Morgunblaðið - 03.09.1998, Síða 44
44 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
RAGNHILDUR
- ÞOR VALDSDÓTTIR
Ragnhildur
ísleif Þoi-valds-
dóttir fæddist á
Akranesi 17. júní
1925. Hún lést á
Sjúkrahúsi Akra-
ness 26. ágúst síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Þor-
valdur Oskar Sig-
urðsson frá Innra-
Hólmi, f. 7.3. 1903,
d. 31.7. 1939, og
Júlía Sigurðardóttir
frá Sýruparti, f.
30.7. 1906, d. 3.4.
1978. Ragnhildur
var einkabarn.
Hinn 17. júní 1946 giftist
Ragnhildur Baldri Guðjónssyni,
f. á Eyrarbakka 23.1. 1924. For-
eldrar hans voru Guðjón Jóns-
son, f. 18.6. 1893, d. 5.7. 1972,
og Jóhanna Benediktsdóttir, f.
19.5. 1890, d. 7.2. 1924. Fóstur-
foreldrar hans voru Ólafur
Helgason, f. 21.7. 1888, d. 12.9.
1980, og Lovísa Jóhannsdóttir,
f. 30.10. 1893, d.
18.7. 1980.
Dætur Ragnhild-
ar og Baldurs eru:
1) Júlía, f. 2.3. 1946,
gift Ólafi Theódórs-
syni, börn þeirra
eru Baldur Ragnar,
sambýliskona hans
er Auður Líndal
Sigmarsdóttir _ og
sonur hans er Ólaf-
ur Dór; Guðrún El-
len, gift Guðjóni
Theódórssyni, synir
þeirra eru Jökull og
Birkir; Ragnhildur
ísleifs. 2) Jóhanna, f. 17.6. 1952,
gift Kjartani Arnórssyni, börn
þeirra eru Agnar, Arna María,
sambýlismaður hennar er Sig-
urður Tómasson og dóttir
þeirra er Bryndís; María Sigríð-
ur, Baldur Olafur, Jóhann Hers-
ir ojg Melkorka Jara.
Utför Ragnhildar fer fram
frá Akraneskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Nú er þjáningum þínum lokið,
‘amma mín, eftir langa og stranga
baráttu við kvalafullan sjúkdóm.
Barátta þín var hetjuleg og þú gafst
ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Og
allan tímann krafðist þú einskis
heldur gafst af þér til okkar hinna.
Eg vitna til Múhameðs þar sem
hann segir: „Hin sönnu auðævi
mannsins í öðru lífi eru góðverkin
sem hann gerði náunganum í þessu
lífí. Þegar menn deyja er sagt:
„Hvað lét hann mikið eftir sig?“ En
englar munu spyrja: „Hvað hefur
<vhann sent mörg góðverk á undan
sér?“„
Mörg góðverk gerðir þú, amma
mín, og gjafmildari manneskju hef
ég ekki kynnst. Þú vildir alltaf vera
að gefa. Alltaf varstu að rétta eitt-
hvað að okkur og alltaf að spá í af-
mælis- og jólagjafir sem skiptu tug-
um þó að fjölskyldan sé ekki stór.
Þú vildir alltaf gefa eitthvað nyt-
samlegt og alltaf að spyrja hvað
þennan eða hinn vantaði. En fleiri
nutu gjafmildi þinnar en fjölskylda
þín. Ef þú vissir um einhvern sem
átti um sárt að binda eða hafði orðið
undir á einhvern hátt sýndir þú
samúð þína í verki. Þú sendir mat,
fatnað eða peninga og oft vildirðu
ekki láta þess getið hvaðan sending-
in kæmi. í þínum augum voru allir
jafnir, hvaðan sem þeir komu og
hvar svo sem þeir voru staddir í líf-
inu. Þú komst eins fram við alla.
Allt frá því að ég var bam hef ég
haft mikið af þér að segja og margt
hefur þú kennt mér. Frá því að ég
fór að búa hef ég alltaf hringt í þig
til að fá leiðbeiningar í matargerð,
bakstri og öðm sem viðkemur
heimilinu. Þú varst svo viljug að
leiðbeina og ósjaldan stóðstu á eld-
húsgólfinu hjá mér rétt eftir að ég
hafði lagt á og vildir hjálpa mér. Þú
varst alveg ótrúleg.
