfu, sokkum og lambhúshettu fyrir stelpur og stráka. Settið er pijónað úr Smart-garni sem er einstaklega mjúk vélþvæg ull. I september byija skólarnir og allir vilja útbúa börnin sín vel. Margt þarf að kaupa, skólatöskur, bækur og flíkur. En hvað er notalegra en að fá að gjöf handpijónaða flík til að halda hlýju á kroppnum á leið í skólann í morgunsvalanum. Að sjá barn í fallegri pijónaðri flík fær mann oft til að áætla að vel sé hugsað um viðkomandi barn. Því það er ekki bara garn- ið í flíkinni sem veitir hlýju heldur er það önnur og meiri hlýja sem umliggur barnið. Það er lilýja og væntumþykja frá þeim sem pijónaði flíkina og gaf barninu. PRJÓNAÐ úr Smart eða Peer Gynt 100% ull. Húfa Og - sokkar í stíl! NÚ ER um að gera að fara að prjóna jólagjaf- imar. Það er hlýlegt og persónulegt að gefa húfu og sokka í stíl. Lambhúshettan yljar líka. Stærðir á börn og fullorðna. Húfa með eyrum ** STÆRÐIR: 2-4 6-10 dömu herra Vídd. 46 49 51 54 sm GARN: SMART Kremað nr. 803 1 1 2 2 dokkur Rautt nr. 842 1 í allar stærðir Karrýgult nr. 817 1 í allar stærðir Einnig er hægt að nota PEER GYNT PRJÓNAR: 40 sm hringprj. nr. 3 og 3.5 Sokkaprjónar nr. 3.5 PRJÓNFESTA: 22 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 3.5 = 10 sm Ef of laust er prjónað þarf fínni prjóna. Ef of fast er prjónað þarf grófari prjóna. Fitjið upp með kremuðu á hringprjón nr. 3, , 100-108-114-120 lykkjur. Prjónið 3 sm slétta í "* hring. Skiptið yfir í karrýgult og prjónið 1 gataröð þannig: Sláið bandi upp á prjóninn, prjónið 2 sléttar saman til skiptis allan prjón- inn = brotlína. Prjónið 1. -13. prjón í munstr- inu. Skiptið yfír á hringprjón nr. 3.5 og ljúkið við munstrið. ATHUGIÐ: Á 2-4 ára og herra- stærð er byrjað að prjóna munstrið við örina sem sýnir rétta stærð og síðan er það endur- tekið allan prjóninn = 5-6 heilar rósir. Á 6-10 ára og dömustærð er fyrst prjónuð 1 brugðin = miðja að aftan, byrjið að prjóna munstrið við örina sem sýnir rétta stærð og endurtakið síðan það sem er innan endurtekningarmerk- isins og endið eins og byrjað var. Þegar munstrinu lýkur er prjónað slétt með krem- uðu. ATHUGIÐ: Á dömustærðinni eru teknar úr 2 lykkjur á 1. prjóni = 112 lykkjur. Þegar ■ , mælast 9-10-10-11 sm er tekið úr þannig: * * Prjónið 23-25-26- 28 sléttar, 2 sléttar saman *. Endurtakið frá * - * allan prjóninn. Takið úr á öðrum hverjum prjóni þar til 48 lykkjur eru eftir og síðan á hverjum prjóni þar til 4 lykkj- ur eru eftir. Prjónið þessar 4 lykkjur í hring 2 sm (tota). Slítið írá, dragið bandið í gegnum lykkjurnar og herðið vel að. Brjótið um brot- línuna yfir á rönguna og saumið niður. Eyru: Fitjið upp 9 lykkjur með rauðu á prjón nr. 3.5. Prjónið slétt prjón fram og til baka með 1 kantlykkju í hvorri hlið sem alltaf eru prjónaðar sléttar. Aukið í 1 lykkju í byrjun og enda