Morgunblaðið - 15.10.1998, Side 22

Morgunblaðið - 15.10.1998, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Fyrrverandi leyniþjónustumaður í Bandaríkjunum ákærður fyrir njósnir Sakaður um að hafa selt Sovét- mönnum hernaðarleyndarmál Washington. Reuters. BANDARÍKJAMAÐUR, sem starfað hafði hjá leyniþjónustu hersins, var á þriðjudag ákærður fyrir að hafa stundað njósnir í þágu Sovétríkjanna á árunum 1988 til 1991. Á hann yfir höfði sér lífstíðar- fangelsi og jafnvel dauðadóm, verði hann fundinn sekur. David Sheldon Boone var hand- tekinn síðastliðinn laugardag á hót- eli skammt frá Washington, þar sem bandaríska alríkislögreglan hafði egnt fyrir hann gildru. Lög- reglumaður, sem lést vera rúss- neskur njósnari, fékk hann til fundar við sig í London í byrjun september og taldi honum trú um að Rússar vildu fá hann í þjónustu sína. Boone gekk í gildruna og lýsti sig reiðubúinn að hefja njósnir á ný. Bauð fram þjónustu sína í sovéska sendiráðinu Boone gekk í bandaríska herinn árið 1970 og hlaut þjálfun í að ráða og greina dulmál. Hann starfaði lengst af hjá leyniþjónustu hersins, meðal annars í Augsburg í Þýska- iandi, þar sem hann hafði aðgang að hemaðarleyndarmálum, að því er bandarísk stjómvöld greindu frá. Halla fór á ógæfuhliðina hjá Boo- ne árið 1988, er fyrri kona hans sagði skilið við hann og hlaut for- ræði yfir bömum þeirra, auk þess sem hann hafði komið sér í miklar skuldir. í október þetta ár gaf hann sig fram í sendiráði Sovétríkjanna í Washington og kvaðst reiðubúinn að láta af hendi hernaðarleyndar- mál gegn borgun. Boone átti síðan reglulega fundi með njósnara KGB, sem hann þekkti sem „ígor“, í Þýskalandi á áranum 1988 til 1991. Boone lét honum í té háleynilegar upplýsing- ar, meðal annars um njósnastarf- semi Bandaríkjamanna, vitneskju þeirra um sovésk kjarnavopn, og skotmörk í Sovétríkjunum sem bandarískum kjarnaflaugum var beint að. Hlaut hann samtals yfir 60 þúsund dollara (um 4,1 milljón króna) að launum. Lokað var íyrir aðgang Boones að leynilegum upplýsingum árið 1990, eftir að öryggisrannsókn hafði leitt í ljós að hann væri skuldum vafinn og „skorti persónulega og faglega ábyrgð“, að því er embættismenn greindu frá. Hann var færður til í starfi og hætti loks í hemum ári síð- ar, á sama tíma og Sovétríkin riðuðu til falls. Þegar alríkislögreglan kom yfir hann höndum var hann búsettur í Þýskalandi, hafði kvænst þýskri konu og starfaði íyrir tölvufyrirtæki. Kaldastríðsnjósnarar úti í kuldanum Boone gekk í gildru sem banda- ríska alríkislögreglan notar gjaman til að koma upp um gamla njósnara, sem hafa haít lítið að gera eftir lok kalda stríðsins. Frá falli Sovétríkj- anna árið 1991 hafa flestar rann- sóknir á njósnamálum komið til vegna upplýsinga frá rússneskum uppljóstruram, að því er bandarísk yfirvöld hafa greint frá. Slíkar upp- lýsingar nægja yfirleitt ekki til sak- fellingar fyrir dómi, og því eru egnd- ar gildrur fyrir meinta njósnara. Reuters Spánverj- ar vilja yf- irheyra Pinochet Madrid. Reuters. SPÆNSKUR dómstóll fór í gær fram á það við bresk s'tjórnvöld að fá að yfirheyra Augosto Pin- ochet, fyrr- verandi leið- toga herfor- ingjastjórnar- innar í Chile, á meðan hann dvelst í London, en Pinochet er nú á batavegi eftir að hafa gengist undir að- gerð þar vegna kviðslits. Rannsakar dómstóllinn mannréttindabrot og dauða nokkurra Spánverja í valdatíð Pinochets 1973-1990 og var markmið dómarans, Manuels Garcias Castellons, að fá að leggja spurningar fyrir Pin- ochet á meðan hann dvelur í Bretlandi en Castellon gekk hins vegar ekki svo langt að biðja bresk stjómvöld að kyrr- setja Pinochet. Pinochet, sem lét af starfi sínu sem yfirmaður heraflans í Chile í vor sem leið, hefur kall- að rannsóknina „ósanngjama" og stjómvöld í Chile hafa ekki reynst samvinnuþýð. Pinochet, sem er 82 ára, stýrði Chile með harðri hendi um sautján ára skeið eftir að hafa velt Salvador Allende, forseta landsins, úr sessi í blóðugu valdaráni árið 1973. Að minnsta kosti þrjú þúsund manns era talin hafa „horfið“, eða verið drepin af sérsveitum Pinochets á meðan hann var við völd. Aida sýnd við píramída Pinochet ÖNNUR sýning A'ídu, óperu Guis- eppes Verdis, við rætur egypsku píramídanna fór fram í fyrra- kvöld en ellefu ár eru síðan hún var síðast sett á svið á þessum sögufræga og magnaða stað. Óperan, sem er ástarsaga, fjallar um stúlku af þrælakyni og eg- ypskan herforingja. Skýrsla nefndar á vegum bresku stjórnarinnar um fjármögnun stjórnmálaflokka í Bretlandi Hömlur verði lagðar á framlög og eyðslu London. Reuters. The Daily Telegraph. OPINBER nefnd á