Morgunblaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Jeltsín Russlandsforseti situr fund í Kreml þrátt fyrir veikindin „Þið leyfið mér ekki einu sinni að hnerra“ Reuters BORÍS Jeltsfn, forseti Rússlands, heilsar fgor ívanov utanríkisráð- herra á fundi í Kreml í gær. Á milli þeirra eru Igor Sergejev varnar- málaráðherra og Jevgení Prímakov forsætisráðherra. Moskvu. Reuters. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, virti ráð lækna sinna að vettugi og kom andstæðingum sínum í opna skjöldu í gær með því að sitja stutt- an fund í Kreml þrátt fyrir veikindi sín. Forsetinn virtist sprækur á fundinum og kvartaði yfír því að í hvert sinn sem hann hnerraði kæmu upp vangaveltur um að hann yrði að segja af sér af heilsufarsástæðum. „Sjáið þið hvernig forsetinn er? Jæja, hérna er ég,“ sagði Jeltsín á fundi í Kreml með Jevgení Príma- kov forsætisráðherra, ígor Sergejev varnaiTnálaráðherra og Igor Ivanov utanríkisráðherra. „Þið leyfið mér ekki einu sinni að hnerra!" Læknar forsetans höfðu ráðlagt honum að hvíla sig og dvelja á sveitasetri sínu nálægt Moskvu út vikuna vegna veikinda, sem urðu til þess á mánudag að hann varð að flýta heimfór sinni frá Kasakstan, þar sem hann var í fyrstu utan- landsför sinni í hálft ár. Læknarnir sögðu að Jeltsín hefði fengið lungnakvef en rússneskir fjölmiðlar töldu að ástand forsetans væri al- varlegra en embættismenn hans vildu viðurkenna og efuðust um að hann væri fær um að gegna emb- ættinu út kjörtímabilið. Af sjónvarpsmyndum að dæma virtist Jeltsín mun sprækari í gær en í ferðinni til Kasakstans og Us- bekístans á mánudag og sunnudag. Talsmaður Jeltsíns sagði þó að for- setinn hefði ekki náð sér að fullu og væri enn með vægan hita. Ályktun um afsögn Jeltsíns hafnað Á fundinum í Kreml var fjallað um Kosovo-málið og efnahag- skreppuna í Rússlandi. Jeltsín fagnaði samkomulaginu við Slobod- an Milosevic, forseta Júgóslavíu, sem afstýrir, að minnsta kosti í bili, loftárásum Atlantshafsbandalags- ins á skotmörk í Júg'óslavíu. Fyrir fundinn hafði Prímakov skýrt sambandsráðinu, efri deild rússneska þingsins, frá forgangs- verkefnum stjórnarinnar í barátt- unni við efnahagskreppuna. Hann sagði að lögð yrði áhersla á að end- urskipuleggja bankakerfí, bæta skattkerfið og gera ráðstafanir til þess að rússnesk fyrirtæki gætu staðið í skilum hvert við annað. Gennadí Zjúganov, leiðtogi kommúnista, sagði að ummæli Prímakovs sýndu að hann hefði tekið „raunhæfa afstöðu til krepp- unnar“. Zjúganov er hins vegar gagnrýnni á Jeltsín og hefur kraf- ist þess að forsetinn segi af sér þar sem hann sé ekki fær um að takast á við efnahagsvandann, sem felst m.a. í vaxandi verðbólgu, gífurleg- um skuldum ríkisins og lágu gengi rúblunnar, sem hefur lækkað um tvo þriðju á tveimur mánuðum. Jeltsín hefur sagt að hann sé staðráðinn í að gegna forsetaemb- ættinu út kjörtímabilið, sem lýkur árið 2000, og Prímakov sagði í gær að hann teldi enga þörf á því að for- setinn segði af sér. Sambandsráðið hafnaði í gær til- lögu um ályktun þess efnis að Jeltsín segði af sér. Aðeins 79 þing- menn studdu tillöguna en að minnsta kosti 90 þingmenn af 178 þurftu að samþykkja hana. „Við erum hér til að ræða efna- hagsvandann. Krafan um afsögn er ekki efnahagsmál, heldur pólitískt mál,“ sagði forseti þingdeildarinnar, Jegor Strojev, sem er stuðnings- maður Jeltsíns. Barnabarn