annars hvers prjóns fyrir innan kant- lykkjumar þar til 19-19-21-21 lykkja er á prjóninum. Prjónið 10 prjóna án útaukningar. Skiptið yfir í karrýgult og prjónið 10 prjóna. Takið síðan úr 1 lykkju í byrjun og enda ann- ars hvers prjóns fyrir innan kantlykkjurnar þar til 9 lykkjur eru eftir. Fellið af. Brjótið eyrað tvöfalt. Prjónið upp með rauðu á prjón nr. 3, um það bil 35-35-41-41 lykkju í gegnum tvöfalt eyrað (ekki þar sem eyrað var brotið saman). Snúið við og prjónið 1 prjón brugð- inn. Skiptið yfir í karrýgult og prjónið 1 gata- röð eins og á húfunni = brotlína. Snúið við og prjónið 1 prjón brugðinn. Fellið af. Brjótið um brotlínuna yfir á rönguna og saumið niður. Nælið eyrun innan á miðjuna á innafbrotinu með hæfilegu bili á milli og saumið fast. Gott getur verið að setja snúrur í eyrun á minnstu stærðunum. Lambhúshetta STÆRÐIR: 2-4 6-8 ára GARN: SMART Rautt nr. 842 2 3 dokkur Kremað nr. 803 1 í báðar stærðir Karrýgult nr. 817 1 í báðar stærðir Einnig er hægt að nota PEER GYNT PRJÓNAR: 40 sm hringprj. nr. 3 og 3.5 Fitjið upp með rauðu á hringprjón nr. 3.5, 161-168 lykkjur. Prjónið 2 sm slétta í hring. Snúið nú röngunni út og prjónið 2 prjóna slétta. Takið nú úr þannig: * 5 sléttar, 2 slétt- ar saman *. Endurtakið frá * - * allan prjón- inn. Endurtakið úrtökurnar á 3. hverjum prjóni 2 sinnum (það verður alltaf 1 lykkju minna á milli hverrar úrtöku = 92-96 lykkjur. Prjónið áfram þar til öll lambhúshettan mælist 8-9 sm. Skiptið yfir á hringprjón nr. 3. Prjónið stroff 1 sl. 1 br. í hring 3 sm. Setjið 15-17 lykkjur í miðju að framan á nælu. Skipt- ið aftur yfir á hringprjón nr. 3.5. Prjónið slétt prjón fram og til baka yfir hinar lykkjurnar = 77-79 lykkjur þar til mælast 19-21 sm frá því að miðjulykkjurnar voru settar á nælu. Fellið af 29-30 lykkjur í hvorri hlið = 19 lykkjur í miðjunni. Prjónið miðstykkið þar til það er jafn langt og lykkjurnar sem felldar voru af. Setjið þær á nælu. Saumið miðstykkið við hliðarstykkin. Stroff í kringum andlitið: Prjónið upp með rauðu á hringprjón nr. 3, 118-136 lykkjur meðfram andlitinu. Prjónið stroff 1 sl. 1 br. í hring 2 sm. Fellið af með sléttum og brugðn- um lykkjum. Áttablaðarósina má sauma í með prjónsaumi í lokin (sjá munsturteikningu við sokka). Hún er staðsett um það bil 4 sm frá aftari bnín á miðstykkinu. Sokkar með uppábroti STÆRÐIR: 2-4 6 8 10-12 ára M GARN: SMART Kremað nr. 803 3 3 4 4 4 dokkur Rautt nr. 842 1 í allar stærðir Karrýgult nr. 817 1 í allar stærðir Einnig er hægt að nota PEER GYNT PRJÓNAR: Sokkaprjónar nr. 3 og 3.5 Fitjið upp með kremuðu á sokkaprjóna nr. 3, 56-60-64-68-72 lykkjur. Prjónið stroff 1 snú- in slétt (farið aftan í lykkjuna), 1 br. 5 hringi. