Morgunblaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 MORGUNB LAÐIÐ FRÉTTIR Oheppnin eltir japönsk túnfískveiðiskip við Island með stuttu millibili mwiTvnctn eo , T , • , Morgunblaðið/Magni Morgunblaðið/Guðmundur St. Valdimarsson FUKUYOSHI Maru 68 seð ur þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem lýsti monn- NOKKRIR japönsku sjómannanna komnir heilu og höldnu í varðskipið Ægi eftir strandið í fyrrinótt. um við björgun skipsins í fyrrinótt. EKKI þótti ástæða til að kanna hugsanlegan olíuleka úr japanska túnfiskveiðiskipinu Fukuyoshi Maru 68, sem strandaði á Jörundar- boða í Skerjafirði á þriðjudags- kvöld. Hollustuvemd ríkisins var gert viðvart til öryggis fljótlega eft- ir strandið og sagði Eyjólfur Magn- ússon hjá Hollustuvernd að vont veður og myrkur hefði komið í veg fyrir könnun á vettvangi strax eftir strandið. „Hafi einhver olía lekið úr skipinu er um mjög lítið magn að ræða og hún hefur brotnað niður og gufað upp mjög fljótlega í því veðri sem var um kvöldið," sagði Eyjólf- ur. „Þetta verður ekki kannað nán- ar nema okkur berist frekari til- kynning um olíumengun." Beðið hefur verið um sjópróf vegna strandsins og verða þau hald- in innan tíðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur. Hvort krafist verði björgunarlauna fyrir björgunina er of snemmt að segja til um, en kanna verður skilyrði fyrir innheimtu þeirra. „Það er ekki vitað hversu há launin ættu að vera og við vitum heldur ekki um verðmæti skipsins eða farms þess,“ sagði Stefán um forsendur kröfu um björgunarlaun. „Það kemur fram við sjópróf, en Skipið skemmt en ekki talin hætta á mengunarslysi þau verða haldin eftir að lögreglu- skýrsla liggur fyrir frá skipstjóran- um.“ Innsiglingarvitarnir sjást illa í máli Halldórs Ásgeirssonar, skipstjóra björgunarbátsins Henrýs Hálfdanarsonar, sem dró japanska skipið af strandstað, kom fram að ljósin frá innsiglingarvitunum við Reykjavík sjást orðið illa vegna skærra ljósa í höfuðborginni. Segist hann hafa heyrt á sæfarendum að innsiglingarleiðin að Reykjavíkur- höfn sé villugjörn. Hann segir að fyrir þá sem þekki ieiðina og séu vanir henni sé ekki við mikinn vanda að etja, en málið vandist hins vegar þegar ókunnugir eiga í hlut. „Ljósin sáust ágætlega hér áður fyrr þegar götulýsing var minni í borginni, en nú þegar borgin hefur stækkað eru bakgrunnsljósin orðin svo sterk að innsiglingarljósin renna saman við þau,“ sagði Hall- dór. Hann vildi ekki fullyrða að þarna væri komin skýring á strand- inu, en bendir á að lýsingin við inn- siglingarleiðina sé ávallt ofarlega í huga sínum sem og annarra sæfar- enda. Varðskipið Ægir, Henrý Hálf- danarson björgunarskip Slysa- vamafélagsins og TF-LÍF þyrla Landhelgisgæslunnar auk björgun- arbátanna Asgeirs M og Sigurjóns Einarssonar frá Slysavarnafélaginu störfuðu saman að björgun skip- verjanna tuttugu og tveggja. Þeim var bjargað um borð í Asgeir M og Sigurjón og fluttir í varðskipið Ægi kl. 22.30 en þrír varðskipsmenn höfðu farið um borð nokkru áður. Stóð til að nota bátana til að koma taug frá Ægi í túnfiskveiði- skipið þar sem það lá á Jörundar- boða. Það tókst ekki því skipið losn- aði upp af skerinu og rak til suðurs inn Skerjafjörðinn áleiðis upp í Álftanes. Var þá brugðið á það ráð að senda Henrý Hálfdanarson á eft- ir skipinu. Bátsverjar Henrýs und- irbjuggu línuskot á fullu stími og tókst þeim að koma línunni um borð í skipið þar sem varðskipsmenn voru fyrir og tóku við henni. Henrý sneri skipinu síðan við og dró það til baka á milli skerjanna út á frían sjó þar sem varðskipið Ægir tók við drættinum. Að mati Stefáns Melsted, lög- fræðings Landhelgisgæslunnar, voru menn ánægðir með framvindu björgunarinnar. „Þarna voru erfið- ar aðstæður, þungur sjór og mikill vindur auk þess sem varast þurfti boða og grynningar," sagði