Morgunblaðið - 03.09.1998, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristjana Ágústsdóttir
FRÁ uppgreftrinum á Eiríksstöðum í Haukadal.
Fornleifarannsóknir á Eiríksstöðum í Haukadal
Flókið verk að ráða
í fornminjamar
Búðardal - Frumrannsókn á Eiríks-
stöðum í Haukadal fór fram síðast-
liðið sumar. Hún leiddi í ljós fornan
skála frá 10. öld og sýndi að svo mik-
ið var eftir af bænum að itarlegri
rannsókn mundi sennilega geta gefið
nokkuð góða mynd af gerð Eiríks-
staða.
I sumar hefur hópur fornleifa-
fræðinga frá Þjóðminjasafni Islands
haldið áfram rannsókn á skála frá 10.
öld á Eiríksstöðum í Haukadal.
Verkið er unnið í samvinnu við Ei-
ríksstaðanefnd og er rannsóknin
mikilvægur liður í fyrirhugaðri upp-
byggingu nefndarinnar á staðnum.
Markmið rannsóknanna að þessu
sinni var fyrst og fremst að fínna út-
línur skálans og aðra þætti sem
varpað gætu ljósi á gerð hans og út-
lit þar sem afráðið hefur verið að
reisa tilgátuhús í námunda við bæinn
sem byggist á grunnmynd skálans á
Eiríksstöðum.
Rannsóknin í sumar stóð frá 10.
ágúst til 28. ágúst og var undir
stjórn Guðmundar Olafssonar deild-
arstjóra fornleifadeildar Þjóðminja-
safns Islands. Ásamt honum hafa
fomleifafræðingarnir Agnes Stef-
ánsdóttir, Guðrún Sveinbjamardótt-
ir, Lilja Árnadóttir og Ragnheiður
Traustadóttir frá Þjóðminjasafni,
Andrew West frá Englandi og
Demik Watson frá Skotlandi unnið
við rannsóknina um lengri eða
skemmri tíma. Einnig hafa ungling-
arnir Sesselja Bæringsdóttir frá
Saurstöðum í Haukadal og Jón Egill
Jónsson frá Sauðhúsum í Laxárdal
unnið allan tímann sem aðstoðar-
menn við rannsóknina.
Tæplega 50 fermetra skáli
Rannsóknin hefur gengið mjög
vel, þótt nokkuð flóknara hafi reynst
að ráða í minjamar en frumrann-
sóknin hafði bent til.
Skálinn virðist hafa verið reistur
utan í skriðu á dálítilli flöt neðarlega
í fjallshlíðinni. Hann er um 12 m
langur og um 4 m breiður eða rétt
tæplega 50 m2 að innanmáli.
Veggirnir hafa að mestu verið hlaðn-
ir úr torfí, bæði klömbruhnaus og
streng, með undirstöðum úr stein-
um, sem var raðað í einfalda röð við
ytri og innri veggjarbrún. Norður-
hlið og austurgafl eru hlaðin upp að
skriðunni sem er notuð sem hluti af
veggnum. Skálinn er breiðastur um
miðju og mjórri til endanna.
Hellulögn og grjóthleðsla fyrir
miðri suðurhlíðinni benda til þess að
inngangurinn í húsið hafi upphaflega
verið þar. Annar inngangur virðist
hafa verið gerður síðar á suðurhlíð-
inni nálægt austurenda skálans.
Þetta eru nokkuð óvæntar niðurstöð-
ur þar sem fyrri rannsóknir höfðu
sýnt inngang nálægt suðvesturhorn-
inu.
Meðfram veggjunum eru merki
um set og á miðju gólfi er langeldur
til eldunar og upphitunar. Annað
minna eldstæði hefur einnig komið í
Ijós í austurhluta skálans.
Engir gripir hafa fundist
Engir gripir hafa fundist við rann-
sóknina. Þess var heldur ekki að
vænta. Bæði vegna þess að þunn
mannvistarlög utan við skálann
benda til þess að búseta hafi ekki
verið langvinn á staðnum og einnig
vegna þess að tvisvar áður hefur ver-
ið grafið innan úr henni. Það var Þor-
steinn Eriingsson skáld sem fyrstur
rannsakaði staðinn svo vitað sé árið
1895. Önnur rannsókn á staðnum var
gerð árið 1938 af Matthíasi Þórðar-
syni þjóðminjaverði. Þessar rann-
sóknir voru ekki nægilega ítarlegar
til að hægt væri að endurgera skái-
ann í fullri stærð og þess vegna var
ný rannsókn óhjákvæmileg.
