Morgunblaðið - 03.09.1998, Side 49

Morgunblaðið - 03.09.1998, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 49 FRETTIR Skólabörn og umferðin LOFTUR Atli Sveinsson með 20 punda hæng sem hann veiddi í Stóru-Laxá á dögunum. UMFERÐARRÁÐ hefur sent frá sér eftirfarandi nú þegar skólar hefja vetrarstarfið: „Starfsemi grunnskóla um allt land er að hefjast þessa dagana. Tugir þúsunda barna og unglinga eru þar með á leið í og úr skóla hvern virkan dag. Umferðarað- stæður á skólaleið barna eru mjög mismunandi og því er full ástæða til að hvetja foreldra og aðra for- ráðamenn barna til að segja þeim skýi-ar reglur um hvernig þau geti komist öruggast leiðar sinnar. Þá má ekki gleyma þein-i staðreynd að umferð eykst yfirleitt í septem- ber samanborið við sumarmánuð- ina og því fylgir aukin hætta. Nauðsynlegt er að foreldrar undirbúi böm sín sem best undir skólagönguna en ábyrgð öku- manna er einnig mikil og ber þeim í hvert skipti sem þeir verða varir við böm á ferð í umferðinni að gera sér grein fyrir að þeim kann að vera hætta búin sé ekki sýnd ýtrasta varúð. Sérstök ástæða er til að hvetja til aðgæslu í nágrenni við skóla og aðra staði þar sem fram fer starfsemi sem tengist börnum og unglingum. Hafa þarf í huga að viðbrögð barna í umferð- inni em ekki alltaf rökrétt. Þeim hættir til að bregðast öðravísi við en ökumenn búast almennt við. Þess vegna verða þeir sem stýra bílum að gera ráð fyrir því að við- brögð barna geti verið órökrétt. Lögreglan mun leggja mikla áherslu á eftirlit við grannskóla og Háskólahátíð Tveir sæmdir heiðursdokt- orsnafnbót HÁSKÓLAHÁTÍÐ verður haldin í Háskólabíói laugardaginn 5. sept- ember kl. 15-18. Athöfnin hefst með kjöri tveggja heiðursdoktora við læknadeild, þeirra Ólafs Ólafssonar landlæknis og Þóris Helgasonar. Ólafur Ólafs- son er sæmdur heiðursdoktors- nafnbót fyrir áralangt starf í þágu heilbrigðismála íslensku þjóðarinn- ar jafnt sem faglegur leiðtogi og siðferðilegur eftirlitsmaður. Þórir Helgason er heiðraður fyrir fram- lag sitt til þekkingar og framfara á sviði sykursýki sem hefur skipað íslandi í fremstu röð í meðferð syk- ursjúkra. Síðan mun Páll Skúlason, rektor Háskóla íslands, flytja ræðu sína um stöðu og stefnu háskóla í nú- tímasamfélagi og ýmis nýmæli í starfi Háskóla íslands undir heit- inu Straumhvörf í starfi háskóla. Næst flytur menntamálaráðherra ávai-p og að því loknu munu þau Guðvarður Már Gunnlaugsson, for- maður Félags háskólakennara, Ás- dís Magnúsdóttir, formaður Stúd- entaráðs, og Ragnhildur Hjalta- dóttir, stjórnarformaður Hollvina- samtaka Háskóla íslands, ávarpa hátíðargesti. í upphafi dagskrár og á milli dagskráratriða mun Strengjakvar- tett Sigrúnar Eðvaldsdóttur leika. Að lokinni athöfn í aðalsal verður gestum boðið upp á léttar veitingar í anddyri bíósins. Til Háskólahátíðarinnar er boðið æðstu embættismönnum þjóðar- innar, borgaryfirvöldum, fulltrúum bæjarstjórna, starfsmönnum Há- skóla íslands, fulltrúum stúdenta og hollvinasamtaka ásamt ýmsum fulltrúum atvinnulífs og fjölmiðla. September- helgarmót T.R. HE LGARSKÁKMÓT fer fram helgina 4.