Morgunblaðið - 03.09.1998, Qupperneq 46
J
46 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIININUAUGLYSINGA
Lyst ehf. var stofnaó 1993. Fyrirtcekið er íslenskt en starfar samkvœmt
sérleyfissamningi við McDonald’s Corp. íþví felst að fyrirtækið hefur
aðgang að vörumerkjum, uppskriftum, þekkingu og þjónustu
McDonald’s. Starfsmenn hjá Lyst ehf. eru um 100 talsins. Fyrirtækið
rekur tvœr veitingastofur og hyggur á frekari stækkun sem gefur
framsæknu fólki ný tœkifœri til starfsframa.
snóffl - þjAifun
Uahtauinna
McDonald’s óskar eftir að ráða kraftmikla einstaklinga til starfa hjá fyrirtækinu með það að
markmiði að verða framtíðar yfirmenn félagsins. Leitað er að þjónustulunduðu fólki sem hefur
metnað og áhuga á að takast á við krefjandi störf sem ennfremur veita tækifæri til frekari frama
innan fyrirtækisins. Nýir starfsmenn munu verða þess aðnjótandi að fá sérstaka starfsþjálfun hjá
breskum ráðgjöfum okkar, sem hingað eru komnir sérstaklega til þeirra starfa. Námið er bæði
bóklegt og verklegt.
Starfssvið að lokinni þjálfun
• Kunnátta á öllum almennum störfum veitingastofunnar.
• Vaktstjórn sem feiur m.a. í sér mannaforráð, skipulag, pantanir, gæðaeftirlit og margt fleira.
• Þátttaka í stjórnun veitingastofunnar, m.a. kostnaðar- og nýtingareftirlit.
• Samskipti við viðskiptavini.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Heiðarleiki, dugnaður og metnaður.
• Eingöngu kemur til greina fólk sem hefur ríka þjónustulund og stjórnunarhæfileika.
• Menntun og starfsreynsla er kostur en ekki skilyrði.
• Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir vilja til að takast á við starfið til langframa.
• Skipulagshæfni og hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
Góð laun eru í boði.
Nánari upplýsingar veitir Helga Jóhanna Oddsdóttir hjá Ráðgarði frá kl. 9-12 síma 533 1800.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs fyrir 10. september nk. merktar:
“McDonald’s -Stjóri - þjálfun”
RÁÐGARÐUR hf
STJÓRNUNAR- OG REKSTRARRÁÐGJÖF
Furugerði 5 108 Reykjavík Sími 533 1800
Fax: 5331808 Netfang: rgmidlun@radgard.is
Heimasíða: http://www.radgard.is
M KÓPAVOGSBÆR
Lausar stöður
í félagslegri heimaþjónustu
hjá Kópavogsbæ.
Félagsmáiastofnun Kópavogs leitar að áreið-
anlegu fólki, eidra en 18 ára, til starfa við
félagslega heimaþjónustu fyrir aldraða og
skjólstæðinga, 66 ára og yngri. Um er að ræða
heilsdags- eða hlutastörf á dagvinnutíma.
Einnig er óskað eftir samviskusamri og traustri
manneskju í nýja stöðu til að gegna kvöldinn-
litum í heimaþjónustu frá kl. 17.00—21.00 (50%
staða) Viðkomandi verður að hafa bíl til um-
ráða.
Laun samkvæmt kjarasamningum Sóknar við
bæjarfélag Kópavogs.
Upplýsingar veitir verkstjóri í heimaþjónustu
milii kl. 10.00—12.00 í símum 554 5780 og
554 5700.
Starfskraftur óskast
til afgreiðslustarfa nú þegar. Vinnutími frá
kl. 11.00—19.00. Má gjarnan hafa áhuga á
föndri og skreytingum. Ekki yngri en 20 ára.
Vínberið,
Laugavegi 43, sími 551 2475.
/Q áiíwQv
l i ® ííi j; ;;
ALÞINGI
Starfsmaður
hjá Alþingi
Á skrifstofu Alþingis er laus til umsóknar staða
fulltrúa á þingfundasviði. Starfið erfólgið í
margvíslegri aðstoð við þingmenn í tengslum
við þingfundi.
Æskilegt er að umsækjandi hafi háskólapróf
og reynslu af tölvunotkun. Starfsmaðurinn
þarf að vera lipur í samskiptum og geta unnið
sveigjanlegan vinnutíma.
Staðan er laus og æskilegt er að umsækjandi
geti komið til starfa sem fyrst. Launakjör eru
samkvæmt kjarasamningi félags starfsmanna
Alþingis.
Nánari upplýsingar veitir Vigdís Jónsdóttir
í síma 563 0523 og Sigurður Jónsson í síma
563 0675 milli kl. 10.00 og 12.00 f.h.
Umsóknir, sem tilgreini menntun, fyrri störf
og meðmælendur, berist rekstrarskrifstofu
Alþingis, Kirkjustræti 10, eigi síðar en miðviku-
daginn 15. september 1998.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð-
un um ráðningu liggur fyrir.
Dagræstingar
VIQSKIPTAHÁSKÓLINN
( REYKJAVlK
Viðskiptaháskólinn í Reykjavík óskar
eftir að ráða fólk í ræstingar á húsnæði
skólans á dagvinnutíma.
Um er að ræða bæði störf allan daginn
og hlutastörf eftir hádegi.
Starfsaðstaða er öll hin besta, nýtt húsnæði
og allur aðbúnaður til fyrirmyndar.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi hafi
reynslu af ræstingastörfum, snyrtileg
framkoma og eigi gott með mannleg
samskipti.
Mikilvægt er að viðkomandi geti byrjað sem
fyrst.
Einungis er tekið á móti umsóknum á
skrifstofu Liðsauka sem opin er kl. 9-14.
Umsóknarfrestur er til og með 4. september n.k.
Fótk ogr þekkirng
Lidsauki
Skipholt 50c, 105 Reykjavík sími 562 1355, fax 562 3767
Netfang: www.lidsauki.is
Tölvupóstúr: lidsauki@knowledge.is
—im ............
ÍS| Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur
Laus störf í grunn-
skólum Reykjavíkur
Grandaskóli, sími 561 1400
Starfsmenn til að annast gangavörslu, bað-
vörslu og fleira, 100% störf
Starfsmaður til að annast kaffi og léttan
hádegisverð fyrir starfsfólk, 100% starf
Selásskóli, sími 567 2600
Sérkennari, 1 /2-1/1 staða.
Upplýsingar gefa skólastjórar og aðstoðar-
skólastjórar skólanna.
Umsóknir skal senda til skólanna.
Þessar auglýsingar, sem og annan fróðleik,
er að finna á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar
Reykjavíkur: www.reykjavik.is/fmr
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Starfsmenn óskast
Starfsmenn óskast strax við hlutastarf í heils-
dagsskóla Ársels og Árbæjarskóla. Starfið felur
í sér vinnu með börnum 6—9 ára við ýmis
störf; fræðslu, tómstundir o.fi. Æskilegt að um-
sækjandi hafi menntun á sviði uppeldis og/eða
reynslu af vinnu með börnum.
Frekari upplýsingar veita Sigurbjörg, umsjón-
armaður heilsdagsskólans, eða Jóhannes,
forstöðumaður Ársels, í símum 567 1320
eða 567 1740.