vegum bresku stjómarinnar hefur lagt til að settar verði nýjar reglur, er setji fjár- mögnun stjórnmálaflokka í Bret- landi veralegar skorður. I skýrslu nefndarinnar, sem kynnt var á þriðjudag, segir að það sé nauðsyn- legt til að „koma í veg íyrir gran- semdir“ um misferli. í skýrslunni segir að fjárframlög til íhaldsflokksins og Verkamanna- flokksins á undanförnum árum hafi gefið tilefni til vangaveltna um hvort unnt væri að beita fjármunum til að hafa áhrif á stjórnmálamenn. Þó engar vísbendingar lægju fyrir um að það hefði átt sér stað í raun, væri afar bagalegt að stór hluti al- mennings tryði því að svo væri. Nefndin leggur meðal annars til að stjórnmálaflokkar þurfi að gefa upp öll framlög yfir 5 þúsund pundum (580.000 ísl. kr.), en að framlög undir 500 pundum á ári verði frádráttarbær til skatts. Gert er ráð fyrir að flokkunum verði óheimilt að þiggja fé af erlendum aðilum. Þá er mælt með því að sett- ar verði reglur um að flokkarnir megi ekki eyða meira en 20 millj- ónum punda (ríflega tveimur millj- örðum ísl. kr.) í kosningabaráttu hverju sinni. Þess má geta að Verkamannaflokkurinn varði 26 milljónum punda til að tryggja sér sigur í síðustu þingkosningum, en reikningur Ihaldsflokksins, sem beið ósigur, hljóðaði upp á 28 millj- ónir punda. Fjármálahneyksli á báða bóga Báðir flokkarnir hafa sætt vax- andi gagnrýni vegna aðferða er þeir hafa beitt til að safna fé í kosninga- sjóði sína. William Hague, leiðtogi íhaldsflokksins, hefur nú tekið fyrir framlög frá erlendum aðilum, í kjöl- far ásakana um að auðugir útlend- ingar reyndu með þeim hætti að hafa áhrif á utanríkis- og viðskipta- stefnu flokksins. Fram að því hafði megnið af framlögum til Ihalds- flokksins komið frá erlendum aðil- um. Flokkurinn hefur undanfarið verið undir þrýstingi um að endur- greiða stórar fúlgur, sem auðkýf- ingurinn Asil Nasdir lét af hendi rakna skömmu áður en viðskipta- veldi hans var lýst gjaldþrota og hann gerðist landflótta. Verkamannaflokkurinn hefur heldur ekki farið varhluta af slíkum hneykslismálum. Það þótti afar vandræðalegt fyrir Tony Blair þeg- ar í ljós kom á síðasta ári að Bernie Ecclestone, eigandi Formúlu-eitt kappaksturskeppninnar, hafði gefið eina milljón punda í kosningasjóð Verkamannaflokksins, á sama tíma og Bretar þrýstu á Evrópusam- bandið að akstursíþróttir yrðu und- anþegnar banni við því að tóbaks- framleiðendur styrktu íþróttavið- burði. Svo fór að flokkurinn skilaði fénu. Flokkarnir almennt hlynntir tillögunum Tillögunum virðist almennt hafa verið vel tekið, enda komast stærstu flokkamir á Bretlandi varla hjá því að veita þeim brautargengi. Það sem kemur ef til vill mest á óvart er hve íhaldsflokkurinn hefur verið jákvæður í garð þeirra. Stjórnmálaskýrendur telja víst að fyrir síðustu kosningar hefðu flokksmenn hlaupið upp til handa og fóta ef minnst hefði verið á bann við erlendum fjárframlögum og að gefa þyrfti upp hverjir létu mest fé af hendi rakna. En útlit er fyrir að William Hague hafi áttað sig á því hvað í vændum væri. Hann hefur gert tilraunir til að endurskipu- leggja flokksstarfið með það fyrir augum að geta í framtíðinni treyst á fjárstuðning flokksmanna, sem þyrfti reyndar að fjölga mikið frá því sem nú er svo það væri unnt. Ihaldsmenn hafa reyndar löngum séð ofsjónum yfir því að Verka- mannaflokkurinn hafi getað sótt vísan stuðning til verkalýðsfélag- anna, þótt þeir hafi líklega ofmetið þann stuðning. Eftirlit erfitt Helsta gagnrýnin á tillögumar beinist að því að flokkarnir muni án efa finna leiðir til að fara í kringum reglur um fjármögnun, og eftirlit með því muni reynast bæði erfitt og kostnaðarsamt. Henry Dracker, sem áður vann að fjáröflun íyrir Verkamannaflokkinn, hefur bent á að einfaldara væri að banna auglýs- ingar flokkanna í dagblöðum og á auglýsingaspjöldum. Ihaldsflokkur- inn hafi eytt yfir 14 milljónum punda í slíkar auglýsingar fyrir síð- ustu kosningar, og þar sem almennt sé talið að það fé hafi algerlega farið í súginn, myndi bann við þeim ekki mæta mikilli andstöðu. Ekki er heldur víst að trú al- mennings á stjómmálaflokkunum aukist við það að þeim sé stillt upp við vegg. „Ef löggjafinn kemur fram við okkur eins og mögulega af- brotamenn, munu kjósendur hafa jafnvel enn minna álit á okkur,“ var haft eftir ónafngreindum félaga í Ihaldsflokknum. Hann viðurkenndi þó að breytinga væri vissulega þörf, í ljósi þess að flokkurinn hefði und- anfama áratugi fjármagnað sífellt viðameiri og dýrari auglýsingaher- ferðir með framlögum frá ónafn- greindum útlendingum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.