Morgunblaðið - 03.09.1998, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 21
NEYTENDUR
Ný lágverðsverslun
opnuð í Reykjavík
Á HÁDEGI í dag, fímmtudag, verð-
ur Nettó í Mjódd opnuð með við-
höfn. Að sögn Júlíusar Guðmunds-
sonar, rekstrarstjóra Nettó í Mjódd,
verður frá upphafí lögð áhersla á
lágt vöruverð og lágt þjónustustig.
Þegar Júlíus er spurður hvort
verðlagningin verði svipuð og í Bón-
us segir hann að þannig hafi það
verið og engin breyting verði þar á.
„Við erum að opna Nettó hér fyrir
sunnan sem lágverðsverslun. Við
ætlum okkur að vera hér áfram og
munum haga rekstri okkar í sam-
ræmi við þá stefnu.“
Þegar Júlíus er spurður um vöru-
val segir hann að þær vörur sem
framleiddar séu undir vörumerki
KEA verði seldar í verslunni og að
öðru leyti verður vöraval svipað og
annarsstaðar á höfuðborgarsvæð-
inu.
Ymsar uppákomur verða í tilefni
dagsins. „Við bjóðum viðskiptavin-
um okkar upp á tilboð og kaupauka
og þar að auki verða Elite stúlkurn-
ar á línuskautum að bjóða fólki að
smakka á ýmsum matvörum.
Þá verða ýmsar uppákomur fyrir
börn, kisur, álfar og furðuverur sem
heilsa upp á þau.
Kjöt frá KEA og Kjötbankanum
verður á tilboði, þeir sem kaupa
kippu af Coca Cola fá Lukku Láka
teiknimyndaspólu í kaupbæti, ef við-
skiptavinir kaupa tvo pakka af
Cherioos morgunkorni fá þeir vand-
aðan körfubolta í kaupauka og svo
mætti áfram telja.“
Júlíus segist vera afar stoltur af
mjólkurtorgi sem búið er að koma
upp í versluninni. „Við höfum gert
miklar breytingar á húsnæðinu, eig-
frímerki
I dag koma út ný frímerki; tvö með íslenskum
steindum og eitt með Holdsveikraspítatanum í
Laugarnesi.
Morgunblaðið/Kristinn
JÚLÍUS Guðmundsson, rekstr-
arstjóri hjá Nettó í Mjódd, seg-
ir að verslunin hafi öll verið
tekin í gegn.
Fyrstadagsumslög fást stimpluð á pósthúsum um land allt. Einnig er hægt að panta þau hjá Frímerkjasölunni. Sími: 580 1052 Fax: 580 1059
PÓSTURINN
Heimasíða: http://www.postur.is/postphit/ FRIMERKJASALAN
'NETTÓ er lágvöruverðsversl-
un, segir rekstrarstjóri versl-
unarinnar.
inlega tekið það i gegn frá grunni.
Iðnaðarmenn hafa gert kraftaverk
hér á mjög skömmum tíma.“
Verslunin Blues er bæði
fyrir herra og dömur
VERSLUNIN BLUES var opnuð í
vikunni þar sem Hen'arnir í Kringl-
unni voru áður til húsa.
Þrjú ár eru síðan fyrsta BLUES
verslunin var opnuð í Danmörku. Síð-
an þá hefur þróunin verið ör og Blues
á Islandi er fimmta búðin sem opnuð
er í Evrópu.
Fatnaðurinn er allur hannaður af
dönskum hönnuðum en hann er
framleiddur á Italíu.
Að sögn Önnu Bentínu Hermansen
verslunarstj óra kvenfatadeildarinnar
í BLUES er fatnaðurinn sígildur og
mikil áhersla lögð á vönduð efni og
snið. Herrafatnaðurinn hefur fengist
í versluninni Hanz en kvenfatnaður-
inn hefur ekki verið seldur áður og er
fyrsta kvenlína BLUES nú seld á Is-
landi.
Eigendur verslunarinnar eru Sig-
urjón Þórsson og Hákon Hákonarson
en verslunarstjórar eru Anna Bent-
ína Hermansen og Helgi Már Þórð-
Utsala
í UNO
Allt á að seljast
Verslunin hættir
UNO
D A N M A R K
Fataverslun
Vesturgötu 10a,
sími 561 0404.
✓ -g Vöm geen áhrifum
alagsog
strcitu
í daglegu lífi verður fólk fyrir ýmsum áreitum sem hafa
skaðleg áhrif á heilsuna. Þetta eru þættir eins og vinnuálag,
streita, mengun og svefnleysi. Afleiðingamar geta verið
veikara ónæmiskerfi og ójafnvægi í meltingu.
LGG+ er styrkjandi dagskammtur unninn úr fitulausri mjólk
og inniheldur LGG-gerla auk annarra heilnæmra gerla og
trefjaefna sem m.a. bæta og koma jafnvægi á meltinguna.
LGG-gerlamir em þeir mjólkur-
sýmgerlar sem hvað mest hafa verið
rannsakaðir í heiminum. Þeir búa yfir
einna mestu mótstöðuafli allra þekktra
mjólkursýrugerla, hafa margþætta
varnarverkun sé þeirra neytt reglu-
bundið, bæta meltinguna og auka
vellíðan. LGG+ er náttúraleg vara
sérsniðin að nútímalífsháttum. Strangt
gæðaeftirlit er með framleiðslu á LGG+
og framleiðsluaðferðin tryggir að gerla-
magnið sé alltaf hæfilegt svo drykkurinn hafi tilætluð áhrif.
styrkjandi dagskammtur