Líf þitt helgaðir þú fjölskyldu
þinni. Eg veit að þú munt eftir sem
áður taka þátt í gleði okkar og
sorgum í lífinu. Eg veit að þú ert
nærri.
Ég á svo ótal margar minningar
tengdar þér sem munu geymast
mér ævilangt. Margs á ég eftir að
sakna en vafalaust verður margt af
því sem þú sagðir og gerðir rifjað
LEGSTEINAR t Marmari
íslenskframleiðsla Granít
Vönduð vinna, gott verð Blágrýti
Sendum myndalista Gabbró
MOSAIK Líparít
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími 5871960, fax 5871986
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
VIGDÍS EINBJARNARDÓTTIR
frá Ytri-Rauðamel,
sem lést mánudaginn 31. ágúst, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju
laugardaginn 5. september kl. 13.00.
Hulda Bára Jóhannesdóttir,
Þorsteinn H, Jóhannesson, Svanlaug Vilhjálmsdóttir,
Ragnheiður Stefánsdóttir, Skarphéðinn Gissurarson
og barnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRDÍS EIRÍKSDÓTTIR,
Lambastekk 4,
Reykjavfk,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 2. september.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
upp í framtíðinni.
Ég kveð þig að sinni, kæra vina,
og þakka þér samfylgdina.
Eg man hvert orð, hvert atvik amma mín,
já allt það sem þú gjörðir fyrir mig.
Mér þótti falleg ljúfu lögin þín
sem lítið bam ég hlustaði á þig.
Nú vil ég þakka, elsku amma mín
okkar samleið sem var björt og heið.
í lííi mínu lifir minning þín
sem lýsir mér á ævi minnar leið.
(Theódór Einarsson.)
Elsku afi, missir þinn er mikill.
Megi Guð og góðar vættir vaka yfir
þér.
Ellen.
Betra er að gefa en að þiggja
vora að sönnu einkunnarorð hennar
Röggu frænku okkar sem nú er lát-
in, eftir langa og erííða sjúkdóms-
legu. Þau hjónin Ragga og Baldur
(oft kenndur við Skagaver) voru sí-
fellt að gefa öðrum hvort sem um
var að ræða veraldlegar gjafir eða
eitthvað af sjálfum sér. Það voru
ekki bara þeir nánustu sem nutu
góðs af velgjörðum þeirra, heldur
teygðu þau sig langt út í ættbogann
og ófáir vandalausir fengu sinn
skerf. Við systkinin fórum ekki var-
hluta af gjafmildinni og í minning-
unni eru myndir af mörgum góðum
hlutum, eins og t.d. fallegum hand-
klæðum með ísaumuðum fanga-
mörkum sem fylgdu okkur mest öll
uppvaxtarárin og segja má að not-
uð hafi verið upp til agna. Þegar
börnin okkar komu til sögunnar
fengu þau alltaf jólagjafir frá
Röggu frænku og erum við efíps
um að nokkur einstaklingur á ís-
landi hafi gengið frá jafnmörgum
jólagjöfum fyrir hver jól og hún
Ragga.
Nær allan sinn búskap bjuggu
Ragga og Baldur í Bakkatúni 6 á
Aki'anesi. Asamt dætrunum tveim-
ur bjuggu móðir Röggu og móður-
bróðir hennar, þau Júlía og Agnar,
hjá þeim á meðan þau lifðu. Það
þætti ekki öllum sjálfsagt í dag og
segir mikið um hvem mann Ragga
og Baldur höfðu að geyma. Heimil-
ið var alla tíð mjög gestkvæmt. Þar
var engum í kot vísað og þar var oft
glatt á hjalla. Ragga var mjög orð-
heppin og skemmtileg. Hún var
hreinskiptin og sagði alltaf mein-
ingu sína umbúðalaust og gat jafn-
vel stuðað sumt fólk með hrein-
skilni sinni.
Sjöfn móðir okkar og Ragga vom
systkinadætur í báðar ættir. Þær
3lómabúðin
öa^ðskom
v/ Possvogski»*kjMga»*3
Sími: 554 0500
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erfidrykkjur S
^ Sími 562 0200 ^
LXIXXXXXXYYin
tvær og Alda systir mömmu voru
fæddar hver á sínu árinu og því
mjög samrýndar. Við fráfall Röggu
er eins og ein af systram mömmu
og Öldu sé gengin, söknuður þeirra
verður mikill.
