Morgunblaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Að njóta leiklistar FÉLAG íslenskra háskóla- kvenna gengst fyrir þriðja námskeiði sínu með Jóni Við- ari Jónssyni leiklistarfræð- ingi, og hefst það þriðjudaginn 20. október kl. 20 og verður í fjögur skipti. Þemað er að þessu sinni hvernig ritverk verður að kvikmynd eða leikriti. Heine- sen á kvikmyndatjaldinu og Kristín Marja Baldm'sdóttir á leiksviðinu. Ætlunin er að skoða kvik- myndina Dansinn eftir Ágúst Guðmundsson og leikritið Mávahlátur ásamt nokkrum öðrum leikverkum á fjölum Borgarleikhússins. Nánari upplýsingar og inn- ritun hjá formanni félagsins Geirlaugu Þorvaldsdóttur. Leikaraskipti í Avaxta- körfunni VALGERÐUR Guðnadóttir leikur sína síðustu sýningu í Ávaxtakörfunni nú um helg- ina, en hún er á fórum utan. Margi’ét Kristín Sigurðardótt- ir tekur við hlutverki Stóra graskersins á móti Selmu Björnsdóttur. Sýningum lýkur Norræna húsið MÁLVERKASÝNINGU Erlu Axels lýkur nú á sunnudag. Á heimasíðu og netgalleríi Erlu má sjá sýnishorn verka henn- ar. Slóðin er http://www,- mmedia.is/~xogz/erla Elmgreen & Dragset sýna í Gallerí Ingólfsstræti 8 og á Klambratúni Hvít form leyst upp Morgunblaðið/Golli INGAR Dragset og Michael Elmgreen voru að leggja síðustu hönd á uppsetningu sýningarinnar í Ingólfsstræti 8 í gær. HVITA gallerfinu plantað niður á Klambratúni. ÞEIR leysa upp formin sem eru óstöðug og umbreytanleg í eðli sínu. Hið hvíta, hlutlausa og á stundum eins og sótthreinsaða rými sýningar- salanna hefur orðið þeim óþrjótandi uppspretta hugmynda og rauði þráð- urinn í verkum þein-a er að öllum formum sé unnt að breyta. Lista- mennirnir Michael Elmgreen frá Danmörku og Ingar Dragset frá Noregi opna í dag kl. 17 sameigin- lega sýningu í Gallerí Ingólfsstræti 8 og bjóða svo gestum að ganga með sér að Kjarvalsstöðum til þess að vera viðstaddir formlega opnun á verki þeirra, „Dug down white cube gallery“. Sýningin stendur fram til 8. nóvember nk. Málþing og vinnu- stofuheimsóknir Sýning þein-a félaga er liður í verkefninu íslandstengsl, sem er skipulagt af Norrænu samtímalista- miðstöðinni NIFCA í samstarfi við Gallerí Ingólfsstræti 8 og Listasafn Reykjavíkur að Kjarvalsstöðum. Á morgun, föstudag, munu fulltrúar nokkurra sýningarsala á Norður- löndunum og í Belgíu heimsækja vinnustofur listamanna í Reykjavík, auk þess sem þeir munu taka þátt í málþingi á Kjarvalsstöðum á laugar- dag. Markmið verkefnisins er að örva umræður og samskipti milli listalífsins á Islandi og öðrum Norð- urlöndum og verður sjónum einkum beint að hlutverki einkarekinna sýn- ingarsala. I kynningu segir að þar muni sérstaklega verða tekin fyrir hin óljósu mörk milli lögmála lista- verkamarkaðarins og ástarinnar á listum. Málþingið hefst kl. 13 á laug- ardag og er öllum opið. Elmgi'een og Dragset hafa starfað saman að listsköpun í þrjú og hálft ár og hafa haldið sýningar víða. Ný- lega tóku þeir t.d. þátt í samsýningu á Louisiana-safninu í Danmörku, þar sem verk þeirra var eins konar stökkbretti sem klauf sundur safn- glugga sem snýr út að sjó. í Galleri Tommy Lund í Danmörku og á gjörningahátíð í Mexíkó nýverið sýndu þeir gjöming þar sem þeir máluðu hvíta veggi gallerísins við- stöðulaust í tólf klukkustundir með 160 lítrum af hvítri málningu, sem þeir svo reglulega spúluðu af með háþrýstislöngu svo málningin rann af veggjunum í stríðum straumum. Að eigin sögn era þeir með þessu meðal annars að benda á að hvíti lit- urinn er ekki hlutlaus, jafnvel þó að veggir kirkna, dómsala, safna og gallería séu oftast málaðir í þeim lit. „Það er líka eins konar val að mála hvítt, það væri alveg eins hægt að mála alla dómsali og allar kirkjur gi-ænar, til dæmis,“ segir Michael. Á sýningunni í Ingólfsstræti 8 eru þrjár ljósmyndaraðir af þremur verkum þeirra, því sem áður var lýst og þeir kalla „12 hours of white paint“, gjörningi sem þeir stóðu fyrir í Vín fyrir skömmu þar sem þeir máluðu stórt glerbúr að innan með hvítri málningu meðan áhorfendur stóðu fyrir utan og horfðu á lista- mennina hverfa inn í verkið, og litlu hvítu húsi fyrir homma að hittast í, sem þeir sýndu í Marselisborgar- skógi skammt utan Árósa í tengslum við hina árlegu listaviku þar í borg fyrr í haust. „Við erum ekki einungis að búa til listaverk, heldur vinnum við með það umhverfi sem listaverkin eru venju- lega sýnd í, þessa hvitu veggi, sem henta mjög vel fyrir list en virka samtímis fráhrindandi á marga, með þeim afleiðingum að þeir halda sig frá því að fara á sýningar, vegna þess að umgjörðin virkar sótthreins- uð, hlutlaus og geld, og aðeins fyrh- hina betri og penni borgara,“ segh- Michael. Verkið sem þeir sýna á Klambra- túni við Kjarvalsstaði er eftirlíking af hvítu galleríi sem þeh- hafa sett saman og er reyndar á stærð við sýningarsalinn í Ingólfsstræti 8 en án þaks. „Galleríið" er gi'afið niður í jörðina rétt fyrir utan Kjarvalsstaði, svo einungis er hægt að skoða það og hvíta veggi þess ofan frá. En það hanga engar myndir á veggjunum. „I staðinn fyrir að sýna skúlptúra í galleríinu gerum við galleríið að skúlptúr í sjálfu sér.