-6. september í félags- heimili Taflfélags Reykjavíkur. Samkvæmt venju fara fram þrjár atskákir á fóstudagskvöldið frá kl. verður fyrst og fremst hugað að ökuhraða og akstri við gangbraut- ir. Einnig mun lögregla fylgjast vel með hvernig ökumenn hleypa bömum sem þeir aka í skólann út úr bílum. Miklu máli skiptir að þau fari ekki út á götu heldur að þeim sé hleypt úr gangstéttarmegin. Bæklingur til foreldra sex ára bama Sex ára börn, sem eru að hefja skólagöngu í fyrsta sinn, þurfa sérstakrar leiðbeiningar við og í því skyni hefur Umferðarráð í samstarfi við Námsgagnastofnun gefið út nýtt námsefni - Á leið í skólann, sem ætlað er foreldrum þeirra barna sem eru að hefja skólagöngu. I þessu hefti er fjallað um hlutverk foreldra í umferðar- uppeldi, sérstöðu barna sem veg- farenda, val á gönguleiðum og önnur mikilvæg atriði varðandi ör- yggi barna. Nauðsynlegt er að vekja athygli á nauðsyn þess að börn á leið í skóla og í tengslum við íþróttaæf- ingar og annað félagsstarf sem fram fer eftir að skyggja tekur noti endurskinsmerki. Gildi þeirra er ótvírætt. Allir þurfa að leggja sig fram við að búa bömum eins öraggar að- stæður í umferðinni og kostur er. Þar er hlutverk foreldra og einnig ökumanna mikilvægt. Gerum allt sem í okkar valdi stendur til að gera umferðina öruggari fyrir böm.“ 20 en svo tvær kappskákir á laug- ardaginn, sem hefjast kl. 10.00 og kl. 17, tvær kappskákir á sunnudag sem hefjast kl. 10.30 og kl. 17. Tefldar era 7 umferðir eftir Monrad-kerfi með umhugsunar- tímanum l'Æ klst. á 30 leiki og síð- an 30 mín. til að klára. Verðlaun era 12.000 kr. fyrir 1. sæti, 8.000 kr. fyrir 2. sæti og 5.000 kr. fyrir 3. sæti. Fyrir hverja 20 þátttakendur umfram 35 bætast við 5.000 kr. á hvert sæti. Dagskráin er sem hér segir: Föstudagur 4. september kl. 20-23 1.-3. umferð, laugardagur 5. sept- ember kl. 10-14 4. umferð, laugar- dagur 5. september kl. 17-22 5. umferð, sunnudagur 6. september kl. 10.30-14.30 6. umferð og sunnu- dagur 6. september kl. 17.00-22.00 7. umferð. Þátttökugjöld: 16 ára og eldri kr. l. 500 (kr. 2.300 utanfél.) og 15 ára og yngri kr. 1.000 (kr. 1.500 utan- fél.). Óllum er heimil þátttaka. Kynning á til- skipunum um lækningatæki HÉR á landi hafa verið lögfestar tvær tilskipanir Evrópusambands- ins um lækningatæki og um virk ígræðanleg lækningatæki og sú þriðja er væntanleg, um lækninga- tæki til nota á rannsóknastofum. Tilskipununum er fyrst og fremst ætlað að tryggja neytendavernd og auka viðskiptafrelsi og era í þeim m. a. ákvæði um gæðaeftirlit og markaðseftirlit og um skráningu og innkallanir á gallaðri vöru. Gert er ráð fyrir aukinni notkun staðla þannig að þegar sannreynt hefm- verið að tiltekin vara sé í samræmi við viðeigandi staðal fær hún CE- merkingu. Þetta hefur nú þegar haft í för með sér ýmsar breytingar á inn- flutningi, markaðsetningu og eftir- liti með lækningatækjum á markaði hér á landi en meiri breytinga er að vænta. Því hafa heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytið og Lyfjanefnd ríkisins boðið hingað til lands helsta