Morgunblaðið - 15.10.1998, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 15.10.1998, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 33 Norðurlandahúsið í Færeyjum Ætla bæði að flytja menningu út og inn „Við erum ánægðir hversu marg- ir sóttu um stöðu framkvæmda- stjóra Norðurlandahússins í Færeyjum og hversu hæfir um- sækjendur voru, því það sýnir áhuga bæði á og starfsemi þess og á Færeyjum," segir Christian Slottte stjórnarformaður hússins. Alls sóttu 43 um, þar af níu íslendingar og átján Svíar og bendir Slotter sér- staklega á áhuga í þessum tveimur löndum. A stefnuski’á hússins er að sinna vel vestur-norræna svæðinu og þá einnig að rækta tengslin við Bretlandseyjar, sem verður auð- veldara nú eftir að beinar samgöng- ur eru komnar þangað, en það er nýnæmi. Helga Hjörvar sem hingað til hefur verið framkvæmdastjóri Teater og Dans i Norden segir að starfið leggist vel í sig, enda hafl hún lengi haft mikinn áhuga á Færeyjum. Hún vonast eftir fleiri íslenskum gestum í húsið og bendir á að þetta fallega hús og öflugt menningarlíf þar og í Færeyjum ætti að vera aðlaðandi fyrir íslend- inga. Helga segist hafa sótt um starfíð þar sem hún hafí undanfarin sex ár starfað hjá norrænu leikhús- og danssamtökunum og haft áhuga á að vinna áfram innan vébanda nor- ræns samstarfs. „Það hefur verið gaman að taka þátt í norrænu sam- starfí á þessum tímum, þegar það hefur breyst jafn mikið og raun ber vitni,“ segir hún. „Norðurlöndin eru ekki stærri en svo en það veitir ekkert af sam- starfí þeirra." Auk þess hafi áhugi sinn á Færeyjum einnig ýtt undir að hún sótti um starfið. Hún hyggst leggja áherslu bæði á menningarút- og innfiutning, bæði að fá gesti til eyjanna, en einnig að kynna fær- eyska menningu er- lendis. Hún hefur unnið mikið með leikflokkum á Grænlandi og í Færeyjum og þekkir því vel til. Hins vegar verði sér alveg ný reynsla að taka upp tengsl við Bret- landseyjar, sem mikili áhugi sé á að gera nú eftir að samgöngur við eyj- arnar hafi komist á. í gegnum starf sitt hingað til hef- ur Helga kynnst mörgum Færey- ingum, sem starfa í menningarlíf- inu, þar á meðal mörgu ungu fólki, sem nú sé farið að setja svip sinn á færeyskt menningarlíf. Anægjulegt verði að rifja þau kynni upp. Helga var síðast á Færeyjum þegar leikfé- lagið Gríma hélt upp á afmæli sitt nýlega og frumsýndi Jónsmessunætur- draum Shakespeares. Þetta var aðeins í ann- að skipti, sem Færey- ingum gafst tækifæri til að heyra verk breska leikhússjöfurs- ins á móðurmálinu og segir Helga það hafa verið áhrifamikla reynslu, sem hafí kall- að fram sterkar tilfínn- ingar. Gaman að lifa tíma sjálfstæðisbaráttu í Færeyjum Um þessar mundir eru miklir vakningartímar í Færeyjum, segir Helga, sem gaman sé að upplifa. „Það hefði verið gaman að lifa þessa tíma á Islandi, en nú fæ ég að reyna þá í Færeyjum," segir hún. Rétt eins og á Islandi er talað um að byggja Þjóðleikhús í hita sjálfstæð- isvakningarinnar og mikil rækt er lögð við málið. „Þetta allt er örvandi að vera vitni að,“ bætir hún við. ,;Færeyingar vilja gjarnan læra af Islendingum, en enn er of snemmt að segja um hvernig sjálfstæðsmál- in æxlast.