Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.09.1998, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forsætisráðherra segir að ályktun LÍ geti ekki orðið grundvöllur fundar Arnarvarpið tókst vel Formaður LI sér ekki ástæðu til að draga ályktunina til baka GUÐMUNDUR Björnsson, formaður Lækna- félags Islands, segir að stjórn Læknafélagsins sjái ekki nokkra ástæðu til þess að draga álykt- un sína til baka og telji hana fyllilega eiga rétt á sér, en í bréfí aðstoðarmanns forsætisráðherra, sem hann ritar fyrir hönd forsætisráðherra til stjórnar Læknafélagsins, er meðal annars spurt hvort stjórn LÍ hafí fallið frá ályktun sinni frá 25. ágúst síðastliðnum og ef svo sé ekki hvenær megi þá vænta þess að það verði gert. I bréfinu sem Orri Hauksson, aðstoðarmaður ráðherra, undirritar og er dagsett 28. ágúst seg- ir svo: „Stjórn læknafélagsins hefur með bréfí óskað eftir fundi með forsætisráðherra á grund- velli ályktunar sem stjórn Læknafélags Islands hefur gert og þar sem hörmuð eru orð ráðherr- ans og hann krafínn um afsökunarbeiðni til lækna og allra heilbrigðisstétta! I ljósi upplýsinga, sem fram hafa komið að undanfömu, m.a. yfirlýsingar landlæknis, for- manns stjórnar L.I. og margvíslegar upplýsing- ar um forkastanlega meðferð á viðkvæmum trúnaðarupplýsingum sem varða sjúklinga, er af hálfu forsætisráðherra spurt: 1) Hverjir sitja í stjórn L.Í.? 2) Hverjir stóðu að fyrrgreindri ályktun stjórn- arinnar? 3) Hefur stjórn L.í. þegar fallið frá ályktun sinni frá 25. ágúst sl. - ef ekki, hvenær má vænta þess að það verði gert? 4) Má vænta þess að stjóm L.í. muni biðjast af- sökunar á ályktun sinni eða mun yfirklór for- manns stjórnarinnar í fjölmiðlum vera látið duga? Af hálfu forsætisráðherra er talið augljóst að þessar upplýsingar þurfí að liggja fyrir, þar sem hin gamla ályktun getur augljóslega ekki orðið grundvöllur að fundi hans og stjórnar L.í.“ Mjög undrandi „Við eram náttúrlega mjög undrandi á þessu bréfí og því sem í því stendur," sagði Guðmund- ur í samtali við Morgunblaðið. „Þessi ályktun Læknafélagsins var samin að vel athuguðu máli í kjölfar þeirra ummæla sem féllu um verndun persónuupplýsinga og ég tel ekki ástæðu til að við drögum hana til baka eins og farið er fram á í þessu bréfi,“ sagði hann ennfremur. Hann bætti því við að þeir fögnuðu allri um- ræðu um persónuvernd og vildu endilega taka þátt í henni. Sú umræða færi daglega fram í læknasamtökunum og meðal lækna. „Umræðan hófst jú upp úr umræðum um gagnagrunns- frumvarpið eða ummælin voru látin falla af því tilefni og við teljum mjög mikilvægt að umræð- an sé áfram á þeim vettvangi, þar sem í því framvarpi er mjög margt sem þarf að skoða bet- ur með tilliti til persónuverndar," sagði Guð- mundur. Hann sagði að það yrði bara að koma í ljós hvort það yrði grandvöllur fyrir fundi með for- ystu Læknafélagsins og forsætisráðherra. Þeir væru ekki tilbúnir að draga þessa ályktun til baka. Þeir teldu enga ástæðu til þess og að hún ætti fyllilega rétt á sér. Aldrei fleiri ungar álegg TUTTUGU og fimm arnarangar komust á legg í sumar og hafa ekki áður svo margir ungar komist upp frá því farið var að fylgjast reglu- lega með arnarstofninum fyrir um 40 áram. Amarstofninn hefur stað- ið í stað síðastliðin tíu ár og verið um 40 pör, en alls er talið að emir í landinu séu nú 130-140 talsins. í frétt frá Fuglavemdarfélagi íslands segir að góðan varpárang- ur ama í ár megi sennilega rekja til óvenjuhagstæðs tíðarfars á Vesturlandi. Þannig hafí engin norðanáhlaup orðið á viðkvæmasta tíma í maí- og júnímánuði í vor, auk þess sem margir landeigendur hafi sýnt erninum sérstaka nærgætni. Naumast áhugi á flugi til Lúxem- borgar ,ÁÆTLUNARFLUG kallar á um- talsverða fjárfestingu og hefur áhættu í fór með sér og hugmynd um að taka upp áætlunarflug milli ís- lands og Lúxemborgar hefur ekki verið rædd á stjórnarfundi hjá okk- ur,“ sagði Ómar Benediktsson, íram- kvæmdastjóri íslandsflugs, aðspurð- ur um málið í gær. Forráðamenn Atlanta gera heldur ekki ráð fyrir að taka upp slíkt