Morgunblaðið - 03.09.1998, Page 50
' 50 FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÉSÆTLA UPPA t>AKTIL AB>
LASA LOFTNETIP
Hvað gat ég gert? Ég þurfti að fá vatn
að drekka ...
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavfk • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Enn um málefni
Kosovo
Frá Rúnari Kristjánssyni:
I NÝLEGRI umfjöllun minni um
málefni Kosovo og Metohija féll niður
málsgrein þar sem tekið var fram að
Serbía hefði endanlega unnið sjálf-
stæði sitt frá Tyrkjum 1878. Þau mis-
tök voru mín en ekki blaðsins. Ég
vildi með umfjöllun minni freista þess
að kynna fólki forsögu þessara mála
því eðlilega fræðslu um þau hefur
stórlega vantað. Hins vegar hefur
verið nóg um einhliða áróður sem oft
hefur átt litla samleið með staðreynd-
um. í þeim áróðri hefur nánast verið
klifað á því að Serbar beri alla sök á
því hvemig mál hafa farið í fyrrum
lýðveldum Júgóslavíu. Ég hef mjög
orðið var við það, að almennt séð
skilja menn ekki hvað er og hefur
verið að gerast á Balkanskaga og það
er víða svo. I Bandaríkjunum er al-
menningur t.d. mjög neikvæður
gagnvart Serbum, en þar eru kannski
flestir líka að reyna að átta sig á því í
hvaða Afríkuríki Bosnía er! Menn
taka sem sagt afstöðu áður en þeir
kynna sér málin. Þar eiga fjölmiðlar
oft stóran þátt í skoðanamyndun og
ef umfjöllun þeirra er einhliða og
sanngimi lítil geta vandamálin orðið
stærri fyrir vikið. Eftirleikur mála í
Júgóslavíu er auðvitað eins og til var
sáð. Tító marskálkur leysti ekki
vandamálin sem sköpuðust í stríðinu
eða vora áður fyrir í landinu. Hann
græddi engin sár, hann leyfði ekki að
mál væra rannsökuð og réttlætið
fengi framgang. Böðlar ústasha vora
ekki handteknir nema þá til að sýn-
ast. Margir þeirra vora aldrei sak-
sóttir og þeir vora ófáir sem urðu
embættismenn Tótó-stjómarinnar.
Draza Mihailovic var hins vegar sak-
sóttur og tekinn af lífi! Og iyrir hvað?
Landráð átti það víst að heita. En það
er hins vegar ljóst að einvaldurinn,
Josip Broz Tító, vildi hann feigan.
I Mihailovic sá hann hugsanlegan
keppinaut um völd og áhrif. Þarflaust
er að taka það fram að Mihaiiovic var
Serbi. Sagnfræðingar era nú að end-
urmeta Tító-tímabilið og ný gögn era
sífellt að koma í leitimar sem sýna að
margir era þeir skuggamir sem fallið
geta á þá glansmynd sem löngum var
sýnd af Titó.
Tító var Króati og kommúnisti,
hann reyndi stöðugt að draga úr
áhrifum Serba í sambandsríkinu þar
seam þeir vora langfjölmennastir.
Hann leit á þá sem hugsanlega ógn
við sig og þá valdablokk sem hann
stóð fyrir og vildi tryggja í sessi. Af
þeim ástæðum hélt hann á málefnum
Kosovo og Metohija eftir stríð á
býsna líkan hátt og fasistai- höfðu
gert. Hann lét landsvæðið heyra
beint undir miðstjómina í Belgrad og
sömu sögu var að segja um Vojvod-
ina. Hagfellt þótti að hluta Serbíu
þannig í sundui- svo vægi Serba yrði
minna í ríkinu. Stjórn Títós deildi og
drottnaði í nafni kommúnismans og
jafnvel serbneskir kommúnistar
fylgdu henni í blindni og sáu ekki
hvað verið var að gera þjóð þeirra.