sérfræðingi Norðmanna á þessu sviði, Jakob Nordan, til þess að kynna áhrif tilskipananna. Jafn- framt mun Jakob Nordan vera til ráðgjafar fyrir innflytjendur, selj- endur, notendur og aðra sem kunna að vilja kynna sér málið. Jakob flytur fyrirlestra í ráð- stefnusölum ríkisins frá kl. 9-12 föstudaginn 4. september en mun síðan hitta smærri hópa á föstudag og mánudag. Þeir sem vilja sækja fyrirlestrana eða færa sér í nyt þessa ráðgjöf er bent á að hafa sam- band við Lyfjanefnd ríkisins. Árleg merkja- sala Krabba- meinsfélagsins NÚ UM helgina verða seld merki og pennar um allt land til styrktar starfi Krabbameinsfélagsins. Selt verður við verslanir og gengið í hús þar sem því verður við komið. Allur ágóði rennur til aðildarfélaga Krabbameinsfélags Islands en það eru 24 svæðisbundin krabbameins- félög og fimm stuðningshópar. „Nokkur svæðisbundnu félag- anna hafa að miklu eða öllu leyti tekið við fræðslu- og forvamarstarfi í sinni heimabyggð og gengið vel. Mikill áhugi ríkir hjá fleiri félögum að takast á við samskonar verkefni sem fyrst. Stuðningshóparnir vinna marg- víslegt og óeigingjarnt starf í þágu sjúklinga og aðstandenda þeirra og hefur það ómetanlega þýðingu. Merkjasalan á að styðja þessa starfsemi og væntir Krabbameins- félagið þess að landsmenn taki sölu- fólki vel og noti þetta tækifæri til að sýna hug sinn og efla starf félagsins í baráttunni við krabbamein, segir í frétt frá Krabbameinsfélaginu. Starfsemi Krabbameinsfélags Is- lands felst m.a. í leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum kvenna, krabbameinsrannsóknum, fræðslu um krabbameinsvarnir og stuðningi við sjúklinga. Félagið var stofnað 1951. Helgarferð út í óvissuna AÐ LOKNU sumri hefur Ferðafé- lag íslands um árabil efnt til svo- kallaðrar óvissuferðar og er hún að þessu sinni um næstu helgi, 4.-6. september. I ferðinni, sem farin er á fóstudagskvöldið kl. 20, fá þátt- takendur ekki að vita fyrirfram hvert halda skal og gerir það ferð- ina spennandi. Heimkoma er um kvöldmatarleytið á sunnudag en fai-miða þarf að sækja á skrifstofu Ferðafélagsins, Mörkinni 6. Á laugardag, 5. september, kl. 8 verður gönguferð á Ljósufjöll á Snæfellsnesi. Sunnudaginn 6. september verða farnar ferðir í Hvalfirði, kl. 10.30 er gönguferð á Múlafjall og kl. 13 er gengið frá Fossá í Seljadal og farið að Reyni- vallaseli. Merkjasöludag- ur Hjálpræðis- hersins HINIR árlegu merkjasöludagar Hjálpræðishersins á Islandi verða að þessu sinni frá miðvikudeginum 2. til föstudagsins 4. september. Merkjasala Hjálpræðishersins er þýðingarmikil fjáröflunarleið fyrir starf hans hér- á landi. Tekjur af merkjasölunni eru notaðar til að fjármagna barna- og unglingastarf- ið sem nú er að hefjast að afloknu sumarfríi. Merkið verður selt á götum Reykjavíkur og einnig verður víða selt í húsum. Verðið er hið sama og undanfarin ár, 200 kr. LEIÐRÉTT Sólveig er Bentsdóttir í FRÉTT Morgunblaðsins um Kvótaþing Islands í gær var Sólveig U. Bentsdóttir, framkvæmdastjóri Kvótaþings, sögð Benediktsdóttir í myndatexta. Um leið og mistökin leiðréttast hér