Morgunblaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Foreldrar 6. bekkjar barna í Brekkuskóla gera með sér samning Nýsmíði Fyrirmyndarforeldrar fylgjast með börmmum FORELDRAR barna í tveimur af þremur sjöttu bekkjum í Brekkuskóla á Akureyri hafa gert með sér samning sem ber yflrskriftina Fyrirmyndarforeldrar. Foreldrar barna í þriðja bekknum íhuga einnig að gera slíkan samning og um helmingur þeirra hefur þegar samþykkt það. Samningurinn er í átta liðum, en í honum kemur m.a. fram að foreldrar muni standa við lögboðinn útivistartíma barnanna, þeir muni ekki leyfa eftirlitslaus partí á heimilum sínum, leitast við að kynnast vinum barna sinna og hafa samráð við foreldra þeirra, leyfa ekki barni sínu að gista heima hjá vinum án þess að kanna hvort einhver fullorðinn sé heima, þá munu þeir leitast við að upplýsa aðra foreldra verði þeir varir við að börn þeirra reyki eða drekki og óska eftir að verða látnir vita sjáist til barns þeirra við slíka iðju. Ekki munu foreldrarnir heldur leyfa unglingum að neyta áfengis eða annarra vímuefna á heimilum sínum og að lok- um segir í samningnum að þeir muni ekki kaupa áfengi fyrir unglinga. Þessi foreldrasamningur er gerður af for- eldrasamtökunum Heimili og skóla og upphaf- lega sniðinn til nota fyrir foreldra barna í þrem- ur efstu bekkjum grunnskóla. Foreldrarnir í Brekkuskóla eru sammála um að rétt sé að hefja foreldrasamstarfið mun fyrr til að venjast þessum starfsháttum áður en börnin komast á unglingsaldur. Forvörn fjölskyldunnar Hreiðar Eiríksson, einn úr foreldrahópnum, sagði að kveikjan að því að samningurinn var gerður milli foreldranna væri fyrst og fremst umræða í þjóðfélaginu um aukna vímuefnanotk- un unglinga „og við viljum láta á það reyna hvort foreldrarnir og fjölskyldan geti með sam- vinnu haft áhrif þar á til hins betra,“ sagði Hreiðar. Slíkir foreldrasamningar hafa verið gerðir í Borgai'nesi og á Húsavík, að sögn Hreiðars, og vissi hann til þess að vel hefði tek- ist til á Húsavík. Taldi Hreiðar að fyrsta grein samningsins um að virða lögboðinn útivistartíma myndi til að byrja með mæða mest á, en það er nýlunda að byrja foreldrasamstarfið svo snemma, þegar börnin eru 11 ára gömul. „Við erum að venja bæði okkur og krakkana við, þegar að unglings- árunum kemur á fólk því að þekkja hvað annað nokkuð vel og það held ég að sé lykillinn að þeirri forvörn sem fjölskyldan getur staðið fyr- ir.“ varðskips NÝSMÍÐI varðskips, áhrif og möguleikar er heiti á erindi sem Ingi Björnsson framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri flyt- ur á hádegisverðarfundi Norður- landsdeildar verk- og tæknifræð- inga í dag, fimmtudaginn 15. októ- ber á Fosshóteli KEA en hann hefst kl. 12.10. Fundurinn er opinn öllum áhugasömum, en nauðsynlegt að tilkynna þátttöku til Þórhalls Hjartarsonar í síma 462-6500. AKSJÓN 15. október, fímmtudagur 12.00^Skjáf réttir 18.15^-Kortér Fréttaþáttur í samvinnu við Dag. Endursýndur kl. 18.45,19.15 19.45, 20.15 20.45. 21.00Þ-Dagstofan Umræðuþátt- ur í samvinnu við Dag. Blaðbera vantar í eftirtalin hverfi: Lyngholt/Stórholt, Gerðahverfi, Oddeyrargötu/Brekkugötu, Ása byggð/J örf a byggð. Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. Morgunblaðið Kaupvangsstræti 1, Akureyri Sími 461-1600 Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýs- ingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru hátt í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. Morgunblaðið/Margrét Þóra SÆUNN réð sér vart af kæti og faðmaði fónguleg- an snjókarlinn að sér. „SJÁÐU nýju vettlingana mína,“ sagði Ellen hreykin en þeir eiga eflaust eftir að koma í góðar þarfir í snjónum í vetur. Hádegisverðarfundur á Akureyri Föstudaginn 16. október 1998, kl. 12:00 - 13:30 á Fosshóteli KEA ALÞJOÐLEG VIÐSKIPmMIÐSTOÐ - NÝIR MÖGULEIKAR FYRIR FYRIRTÆKI í ALÞJÓÐAVIÐSKIPTUM FRAMS0GUMENN: ■ Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarráös íslands i Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjómarformaöur KEA Aö loknum framsöguerindum geta fundarmenn borið ftam íyrirspumir eöa komið með innlegg í umræðuna. Fundargjald (hádegisverður innifalinn) kr. 2.000,- Fundurinn er opinn en æskilegt er að tilkynna þátttöku íyrirfram í síma 510 7100 VERSLUNARRÁÐ ISLANDS Fyrsti snjór vetrarins HÁLKA var á fjallvegum og snjó- þekja yfir þeim að sögn starfs- manns Vegaeftirlits á Akureyri í gær, en töluvert snjóaði í fyrr- inótt og gærdag. Öxarfjarðarheiði og Lágheiði urðu ófærar af þeim sökum en aðrir vegir færir. Ekki var vitað til þess að ökumenn lentu í vandræðum en hjá vega- eftirliti fengust þær upplýsingar að ekki væri ráðlegt að leggja upp í ferðalög um þjóðvegi norð- anlands nema á vetrarbúnum bíl- um. Hreinsa þurfti snjó og krapa af vegum, allt suður fyrir Holta- vörðuheiði. Gera má ráð fyrir að ástandið verði svipað í dag því spáin er áfram kuldalcg. Á Akureyri festi snjó í efstu byggðum, einkum Gilja- og Síðu- hverfi, en í miðbænum var úr- koman í formi rigningar. Engin óhöpp urðu í umferðinni að sögn lögreglu, en menn voru í við- bragðsstöðu þar sem gert var ráð fyrir að færi að frysta í gærkvöld „og þá yrði fijúgandi hált,“ eins og lögregla orðaði það. Börnin eru söm við sig og fagna ávallt fyrsta snjó vetrarins. Krakkarnir á leikskólanum Kiða- gili, þar sem þessar myndir eru teknar, eru þar engin undantekn- ing, en þeir þustu út og hófu á sinn mælikvarða stórvirkar fram- kvæmdir, snjókarlarnir og kerl- ingarnar spruttu upp eins og gorkúlur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.