Morgunblaðið - 03.09.1998, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 25
ERLENT
„Réttarhald aldarinnar“ hafíð yfír Willy Claes og ellefu öðrum sakborningum
Sannleikans leitað í umfangsmesta
spillingarmáli belgískra stjórnmála
Brussel. Reuters.
Reuters
WILLI Claes, fyrrverandi framkvæmdastjóri NATO, nýtur hér aðstoð-
ar lögreglumanns og lögmanns síns til að komast í gegnum þvögu
fjölmiðlafólks inn í dómhúsið í Brussel í gær.
WILLI Claes, fyn-verandi fram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO), kom í gær fyrir
hæstarétt Belgíu ásamt ellefu öðr-
um sakbomingum, sem ákærðir
eru fyrir spillingu í tengslum við
samninga um kaup belgíska ríkis-
ins á hergögnum seint á níunda
áratugnum. I Belgíu hafa réttar-
höldin, sem talið er að geti varað
fram í desember, verið kölluð
„réttarhöld aldarinnar“.
Claes var efnahagsmálaráðherra
Belgíu þegar meintar „gjafír“
ítalska þyrluframleiðandans
Agusta og franska flugvélatækni-
fyrirtækisins Dassault Electron-
ique bárust í sjóði belgíska sósí-
alistaflokksins, flokks Claes, eða
öllu heldur belgísku sósíalista-
flokkanna tveggja, þar sem
frönskumælandi Vallónar og hol-
lenzkumælandi Flæmingjar hafa
sitt hvort flokkakei-fið.
„Tólf sannleikar"
Réttarhaldið hófst í gær með
ringulreið sem skapaðist er mikill
fjöldi fjölmiðlamanna tókst á við
öryggisverði við inngang dómhúss-
ins í Brussel, þegar sakborning-
arnir mættu þangað einn af öðrum.
Aðeins einn hinna ákærðu, fyrr-
verandi héraðsleiðtogi í frönsku-
mælandi hluta landsins, Merry
Hermanus að nafni, lét hafa eitt-
hvað eftir sér. „Eg vona að sann-
leikurinn komi í ljós,“ tjáði hann
fréttamönnum.
Le Soir, stærsta franska dag-
blaðið sem gefið er út í Brussel,
skrifaði í gær að hæstaréttardóm-
ararnir fímmtán stæðu nú frammi
fyrir því vandasama verkefni að
sigta hinn raunverulega sannleika
út úr vitnisburði tólf manna, sem
allir héldu því fram að þeir segðu
sannleikann, „tólf sannleika".
Réttarhaldið sjálft fór af stað
með grátbroslegum hætti. Claes,
sem sat ásamt hinum sakborning-
unum á bekk andspænis dómurun-
um, var þrisvar beðinn að segja til
nafns og hvar og hvenær hann
væri fæddur. Hann gerði það, á
móðurmáli sínu flæmsku, en túlk-
unin yfir á frönsku brást. Þetta olli
tíu mínútna hléi, sem þótti mjög
vandræðalegt.
Tveir aðrir fyrrverandi ráðherr-
ar, fv. gjaldkeri sósíalistaflokksins
og Serge Dassault, forstjóri
Dassault-flugtæknifyrirtækisins,
ásamt fyiTverandi aðstoðarmönn-
um ráðherra og kaupsýslumönnum
með náin tengsl við sósíalistaflokk-
inn, eru á ákærubekknum í þessu
umfangsmesta pólitíska spillingar-
máli sem komið hefur fyrir rétt í
Belgíu, en fleiri hneyksli hafa á
undanförnum árum og misserum
veikt mjög tiltrú belgísks almenn-
ings til stjórnmála- og dómskerfís
landsins.
