Morgunblaðið - 06.09.1998, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1998 57
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Arni Sæberg
HVAÐ ætli Halldóra Geir-
harðsdóttir sé að liugsa?
- En er þetta þá ekki martröð leik-
arans?
„Jú,“ svarar Margrét Vilhjálms-
dóttir leikkona og glottir eins og
Skarphéðinn í brennunni. „Við er-
uni vön að æfa allt sem við komum
nálægt, þótt fólk virðist halda að
við séum að hittast í fyrsta sinn á
frumsýningum. í leikhússportinu
þurfum við hins vegar að skálda
allt upp á staðnum og þótt við höf-
um nokkrar aðferðir til að styðjast
við er það mikil áskorun."
Morgunblaðið/Halldór
MARGRÉT Vilhjálmsdóttir bros-
ir í miðri martröð leikarans.
Margrét segir að leikhússportið
hefjist á morgun, verði einnig þar
næsta mánudag og svo annan
hvern mánudag eftir það í allan
vetur. „Vonandi verður þetta sjálf-
sagður hlutur hjá fólki, - svona eins
og útvarpsleikritið á fimmtudög-
um,“ heldur hún áfram og hlær.
- En hvaðer eriðast?
„Hvað allt er óljóst,“ svarar hún.
„Auðvitað er líka erfítt að vera fyr-
ir framan áhorfendur en það virkar
einnig hvetjandi. Galdurinn er sá
að vera ekki of frumlegur; reyna
ekki að fara fram úr sjálfum sér í
æðislegum hugmyndum. Maður
verður að nýta formið. Áhorfendur
eru fljótir að skilja reglurnar og
skilja strax þegar einhver brýtur
þær. Þeir sjá það betur en dómar-
inn - eins og á fótboltaleikjum.
Þannig að þetta er eins og hver
önnur íþrótt."
Bannorð
leikhússports
Neikvæðni: „Eigum við að
týna krækiber?“ „Hrmpff.. við
getum það svosem." Enginn
hefur gaman af að horfa á leik-
ara í fýlu.
Hindrun: „Ert þú Páll?“
„Nei.“
Pá er engin leið að halda
spunanum áfram.
Hræðsla: ,/Ettum við að?..“
„Já, eigum við aðÐ..“ „Já, við
skulum...“
Og kom sér svo aldrei að efn-
inu.
Hætta við: Hún kallar: „Dyra-
bjallan var að hringja.“ Hann
fer til dyra: „Það er enginn,“
og lokar hurðinni.
Aldrei byrja á neinu oghætta í
miðju kafi.
Slúður: „Konan mín er með
viðhald." „Er það?“ „Já.“
„Nú?“
Ekki gott í þriðju pei-sónu.
Betra: „Konan mín er með við-
hald.“ „Ég veit, það er ég.“
Öryggi: Að standa á bakkan-
um, látast veiða og ræða sam-
an - lengi.
Of auðvelt, - það verður að
umbylta aðstæðum með veiði-
verðinum eða skyndilcga’...
Að telja: Að vera á leið í búð-
ina en fara aldrei alla leið.
Ekki tefja þótt óvissan taki við
þegar í búðina er komið. Þá
byi-jar spuninn fyiir alvöru.
Frumleiki: „Hvað er í tösk-
unni?“ „Loch Ness-skiímslið!“
Veikii- söguna og geiir hana
ótmverðuga. Óðavandræði: Ef
leikaramir sem koma sér í of
mikil vandræði í byrjun
spunans.
Vont fyiir uppbyggingu sög-
unnar.
6-12 vikna námskeið í Ijósmynda
og tískuför&un hefst 14. sept. nk.
Gó& starfsreynsla á námstíma,
för&unarskólinn sér um alla förðun
fyrir Herra Islands '98.
Hjá Förðunarskóla FACE starfa aðeins
vanir kennarar með milda starfsreynslu.
Allar nánari upplýsingar og skráning
í síma 562 7677.
FACE
STOCKHOLM
Skeifunni 7-106 Rvk.
www.mbl.is