A Vesturlöndum vai' Tító lofsung-
inn því hann hafði þorað að bjóða Sta-
lín birginn. Það eitt gerði hann góðan
í augum flestra ráðamanna þar. Árið
1948 var Stalín slíkur ógnvaldur í
augum Vesturlanda að sá sem stóð
uppi í hárinu á honum var umsvifa-
laust málaður upp sem hetja. En hver
var í hlutverki einvaldsins í Jú-
góslavíu? Hver vildi di-ottna þar sem
sjálfráður einvaldsherra og hafnaði
því að lúta öðram einvaldi?
Hið sanna er að Tító frysti vanda-
málin í stríðslok, sat á þeim allan
valdatíma sinn og jók forsendur íýrir
ægilegt uppgjör. Eftir dauða hans
blossuðu þau svo upp og brátt stóð
allt í ljósum logum í sambandsríkinu.
Gamlar misgerðir vora ekki gleymd-
ar, sárin eftir ústashana blæddu enn,
menn hrópuðu á að fá að jarða sína
dauðu. Og svo bættist við enn ein
plágan og ekki sú minnsta, íhlutim er-
lendis frá sem jókst stöðugt á bak við
tjöldin.
Þau voru mörg veldin sem gátu
hugsað sér að fá bita úr dánarbúi Jú-
góslavíu. Niðurstaðan gat varla orðið
nema ein - Tító-veldið hrandi saman
á skömmum tíma! En meðan ríkið
stóð, meðan vald þess var til staðar,
sátu í æðstu stöðum menn af al-
banska minnihlutanum. Þeir vora
ekki síðri kommúnistar en aðrir. Þar
má nefna t.d. Sinan Hasani sem vár
forseti forsætisráðsins frá maí 1986
til maí 1987. Þá vora Albanir í Kosovo
ánægðir því ríkisvaldið hélt vemdar-
hendi yfir þeim á kostnað Serba. Allir
Ieiðtogar Álbana í Kosovo og Metohi-
ja era í dag með sama markmið í
huga, að losa landsvæðið frá Serbíu
og stofna sjálfstætt ríki Albana þar.
Síðar á það ríki að sameinast Albaníu
eða vera sambandsríki þess ríkis sem
í augum Kosovo-Albana er þeirra
raunverulega föðurland. Þetta gildir
um Ibrahim Rugova, N. Bakalli, A.
Vllasi og alla aðra leiðtoga Albana á
svæðinu. En það sem stendur í vegi
er að Kosovo og Metohija hafa ætíð
verið serbneskt land! Hugsum okkur
afleiðingarnar af þvi, um allan heim,
ef minnihlutar sem era fyrir í fjöl-
mörgum þjóðlöndum veraldar, fengju
að stofna sjálfstæð ríki í þeim lands-
hlutum þar sem þeir væra í meiri-
hluta! Slíkt myndi leiða til allsherjar
stjórnleysis þar sem enginn réði við
neitt. Það er þetta sem gerir það að
verkum að stórveldin neita að styðja
sjálfstæðiskröfur Albana á svæðinu
en vilja styðja þá nánast í öllu öðru.
Stórveldunum er sama um Serba og
þeirra hag, það fer eklri leynt. Aðeins
Rússar hafa stutt þá og standa þó
sjálfir hallt um þessar mundfr. Én
vandinn er sá að í fjölmörgum þjóð-
löndum era minnihlutar sem þó era í
meirihluta í ákveðnum landshlutum.
Það er ekki hægt að gefa fordæmi um
sjálfstæði í slíkum tilfellum. Það
myndi hitta menn sjálfa fyrir víðast
hvar!
í Kosovo og Metohija er landsrétt-
urinn lagalega og sögulega í höndum
Serba. Því verður ekki neitað með
neinum rökum. En inn á þetta land
hafa verið flutt hundrað þúsunda Al-
bana sem nú líta á það sem sitt land.
Það era afleiðingar af stefnu Tyrkja,
ústashastjórnar Króata, Hitlers,
Mussolinis og síðar Títós. Albanir í
Kosovo era sama vandamálið og ráss-
neski minnihlutinn í Eystrasaltslönd-
unum, innflutt vandamál og vandleyst
svo vel fari.
RÚNAR KRISTJÁNSSON,
Bogabraut 21, 545 Skagaströnd.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.