Morgunblaðið - 03.09.1998, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1998 51
BRÉF TIL BLAÐSINS
Húsaleigubætur og
vaxtabætur
Frá Margréti Ólafsdóttur:
ÉG VIL vekja athygli á óréttlæt-
inu varðandi skattbyrði fólks sem
leigir á móti fólki sem fær vaxta-
bætur.
Hvaða réttlæti felst í því að full-
skattleggja húsaleigubætur en
ekki vaxtabætur? Það fólk sem
leigir húsnæði er fátækasta fólkið
9g á í mörgum tilfellum ekki neitt.
I mínu tilfelli átti ég húsnæði með
húsnæðislánum áhvflandi og fékk
vaxtabætur sem komu sér mjög vel
og voru þónokkrar upphæðir. Af
þessu greiddi ég náttúrlega engan
tekjuskatt og þessar bætur rýrðu
ekki barnabætur mínar.
Hins vegar er ég núna eignalaus
vegna óprúttinna manna sem höfðu
af mér aleiguna. Þetta skýi’i ég
ekki nánar því margir Islendingar
hafa skrifað upp á fyrir fólk og
misst allt. En núna bregður svo við
að ég greiði 40.000 krónur á mán-
uði í leigu fyrir Búsetaíbúð og
þurfti að taka lán hjá Búnaðar-
bankanum til að borga fyrir bú-
seturétt. Þetta var skynsamlegt af
mér því íbúð í Búsetakerfínu er ör-
ugg og meðan ég borga leiguna og
afborgun af lánum er mér ekki
sagt upp íbúðinni.
Ég er í fullri vinnu og þarf að
gi-eiða fyrir gæslu 2ja bama. Ég
vinn á kvöldin og um helgar og
legg mikið á mig til að borga skuld-
irnar. Þær húsaleigubætur sem ég
hef fengið þar til í júlí á þessu ári
hafa hjálpað mikið til að standa
straum af skuldunum. En frá og
með júlí hafa bæturnar verið tekn-
ar af mér í nokkra mánuði, sem á
að endurskoða í nóvember, því ég
auðvitað vann of mikið og hafði svo
„gríðarlegar tekjur“ á síðustu mán-
uðum. Ég hef fengið ca
105-110.000 útborgað síðastliðna
mánuði.
En það sem ég vildi vekja at-
hygli á er það að húsaleigubætur
mínar (fullskattlagðar) leggjast
saman við tekjur mínar og lækka
þar af leiðandi bamabætur. En
þeir sem fá vaxtabætur (óskatt-
lagðar) lækka ekkert í bamabótum
við það að fá hundrað þúsunda frá
ríkinu. Þetta er hróplegt óréttlæti
og ég vildi gjarnan að einhver
kæmi með haldbær rök fyrir því
hves vegna þetta kerfí er svona.
Ég vil hér með leggja það til að
húsaleigubætur verði lækkaðar um
t.d. 20% en verði ekki skattlagðar
sem tekjur. Þetta myndi jafna að-
stöðumun þeirra sem kaupa íbúð
og þeima sem neyðast til að leigja
sér húsnæði.
Það er engum blöðum um það að
fletta að þetta er óréttlátt að þeir
sem minnst hafa þurfí að greiða
meiri skatta en þeir sem eiga eign-
ir.
Ég legg til að þetta mál verði
skoðað af ráðamönnum sem allra
fyrst. Við leigjendur höfum rétt á
að fá skýringar á því hvers vegna
húsaleigubætur era skattlagðar en
ekki vaxtabætur til öflunar þaks
yfir höfuðið.
MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR,
íbúi í Búseta.
Barist gegn spillingunni
Frá Karli Ormssyni:
ÞAÐ barst á heimili mitt bréf skrifað
af einni af þeim alþingiskonum sem
segjast berjast af öllu afli gegn spill-
ingu og allri misnotkun á almannafé.
Bréfið er venjulegt áróðursbréf frá
vinstri mönnum, í þessu tilfelli þing-
konu Þjóðvaka. Hún vogar sér að
skrifa þetta á bréfsefni Alþingis,
með haus og mynd af Alþingi. Þetta
er á kostnað okkar skattborgaranna,
þetta sýnir þá gi’ímulausu ■ aðferð
þeirra sem nota hvert tækifæri til að
koma málstað sínum að hvernig sem
það er gert. Það er ekki bæði hægt
að berjast gegn spillingu og hlaupa
svona á sig með þessu áróðursbréfi.
Umrædd kona sem bréfíð var skrifað
til er búin að vera áratugi í fulltrúa-
ráði Sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
vík.
KARL ORMSSON,
fv. deildarfufltrúi.
www.mbl.is
i
Langar þig aá læra á píanó?
Býð upp á einkatíma í píanónámi fyrir börn og fullorána,
byrjendur og lengra komna.
Uppfysingar í símum 566 8908 og 566 8143 (símsvari).
Geyniuí auíjlýóinquna
Arnhildur Valgarðsdóttir BA, CPGS.
Drengjakór
Laugarneskirkju
Gctum bætt við okkur nokkrum
drengjum, frá 9 ára aldri, í kórinn.
Inntökupróf verða á morgun, föstud.
4. sept., kl. 17:00-18:00 í Laugameskirkju.
Nánari upplýsingar í símum 567 3061 og
552 8386.
HBggHBBBBnBBBBBBBBMBHnHBBBHRBnBOBBBnBHBBBBHBBMBni
Amerísk kmbbabelcji
Dagana 4. - 6. september verður boðið upp á ljúffenga og
spennandi krabbarétti á veitingahúsinu CARPE DIEM,
framreidda á Ameríska vísu. Taekifæri sem sælkerar geta ekki
látið framhjá sér fara. Á CARPE DIEM er einnig kominn nýr
og fjölbreyttur matseðill.
Borðapantanir oý upplýsincjar t síma 552 4555
wmmmmmmmmmmmamBaammmmmmmmmmmmmmommmma
B I S T R O
Rauðarárstíg 18 • Sími 552 4555
Tilboðs- og
teiknivinna án
skuldbindinga
VERSLUN FYRIR ALLA !
ILDSÖLU
Fjölbreytt úrval af
vönduðum
innréttingum.
Láttu huamvndir
- tryggi
ViS Feilsmúla
Sími 588 7332
verði!
hugmvndir
ið veruleika
þínar verða að veruleika
EINN. TVEIROG ÞRÍR/157.001