Morgunblaðið - 03.09.1998, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Tiðindalausum fundi forseta Rússlands og Bandaríkjanna lokið í Moskvu
Jeltsín virðist reiðu-
búinn að hunsa dúmuna
Moskvu. Reuters.
Skipaði í gær ráðherra í „stjórn“
Tsjernomyrdíns þótt það brjóti gegn
ákvæðum stjórnarskrárinnar
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, og Borís Jeltsín, forseti Rúss-
lands, luku í gær tveggja daga fundi
sínum í Moskvu með litlu öðru en yf-
irlýsingum um gagnkvæman stuðn-
ing og samstarf í afvopnunarmálum.
Clinton hét þó að styðja frekari fjár-
hagsaðstoð við Rússa en því aðeins,
að ekki yrði hætt við efnahagsum-
bætur í landinu. Jeltsín skipaði í
gær fjóra ráðherra þótt neðri deild
þingsins, dúman, hafi ekki staðfest
skipan Víktors Tsjernomyrdíns sem
forsætisráðherra og gengur það
þvert gegn ákvæðum rússnesku
stjórnarskrárinnar.
„Við erum vinir,“ sagði Jeltsín á
fréttamannafundi með Clinton í
Moskvu í gær en leiðtogarnir voru
þó heldur þungbúnir á svip. Raun-
verulegur árangur af fundinum var
líka lítill sem enginn og staða forset-
anna beggja þannig að mati flestra
sérfræðinga, að segja má, að þar
hafí haltur leitt blindan.
Clinton kvaðst viss um, að Rússar
myndu sigrast á erfiðleikunum og
sagði, að þjóð, sem hefði rekið af
höndum sér Napóleon og Hitler,
myndi geta tekist á við sjálfa sig og
heimsmarkaðinn. Hann lofaði þó
engum stuðningi en sagðist viss um,
að Bandaríkin og önnur ríki myndu
veita frekari hjálp ef ekki yrði hvik-
að frá umbótastefnunni. Rússneska
stjórnin mætti alls ekki láta undan
kröfum kommúnista um miðstýrðan
ríkisbúskap.
Jeltsín sagði, að Rússar þyrftu
fyrst og fremst á vináttu Banda-
ríkjamanna að halda, ekki fjárhags-
legum stuðningi. Stuðningi þeirra
við umbótastefnuna, sem myndi laða
nýja fjárfesta til landsins.
Að fundinum loknum ræddi Clint-
on við leiðtoga rússnesku stjómar-
andstöðunnar og hvatti þá til að
grafa sundurlyndisfjandann og
vinna saman að því að leysa vanda-
málin. Sagði hann, að vissulega yrðu
Rússar að nálgast þau með sínum
hætti en hann kvaðst þó ekki vita
um neina þjóð, sem gæti hunsað
þær meginreglur, sem efnahagslífíð
í heiminum byggðist á.
Kommúnistum ögrað
Jeltsín skipaði eða endurskipaði í
gær fjóra ráðherra í væntanlega
stjórn Tsjemomyrdíns þótt dúman
hafi hafnað honum og flest bendi til,
að hún muni gera það einnig við
aðra og þriðju atkvæðagreiðslu. Var
þar um að ræða núverandi utanrík-
is-, varnar- og innanríkisráðherra og
einnig umbótamanninn Borís
Fjodorov aðstoðarforsætisráðherra,
sem hefur með skattheimtuna að
gera. Er þetta bein ögran við
kommúnista, sem hafa krafíst 10
ráðherraembætta, afsagnar Jeltsíns
og annars forsætisráðherra en
Tsjernomyrdíns.
Er skipan ráðherranna augljóslega
brot á stjórnarskránni en þar segir,
að þeir skuli skipaðir þegar þingið
hafi staðfest skipan forsætisráð-
herra. í tilkynningu forsetaembættr
isins um skipan ráðherranna sagði
einnig, að Tsjemomyrdín hefði verið
skipað að mynda stjórn „án tafar“.
Gengið fellur áfram
Rússneska dúman samþykkti í
gær að skora á Jeltsín að reka
Sergei Dúbínín seðlabankastjóra og
hefur raunar ki’afist afsagnar hans
síðan hann leyfði gengi rúblunnar að
fljóta fyrir hálfum mánuði. í gær
var gengi hennar næstum 13 rúblur
á móti dollara en 10,8 í fyrradag. Þá
samþykkti dúman einnig að krefjast
banns við „óréttmætum verðhækk-
unum“, að áfengisframleiðsla yrði í
höndum ríkisins og bönnuð yrði
einkavæðing í mikilvægum fram-
leiðslugreinum.