með er beðist vel- virðingar á þeim. Sjóbirtingur snemma á ferð í Tungufljóti Siðustu daga hefur verið vaxandi sjó- birtingsveiði í Tungufljóti í Vestur- Skaftafellssýslu og þykir ýmsum það óvenjusnemmt þar sem Fljótið hefur löngum verið seinna til en aðrar sjó- birtingsár á Suðurlandi. Það fer eftir ýmsu hversu snemma fiskur kemur og ef til vill hefði hann komið fyn' í íyi-ra ef selur hefði ekki teppt göngur úr Kúðafljóti. Sama dag og selurinn var felldur og dreginn dauður upp á sand byrjaði mokveiði. Þetta var snemma í september og síðan var mikil veisla veiðimanna fram í fyrstu viku október. Oftast byrjar þó ekki ballið fyrr en seinni hluta september og stendur fram í október. Nú ætlar það að byrja snemma. I gær voru komnir 46 sjóbirtingar á land, einnig 38 bleikjur og sjö laxar. Fimm laxanna veiddust í júlí, en birt- ingsveiðin hefur verið að koma til síð- ustu vikuna í ágúst. Eitt versta sumarið í Álftá Ekki segja allir góðar fréttir frá sumrinu. Leigutakar Álftár á Mýrum segja sumarið hafa verið eitt það versta sem menn muni eftir. I gær voru aðeins komnir 150 laxar á land, þar af 35 úr svokallaðri Veitu, sem er byggðum ofar og myndar Álftá ásamt fleiri sprænum. Veitt er á eina stöng í Veitu og því eru laxar veiddir þar efra ekki bókaðir í Álftárbókina. LOFTUR Atli og Hilmar Hans- son með 16 laxa sem þeir veiddu á einum degi á neðstu svæðum Stóru-Laxár nú í byrjun vikunn- ar. Hollið, fjóiar stangir í tvo daga, veiddi 39 laxa og var helmingurinn 10 til 20 pund. Þar voru aðeins 115 laxar og 60 til 70 sjóbirtingar, sem einnig er óvenju lág tala. Veiði að glæðast í Litluá „Það era komnir 472 fiskar á land í sumar. Það'var frekar lélegt um mið- bik sumarins, en síðustu daga hefur veiðin verið að glæðast mikið. Bæði er að koma meira af sjóbirtingi og einnig bleikja, sem lítið var um í sum- ar. Það eru margir fallegir fiskar að veiðast núna og þessi tala, þótt hún hafi oft verið hærri í gegnum árin, er 100 fiskum hærri en veiddist allt síð- asta sumar. Það eru enn átta dagar eftir og mér sýnist að lokasprettur- inn gæti orðið skemmtilegur," sagði Margrét Þórarinsdóttir í Laufási, veiðivörður við Litluá í Kelduhverfi, í gærdag. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, FANNEY GUÐMUNDSDÓTTIR, Nesbala 12, Seltjarnarnesi, sem lést á heimili sínu mánudaginn 31. ágúst, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstu- daginn 4. september kl. 15.00. Þeir, sem vilja minnast henmnar, eru berðnir um að láta heimahlynningu Krabbameinsfélagsins njóta þess. Friðjón Guðmundsson, Heimir Hávarðsson, Þuríður Magnúsdóttir, Haraldur Friðjónsson, Magnús Örn Friðjónsson, Elín Árnadóttir, Guðmundur V. Friðjónsson, Þórlaug Sveinsdóttir, Héðinn Friðjónsson og ömmuböm. + Móðir mín, tengdamóðir og amma, ELÍN VILHJÁLMSDÓTTIR frá Vestmannaeyjum, til heimilis á Suðurbraut 2a, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 4. september kl. 15.00. Pétur Þórarinsson, íris Björk Gylfadóttir, Gylfi Þór Pétursson, Arnar Pétursson, Bjarki Pétursson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.