Morgunblaðið - 03.09.1998, Qupperneq 38
JI 38 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
„Grunnskóla-
skipið Dröfn44
„ÉG ER sjómaður í
húð og hár“ segir í
textanum. Mikill ljómi
hefur verið yfir störf-
um sjómanna allt fram
á þennan dag, enda
eru það þeir sem
draga að landi þau
verðmæti svo Islend-
ingar teljast til allra
ríkustu þjóða heims í
dag.
Margt hefur breyst í
atvinnuháttum okkar
síðustu tvo áratugina í
kjölfar gríðarlegra
fólksflutninga á höfuð-
borgarsvæðið sem hef-
ur leitt til þess að þjóð-
in hefur fjarlægst sjóinn og þessa
mikilvægu atvinnugrein. Til að
brúa þetta bil milli þjóðarinnar og
Þetta er tímabært
verkefni, sefflr Kristján
Pálsson, og ánægjulegt
að það skuli hefjast á
sj ávarútvegsráðuneyt-
isins og Hafrann-
sóknastofnunar um
leigu hafrannsókna-
skipsins Drafnar RE-
35 til verkefnisins. Að
mati undirritaðs er
Dröfnin mjög gott skip
í þetta verkefni þar
sem tengja má saman
mikla reynslu áhafnar
Drafnar af vinnu við
margskonar veiðar-
færi, reynslu af vís-
indalegum vinnu-
brögðum við grein-
ingu aflans og tengsl
við Hafrannsókna-
stofnun. Skipið er
stórt eða 150 tonn og býður upp á
skoðun aflans undir þiljum og
kennslu af myndböndum ef þurfa
þykir. Einnig verður boðið uppá
kynningu frá Hafrannsóknastofn-
un en eins og alkunna er þá starfa
þar einhverjir fremstu vísinda-
menn í heiminum á sviði hafrann-
sókna.
Á ári hafsins
Kristján
Pálsson
ári hafsins
stærsta atvinnuvegarins, hefur Al-
þingi og ríkisstjórn samþykkt fjár-
veitingu til að starfrækja skólaskip
sem getur boðið ungu grunnskóla-
fólki að kynnast helstu þáttum við
veiðar á íslandsmiðum.
Hafró og grunnskólinn
Til að koma þessu verkefni á flot
> hefur samningur verið gerður milli
Sjáðu heimasíðuna okkar
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
www.islandia.is/kerfisthroun
Dröfnin mun fara í fyrstu ferðina
frá Reykjavík með grunnskólaböm
úr 9. og 10. bekk 7.-17. september
nk. án sérstaks kostnaðar af hálfu
skólanna. Fjöldi ferða fer eftir
áhuga skólamanna á þessum nýja
möguleika í skólastarfinu. Hug-
myndin er sú að í hverri ferð geti
verið um 20 börn og taki hver ferð
um 3 klst. þar sem m.a. skipið og
búnaður þess verður skoðaður,
veiðarfæri notuð og afli rannsakað-
ur með fagmönnum. Að mínu mati
er þetta einstakt og tímabært verk-
efni og ánægjulegt að það skuli
hefjast á ári hafsins. Mikilvægt er
að forsvarsmenn skóla og sveitarfé-
laga noti þetta tækifærið og gefi
æsku landsins kost á að kynnast því
besta á þessu sviði sem völ er á.
„Meitluðu svip og stældu kjark“
var ort um sjómannslífið, líf sem
hefur stælt þessa þjóð til átaka við
stórveldi um fiskimiðin og sigrað.
Að gægjast inn í þetta líf er hverju
ungmenni hollt.
Góða ferð.
Höfundur er alþingismaður og situr
í verkefnisstjóm skólaskips.
V
*
Amir-námskeið. Kennari Lasse.
Street Jam
Techno dance
Jass Funk
Byrjendur: Léttar
Framhald: Erfitt
Innritun daglega
í síma 552 0345
kl. 14:00-20:00.
DAMSSrOLJ
■■« ■ m ws ■ m ■ ■ ■ w ■ » »■ ■ m « ■ maa « jv m »■ ■ ■ ■ <•
Hvalfjarðargöngin,
veggjaldið og vaskurinn
VART blandast
nokkrum hugur um að
tilkoma Hvalfjarðar-
ganga skiptir mjög
miklu máli íyrir alla þá
sem þurfa einhverra
hluta vegna að fara um
Hvalfjörð. Tilkoma
ganganna opnar einnig
mjög marga möguíeika
og sóknarfæri fyrir
byggðirnar á Vestur-
landi, sem og svæði ann-
ars staðar á landinu.