“ UT UR LIN- SKÁPNUM VERK eftir Þórdísi Öldu. VERK Eyglóar Harðardóttur. MYNPLIST Nýlistasafnið BLÖNDUÐ TÆKNI ÞÓRDÍS ALDA SIGURÐARDÓTTIR Opið alla daga nema mánudaga, frá 14-18. Til 18. október. ÉG FÆ ekki betur séð en að við- horf til kvennalistar, sem svo má kalla, hafi verið að breytast, m.a. að því leyti til að hún er ekki sjálfkrafa sett í samhengi við pólitíska baráttu. Ýmsar hvatir, aðrar en pólitískar geta legið að baki, t.d. að endurmeta myndmennt kvenna sem yfirleitt hefur verið hunsuð innan listasög- unnar; að vega upp á móti karllæg- um viðhorfum til listsköpunar með þvi að ganga út frá þeirri menning- ararfleifð sem konur sjálfar hafa mótað; gefa meh’i gaum að okkar nánasta umhverfi sem við erum gjarnan blind á; skoða reynslu manna, viðhorf og gildismat í ljósi þeirra starfa sem konur hafa að öllu jöfnu sinnt. Mér sýnist það vera síðastnefnda atriðið sem komist næst því að skýra ástæðuna fyrir því að Þórdís Alda Sigurðardóttir velji þvott og allt sem honum tilheyrir sem þema í sýningu sína. Þvottur, bæði óhreinn og hreinn, og það ferli sem hann gengur í gegnum, er rauði þráðurinn sem bindur saman verkin á sýningunni. Með því að þvo, strauja, brjóta sam- an og ganga frá upp í skáp, er gengið í gegnum síendurtekið ferli, hringrás, þar sem skiptast á óregla og skipulag. Það hefur alltaf verið viss hætta á að kvennalist festist í klisjum um ímynd konunnar, t.d. þeim að sjón- deildarhringur konunnar hafi af- markast af heimilinu og störfunum innan þess, þvotti, útsaumi og annarri heimilisiðju. En Þórdís reyn- ir einmitt að brjótast út úr þeirri hugmynd að þvottur tilheyri ein- göngu reynsluheimi kvenna, svo not- aður sé útjaskaður frasi, með því að nota hann sem myndlíkingu um lífs- starf okkar almennt. Lín öðlast því ákveðna merkingu í verkum hennar, sem klæði lífs og dauða: þegar við fæðumst erum við sett í lín, við sof- um á líni og þegar við deyjum eram við sveipuð líni. Þórdís Alda leikur sér með tákn og líkingar í ýmsum tilbrigðum, en sú hugmynd sem var hvað mest slá- andi var að finna í verkinu „Þrjú innbundin augnablik", sem eru þrjár leðurinnbundnar bækur, þar sem í hverri opnu skiptast á mynd af lokuðum og opnum augum. Mað- ur getur ímyndað sér að í hverri bók sé að finna öll augnablik í ævi manns, ævisagan frá augnabliki til augnabliks, sem er lítið meira en augnablik þegar allt er samankom- ið. Þórdís Alda vinnur með margar ágætis hugmyndir á þessari sýningu, kannski of margar, þvi það er eins og hlutunum hafi verið ofgert, sem skemmir fyrir heildaráhrifunum. Þetta kann að stafa af því að hug- myndirnar eru útfærðar sem inn- setningar, en í slíkum verkum þurfa hugmyndir ríkulegt andrými til að dafna, þannig að þær kæfa ekki hver aðra. BLÖNDUÐ TÆKNI EYGLÓ HARÐARDÓTTIR í Bjarta sal og Svarta sal á mið- hæðinni hefur Eygló Harðardóttir komið nokkrum þrívíðum verkum fyrir, sem era unnin í ýmiss konar pappa. í Svarta sal er að sjá nokkurs konar módel að borgarlandslagi, með upplýsta íbúð í forgranni og há- hýsi í bakgrunni. Áhorfandanum eru rétt gefnar helstu útlínur, þannig að verkin koma íyrir sjónir eins og skissur, minnispunktar eða módel að verkum. Af texta sem fylgir sýningunni má ráða að Eygló hugðist gefa áhorf- andanum andrými, svo honum gæfist svigrúm til að skálda í eyðurnar, að hann hafi frjálsar hendur til að smíða ímyndunarafli sínu vistarvera í verkum hennar. Þess vegna líta verk hennar út eins og yfirgefin byggingarsvæði þar sem berir vegg- ir gefa aðeins til kynna hvað hafi staðið til að byggja. En tillitsemi Eyglóar gengur of langt, henni er of mikið í mun að vera ekki uppáþrengjandi við áhorf- andann. Fyrh-staðan er ekki nægjan- leg til að ýta við ímyndunarafli áhorfandans, það er úr of litlu að spila. Það vantar einhves konar áskorun sem gerir þátttöku í leikn- um áhugaverðan. Gunnar J. Árnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.