Morgunblaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 15.10.1998, Blaðsíða 62
-»>É 62 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens þETTÁ HEFSTOPPOk '/lðElr [ flÁLÆ&TMÖE>HEST7!t’i \lff 53 9-7 Grettir 6KETTIR' &G MINNisr þess EKXl "Að t>ó HAFIR SÓTT OM LEYF/ TIL pESS AE> SM.ÍÞA ÓTSJCOTSGLOSÖA... Ferdinand Já, kennari... ég er viss um að Ætti ég að vekja hana? hún er sofandi... Ég held að það sé kominn tími fyr- ir morgungjöfína hennar ... -4 BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Skólaakstur fatlaðra skólabarna, SSH og Allrahanda/Isferðir hf. Frá Hönnu Dóru Stefánsdóttur: HINN 1. september sl. tóku nýir aðilar við akstri fatlaðra skólabama og akstri fyrir Styrktarfélag van- gefinna. Enn einu sinni er komið aftan að hinum fatlaða, þar sem hann á litla möguleika á að koma sínum skoðun- um á framfæri, enda ekki boðið upp á það því peningar skulu ráða frek- ar en vellíðan og gleði hins fatlaða. Samtök sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu (SSH) buðu út skólaakstur fatlaðra skólabarna sl. vor til þess eins að spara aurinn og kasta krónunni. Var sá fatlaði og/eða aðstandendur hafðir með í ráðum? Nei, því þeir hefðu neitað spamaðinum og haft að leiðarljósi umhyggju og velferð hins fatlaða. Saprnaðurinn skal vera tíu milljónir á ári og bæta skal þjónustuna við hinn fatlaða fyrir sparnaðinn. Nú, einum og hálfum mánuði eftir að nýir aðilar, Allrahanda/Isferðir hf., tóku til starfa, era enn miklir vankantar á þessum akstri. SSH virðist vera alveg sama og einblína bara á að spamaðinum skuli skilað í kassann, óháð þvi hvernig hinum fatlaða eða aðstandendum þeirra líður. Það sem sex bílar gátu séð um áður með alveg ágætum árangri geta tíu bílar ekki enn séð um í dag án þess að kvörtunum rigni inn á borð til Allrahanda. Algjört skipu- lagsleysi ríkir í þessum málum og það bitnar aðeins á hinum fatlaða. Bréfum er ekki svarað og því fer maður að hugsa: Enn og aftur skulu þaggaðar niður þessar óánægju- raddir, sá fatlaði skal taka því sem að honum er rétt og þakka fyrir í staðinn fyrir að kvarta. Ef hinn fatlaði hefði verið spurður og gæti svarað um þetta útboð hefði hann án efa sagt nei, því allar breytingar fyrir hann geta haft ófyrirséðar af- leiðingar í för með sér. SSH er hins vegar alveg sama um það, því þá varðar ekkert um hina andlegu líð- an, þeir hugsa bara um hvar hægt er að spara. Og hvar er þá best að byrja, jú á hinum fötluðu, því ekki kvarta þeir. Foreldrar, aðstandendur, starfs- fólk og þeir sem bera hag hins fatlaða fyrir brjósti: Nú er tími til kominn að snúa vörn í sókn og láta ekki einhverja ski-iffínna úti í bæ taka ákvarðanir um hina fötluðu skjólstæðinga okkar án vitundar okkar og umsagnar. Kynningin á þessari miklu breyt- ingu kom til okkar allra þremur dögum áður en nýir aðilar tóku við akstrinum. Sættum við okkur enda- laust við svona lítilsvirðingu við hinn fatlaða? Nei og aftur nei. Snú- um bökum saman og stöndum vörð um hag okkar fötluðu einstaklinga. HANNA DÓRA STEFÁNSDÓTTIR, forstöðuþroskaþjálfí. Útburðir Félagsbústaða hf. Frá Sigrúnu Ármanns Reynisdóttur: ÞAÐ ER alveg merkilegt hversu hart er ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Félagsbústaðir hf. sendu öllum leigutökum sínum hót- unarbréf um síðustu mánaðamót, hvort heldur sem þeir skulduðu leigu eða ei. Þetta vora grófar hót- anir um að innheimtufyrirtæki sér- hæft í innheimtu myndi bæði senda bréf og ef það ekki virkaði hæfust hringingar... Hvað svo? Síðan var sagt að krafist yrði útburðar og skuldin send í lögfræðiinnheimtu, með kostnaði. Hvernig er þetta hægt gagnvart fátæku fólki og jafn- vel veiku? Hvílík mannfyrirlitning! Fólk hefur haft samband við mig alveg miður sín og jafnvel grátandi. Sumir eru hræddir um öryggi sitt. Þetta eru óhugnanlegar hótanir, gerðar til að hræða fólk. Margt þetta fólk er mjög viðkvæmt og heilsa þess getur versnað við að fá slíkt bréf. Er ekki bannað að ónáða fólk á heimilum þess, er það ekki að rjúfa friðhelgi heimilis? Er ekld nóg kom- ið af því hvernig fátækt fólk er hundelt, vegna skulda sem það er í, vegna þess að það fær ekkert af góðærinu, þótt það fái frið heima hjá sér fyrir ónæði? Og hvert á fólk að fara þegar búið verður að bera það út? Ber ekki sveitarfélögum skylda samkvæmt lögum að sjá þessu fólki fyrir húsaskjóli? Og hvað um mannréttindalög, er ekki verið að brjóta þau? Það er komið haust, og jólin nálg- ast brátt. Er þetta jólagjöfin í ár til þessa fólks og barna er þarna búa, að þurfa að halda uppá hátíð ljóss og kærleika úti á köldum klakan- um? Og hvemig verður sálariíf þessa fólks og barna? Sálarlíf barns gæti skaðast við svona lagað. Fögur vora kosningaloforðin hjá R-lista fólki áður en það komst til valda, það hlutsaði ég á. Ég átti von á öðru en þessu. Þetta eru sár von- brigði margra, sem treystu þessum loforðum. Eg skora á borgarstjór- ann, hana Ingibjörgu Sólrúnu, og aðra í borgarstjórn að laga þetta strax! Svo leigutakar Félagsbústaða geti sofið rólegir í fallegu borginni okkar, innandyra en ekki úti á klak- anum. Sýnið kærleika þeim sem minna mega sín. SIGRÚN ÁRMANNS REYNISDÓTTIR, rithöfundur og ritari Leigjendasamtakanna. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.