Einna helst hefur borið á
neikvæðri umræðu um
Hvalfjarðargöngin í
tengslum við veggjaldið,
sem almennt er ne&t
vegtollur, flestum þykir
það of hátt. Eins og fram hefur komið
innheimtir ríldssjóður virðisaukaskatt
(VSK) af vegtollinum sem vegfarend-
ur þurfa að greiða fyrir að fara um
göngin. Sveitarfélögin á Vesturlandi,
ásamt fleiri aðilum hafa ályktað um
þetta mál þar sem hvatt er til þess að
ríkissjóður hætti þessari skattheimtu.
Greinarhöfundur tekm- undir þetta og
telur að skoða beri af fullri alvöru
hvort ekki er eðlilegt og rétt að hætta
innheimtu VSK af þessum vegtollum.
Skulu hér nefndar nokkrar af þeim
röksemdum sem færa má íyrir því.
Skattur ofan á skatt
Nú er það svo að veggjaldið sem
vegfarendur þurfa að greiða fyrir að
fara um göngin er í eðli sínu skattur
enda er almennt talað um þetta sem
vegtoll. Þó ekki væri nema þess vegna
hlýtur það að vera óeðlilegt að inn-
heimta VSK af þessum
vegtolli, en þar með er í
reynd verið að leggja
skatt ofan á skatt. Því til
viðbótar má benda á að
ekki er innheimtur VSK
af fargjöldum sem fólk
þarf að greiða íyrir að
ferðast um hvort heldur
sem er með flugvélum,
fólksflutningabifreiðum
eða farþegafeijum. Með
skírskotun til þessa má
færa rök fyrir því að
eðlilegt sé að innheimta
ekki VSK af veggjaldinu
í Hvalfjarðargöngum.
Ríkissjóður eignast
göngin
Veggjöldin sem innheimt eru
vegna umferðarinnar um Hvalfjarð-
argöngin renna meðal annars til þess
að greiða stofnkostnað ganganna og
mun ríkið fá göngin afhent skuldlaus
eftir um 20 ár. Vegna þessa má færa
rök fyrir því að óeðlilegt sé að rílris-
sjóður innheimti VSK af veggjald-
inu, því það er innheimt af umferð-
inni til að greiða niður fjárfestingu
sem verður eign ríkisins. Því til við-
bótar hlýtur það almennt að vera svo
að óeðlilegt sé að innheimta VSK af
gjöldum sem fólk þarf að greiða
vegna umferðar um vegi, jafnvel þótt
um einkaveag sé að ræða sem í of-
análag verður eign ríkisins.
Rökrétt og eðlilegt að
hætta skattheimtu
Eins og fyrr segir þykir flestum of
há upphhæð að greiða 1000 kr. veg-
Hvalfjarðargöng auka
sóknarfæri byggða á
Vesturlandi, segir
Magnús Stefánsson,
en fella á niður vaskinn
í veggjaldinu.
gjald fyrir venjulega fólksbifreið
sem fer um Hvalfarðargöngin.
Vegna innheimtu VSk rennur hluti
af gjaldinu í ríkissjóð. Ef innheimtu
VSK verður hætt verður veggjaldið
þar með mun lægra og myndi því
nálgast þá upphæð sem lengi vel var
rætt um að yrði upphæð veggjalds-
ins.
Það eru mikilvægir byggðahags-
munir sem tengjast tilkomu Hval-
fjarðarganga og því er það mikið
hagsmunamál að veggjaldið sé sem
lægst. Það hefur bein og óbein áhrif
á kostnaðarútgjöld fólksins sem býr
í landinu, jafnt á landsbyggðinni
sem á höfuðborgarsvæðinu. Það er
því fullkomlega eðlilegt að líta já-
kvæðum augum á erindi sveitarfé-
laga á Vesturlandi og fleiri aðila
sem hafa farið fram á að ríkissjóður
felli niður innheimtu VSK af
veggjöldum af umferðinni sem fer
um göngin. FJölmörg rök hníga að
því að þær kröfur séu rökréttar og
eðlilegar.
Höfundur er alþingismaöur
Framsóknarflokks í
Vesturlandskjördæmi.
Magnús
Stefánsson
Bréf til ritstjóra
Morgunblaðsins
Matthías Johannessen
skáld og rithöfundur
Ritstjórn Morgunblaðs-
ins
Kæri Matthías.
„Vísindamenn tapa
trúnni“ er fyrirsögn í
blaði þínu í dag. Neðar
má m.a. lesa „vísinda-
menn sem standa fram-
arlega á sínu sviði eru
gjamari en áður á að
hafna trúnni á Guð“. Er
þetta ekki svolítið leið-
andi frétt? Gefur hún
ekki í skyn að trú og vís-
indi eigi í útistöðum?
