Morgunblaðið - 03.09.1998, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Læknaskort-
ur í N-Þing-
eyjarsýslu
STJÓRN heilsugæslunnar í N-
Þingeyjarsýslu hefur ritað land-
lækni og heilbrigðisráðuneytinu
bréf vegna alvarlegs skorts á lækn-
um og hjúkrunarfræðingum í hér-
aðinu. Aðeins einn læknir er starf-
andi á svæðinu og hjúkrunarfræð-
ingur í hálfri stöðu: Að sögn Gunn-
laugs Júlíussonar, sveitarstjóra á
Raufarhöfn, hafa engin viðbrögð
orðið við ítrekuðum auglýsingum
eftir læknum og hjúkrunarfræð-
ingum.
Þrjár stöður lækna eru í hérað-
inu, ein á Kópaskeri, önnur á Rauf-
arhöfti og sú þriðja á Þórshöfn.
Læknirinn sem verið hefur á Rauf-
arhöfn sl. eitt ár er að fara og er þá
einungis einn læknir eftir, sem er á
Kópaskeri. Hjúkrunarfræðingur er
í hálfu starfí á Þórshófn, en hjúkr-
unarfræðinga skortir á hina staðina.
Itrekaðar auglýsingar
en engar fyrirspurnir
Gunnlaugur sagði að búið væri
ítrekað að auglýsa eftir læknum,
en engar fyrirspurnir hefðu
borist. Ljóst væri orðið að það
væri ekki á valdi heimamanna
einna að leysa þennan vanda og
þess vegna hefði stjórn heilsu-
gæslunnar í sýslunni ritað bréf
þar sem gerð er grein fyrir stöðu
mála og óskað eftir aðstoð. Bréfið
hefur verið sent landlækni, heil-
brigðisráðuneytinu, héraðslæknin-
um á Norðurlandi eystra og þing-
mönnum kjördæmisins.
Gunnlaugur sagði að læknamál
hefðu verið í þokkalega góðu lagi
undanfarin ár í N-Þingeyjarsýslu,
en af ýmsum ástæðum hefðu lækn-
ar og hjúkrunarfræðingar flutt sig
um set og svo virtist sem afar erfitt
væri að fá fólk í staðinn.
Ekki viðunandi
öryggisþj ónusta
Sigurður Halldórsson, læknir á
Kópaskeri, sagði að hann væri bú-
inn að reyna mikið til að fá lækna í
héraðið en án árangurs. Hann
sagði að nú væru tveir læknar á
Vopnafirði og samkomulag hefði
KEA opnar matvöru-
verslun í Reykjavík
Á HÁDEGI í dag verður opnuð í
Mjóddinni í Reykjavík ný matvöru-
verslun í eigu Kaupfélags Eyfirð-
inga á Akureyri. Ber hún nafnið
Nettó og er svokölluð lágvöruverðs-
verslun og verður rekin undir sama
hatti og Nettó á Akureyri og með
sama verslunarstjóra. Er þetta í
fyrsta sinn sem KE A haslar sér völl
í verslunarrekstri utan Eyjafjarðar.
Sigmundur Ófeigsson, fram-
kvæmdastjóri verslunarsviðs KEA,
segir að með þessari nýju verslun
séu þáttaskil hjá fyrirtækinu sem nú
haldi innreið sína inn á höfuðborgar-
svæðið. Hann segir fleiri verslanir
hugsanlega sigla í kjölfarið og
Hannes Karlsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri verslunarsviðsins,
benti á að KEA ræki bæði bygg-
ingavöruverslanir og lyfjaverslanir
og gæti næsta verslun á höfuðborg-
arsvæðinu allt eins verið á þeim
sviðum. En hver er ástæða þess að
KEA opnar verslun í Reykjavík?
„Ibúum á sölusvæði okkar, sem
er Eyjafjörður, fer fækkandi en
þeir eru núna 21 þúsund. Viðbrögð
okkar eru að reyna að ná til stærri
markaðar og við ætlum okkur að ná
fótfestu á höfuðborgarsvæðinu með-
al annars fyrir framleiðsluvörur
kaupfélagsins," segir Sigmundur.
Verslunarstjóri Nettó verður Júlíus
Guðmundsson, sem einnig er versl-
unarstjóri Nettó á Akureyri.
Forráðamenn KEA og Nettó
sögðu fjarri því að tilkoma Nettó
væri stríðsyfirlýsing við aðila á mat-
vörumarkaði í höfuðborginni, Nettó
myndi kappkosta að bjóða vöruverð
og gæði eins og hagstæðast væri
hverju sinni en ekki væri stefnt í
verðstríð.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri opnar verslunina formlega
fyrir hönd KEA á hádegi í dag. Af-
greiðslutími verður 12 til 19 nema 10
til 19 á föstudögum og 10 til 17 laug-
ardaga. Fjölmargar vörakynningar
verða í Nettó í Mjóddinni næstu
daga, m.a. á framleiðsluvörum KEA
og innlendu og erlendu sælgæti og
ýmis tilboð íyrstu dagana.