“ Milli Færeyja og íslands er geng- inn í gildi nýr menningarsamning- ur, sem Helga segist binda miklar vonir við að muni auka menningar- samskipti landanna. A sumrin geng- ur ferja milli íslands og Færeyja og eins segir Helga það fulla ástæðu fyrir íslendinga að hafa Færeyjar í huga, því þangað sé margt að sækja og Norðurlandahúsið mjög fallegt. Húsið er þungamiðjan í menningar- lífí bæjarins og þar er til dæmis stærsta leiksvið eyjanna, svo allir stærstu menningarviðburðirnar fara þar fram. A vegum leikhúss- og danssamtakanna voru nýlega haldin málþing gagnrýnenda annars vegar og þýðenda hins vegar og fyrir slíku starfí vilji hún gjarnan beita sér. „Þarna eru tveir hópar, sem starfa á þröngu sviði og veitir ekki af að hittast stöku sinnum til að bera saman bækur sínar.“ Helga lét af störfum sem fram- kvæmdastjóri Teater og Dans i Norden nú 1. október, en tekur við nýja starfínu 1. febrúar. „Það er gott að fá smá tækifæri til að draga andann og ná áttum áður en nýja starfið hefst.“,„ segir hún. LÍMMIÐAPRENT Þegar þig vantar límmiðal Skemmuvegi 14 • 200 Kópavogur Sfmi: 587 0980 • Fax: 557 4243 Farsími: 898 9500 Nýtt íslenskt gallerí í Noregi NÝTT íslenskt gallerí „Is-Kunst-Gallery og eafé“, Leh'fallsgata 6, Ósló, Noregi, verður opnað föstudaginn 16. október. Fyrsti „myndlistar- maðm' mánaðarins“ er listakonan Jónína Magnúsdóttir, Ninný. Þetta er fímmta einka- sýning hennar' og hefur Ninný látið setja sýn- inguna upp á Netinu, svo fólki hér heima og víðai' gefist kostur á að skoða sýninguna, segh' í kynningu. Netfangið er: http:/Avww.if.is/ninny. A sýningunni, sem kallast „Lífsganga" eru á milli 20 og 30 verk, flest unnin með olíulitum á striga. Ninný lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla íslands árið 1978. Þá hefur hún stundað nám við Myndlistarskóla Reykjavíkur og hjá dönsku listakonunni Elly Hoffmann. Auk einkasýninga hef- ur hún tekið þátt í samsýningum hér á landi og í Danmörku. Und- anfarin ár hefur Ninný eingöngu starfað við list sína og kennslu henni tengda. Kynningin á verkum Ninnýjar verður til og með 12. nóvember en sýningin á Netinu mun halda áfram. Helga Hjörvar Tveir fyrir ■ •11.1 lil London 26. okl. og 2. nóv. trá kr. 14.550 fyrir mannlnn Bókaðu í dag eða á morgun og tryggðu þér þetta ótrútega tilboð til London Gildir 26. okt. og 2. nóv. frá mánudegi til fimmtudags. London-ferðir Heims- ferða hafa fengið ótrú- leg viðbrögð og nú er uppselt í fjölda brott- fara í vetur. Heimsferð- ir kynna nú fjórða árið í röð, beint leiguflug sitt til London, þessarar vinsælu höfuðborgar Evrópu, og aldrei fyrr höfum við boðið jafn hagstætt verð og jafn gott úrval hótela. Nú getur þú tryggt þér 2 sæti á verði eins til London og einnig valið um gott úrval hótela á frábærum kjömm. Glæsileg ný hótel í boði. Plaza-hótelið, rétt við Oxford-stræti. Flugsæti til London Islenskir fararstjórar Heimsferða tryggja þér örugga þjónustu í heimsborginni Verð kr. 14.550 Flugsæti fyrir fullorðinn með skött- um m.v. 2 fyrir 1. Ferð frá mánudegi til fimmtudags, 26. okt., 2. nóv. Flugsæti kr. 21.900. Skattur kr. 3.600x2=7.200. Samtals 29.100. Á mann kr. 14.550. Tveggja stjörnu hótel Flug alla Hmmtudaga og mánudaga í október og nóvember. Þriggja stjörnu + Verð kr. 3*700 Verð kr. 4.500 Verð á mann á nótt á Bultins-hótel- inu með morgunmat í tveggja manna herbergi. Verð á mann á nótt í tveggja manna herbergi á Plaza, okkar vinsæla hóteli. Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sfmi 562 4600. www.heimsferdir.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.