Morgunblaðið - 03.09.1998, Síða 43

Morgunblaðið - 03.09.1998, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 43 sem við áttuðum okkur á að húsið var í raun frekar lítið og varð síðar að víkja af skipulagsástæðum. Reisnin og myndarskapurinn á heimilinu var hins vegar slíkur, að í minningunni var húsið á Suður- landsbrautinni umlukið ævintýra- ljóma. Rausnarskapur Tótu og gjaftnildi var með slíkum eindæmum að við börnin hlutum að halda að hún væri sterkefnuð. Pað var ekki fyrr en við fullorðnuðumst að við áttuðum okk- ur á þvi, að allt það sem hún var að kaupa og gefa byggðist á þeim pen- ingum sem hún fékk fyrir að hnýta veiðarfæri í ákvæðisvinnu heima hjá sér og skúra Landssímastöðina um áratugaskeið. Það dugði ekki til og þá prjónaði hún um árabil lopa- peysur af miklum móð og seldi, að- allega útlendingum. Hún frænka okkar hefði senni- lega staðið í umfangsmiklum fyrir- tækjarekstri ef hún hefði verið fædd á öðrum tíma og við aðrar að- stæður. Þau kjör sem henni buðust í bamæsku vestur í Olafsvík, þar sem hún missti fóður sinn og afa í sjóslysi þegar hún var aðeins 3ja ára, buðu ekki upp á neinn dans á rósum. Hún ólst upp í skjóli ömmu sinnar og fóðurbróður og fylgdi þeim er hann stofnaði heimili. Föð- urbróðirinn eignaðist 11 börn, þannig að Tóta hefur snemma þurft að byrja að vinna. Missir tveggja ungra barna hefði gert ýmsa bitra, en ekki gátum við af yngri kynslóð- inni fundið neitt slíkt hvorki hjá Tótu eða Guðmundi manni hennar. Þau nuta líka vel þeirra þriggja barna er upp komust, sem bera bernskuheimili sínu gott vitni. Tóta varð líkamlega lúin enda náði hún háum aldri, en andlegum kröftum hélt hún fram í andlátið. Hún sótti í samvistir við sér yngra fólk og var iðulega sú alhressasta þegar fjölskyldan kom saman. Mér fannst Tóta ekki verða gömul, fyrr en hún var lögst banaleguna. Þegar ég starfaði um tíma í næsta ná- grenni við Suðurlandsbrautina kom ég iðulega í hádegismat til hennar og þá var aldeilis spjallað, milli þess sem hún reiddi fram kræsingar samkvæmt venju. Þá var stundum hægt að fá hana til að ræða um gamla tímann. Ekki af því að hún hugsaði svo um fortíðina heldur þvert á móti var hún upptekin af framtíðinni og því nýjasta hverju sinni. Hún var miklu fremur fulltrúi sinnar kynslóðar í því' að nýta hvern einasta hlut vel og umgang- ast þá með alúð og natni. Hún hafði upplifað þá miklu breytingu sem ís- lenskt þjóðfélag hefur gengið í gegnum á þessari öld og komist úr fátækt til þess að vera sífellt veit- andi. Hún var því aldeilis ekki á þeirri skoðun, eins og ýmsir verða með árunum, að allt hafi verið betra áður fyrr. Tóta var einstaklega barngóð og þess nutu börnin mín og höfðu af- skaplega gaman af að hitta hana. Framkoma hennar við börn var líka alla tíð þannig að hún sýndi þeim raunverulegan áhuga, sem börn fínna svo vel. Það lýsir Tótu kannski vel að dætur mínar voru afskaplega hrifnar af tveimur bi-úðum sem voru hafðar til prýðis í -stofunni hennar. Örfáum dögum fyrir andlátið gerði hún þær ráð- stafanir að þeim skyldu færðar þessar brúður. Hún mátti ekki til þess hugsa að skulda neinum neitt og meðan hún var upp á sitt besta var framkvæmdagleðin, kætin og tápið slíkt að fyrir mér var hún fyr- irmynd í því að konur stæðu á eigin fótum og væru engum háðar. Tóta talaði alla tíð þannig að það væri gjörsamlega óþolandi að konur létu karlmenn stjórna sér og lífí sínu. Taldi hún yfirleitt að konum tækist betur að leysa úr málum. Fyrir þetta og svo ótalmargt annað verð- ur þessi stórbrotna frænka mín mér og mínum ævinlega minnis- stæð. Við færum börnum hennar og öðrum afkomendum innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd systkinanna af Sunnubraut, Berglind. t Ástkær móðir okkar, ÁSLAUG GÍSLADÓTTIR, Hæðargarði 35, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur aðfaranótt mið- vikudagsins 2. september. Árný Valgerður Ingólfsdóttir, Sigríður Ingólfsdóttir, Ólafía Ingibjörg Ingólfsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG STEINÞÓRSDÓTTIR, Mýrarholti 14, Ólafsvík, verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju laugar- daginn 5. september kl. 13.00. Sonja Guðlaugsdóttir, Óttar Guðlaugsson, Steinþór Guðlaugsson, Guðmunda Guðlaugsdóttir, Rafn Guðlaugsson, Magnús Guðlaugsson, Sólveig Guðlaugsdóttir, Björg Guðlaugsdóttir, Guðlaug S. Guðlaugsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HELGA KRISTJÁNSDÓTTIR, Vegamótum, Blönduósi, andaðist á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi að kvöldi fimmtudagsins 27. ágúst. Útför hennar fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn 5. september kl. 11.00 árdegis. Þórarinn Þorleifsson, Lára Bogey Finnbogadóttir, Árni Sigurðarson, Guðný Þórarinsdóttir, Sveinn Þórarinsson, Gestur Þórarinsson, Hjördis Þórarinsdóttir, Finnbogi Þórarinsson, Ólafur Þórarinsson, Óskar Sigurfinnsson, Ástdís Guðmundsdóttir, Ragnhildur Helgadóttir, Benedikt Steingrímsson, Vilborg Guðjónsdóttir, Kristín Þorkelsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN BJARNASON frá Efra-Seli, Landsveit, verður jarðsunginn frá Skarðskirkju á Landi laugardaginn 5. september kl. 14.00. Bjarnheiður Björnsdóttir, Margrét Bjömsdóttir, Gyða Fanney Björnsdóttir, Indriði Björnsson, Guðbjartur Bjömsson, barnabörn og barnabarnabörn. Konráð Andrésson, Magnús Einarsson, Ásta Pétursdóttir, Ragnhildur I. Antonsdóttir, t Eiginmaður minn og stjúpfaðir okkar, VIGNIR GUÐNASON, Kópubraut 16, innri Njarðvík, verður jarðsunginn frá Njarðvíkurkirkju, Innri Njarðvík, föstudaginn 4. september nk. og hefst athöfnin kl. 14.00. Guðríður Árnadóttir, Árni Óskarsson, Guðný Óskarsdóttir. + Elskulegur sonur okkar og bróðir, RAGNAR SMÁRASON, Vesturási 30, Reykjavík, er látinn. Nanna Kristín Magnúsdóttir, Smári Emilsson, Edda Ósk Smáradóttir. + Kveðjuathöfn um elskulegan föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUND GUÐJÓNSSON fyrrv. verkstjóra, Lindargötu 57, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 4. september kl. 15.00. Jarðsett verður frá Voðmúlastaðakapellu í Austur-Landeyjum laugar- daginn 5. september kl. 13.00. Sævar Guðmundsson, Helgi Þór Guðmundsson, Sólveig Birna Sigurðardóttir, Ari Eyberg Sævarsson, Guðleif Sunna Sævarsdóttir, Jóhanna Bjarndís Sævarsdóttir, Auður Helgadóttir, Álfheiður, Bjami Sævar, Ámi Þór og Guðmundur Hrafn. Álfheiður Bjarnadóttir, Salóme G. Guðmundsdóttir, Þór Þorgeirsson, Ásta Ósk Hákonardóttir, Baldvin Hrafnsson, + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, bróðir, mágur og tengdasonur, STEINAR BENJAMÍNSSON, Lóurima 7, Selfossi, verður jarðsunginn frá Hvítsunnukirkjunni Fíla- delfíu, Hátúni 2 laugardaginn 5. september kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Safnaðarmiðstöð Hvítasunnu- kirkjunnar, Kirkjulækjarkoti. Lilja Dóra Hjörleifsdóttir, Hjörleifur H. Steinarsson, Benjamín Steinarsson, Guðlaugur I. Steinarsson, Guðlaug B. Steinarsdóttir, Inga Rós Steinarsdóttir, Sigurður V. Benjamínsson, Elsa Benjamínsdóttir, Hjörleifur Guðnason, Katrín Brynjarsdóttir, Dagný Baldursdóttir, Steinunn Marinósdóttir, Ólafur Gunnarsson, Inga J. Halldórsdóttir. + Útför móður okkar, BERGLJÓTAR BJARNADÓTTUR, Norðurbrún 1, Reykjavík, áður til heimilis í Haukadal, Dýrafirði, sem lést miðvikudaginn 26. ágúst, fer fram frá Áskirkju föstudaginn 4. september kl. 15.00. Blóm afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Gigtarfélag (slands. Andrea og Guðmunda Helgadætur. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför HARÐAR VALDIMARSSONAR, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður á Skólavegi 16, Keflavík. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki Hrafnistu í Hafnarfirði. Sigurrós Sigurðardóttir, Sigríður Harðardóttir, Valdimar Harðarson, Auður Harðardóttir, Birgir Ólafsson, Páll V. Bjarnason, Guðný L. Magnúsdóttir, Bergur Hauksson, Stella Olsen.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.