Undanfaiáð hef ég
gluggað í bók sem
geymir svör margra
mætra vísindamanna við spumingum
sem varða samband trúar og vísinda,
upprana alheims, upprana lífsins,
guðshugtakið, tilvist guðs og sitthvað
fleira. Um samband trúar og vísinda
hefur Max Planck einn af framkvöðl-
um skammtafræðinnar þetta að segja
„raunverulegar mótsetningar milli
trúar og vísinda era óhugsandi því
saman mynda þau heild“. Planck
hlaut verðlaun Nóbels árið 1918 fyrir
framlag sitt til nýrrar heimsmyndar.
B.D. Josephson hlaut Nóbelsverð-
laun í eðlisfræði árið 1973. Aðspurður
hvort hann komi auga á einhverja
baráttu eða árekstur
milli vísinda og trúar-
bragða svarar hann neit>
andi. Hann segir vís-
indamenn greina á um
trúarbrögð en telur ekki
að um grundvallar
ágreining milli trúar og
vísinda sé að ræða.
Hann trúir á Skaparann.
Manfred Eigen fékk
Nóbelsverðlaun 1967
fyrir framlag sitt til
skilnings okkar á ofur-
hröðum efnahvörfum.
Hann er gagnorður. „Ég
tel að trú og vísindi úti-
loki hvorki né sanni
hvort annað.“ Ekkert
hefur rekið á mínar ijör-
ur sem stangast á við orð þessara
heiðursmanna.
Árið 1988 skrifar Stephen Hawk-
ing: „Fram til þessa hafa vísinda-
menn verið svo önnum kafnir við
smíði kenninga sem lýsa því hvað
heimurinn er að þeir hafa gleymt að
spyrja hvers vegna... Takist að finna
svar við þeirri spurningu yrði það
lokasigur mannlegrar skynsemi, þá
þekktum við hugskot Guðs.“ Þetta
eru niðurlagsorðin í Sögu Tímans í
þýðingu Guðmundar heitins Am-
laugssonar.
Sama sinnis er Nóbelsverðlauna-
Jóhann
Axelsson
Fyrir árið 2000
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
www.islandia.is/kerfisthroun
Yfir 1.200 notendur
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
www.islandia.is/kerfisthroun
hafínn Arthur L. Schawlaw. Hann
hlaut verðlaunin 1981 fyrir framlag
sitt til litrófsfræða leysigeisla. Hann
spyr líka hvers vegna? „Einu mögu-
legu svörin era trúarlegs eðlis“ segir
hann. „Ég þarfnast Guðs í alheimi og
í eigin lífi.“
Nokkrir lífeðlisfræðingar sem allir
hafa hlotið Nóbelsverðlaun, Sir John
Eccles 1963, Ragnar Granit 1967, Ro-
bert W. Holley 1968 og Wemer Ar-
ber 1978, hafa þetta að segja um Guð
í þeirri röð sem þeir era nefndir.
„Ég skynja mig sem einstaka
sjálfsmeðvitaða veru sem ég trúi að
sé sköpuð af Guði.“
„Með takmarkanir vísinda í huga
hef ég trúarlega afstöðu til hins
óþekkta.11
„Ég held að tilvera Guðs verði ekki
þekkt með vissu og sé því hluti af trú-
arlegum viðhorfum okkar.“
„Guðshugtakið hefur hjálpað mér.“
Christian B. Anfinsen prófessor í
líffræði við John Hopkins háskóla
sem fékk Nóbelsverðlaun í efnafræði
árið 1972 er ekki að skafa utan af
hlutunum. „Ég held að það þurfi
mikla heimsku til að vera guðleys-
ingi.“ Það er ekki mín reynsla.
Hér lagðist ég í ferðalög - en lýk
þessu bréfi á bökkum Cam.
Raunvísindamenn era ekki sérfróð-
ir um trúmál. Ég er sammála Vla-
dimir Prelog sem telur Nóbelsverð-
launahafa „ekki hæfari en annað fólk
til þess að fjalla um Guð, trúarbrögð
og framhaldslíf'. Sjálfur fékk hann
Nóbelsverðlaun í efnafræði 1975.
Hitt veit ég að allir þeii’ vísinda-
menn sem ég hefi vitnað til standa
svo „framarlega á sínu sviði“ að það
færi trúlega ekki fram hjá þeim ef
eitthvað í þeirra greinum væri ósam-
rýmanlegt tilvera guðs. Án þess að
gera lítið úr trúverðugleika fréttar-
innar um vaxandi guðleysi vísinda-
manna „sem standa framarlega" hlýt-
ur sú spuming að vakna hvort þeir
hafi nú staðið nógu framarlega?
Þinn einlægur
Jóhann Axelsson.
Höfundur er prófessor.