Stjórnmálaskýrendur telja þó
ólíklegt, að belgísku sósíalista-
flokkarnir tveir - sá vallónski og sá
flæmski - verði fyrir varanlegum
hnekki vegna réttarhaldsins þegar
upp verður staðið. Báðir flokkar
eru aðilar að fjöguiTa flokka sam-
stjórn kristilegra demókrata og
sósíalista, sem Jean-Luc Deheane
forsætisráðherra fer fyrir, en þing-
kosningar fara fram næsta sumar.
„Willigate" hófst upp úr
morðrannsókn
Claes, sem einnig gegndi emb-
ætti utanríkisráðherra og varafor-
sætisráðherra um skeið, neyddist
til að segja af sér sem fram-
kvæmdastjóri NATO í október
1995, eftir að nafn hans heyrðist sí
oftar nefnt í ásökunum belgískra
fjölmiðla í tengslum við
Agusta/Dassault-hneykslið, sem
farið var að kalla „Willigate“.
Sem efnahagsmálaráðherra á
þeim tíma sem gengið var frá
samningum við Agusta og Dassault
var Claes ábyrgur fyrir saman-
burði á tilboðum sem hinir ýmsu
framleiðendur gerðu í útboð
belgíska ríkisins. í réttarhaldinu
verður farið ofan í saumana á
meintum fjárgjöfum frá þessum
tveimur fyrirtækjum í sjóði sósí-
alistaflokksins í lok níunda áratug-
arins eftir að þau náðu samningum
um að sjá Belgum fyrir 46 nýjum
herþyrlum og að endurnýja raf-
eindabúnað í F-16-on’ustuþotum
flughersins.
Vitneskja um hinar meintu mút-
ur kom ekki fram í dagsljósið fyiT
en farið var að rannsaka morðið á
André Cools, öðrum forystumanni
sósíalistaflokksins og fyrrverandi
varaforsætisráðherra, sem var sall-
aður niður að hætti mafíunnar fyr-
ir framan heimili ástkonu sinnar
árið 1991. Við morðrannsóknina
rákust menn á upplýsingar um
mútugreiðslurnar, og er talið lík-
legt að Cools hafí verið myrtur
vegna þess að hann hafí hótað að
skýra opinberlega frá þeim.
Lykilmaður látinn
Allir sakborningamir tólf, þar á
meðal Guy Spitaels, fyi-rverandi
flokksleiðtogi sósíalistaflokks
Vallóníu og Guy Coeme, fyrrver-
andi varnarmálaráðherra, hafa vís-
að ásökununum á bug. Annar lyk-
ilsakborningur, Raffaelo Teti, fyrr-
verandi forstjóri Agusta, lést
skyndilega úr hjartaáfalli fyrir tíu
dögum.
Það flækir málareksturinn nokk-
uð að leynilegar greiðslur stórfyr-
irtækja til stjórnmálaflokka voru
ekki bannaðar samkvæmt belgísk-
um lögum fyrr en árið 1993, nærri
fímm árum eftir að hinar meintu
mútugreiðslur voru inntar af
hendi.
Verði sakborningarnir dæmdir
sekh’ geta þeir átt von á allt að
fimm ára fangelsi, en stjórnmála-
skýrendur búast við að flestir
þeirra fái ekki meira en skilorðs-
bundna dóma eða sektir.
★ ★★★ HÆSTA EINKUNN í ÖRYGGISPRÓFUNUM HJÁ NACP
www.fia.com
Loftpúðar, ABS bremsukerfi,
öryggisbeltademparar og margt,
margt fleira leggja grunninn að
þessum góða árangri Mégane.
Veldu öryggi - vddu Renault Mégane.
Fólk treystir Renault Mégane.
Hann eröruggasti bíllinn á
markaðnum í sínum flokki, hann
hlaut hæstu einkunn, fjórar stjörnur,
í öryggisprófunum hjá NACP.*
RENAULT
Ármúli 13 • Sími 575 1200 • Söludeild 575 1220
^Samevrópskt verkefni fjölda fýrirtækja og stofnana um árekstraprófanir bifreióa á Evrópumarkaði.
RENAULT MEGANE