Vestrænir efnahagssérfræðingar
og embættismenn segja, að Vestur-
lönd standi í raun ráðþrota frammi
fyrir ástandinu í Rússlandi. Enginn
vilji ausa meira fé í þessa óseðjandi
hít enda viti enginn fyrir víst við
hverja sé að eiga. Vestrænir leiðtog-
ar hafi að vísu lýst yfir stuðningi við
Jeltsín og Tsjernomyrdín, forsætis-
ráðherraefni hans, en augljóst sé, að
Jeltsín eigi ekki langan tíma eftir i
embætti og enginn líklegur eftir-
maður sjáanlegur.
Byijaði IMF á röngum enda?
Á Vesturlöndum er lögð mikil
áhersla á, að efnahagsumbótunum
verði haldið áfram en sá grunur hef-
ur læðst að sumum, að IMF, Al-
þjóðagjaldeyrissjóðurinn, hafi gert
allt of miklar kröfur til Rússa hvað
varðar fjár- og peningamál. Skyn-
samlegra hefði verið að krefjast
þess, að Rússar kæmu á eðlilegu
umhverfi í lagalegu og skattalegu
tilliti því að það væri forsenda efna-
hagslegrar viðreisnar.
Haft er eftir háttsettum embætt-
ismanni hjá NATO, að eftir á að
hyggja hefði það verið ólíklegt, að
stefna IMF gengi upp í Rússlandi.
Nú væri það helsta vonin, að þeim
Jeltsín og Tsjernomyrdín tækist að
snúa á dúmuna til að þeir gætu hald-
ið umbótunum áfram en í meiri ró-
legheitum en áður. Til að byrja með
myndi það vissulega leiða til meiri
seðlaprentunar og meiri ríkisaf-
skipta en framhjá því væra menn
tilbúnir til að líta. Nú skipti mestu
að koma á einhverjum stöðugleika.
Kosninga-
barátta í al-
gleymingi
Bonn. Reuters.
BARÁTTA þýzku stjórnmála-
flokkanna fyrir kosningar til
Sambandsþingsins hinn 27.
þessa mánaðar er nú í algleym-
ingi. Stóra flokkarnir tveir,
Jafnaðarmannaflokkurinn SPD
og Kristilegir demókratar
(CDU), flokkur Helmuts Kohls
kanzlara, rejma að vinna til sín
kjósendur með öllum tiltækum
ráðum. Nokkur áherzlumunur
er þó á baráttuaðferðum þeirra,
eins og nýhafnar sjónvarpsaug-
lýsingaherferðir flokkanna
sýna.
Nú hefur CDU hrint af stað
röð sjónvarpsauglýsinga, sem
er viljandi yfirlætislítil og jarð-
bundin. Með því er flokkur
kanzlarans að reyna að sýnast
ábyrgari en SPD og kanzlai’a-
efni hans Gerhard Schröder,
sem hefur beitt óvenju áber-
andi og dýram sjónvarpsaug-
lýsingum. Hafa baráttuaðferðir
SPD minnt á þær aðferðir sem
tíðkast fyrir forsetakosningar í
Bandaríkjunum. Til að tala inn
á auglýsingar sínar réð SPD
sama leikarann og er vanur að
Ijá Robert De Niro rödd sína í
bíómyndum sem hann leikur í
og sýndar era í Þýzkalandi með
þýzku tali.
„Við þurfum ekki á því að
halda að ráða De Niro-raddar-
leikara - við höfum okkar eigin
mannskap," sagði Kohl er hann
kynnti auglýsingar CDU. Sagði
kanzlarinn auglýsingar SPD
dæmigerðar fyrir þann flokk og
kanzlaraefni hans - þær væra
ekkert nema innihaldslaus
sýndarmennska.
Bill Clinton Bandarrkjaforseti tjáir sig í Moskvu um sambandið við Lewinsky
Segist hafa
látið næga
iðrun í ljós
Moskvu. Reuters.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
sagði í gær að hann teldi sig hafa
látið í ljósi nægilega iðran vegna
sambands síns við Monicu Lewin-
sky, íyrrverandi starfsstúlku í
Hvíta húsinu, og kvaðst hann ekki
hafa í hyggju að biðjast formlega af-
sökunar.
Á fréttamannafundi með Borís
Jeltsín Rússlandsforseta í Kreml í
gær sagði Clinton að Lewinsky-
málið hefði ekki haft áhrif á hæfi-
leika sína til að gegna forsetaemb-
ættinu. Þótt efnahags- og stjórn-
málaöngþveitið í Rússlandi hafi átt
að vera efni fréttamannafundarins
voru tvær af hverjum þrem spurn-
ingum bandarískra fjölmiðlamanna
til forsetans um Lewinsky-málið, en
þetta var í fyrsta sinn sem Clinton
svaraði spumingum fréttamanna
síðan hann játaði í sjónvarpsávarpi
að hafa átt í „óviðeigandi" sambandi
við Lewinsky.
