Morgunblaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 23
ERLENT
Svindl og svarta-
markaðsbrask
með danskan físk
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
KVÓTASVINDL og svartamark-
aðsbrask með fisk og jafnvel pen-
ingaþvætti viðgengst í ríkum mæli í
dönskum sjávarútvegi að mati
danska fiskveiðieftirlitsins. í
danska sjávarútvegsráðuneytinu
hefur hins vegar lítið verið aðhafst í
málinu, en nú ætlar fjármálaeftirlit-
ið að kanna málið. Bent Rulle, for-
maður danskra smábátaeigenda,
heldur því því fram að fiskveiðieftir-
litið þjáist af ofsóknarbrjálæði og
sjái afturgöngur um hábjartan dag,
en reyndar hefur Rulle sjálfur verið
sektaður fyrir kvótasvindl. Henrik
Dam Kristensen sjávarútvegsráð-
herra hefur ekki svarað ásökunum
um að ráðuneytið beiti sér ekki
nægilega gegn svindlinu. Petta
kemur fram í úttekt í Berlingske
Tidende.
Kvótasvindl varð útbreitt á síð-
asta áratug í kjölfar snarminnkaðra
kvóta sökum aflabrests. Nú gengur
útgerðin hins vegar vel og því ekld
hörðum kjörum í útgerðinni að
kenna, því aðstæður eru allar aðrar
nú en þá. Fiskveiðieftirlitið heldur
því fram að svindlið, sem nú tíðkist,
sé stundað í litlum en hörðum
kjarna útgerðarmanna, sem séu
ekki lengur aðeins að hugsa um að
maka krókinn og komast hjá skött-
um og skyldum, heidur flokkist
starfsemin nú undir sldpulagða
glæpastarfsemi.
Fylgst með ferðum
eftirlitsmanna
Að sögn eftirlitsins lýsir þessi
starfsemi sér meðal annars í því að
vandlega sé fylgst með ferðum
starfsmanna fiskveiðieftirlitsins.
Við Hanstholm sitji til dæmis menn
á launum við aðkeyrsluna að bæn-
um og um leið og þeir sjái til ferða
eftirlitsmanna hringi þeir niður á
höfn og láti fréttimar berast. Þegar
svo eftirlitsmennimir koma á höfn-
ina era engin merki þess að neitt
ólöglegt fari þama fram. Einnig
hefur verið reynt að senda eftirlits-
menn inn f bæina á ómerktum bíl-
um, en allt kemur fyrir ekki. Sjó-
mennimir sjá við slíkum heimsókn-
um og eru á verði.
Höfnin á Skagen er stærsta höfn
Evrópu fyrir síldar- og makrílland-
anir, en um þessar mundir stendur
makrílvertíðin einmitt yfir. I viðtali
við danska útvarpið í gær kvartaði
eigandi stærstu makrílverksmiðj-
unnar sáran yfir svindlinu, sem
hefði alvarleg áhrif á löglega starf-
semi. Meðan hann þyrfti að kaupa
makrílkflóið á 7 krónur danskar
keyptu keppinautar hans það
kannski á 3,50, sem auðvitað hefði
áhrif á endanlegt verð vörunnar.
Við þessai’ aðstæður væri heldur
ekki auðvelt að láta fjárfestingar í
verksmiðjunni ganga upp.
Fjármálaeftirlitið
ekki kallað til
Það vekur athygli að þrátt fyrir
að lengi hafi verið talað um að eina
áhrifamikla leiðin í málinu væri að
fara ofan í saumana á bókhaldi
fiskikaupmanna og fiskvinnslu-
stöðva þá hefur fjármálaeftirlitið
ekki verið dregið inn í málið. Mich-
ael Clan, yfirmaður fjármálaeftir-
litsins, segir í viðtali við Berlingske
Tidende að sér komi á óvart að
rætt sé um skipulagða glæpastarf-
semi í sjávarútvegi, en hann muni
strax kanna málið. Að sögn blaðs-
ins er óljóst hvers vegna ekki hefur
verið leitað til fjármálaeftirlitsins,
en látið að því liggja að Henrik
Dam Kristensen og ráðuneyti hans
hafi ekki sýnt neitt framtak í þá
átt.
Kvótakerfið í Danmörku er frá-
bmgðið því íslenska, því ekki er um
framseljanlega kvóta að ræða. Að
sögn íslensks heimildarmanns í
Hanstholm er ekki mikið rætt um
kvótasvindl, þó visast sé eitthvað
um það. Tilfinningin sé helst að
menn óski ekki að ræða það, heldur
vilji þegja það í hel. Af einhverjum
ástæðum er eins og það sé einnig
afstaðan í danska sjávarútvegsráðu-
neytinu.
Hagfræðiverðlaun Nóbels 1998
Verðlaunahafínn sér-
fræðingur í fátækt og
orsökum hungursneyða
Stokkhólmi. Reuters.
AMYARTA Sen, indverskur sér-
fræðingur í velferðarmálum sem
hefur hjálpað til við að auka skiln-
ing manna á orsökum hung-
ursneyða og hvemig meðferð hinir
fátækustu fá í
þjóðfélaginu, hlýt-
ur Nóbelsverð-
launin í hagfræði í
ár. Konunglega
sænska vísidaaka-
demían tilkynnti
þetta í gær.
Sen, sem var áð-
ur prófessor í hag-
fræði við Harvard-
háskólann í Boston en er nú forseti
Trinity College í Cambridge, vom
veitt verðlaunin fyrir framlag sitt til
velferðarhagfræði.
Rannsóknir Sens spanna allt frá
kenningunni um félagslegt úrval og
sldlgreiningum á velferð og fátækt
til sérrannsókna á ástæðum hung-
ursneyðar. Áhugi Sens á því hvem-
ig afrakstri auðlinda er dreift, sér-
staklega með tilliti til hlutskiptis
hinna snauðustu, gengur eins og
rauður þráður í gegnum verk hans.
Áherzlurnar í fræðastarfi Sens,
sem fæddist árið 1933 í Bengal,
gætu vart verið frábmgðnari þeim
sem Nóbelsverðlaunahafar síðasta
árs í þessari fræðigrein leggja
stund á. Þeim Myron Scholes og
Robert Merton voru þá veitt hag-
fræðiverðlaunin fyrir að þróa þá
reikniformúlu sem liggur til grund-
vallar svokölluðum afleiðuviðskipt-
um, en þau voru grandvöllurinn að
hinum gífurlega vexti sem varð í
spákaupmennsku á fjármálamörk-
uðum heimsins undanfarinn áratug.
Gangur lífsins
SKÓB(ýö
^ÓSAVÍKVÍ^
Garðarsbraut 13, Sími: 464 1337
Amyarta Sen
tókabúðin .
.iemmi . J
. Faber- Castell
kvnnir Mvndlistarvömr
afsiáttur af
FABER-CASTELL
kynningardagana
Flmmtudagtnn 15/10
MiilikL 15:00 og 18:00
Laugardaginn 17/10
xnllli kl. 13:00 og 16:00
Sara Vilbergsdóttir myndlistarkona
verður á staðnum og sýnir notkun
trélita, þurr pastels, kola, graphic-
blýanta og teiknikríta ásamt nýrra
pastel-blýanta og vatnslita.
...... . ... ... . ....... .... .....
Bókubtiðin Hlemiui Laiigavegi 118 Súui:5U 1170
Peysa með
-halsmali
sem
kostar
aðeins
2.695
kr.
Og
flauelis-
*hnvnr
V ^wLdflb WLJL
sem þú
færð á
2.995
kr.
HAGKAUPI
Meira úrval - betrjkaup