Samband sveitarfélaga
Skuldirnar jukust
um 500 milljdnir
SAMKVÆMT útreikningum
Sambands íslenskra sveitarfélaga
jukust skuldir sveitarfélaganna í
landinu á síðasta ári um hálfan
milljarð króna, en samkvæmt töl-
um sem birtar eru í Hagtölum
mánaðarins jukust skuldirnar um
2,4 milljarða. Meginskýringin á
þessum mismun er að í Hagtölum
mánaðarins er ekki tekið tillit til
þeirrar skuldaminnkunar sem
varð hjá Reykjavíkurborg við sölu
á félagslegum íbúðum til Félags-
bústaða hf.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður Sambands íslenskra sveit-
arfélaga, sagði í ræðu á landsþingi
BISKUP íslands, herra Karl Sig-
urbjömsson, hefur nýverið skipað
tvo nýja prófasta og eru það konur
í báðum tilvikum. Tvær konur sitja
því í tveimur af 16 prófastsemb-
ættum þjóðkirkjunnar.
Þetta era þær séra Halldóra
Þorvarðardóttir í Fellsmúla sem
tók við af séra Sváfni Sveinbjarn-
arsyni sem prófastur i Rangár-
vallaprófastsdæmi og séra Dalla
Þórðardóttir á Miklabæ sem skip-
sveitarfélaganna að skuldir sveit-
arfélaganna á árinu 1997 hefðu
aukist um 500 milljónir og horfur
væra á að skuldimar myndu
aukast á þessu ári um einn millj-
arð. Samkvæmt þessu var skulda-
söfnun sveitarfélaganna heldur
minni á árinu 1996 en í fyrra.
Garðar Jónsson, forstöðumaður
fjármáladeildar Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, sagði að
mismunur á tölum sambandsins og
Hagtalna mánaðarins lægju í því
að í Hagtölunum væri ekki tekið
tillit til tekjufærslu vegna hluta-
fjárvæðingar á fyrirtækjum í eigu
sveitarfélaganna.
uð hefur verið prófastur í Skaga-
fjarðarprófastsdæmi. Hún tók við
af séra Hjálmari Jónssyni sem lét
nýverið af embætti sóknarprests á
Sauðárkróki en séra Dalla hafði
gegnt prófastsembætti fyrir hann
um hríð.
Könnun vegna kjörs prófasta
fer fram meðal presta og nokkurra
leikmanna í viðkomandi prófasts-
dæmi og skipar biskup prófast á
grundvelli hennar.
N esjavallavirkjun
Ágreiningur
um álag og
endingu
ALFREÐ Þorsteinsson, for-
maður stjórnar veitustofnana,
segir að skiptar skoðanir séu
meðal fræðimanna um álag og
endingartíma jarðhitasvæða en
Jóhannes Zoéga, fyi-rverandi
hitaveitustjóri, segir í grein í
Morgunblaðinu í gær að sam-
kvæmt rannsóknum lengist
endingartími hratt með minnk-
andi meðalálagi.
„Sérfræðingahópur á vegum
Hitaveitu Reykjavíkur er að
skoða möguleika á stækkun raf-
orkuversins á Nesjavöllum og á
að skila áliti fyrir 15. september
nk.,“ sagði Alfreð. „í raun er lít-
ið hægt að tjá sig fyrr, en
ástæða þess að vinnuhópurinn
tók til starfa er sú að vísbending
barst um að Nesjavallasvæðið
þyldi stæiTÍ virkjun."
Sagði hann að stjórn veitu-
stofnana hefði fylgt ráðum fær-
ustu sérfæðinga við allar
ákvarðanir vegna Nesjavalla-
virkjunar. „Grein fyrrverandi
hitaveitustjóra ber með sér að
hann hefur áhyggjur af orku-
skorti í framtíðinni," sagði Al-
freð. „Til viðbótar því að nýta
Nesjavelli skynsamlega hafa
borgaryfirvöld nú tryggt
Reykvíkingum hitaréttindi á
stórum hluta Hengilssvæðisins.
Áhyggjur af orkuskorti ættu því
að vera ástæðulausar. Annars
er lofsvert þegar fyrrverandi
embættismenn sýna áhuga á
málefnum fyrirtækja sem þeir
hafa veitt forstöðu. Reynsla
slíkra manna er oft ómetanleg."
Tvær konur skip-
aðar prdfastar
tekist um að annar þeirra sæi um
Þórshöfn út þennan mánuð. Eftir
1. október yrði aðeins einn læknir á
Vopnafirði og þá gengi þessi bráða-
birgðalausn ekki lengur. Hann
sagðist ekki vita hvað tæki við þá.
Sigurður sagði að vegalengdir í
þessu læknishéraði væru það mikl-
ar að það væri ekki hægt að halda
uppi viðunandi öryggisþjónustu við
íbúana með einum lækni hvað þá
eðlilegi’i læknisþjónustu. Álag á
sér ykist við þessar aðstæður og
sjálfsagt myndi hann hrökklast í
burtu ef ekki tækist að ráða fleiri
lækna. Hann sagði það enn auka á
erfiðleikana að sami skortur væri á
hjúkrunarfræðingum og læknum.