Hillary Rodham Clinton sagði í
gær að hún væri enn félagi og ráð-
gjafi eiginmanns síns, Bills Clintons
Bandaríkjaforseta, sem fyrir hálf-
um mánuði viðurkenndi að hafa átt í
ástarsambandi við Monicu Lewin-
sky, fyrrverandi starfsstúlku í
Hvíta húsinu.
Hillary nefndi ekki beinlínis
Lewinsky-málið er hún talaði á
fundi kvenna í Rússlandi þar sem
bandarísku forsetahjónin era í
heimsókn. Kvaðst hún enn ræða
mikilvæg stefnumál við forsetann.
„Á mörgum sviðum vinnum við mik-
ið saman og við eram sífellt að ræða
um málefni sem okkur þykja mikils-
verð,“ sagði Hillary á fundi með
nokkur hundrað konum og fáeinum
karlmönnum.
„Við hjónin höfum starfað saman
í um það bil 27 ár, allar götur síðan
við kynntumst í lagadeildinni."
Sagði Hillary að engin breyting
hefði orðið á þessu eftir að eigin-
maður hennar hefði orðið forseti.
Þau hefðu haldið áfram að sinna
málefnum sem þeim væru kær.
Hillary var spurð hvemig henni
hefði liðið síðan eiginmaður hennar
viðurkenndi í sjónvarpsávarpi til
bandarísku þjóðarinnar að hafa
haldið framhjá, og sagði Hillary:
„Ég hef haft það ágætt.“ Frétta-
skýrendur segja þó að glögglega
hafi mátt sjá að reynt hafi á hjóna-
bandið er forsetahjónin komu fram
saman í fyrsta sinn frá því Clinton
flutti ávarpið. Hefðu þau setið hlið
við hlið með stíft bros á vörum.
Hughreystandi viðbrögð
„Ég get sagt ykkur eitt. Að horfa
á þau fær mann til að hugsa sig
tvisvar um áður en maður heldur
framhjá,“ sagði ónefndur embættis-
maður í Hvíta húsinu. Á frétta-
mannafundinum í gær sagði Clinton
að viðbrögð bandarísku þjóðarinnar
og erlendra leiðtoga við játningunni
Reuters
DRYKKJARKÖNNUR og trédúkkur með myndum af Bill Clinton og Monicu Lewinsky voru meðal þess sem
var á boðstólum hjá minjagripasölum í Moskvu í gær.
hefðu verið ákaflega hughreystandi.
„Ég hef viðurkennt að mér urðu á
mistök, sagt að ég iðrist þess inni-
lega og beðist fyrirgefningar,“ sagði
Clinton. „Ég ætla enn að gera mitt
besta til að komast í gegnum þetta
persónulega mál.“
Clinton hefur áður rætt játningu
sína opinberlega, en líkt og í gær
nefndi hann Lewinsky ekki á nafn
er hann ávarpaði kirkjugesti í Oak
Bluffs í Massachusetts um síðustu
helgi í tilefni af því að 35 ár vora lið-
in frá því að mannréttindaleiðtoginn
Martin Luther King flutti frægustu
ræðu sína þar sem hann byggði á
því þema að hann ætti sér draum.
Yfirbdtin torsótt
Þá rifjaði Clinton upp þann boð-
skap Kings að manni beri að elska
óvin sinn og kvaðst forsetinn hafa
reynt að fylgja því boðorði. „Þið vit-
ið öll að ég er að verða sérfræðingur
í að biðjast fyrirgefningar. Það
kemur með æfingunni." Sagði Clint-
on að sér hefði orðið Ijóst að til þess
að vera fyrirgefið þyrfti maður
sjálfur að fyrirgefa.
Forsetinn ræddi ennfremur um
þann sársauka sem „það sem maður
gerir sjálfum sér“ getur valdið og
hve yfirbótin geti reynst torsótt.
Bandaríska blaðið Washington
Post hefur eftir Henry Louis Gates,
félagsfræðingi við Harvard-háskóla,
að þessi orð forsetans hafi nægt.
„Ég held að Bandaríkjamenn vilji
ekki að hann gangi lengra. Þetta
var haganlegt og fágað. Það býr
eitthvað undir hjá þeim sem vilja að
hann geri meira opinberlega.“