Brezhnevs stofnar flokk Stjórnarmyndunarumleitanir á Italíu Afturhvarf til „hins hreina kommúnisma“ Moskvu. Reuters. ANDREI Brezhnev, barnabarn Leoníds Brezhnevs, fyrrum leið- toga Sovétríkjanna, hefur stofnað nýjan kommúnistaflokk í Rúss- landi. Kveðst hann vonast til þess að unnt verði að hverfa á ný til „stöðugleikans" er einkennt hafi sijórn afa hans. Andrei Brezhnev lét þessi orð falla á blaða- mannafundi austur í Moskvu í gær er hann kunngjörði stofnun flokksins sem nefnast mun „Alrússneska kommúnistahreyfing- in“. Flokkur þessi myndi starfa á grund- velli „hins „hreina kommúnisma" en í máli flokksleiðtogans kom fram að sú hug- myndafræði væri nú í mikilli sókn víða um heim. „Hreyfíng okk- ar verður grundvölluð á reynslu þeirra Jósefs Stalíns, Brehznevs og Níkíta Khrúsfjovs... til að leysa úr viðjum orku alþýðunnar," sagði Andrei en í heimalandi hans er sfjórn afans ráðríka jafnan kennd við „stöðnunarárin". Horfin millistétt Andrei Brezhnev vék að lífs- kjörum alþýðu manna í Sovétríkj- unum á þeim dögum er afi hans hélt um valdataumana. „í tíð afa Brezhnevs var hér til millistétt, sem hafði 200 rúblur f laun á mánuði, átti sínar íbúðir og öku- tæki. Nú vilja menn hverfa til þessa tíma á ný.“ Leiðtogi flokksins nýja sagði að fjármagnshyggja og lýðræði hefði kallað fátækt og örbirgð yfir meirihluta rússnesku þjóðarinnar. „Lýðræðið er öldungis tengt pen- ingahyggjunni...Allur áróður Bandaríkjamanna er í formi aug- lýsinga þess efnis að mönnum beri að kaupa hitt og þetta.“ Kommúnisminn dugar einn Brezhnev kvaðst þeirrar hyggju að kommúnisminn myndi einn duga til að losa Rússa úr viðjum þeirra efna- hagsþrenginga sem þeir glímdu nú við. Þessu til sanninda- merkis vísaði hann til sigra vinstrisinna í kosningum í vestur- hluta Evrópu á síðustu árum. Nefndi hann einkum Gerhard Schröder, sem taka mun við embætti kanslara Þýskalands síðar í þessum mánuði og áhrif kommúnista- flokka í Frakklandi og á ítaliu. Flokkurinn nýi berst fyrir því að fyrirtæki sem sýsla með náttúruauðlindir Rússa verði þjóðnýtt á ný. Þá vilja flokksmenn hefta innflutning á varningi erlendis frá og banna lántökur í útlöndum til að treysta efnahagslífið í sessi. Andrei Brezhnev kvað engan vafa leika á því að efnahagsþrengingar Rússa nú mætti rekja til fráhvarfs frá hugmyndafræði sósíalismans. Verðum ósveigjanlegir Á fundinum lýsti Andrei Brezhnev því yfir að sfjórnmálaá- huginn væri honum í blóð borinn. Lét hann og þau boð út ganga að flokkur hans yrði raunverulegur valkostur við Kommúnistaflokk Rússlands, sem er stærstur flokka á þingi landsins. „Þeir eru flæktir í vef hinna hefðbundnu stjórn- mála og beita því ekki valdi sínu. Við myndum hins vegar reynast ósveigjanlegir." Andrei Brezhnev Lítil bjartsýni eftir fyrstu samn- ingaviðræðurnar ROMANO Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, umkringdur fréttamönnum í Róm. Rém. Reuters. ROMANO Prodi, sem hefur gegnt embætti forsætisráðherra Ítalíu til bráðabirgða frá því stjóm hans féll naum- lega í atkvæðagreiðslu um vantraust sl. fóstu- dag, var ekki bjartsýnn eftir fyrstu viðræður við fulltrúa miðjuflokksins UDR, sem er í stjórnar- andstöðu, um stuðning við nýja stjórn undir sínu forsæti. Oscar Luigi Sealfaro, forseti Ítalíu, fól Prodi í fyrrakvöld að freista þess að finna nýrri stjóm meirihlutastuðn- ing á þingi. „Við tjáðum Prodi