Vörður
hlaðnar af
hagleik
Vaðbrekka, Jökuldal - Gamlir
reiðvegir á Islandi voru að öllu
jöfnu varðaðir sem kallað var. Þá
voru hlaðnar vörður meðfram
veginum til að auðvelda mönnum
að rata veginn. Vörðurnar með-
fram Bessastaðavegi, gamla
hestaveginum milli Klaustursels
á Jökuldal og Bessastaða í Fljóts-
dal, eru hlaðnar af miklum hag-
leik. Þær voru sennilega hlaðnar
eða endurbyggðar um og fyrir
1930 og standa flestar hveijar
uppi ennþá. Drangar standa útúr
vörðunum og vísa þeir áttina að
næstu vörðu.
h Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
VÖRÐURNAR meðfram Bessa-
staðavegi geta tekið á sig ýms-
ar kynjamyndir.
Morgunblaðið/Anna Ingólfs
ASPARFRÆIN líta út eins og nýfallinn snjór.
Loðnar aspir
bera fræ á Héraði
Egilsstöðum - í húsagörðum á
Egilsstöðum þar sem eru gömul og
stór aspartré, má sjá að sum trén
eru þakin hvítri ló. Og þegar vind-
urinn bærir trén þá þyrlast lóin eins
og hvítar snjóflygsur niður á jörðina
og það lítur út eins og fyrsti snjór
vetrarins hafi fallið.
Að sögn Þrastar Eysteinssonar
hjá Skógrækt ríkisins eru þetta
gamlar kvenkyns aspir sem eru að
bera fræ. Þær eru orðnar kyn-
þroska. Hann segir fræmyndun
vera misjafna eftir árum. Það sé
sumarið á undan sem segi til um
það. Oftast er þetta fyrr á ferðinni
en kalt vor sé ástæða þess að þetta
er nú á þessum tíma. Þröstur segir
einnig að vegna kulda almennt á ís-
landi þá nái þessi fræ ekki að spíra
og lifa af í jörðinni heldur drepist
þau í fyrsta haustfrostinu. Það sé
sárasjaldgæft að þau lifi af vetur-
inn, þó eru tilfelli sem hægt er að
telja á fingrum annarrar handar hér
á landi, svö fá eru þau. Hins vegar
er hægt að hlú að fræjum í gróður-
húsi yfir vetrartímann og rækta
plöntur þannig.
Enska orðið yfir öspina er
„cotton-wood“ en það er vegna
þessara loðnu svifhára sem fræin
hafa. Aspir era einkynja og það eru
einungis kvenkyns aspir sem bera
fræin, ef karlkynsklónn er notaður
þá koma engin fræ.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Framhaldsskóli Vestfjarða
Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson
HEYSKAPUR, rúllað og pakkað.
Mannúðlegri busavígslur
fsafirði - Busavígslur í Fram-
haldsskóla Vestfjarða virðast
orðnar öllu mannúðlegri en fyrr-
um. í fyrra náðist ekki samkomu-
lag milli nemenda og skólastjórn-
enda um tilhögun vígslunnar en
að þessu sinni varð góð sátt um
framkvæmdina. Busar voru
fluttir eins og lömb á gripavagni
í Ijárréttina í Engidal en þaðan
lá leiðin í busaskóginn þar sem
trjáplöntur eru gróðursettar.
Heyskap loks lokið í Árneshreppi
Árneshreppi - Hér í sveit hófst hey-
skapurinn 12. júlí og stóð til 25.
ágúst og gekk mjög illa. Oþurrkar
vora og votviðrasamt.
Samkvæmt upplýsingum frá veð-
urathugunarstöðinni í Litlu Avík
vora bara sjö heilir dagar alveg úr-
komulausir 12. júlí til 25. ágúst.
Mest var úrkoman um miðjan ágúst
og ef það var þurrt var þokuloft og
rakt og hægviðri en oftast norðlæg
átt. Þetta er annað árið sem mest-
allt hey er rúllað en það þarf að
þurrka það í einn til tvo daga en
núna var heyinu pakkað mjög
blautu. Bændur eru sammála því að
þetta hafi verið eitt mesta óþurrka-
sumar sem komið hefur í mörg ár.