Stefán. Egill Þórðarson hjá Landhelgis- gæslunni sem, með japönskukunáttu sinni, átti drjúgan þátt í björgun skipverjanna þriggja af japanska túnfiskveiðiskipinu Hauken Maru, sem fékk á sig brot fyrir nokkrum dögum, var einnig í stóru hlutverki að þessu sinni og þótti mönnum sem fullreynt væri hversu mikla þýðingu tungumála- kunnátta björgunarmanna hefði við slíkar aðstæður. Dagur dagbókarinnar Von a mörg- um dagbókum og handritum I DAG er tekið á mótí dagbókum og öðrum persónulegum heimildum í Þjóðarbókhlöðunni í tilefni af Degi dagbókarinnar. Einnig verður opnuð sýning á eldri dagbókum á annarri hæð, þar sem m.a. gefur að líta dag- bók Magnúsar Hj. Magnússonar sem var fyrirmyndin að Olafi Kárasyni Ljósvíkingi í Heimsljósi Halldórs Laxness. Hátíðardagskrá í Þjóðar- bókhlöðunni hefst klukkan 10:30. Búist er við að íjölmargir afhendi persónuleg gögn til varðveislu í handritadeild Landsbókasafns en gefendur geta innsiglað þau til fjölda ára. Framkvæmdanefnd dagsins hefur farið þess á leit við al- menning að kanna hug sinn um að afhenda dagbækur, bréf eða handrit forfeðra sinna í safnið. Einnig hefur hún leitað til þekktra höfunda og at- hafnamanna um að afhenda dag- bækur eða önnur handrit. Persónu- leg gögn eru geymd í rammgerðum geymslum handritadeildarinnar. „Það hafa margir haft samband undanfama daga og ætla að koma hingað í dag,“ segir Kári Bjamason á handritadeild, „meðal þeirra sem koma í dag, munu afhenda eða hafa afhent gögn í tilefni dagsins eru: Steingrímur Hermannsson seðla- bankastjóri sem afhendir dagbók sína frá yngri árum og bréfasafn föður síns, Hermanns Jónassonar fyrrverandi forsætisráðherra. Gunnar J. Friðriksson, fyrrver- andi framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambandsins, afhendir bréf og dagbók langafa síns, Einars Ás- mundssonar í Nesi. Ingeborg Einarsson afhendir dagbók sína til 40 ára. Auðunn Bragi Sveinsson afhendir dagbók sína til 60 ára. Afhent verður dagbók Jóhönnu Sigríðar Amfinnsdóttur til 40 ára. Einnig koma gögn eftirfarandi manna til varðveislu," segir Kári Bjamason, „handrit Tómasar Guð- mundssonar skálds, handrit Matthí- asar Johannessen, skálds, m.a. frumdrættir að ævisögu Ólafs Thoi's auk óbirtrar skáldsögu, handrit Jakobínu Sigurðardóttur skáldkonu, dagbækur Sigurðar Helgasonar, fyrrv. forstjóra Flug- leiða til 25 ára, nótnahandrit Mark- úsar Kristjánssonar píanóleikara og dagbækur í teikningum til tæpra 20 ára eftir Halldór Ásgeirsson mynd- listarmann." Morgunblaðið/Ásdís KÁRI Bjarnason handritavörður með dagbók Magnúsar Hj. Magnús- sonar, sem geymd er í Þjóðarbókhlöðunni og verður á sýningu, sem opnuð er í dag. Nýtt á mbl.is Eigin dagbók á Netinu í TILEFNI af Degi dagbókarinn- ar gefst lesendum Morgunblaðs- ins kostur á að skrá eigin dagbók á slóðinni www.mbl.is/dagbok. Þjóðháttadeild Þjóðminjasafns og handritadeild Landsbókasafns hafa hvatt landsmenn annars veg- ar til að skrifa eigin dagbók í dag og hinsvegar að afhenda eldri dag- bækur í Þjóðarbókhlöðunni. Á mbl.is á Netinu verður í dag og á morgun hnappur handa þeim sem hyggjast skrifa eigin dagbók og geta þeir skrifað hana í einni lotu eða fleiri. Þeir sem ætla að skrifa geta skráð sig með notenda- nafni og valið sér leyniorð til að tí'yggt sé að engir aðrir geti breytt textanum. Vilji þeir hins- vegar bæta við eða breyta textan- um slá þeir inn notendaheitið og fá þá það á skjáinn sem áður var skrifað. Dagbókarskrifari getur ákveðið sjálfur hvort skriftirnar birtist jafnharðan á Netinu eða hvort þær fari rakleitt til þjóð- háttadeildarinnar. Áður en dag- bók birtist á Netinu er hún próf- arkalesin. Bækurnar fara síðan til varðveislu í þjóðháttadeild og úr- val af dagbókarskrifum lands- manna verður gefið út á bók á næsta ári. I.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.