afstöðu okkar en við teljum að hann hafi ekki verið sammála okkur,“ sagði Rocco Buttiglione, sem fór fyidr samninga- nefnd UDR í gær. Francesco Cossiga, fyrrverandi forseti Italíu úr Kristilega demókrataílokknum, sem leystur var upp, er formaður UDR. Buttiglione tjáði fréttamönnum að samninganefnd UDR, sem Cossiga á ekki sæti í, hefði ítrekað í viðræðunum grundvallarskilyrðin fyrir stuðningi flokksins við nýja Prodi-stjórn, en þeirra helzt er að Prodi lýsi afdráttarlaust yfir að miðju-vinstri-meirihlutinn sem stóð að síðustu stjórn sé úr sögunni. Cossiga setur skilyrði Cossiga hafði áður sagt að hann kysi heldur að mynduð yrði breið samstarfsstjórn bæði hægri-, miðju- og vinstriflokka, en gaf í gær til kynna að hann væri reiðubúinn að styðja nýja stjórn Prodis til að tryggja fjárlagafrumvarpi næsta árs brautargengi og koma Ítalíu farsællega inn í Efnahags- og mynt- bandalag Evrópu, EMU, um næstu áramót. Skilyrðið fyrir slíkum stuðningi væri þó, að hin nýja stjórn væri ekki nákvæm eftirlíking hinn- ar síðustu og að nokkrir nýir menn tækju við ráðherraembættum í henni. Prodi sagði eftir viðræðurnar við fulltrúa UDR að verkefni sitt væri „óhemju erfítt“. Hann hét því samt að gefast ekki upp. Takist honum að mynda stjórn verður hún hin 56. frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Ef í nauðimar rekur verður Scalfaro forseti að leysa þingið upp og boða til nýrra kosninga, en tvö og hálft ár eru eftir af kjörtímabili núverandi þings. Hættuleg- ur læknir BRESKI læknirinn Harold Shipman, sem ákærður hefur verið fyrir að myrða fjóra sjúk- linga sína, er nú jafnvel talinn hafa átt sök á dauða allt að 77 manns, að því er breskir fjölmiðlar greindu frá í gær. Hefur Shipman jafnframt verið sakaður um að falsa erfðaskrá eins af fórnar- lömbum sínum sem hefði fært honum um 30 milljónir ísl. kr. Fer nú fram rannsókn á um 3.000 lyfseðlum sem Shipman gaf út. Talebanar sleppa Irönum FULLTRÚI Sameinuðu þjóð- anna sagði í gær að Talebanar, sem fara með stjórn í Afganist- an, hefðu samþykkt að láta lausa alla þá írana sem þeir hafa í haldi. PDS bætir við sig þingsæti ENDANLEGAR tölur vegna sambandsþingskosninganna í Þýskalandi 27. september síð- astliðinn leiddu í ljós að arf- takaflokkur austur-þýska kommúnistaflokksins (PDS) hlaut einu þingsæti meira en áður hafði verið talið, og er mis- tökum í útreikningi kennt um. Hlutu þeir alls 36 og Frjálsir demókratar (FDP) ekki nema 43, einu minna en áður var talið. Páfí hringdi í sjónvarpið JÓHANNES Páll páfi hringdi óvænt í ítalska ríkissjónvarpið á þriðjudagskvöld til að þakka fyrir góð orð i sinn garð í fréttaþætti sem sýndur var í tilefni þess að á morgun verða 20 ár liðin frá því hann varð páfi. Brast Bruno Vespa, stjórnandi þáttarins, í grát við þakkarorð páfans. „Jafnvel fréttamenn hafa stundum sál,“ sagði Vespa. Rudolph ákærður JANET Reno, dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að Eric Rudolph, sem er á meðal tíu efstu manna á lista bandarísku Alríkislög- reglunnar (FBI) yfir eftirlýsta menn, yrði ákærður fyr- ir sprenging- una í Atlanta á meðan á Ólympíuleikunum þar stóð árið 1996. Bætist ákæran ofan á fjölda annarra glæpa sem Ru- dolph er sakaður um en hann leikur enn lausum hala og er talið að hann sé í Norður-Kar- ólínu. Jóhanncs Páll páfi Shipman
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.