Sigurður sagði að stundum hefði
tekist að ráða unga lækna til starfa
þegar skorti lækna í minni læknis-
héruð. Nú væri það mikill skortur
á læknum á sjúkrahúsunum í
Reykjavík að þeim væri hreinlega
ekki sleppt út fyrir höfuðborgar-
svæðið. Hann sagðist treysta á að
landlæknir og stjórnvöld kæmu að
þessu máli með þeim hætti að
lausn fyndist.
Lögreglan
fær fjóra
Passatbíla
LÖGREGLAN í Reykjavík tók í
gær formlega við fjórum nýjum
lögreglubflum af gerðinni
Volkswagen Passat. Tveir bflar til
viðbótar af þeirri gerð voru ný-
lega aflientir lögreglu í Hafnar-
firði og í Stykkishólmi.
Bflarnir eru með 150 hestafla
vél og svonefndri tvívirkri sjálf-
skiptingu. Sagði Finnbogi Eyjólfs-
son, blaðafulltrúi Heklu sem hef-
ur umboð fyrir bflana, þegar bíl-
arnir voru afhentir að með þessu
væri hægt að ná hámarksafli út
úr bflunum.
Georg Kr. Lárusson, settur lög-
reglustjóri í Reykjavík, sagði að
nauðsyniegt væri að lögreglan
hefði örugga og fallega bfla í
þjónustu sinni og tók undir að út-
lit hefði einnig ákveðin áhrif. I
bflaflota lögreglunnar í Reykjavík
eru alls 59 bflar.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
VIÐ stýrið er Georg Kr. Lárusson, settur lögreglustjóri í Reykjavík,
sem í gær tók formlega við fjórum Passat lögreglubflum af Sigfúsi
Sigfússyni, forsljóra Heklu.
Engin vínveitingaleyfí verið afgreidd
Yfír 20 vínveitinga-
hús sóttu um lengd-
an afgreiðslutíma
LIÐLEGA 20 vínveitingahús í
Reykjavík hafa sótt um heimild fyr-
ir lengri afgreiðslutíma en umsókn-
arfrestur rann út 1. sept. sl. Að
sögn Gunnars Eydal, skrifstofu-
stjóra borgarstjóra, tóku ný áfeng-
islög gildi 1. júlí sl. og hefur ekki
verið hægt að afgreiða á þriðja tug
eldri umsókna um vínveitingaleyfi
auk nýrra umsókna að undanfórnu,
þar sem dómsmálaráðuneytið hefur
enn ekki sent frá sér reglugerð með
lögunum.
Að sögn Gunnars hefur ekki verið
tekin ákvörðun um hvenær nýi af-
greiðslutíminn tekur gildi eða
hversu mörgum veitingahúsum
verður veitt heimild til lengri af-
greiðslutíma á áfengi. Leyfin verða
veitt til eins árs í tilraunaskyni og
verður haft til hliðsjónar hvað
margir íbúar búa í grendinni, um-
sögn lögreglu um reksturinn,
hvernig veitingahús á í hlut og
hvort um er að ræða miðborgar-
iðnaða- eða íbúðarhverfi. „Það er
ekkert búið að ákveða,“ sagði Gunn-
ar. „Það var auglýst eftir vilja
manna og áhuga til þessa en síðan
er öll úrvinnsla eftir. Það á eftir að
setja allar viðmiðanir, nálægð við
íbúðarhverfí og annað en þar verða
menn að setja sér góðar mælistikur,
sem hægt er að miða við þegar um-
sækjendur eru metnir." Sagðist
Gunnar eiga von á að borgarskipu-
lagi yrði falið að skoða umsóknir
með tilliti til þess hvar vínveitinga-
húsin eru.
Gunnar benti á að vegna nýrra
áfengislaga, sem tóku gildi 1. júlí
varðandi vínveitingaleyfi og sam-
kvæmt ákvörðun dómsmálaráðu-
neytisins um að nýju lögin næðu
einnig til eldri umsókna sem lágu
fyrir, hafí engin vínveitingaleyfi
verið afgreidd síðustu mánuði. „Það
hefur ekkert gerst síðan nýju lögin
tóku gildi,“ sagði hann en á þriðja
tug eldri umsókna liggur enn óaf-
greiddur auk þess sem nýjar um-
sóknfr hafa ekki verið afgreiddar á
meðan beðið er reglugerðar um
hvernig útfæra skal nýju lögin.
„Það mun því ekkert gerast með
lengingu afgreiðslutíma fyrr en
þetta vandamál er leyst,“ sagði
Gunnar.
------♦♦♦------
Lést í
Grímsnesi
MAÐURINN, sem fannst látinn í
bifreið sinni í Grímsnesi í fyrradag
hét Arnþór Guðnason, bifvélavirki,
til heimilis að Lyngheiði 4, Selfossi.
Hann var 70 ára að aldri og lætur
eftir sig eiginkonu og tvær upp-
komnar dætur.