Heilsubrestur hefur undanfarið
hrjáð Baldur og skert þrek hans,
missir hans er mestur. Við biðjum
Guð að styrkja hann og vottum
honum og öllum aðstandendum
dýpstu samúð okkar.
Hrefna, Muggur og Jóhannes.
í hjartanu grípur um sig tóm-
leikatilfmning, nú þegar Ragga
frænka er horfin á braut. Söknuður
og eftirsjá er að svo góðri konu en í
sömu andrá léttir yfir því að hún
skuli nú hafa hlotið lausn frá þraut-
um sínum.
Gjafmildin sem einkenndi Röggu
teygði sig víða. Eflaust myndi fylla
margar síður ef rekja ætti hverjir
fengu að njóta hennar en það væri
ekki að Röggu skapi að auglýsa
slíkt. Ég má þó vonandi minnast á
jóla- og afmælisgjafirnar sem í
gegnum árin bárast mér og dætr-
um mínum, oftast heimagerðar og
notalegar gjafir.
Aldrei héldum við veislu nema
Ragga og Baldur væru með okkur.
Samgangur var alltaf mikill enda
skyldleiki í báðar ættir svo okkur
hefur eiginlega alltaf fundist sem
Ragga væri ein af Auðnasystrum.
Það var löngum vinsælt að skreppa
á Bakkatúnið, jafnt í seinni tíð til
þess að spjalla og þiggja heima-
bakstur sem og í gamla daga þegar
við Júlla voram á ballárunum. Þá
var renniríið mikið á loftið þegar
vinkonurnar kepptust við að láta
Júllu klippa sig og greiða þegar
ball- eða bíóferðir voru framundan.
Jafnan sýndu Ragga og Baldur
mikla þolinmæði í garð ungling-
anna og þangað var alltaf gott að
koma.
Afmæliskaffið hjá Röggu var líka
fastur punktur í gegnum árin, hinn
margfalda hátíðisdag 17. júní. Þar
var alltaf margt um manninn og
mikið fjör, gantast á góðlátlegum
nótum enda var stutt í húmorinn
hjá Röggu. Þessum kosti brá jafn-
vel fyrir hjá henni á sjúkrahúsinu
þar sem hún háði hetjulega baráttu
við erfiðan sjúkdóm.
Að leiðarlokum vil ég þakka
Röggu frænku af innileik fyrir allt
sem hún hefur gert fyrir mig og
fjölskylduna í gegnum tíðina. Ljúf-
menninu Baldri sendi ég samúðar-
kveðjur og bið Guð að styrkja hann
og aðra aðstandendur.
Guðmunda (Búbba).
Elsku Ragga, mig langar til að
minnast þín með nokkram línum og
þakka þér það sem þú varst mér og
fjölskyldu minni. Þegar börnin mín
fimm vora lítil og fram yfir ferm-
ingu fengu þau alltaf jólapakka frá
Röggu frænku á Akranesi. Þá var
ekki verið að hugsa um hvort pakk-
inn væri mjúkur eða harður því ull-
arsokkar, vettlingar eða nærföt
voru svo kærkomin að krakkarnir,
egsteinar
í Lundi
v/Nýbýlaveg
SÓLSTEINAR 564 4566
L c %m
í rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum
við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir
legsteina og minnisvarða úr íslenskum
og erlendum steintegundum.
Verið velkomin til okkar eða
hafið samband og fáið myndalista.
S.HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410
sem voru allir á líkum aldri, fóldu
gjafirnar frá þér hver í sínu horni
til að enginn kæmist í þær, enda
undirrituð afleit prjónakona. Síðan
komu fermingargjafir og brúðar-
gjafir frá þér og þá oft með systr-
um mínum, Öldu og Sjöfn, en ég
leit ávallt á ykkur sem tríó. Þær
eiga því um sárt að binda þar sem
þú ert horfin til æðri tilvera. En
mestur er þó söknuður eiginmanns
þíns Baldurs, þessa ljúfmennis sem
studdi þig í öllu, svo sem hinni
ótakmörkuðu gjafmildi þinni sem
svo margir nutu góðs af. Einnig
dætranna, Júllu og Hönnu, og
þeirra fjölskyldna.