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr. 3.5. Prjónið munstur eftir teikningu, byrjið að prjóna við örina sem sýnir rétta stærð. ATHUGIÐ: Síð- asta lykkjan á hringnum er alltaf prjónuð brugðin = miðja að aftan. Munstrið verður eins báðum megin við brugðnu lykkjuna. Þeg- ar munstrinu lýkur eru prjónaðir 2-3-3-4-4 hringir sléttir með kremuðu og á síðasta hringnum eru teknar úr 6-8-8-10-10 lykkjur með jöfnu millibili = 50-52-56-58-62 lykkjur. Snúið nú röngunni út og prjónið slétt með kremuðu (brugðna lykkjan í miðju að aftan heldur sér). Takið úr 1 lykkju báðum megin við brugðnu lykkjuna með 2-2-2-2.5-2.5 sm millibili þar til 38-40-44-46-50 lykkjur eru á sokknum. Prjónið áfram þar til mælast 13-14- 15-16-16 sm frá síðasta prjóni með karrýgulu. Skiptið nú í hliðum með 19- 20-22-23-25 lykkj- ur á hvorum helming. Prjónið hæl yfir aftari helminginn af lykkjunum. Prjónið slétt prjón fram og til baka 4-5-5-6-6 sm (takið fyi'stu lykkjuna alltaf óprjónaða fram af). Úrtaka á hælnum: Prjónið þar til 5-6-6-7-7 lykkjur eru eftir í annarri hliðinni, snúið við, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða fram af og prjónið þar til 5-6-6-7-7 lykkjur eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða fram af og prjónið þar til 1 lykkja er eftir fyr- ir framan þar sem snúið var við, takið hana óprjónaða fram af, 1 slétt, steypið óprjónuðu Munstur á húfu 2-4áraog herrastærð , Byrjið hér. □ = Kremað nr. 803 SJ = Rautt nr. 842 Endurtakið □ = Kremað nr. 803 gj = Rautt nr. 842 H = Karrýgult nr. 817 12 ára Byijið hér lykkjunni yfir. Snúið við og prjónið þar til 1 lykkja er eftir fyrir framan þar sem snúið var við, prjónið 2 brugðnar saman. Snúið við og endurtakið úrtökurnar þar til allar hliðar- lykkjurnar hafa verið teknar úr. Prjónið nú upp 9-11-11-13-13 lykkjur með- fram brúnunum á hælnum. ATHUGIÐ: Hr- ingurinn byrjar á miðjum hæl. Prjónið slétt í hring og prjónið 2 sléttar saman í lok fyrsta prjóns, en í byrjun fjórða prjóns er 1 lykkja tekin óprjónuð fram af, prjónið 1 slétta, steyp- ið óprjónuðu lykkjunni yfii\ Takið þannig úr á öðrum hverjum hring þar til 36-40-44-48-52 lykkjur eru á hringnum. Prjónið áfram þar til fóturinn mælist 14-16-18-20-21 sm eða þar til 3 sm vantar upp á fulla lengd. Skiptið nú lykkjunum jafnt á prjónana. Prjónið 2 sléttar saman í byrjun hvers prjóns á öðrum hverjum hring 3 sinnum og síðan á hverjum hring þar til 8 lykkjur eru eftir. Slítið frá. Dragið bandið í gegnum lykkjurnar sem eftir eru og herðið vel að. Brjótið uppábrotið yfir á réttuna. * Reynimelur — 2ja herb. Vorum að fá í einkasölu 2ja herb. 53 fm íbúð á 2. hæð í neðstu blokkinni við Reynimel. íbúðin getur losnað strax, skuldlaus. Blokkin nýtekin í gegn að utan. Suðursvalir. Fallegt útsýni. Einstök staðsetning, örstutt í alla þjónustu. Verð 5,6 millj. i Skólavörðustíg 38a, sími 552 9077. Borðdúkar Margar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.