Morgunblaðið - 06.09.1998, Side 56
56 SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
Leikhússport vetrarins að hefjast
Að blása
sápukúlur
Leikhússport er að hefjast í Iðnó eftir vel
heppnaða frumraun í sumar. Nýir leikarar
hafa bæst í hópinn og er spennandi keppni
framundan. Pétur Blöndai leit inn á æf-
ingu 1 Kram-húsinu.
ÞAÐ ER eitthvað heillandi við leik-
hússportið. Eitthvað svo ómót-
stæðilega heillandi. Að koma sam-
an og segja sögur - án allrar eigin
ritskoðunar. Að eiga skilyrðislaust
að segja það fyrsta sem kemur upp
í hugann.
- Hvenær má það eiginlega í mann-
legum samskiptum?
Svo eni þessar stundum órök-
vísu hugsanir gripnar á lofti og við-
brögðin eru svo sterk og leikararn-
ir bara eiga að taka undir það aftur
og blása út hugsunum sínum að
nýju, - eins og sápukúlum...
Ef keppanda mistekst, t.d. vegna
óttans við að gera sig að fífli,
springur sápukúlan. Það er gott í
leikhússporti að gera sig að fífli.
Eiginlega er það dálítið skilyrði að
allir láti eins og fífl. Það er svo
Kripalu-yoga
Morgun- og síðdegistímar
Byrjenda- og framhaldsnámskeið
Kennari: Helga Mogensen
Þríréttaður 1
kvöldverður, v. Bergstaðastræti
skcmintidagskrá sími 551 5103 ^
KRfm
H&SI&
NYTT FRA SVISS!
Ekta augnhára- og jí SWÍSS-O-Par
augnbrúnalitur Í'T.
- .. __. . | T KROSSHAMflH, simi 588 8808
með c-vitamini. ->
Allt í einum pakka, *•
auðvelt í notkun og ’
endist frábærlega.
- .*«
Útsölustaðir: Líbia Mjódd, Dfsella Hafnarfiröi.
Háaleitisapótek, Grafarvogsapótek, Egiisstaöaapótek,
Apótekiö Hvolsvelli, Apótekið Hellu, löunnar apótek,
(safjaröarapótek, Borgarnesapótek, Regnhlífabúöin,
Apótekiö Suðurströnd, Apótekiö Iðufelli, Apótekið
Smáratorgi, Vesturbæjarapótek, Hafnarapótek, Hötn,
Akureyrarapótek.
skemmtilegt. Uppi á sviði er nefni-
lega allt leyfilegt og áhorfendur
verða afskaplega þakklátir þegar
einhver leikaranna er svo hugrakk-
ur að gera sig að fífli.
- En kemur það nokkurn tíma fyr-
ir?
Já, því það sem hann segir
stendur ekki skrifað í neinu hand-
riti. Það er ekki fyrirfram skrifuð
ræða. Höfundurinn bíður ekki og
nagar neglumar af spenningi bak-
við tjöldin. Hann stendur á sviðinu
og fær viðbrögð áhorfenda milli-
liðalaust. Það er sportið. Ef leikar-
inn mismælir sig eða hikstar á
spunanum þá er það hann sem ger-
ir sig að fífli.
Dæmi um leikþátt
af æfingu
Par er að skilja. Það er búið að
þvo íbúðina hátt og lágt. Hún
sveiflar síðasta pokanum í ruslið
og það glymur í tunnunni. Hún
gengur aftur inn í íbúðina og
kveðjustundin er runnin upp.
(Leikaramir mega aðeins nota
eitt orð.)
„Týpískt,“ segir hann um
dramatíska ferð hennar með
ruslapokann.
„Hvað?“ spyr hún skilnings-
vana.
„Bara,“ segir hann og lítur und-
an. „þú“.
Hann heldur áfram fýldur á
meðan hann horiir upp í loftið:
„Jæja...“
„Okei,“ segir hún önuglega.
þögn.
Hann horfir í átt að veggnum.
Lengi.
„Sófinn,“ stynur hann loks og
brestur í grát.
„Ekki,“ segir hún köld.
Hann grætur.
Grætur enn.
Hún gengur að honum og strýk-
ur fíngrunum gegnum hárið á
honum. Svo fer hún niður á
fjóra fætur:
„Mjá...“
Hann lítur upp.
„Manstu?“ spyr hún.
Hann fer niður á fjóra fætur:
„Voff...“
„Mjávoffmjávoffmjá..."
„Ekki!“ segir hann og sprettur
á fætur.
Hún rís hægt á fætur. Lítur á
hann.
„Farin,“ segir hún, tvístígur að-
eins og gengur svo út.
Hann stendur kyrr smástund.
Hleypur svo í dyragættina og
kallar:
„Heyrðu!“
„Já,“ svarar hún og snýr sér \ið.
Hann hugsai- sig um.
„Ekkert," segir hann svo.
þau horfast í augu.
„Bjössi," segir hún.
„Já,“ svai-ar hann.
„Mjá,“ hvíslar hún lágt.
„Voff,“ hvíslar hann lágt.
Svo gengur hann aftur inn og
lokar hurðinni.