flug eftir að Flugleiðir hætta Lúxemborgarflugi upp úr næstu áramótum. Ómar Benediktsson sagði verkefni íslandsflugs næg um þessar mundir, auk áætlunarflugsins innanlands og fraktflugs milli landa væri framund- an stórt verkefni í Karíbahafinu sem hefjast á í nóvember. Hann sagði áætlunarflug til útlanda kalla á sölu- kerfí og ýmsar aðrar fjárfestingar, því fylgdu margs konar yfírflugs-, lendinga- og afgreiðslugjöld án þess að menn hefðu öraggar tekjur. ------------------ íbúðalánasjóður Guðmundur til starfa 15. mars STJÓRN íbúðalánasjóðs ákvað á fundi sínum í gærmorgun að ráða Guðmund Bjamason framkvæmda- stjóra íbúðalánasjóðs og að hann komi til starfa 15. mars 1999 en þang- að til mun hann gegna embættum umhverfis- og landbúnaðarráðherra. Jafnframt ákvað stjórnin að ráða Hrólf Ölvisson tímabundið til ára- móta til að vinna með stjóminni að undirbúningi þess að íbúðalánasjóður taki til starfa í upphafi 1999. Morgunblaðið/Kristinn Lakari árangur á Vestfjörðum Þá segir að þrátt fyrir góðan varpárangur í heild hafí arnarvarp á Vestfjörðum og þó einkum við norðanverðan Breiðafjörð gengið óvenju illa. A þessu svæði hafi ein- ungis fjögur pör komið upp ungum. „Astæður fyrir lélegum varpár- angri á þessum svæðum eru ekki þekktar til fulls og þarfnast sér- stakrar rannsóknar," segir enn- fremur. N ámsannir framundan HÚN er íbyggin þessi unga dama, þar sem hún bíður þess að hringt verði inn í Rimaskóla í Grafarvogi, enda framundan allur veturinn með sínar námsannir. Meistaranám í viðskipta- og hagfræðideild HÍ Kennsla á ensku liður í alþjóðasamskiptum Kosningar SUF Landsstjórn vísar kæru frá LANDSSTJÓRN Framsóknar- flokksins ákvað á fundi á ísafírði í gær að vísa frá kæra stjómar Félags ungra framsóknarmanna (FUF) um að kjör Árna Gunnarssonar í embætti formanns Sambands ungra fram- sóknarmanna (SUF) í júní sl. hefði verið ólögmætt. Telur stjórn FUF að Ami Gunnarsson hafi í júní brotið lög SUF um framkvæmd kosninga til stjómar sambandsins. Þetta þýðir að sögn heimildarmanna Morgunblaðs- ins að ungir framsóknarmenn verði að leysa málið sín á milli. Að sögn Dagnýjar Jónsdóttur sem sæti á í stjórn FUF hafa ungir fram- sóknannenn ekki ákveðið hvernig tekið skuli á málinu í kjölfar þessar- ar niðurstöðu landsstjórnarinnar, en það verði skoðað á næstu dögum. VIÐSKIPTA- og hagfræðideild Há- skóla íslands býður upp á nám til meistaraprófs í hagfræði þar sem öll kennsla fer fram á ensku. Er það liður í alþjóðasamskiptum deildar- innar við erlenda stúdenta og við- leitni til að auðvelda íslenskum stúdentum nám við erlenda háskóla. Einnig er boðið upp á meistaranám í viðskiptafræði þar sem lögð er áhersla á að hafa námið með alþjóð- legum blæ. Nemendur stunda þannig þriðja hluta námsins við er- lenda háskóla. Deildin hefur gert almenna stúd- entasamninga við marga háskóla er- lendis og er viðskiptaskor aðili að NOREK, sem er net 27 viðskiptahá- skóla á Norðurlöndum. „Við viljum að nemendur okkar komist að í erlendum skólum," segir Runólfur Smári Steinþórsson, for- maður viðskiptaskorar. „Erlendu skólarnir vilja koma nemendum sín- um að hjá okkur og við viljum taka á móti þeim.“ Að sögn Runólfs Smára á mikil þróun sér stað í deildinni og sú ákvörðun að kenna námskeið á ensku hefur mælst vel fyrir hjá ís- lenskum stúdentum, nemendur eru ánægðir með að fá tækifæri til þess að æfa sig í enskri tungu og eigi þeir í vandræðum er þeim boðið upp á sérstaka aðstoð hjá sér. Hann segir að miðað við fjármagn sé kennslan á ensku hagkvæmasta leiðin til að verða við vilja beggja aðila. Fjöldi nýnema við deildina hefur verið stöðugur síðustu árin, eða um 300, og í haust hefja 27 nemar meistaranám í viðskiptafræði og bætast við þá 13 sem voru fyrir. Sérblöð í dag I l i VIDSiaPTI AIVINNULÍF Fvrirsætur Eskimo til Tomsk Leitað fanga í Síberíu/B5 Verslun Yfirmenn hjá Baugi Endurskoðandi söðlar um/B4 Adams gagnrýnir Glenn Hoddle, þjálfara Englands / C1 FH-ingar skutust upp í annað sætið í 1. deild / C4 ISSÍMJEt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.