Blessuð sé minning þín, elsku
frænka.
Selma Jóhannesdóttir.
í mínum huga er Bakkatúnið,
sem stendur við Lambhúsasund,
staður staðanna á Akranesi og
kemur þar margt til. Við Bakkatún-
ið hefur búið fólk sem er mér bæði
tengt og kært, allt frá því ég fyrst
man eftir mér. Auk þess er Lamb-
húsasundið einn fegursti staður á
landinu, þegar Snæfellsjökull
speglar sig á góðviðrisdegi og sólin
rís og gengur til viðar á hinn tign-
arlegasta hátt. Aldrei fyrr hefur
fegurðin við Lambhúsasundið verið
meiri en á liðnu sumri, en þó hefur
skuggi hvflt yfir Bakkatúni. Ragga
vinkona mín á Bakkatúninu hefur
barist við illkynja mein og hefur
baráttan aldrei verið harðari en á
liðnu sumri þannig að ljóst var um
langt skeið að hverju stefndi. Ragn-
hildur Þorvaldsdóttir var borinn og
barnfæddur Skagamaður, rætur
hennar vora sterkar þar og frænd-
garður stór. Ragga var einstaklega
hreinskiptin og hispurslaus kona,
allir vissu nákvæmlega hvar þeir
höfðu hana og hún var ekki mikið
fyrir að skafa utan af hlutunum.
Hún hafði næmt auga fyrir því
skoplega í tilveranni og það nýttist
henni vel í löngu veikindastríði.
Ung gekk hún að eiga Baldur Guð-
jónsson frá Eyrarbakka, en hann
rak um áratuga skeið umsvifamikla
verslun, Skagaver, á Aki-anesi í fé-
lagi við aðra.
Glæsilegt heimili Röggu og Bald-
urs var um margt ólíkt því sem nú-
tíminn á að venjast, því hjá þeim
bjuggu þrjár kynslóðir, móðir
Röggu Júlía Sigurðardóttir og Agn-
ar móðurbróðir Röggu, en þau áttu
heimili þar meðan bæði lifðu, auk
Röggu og Baldurs og dætra þeirra
hjóna, Júlíu og Jóhönnu. Heimilið
var einkar gestkvæmt, þar komu
saman vinir og vandamenn við hin
ýmsu tækifæri. Húsmóðirin rak
rausnarlegt heimili þar sem ávallt
var lagt á borð fyrir marga munna.
Þangað átti ég mörg sporin og
reyndar öll mín fjölskylda. Mér
fannst það tilheyra á aðfangadag að
heimsækja Röggu og Baldur rétt
áður en jólin urðu helg. •
Systkinin Júlía og Agnar, sem
ávallt fylgdust að, drógu að sér
mikinn fjölda fólks vegna glaðværð-
ar og. tryggðar sem svo margir
nutu. Það er í dag erfitt að hugsa
sér ung hjón eins og Röggu og
Baldur búa með slíkum hætti, nú til
dags þætti það ekki mikið einkalíf,
en fyrir þeim var þetta sjálfsagður
hlutur. Baldur studdi Röggu í öllu
sem hún tók sér fyrir hendur og
sama gilti um hana, hún studdi
hann í hans atvinnurekstri. Þau
áttu bamaláni að fagna, dæturnar
hafa erft dugnað og tryggð foreldr-
anna. Langt veikindastríð hefur
reynt mikið á fjölskylduna, en dæt-
urnar hafa staðið fast við bakið á
foreldram sínum. Við höfum fylgst
með aðdáun með því hve natnar
þær hafa verið við foreldra sína og
stutt þau með ráðum og dáð. Með
þeirra stuðningi hefur Ragga kom-
ist oft heim af sjúkrahúsi daglangt
þar sem hún naut þess að geta ver-
ið heima. Nú hefur hún kvatt og
lagt út á hið fagra sund sem allra
bíður.
Ég votta öllum aðstandendum
djúpa samúð fyrir hönd fjölskyldu
minnar. Blessuð sé minning Röggu
á Bakkatúninu.
Haraldur Sturlaugsson.