Morgunblaðið - 15.10.1998, Side 45

Morgunblaðið - 15.10.1998, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 45* AÐSENDAR GREINAR Deilur um Borgarfjarðar- braut settar niður MARGIR Vestlend- ingar þekkja þær raunir sem Vegagerðin hefur ratað í vegna fyrirhugaðra fram- kvæmda við veginn frá Flókadalsá að Klepp- jámsreykjum í Reyk- holtsdalshreppi. Pessi vegarkafli, ásamt brúnni á Flókadalsá, er trúlega með verri vegarköflum í kjör- dæminu. Pað var og er því ríkur vilji þing- manna Vesturlands til þess að leggja fé í end- urbyggingu vegarins. Tillögur um legu vegarins hafa hins vegar leitt til þvílíkra deilna að fá dæmi eru um slíkt í landinu. Lausna hefur verið leitað til sátta án árangurs. Þegar tillögur Vegagerðar lágu fyrir and- mælti meirihluti hreppsnefndar Reykholtsdals þeim harðlega ásamt landeigendum á svæðinu. Þingmönnum var því mikill vandi á höndum þegar kom að því að hefja framkvæmdir. Þegar málið stefndi í hnút fékk samgönguráð- herra lögfræðiráðgjafa til þess að skoða málið og leggja mat á stöðu þess. Eftir að hafa fengið umsögn lögmanns taldi samgönguráðherra ráðlegt að leita nýrra leiða. Talið var mjög hæpið að eignarnám á landi undir veginn stæðist í þessu tilviki gagnvart stjómsýslulögum. Samgönguráðherra fól Vegagerð- inni að leita umsagnar og tiUagna vegahönnuðar um legu vegarins. Verkfræðistofunni Hönnun hf. var falið það verkefni. Niðurstaða hennar var svokölluð „sáttaleið" sem var tal- in vera fullnægjandi frá sjónarhóli hönnuða og innan þeirra marka sem gerðar era um slíka vegi. Allt benti til þess að „sáttaleiðin“ leysti málið og hún var samþykkt af Skipu- lagsstjórn ríkisins. Umhverfisráðherrann valdi hins vegar þá leið að senda málið aftur heim í hérað og setti málið því allt á byrjun- arreit. Þannig stóð málið í júní þegar þingmenn áttu viðræður við vegamálastjóra, þar sem ræddar voru framkvæmd- ir á grundvelli vegaáætlunar. Gild- Eftir að hafa metið þá kosti sem fyrir hendi voru, segir Sturla Böðvarsson, varð til- lagan sameiginleg nið- urstaða allra þing- manna kjördæmisins. andi vegaáætlun gerir ráð fyrir að til framkvæmda í Borgarfjarðar- braut verði varið 409 milljónir króna. A þessum fundi lögðu vega- málastjóri og umdæmisverkfræð- ingur fram tillögu sem fól í sér þá lausn að byggja brúna á Flóka- dalsá og endurbyggja veginn frá Flóku til Kleppjárnsreykja að mestu í núverandi vegarstæði með lagfæringum sem uppfylltu kröfur um veg með bundnu slitlagi. Þá var gert ráð fyrir að bjóða út aðra hluta Borgarfjarðarbrautar að Hvanneyri og ljúka þessum fram- kvæmdum á næstu þremur árum. Eftir að hafa metið þá kosti sem fyrir hendi voru varð tillagan sam- eiginleg niðurstaða allra þing- manna kjördæmisins. Vegamála- stjóra var falið að kynna málið fyr- ir hreppsnefndinni, sem hann og gerði. Eftir fund með þingmönnum varð niðurstaða hreppsnefndar að heimila framkvæmdir á grundvelli þeirrar tillögu Vegagerðar sem þingmenn allir sem einn höfðu samþykkt. Því hefur komið mér á óvart sá málatilbúnaður að gera þessa ein- róma niðurstöðu þingmanna tor- tryggilega. Eg hef undrast yfirlýs- ingar oddvita, Ríkharðs Bi-ynjólfs- sonar, í fjölmiðlum í garð okkar þingmanna, en hef auðvitað skiln- ing á stöðu hans í málinu. Frá upphafí hefur það verið af- staða mín að fara að samþykktum meirihluta hreppsnefndar um skipulag á svæðinu. Eg tel það eðli- lega afstöðu, enda ekki hlutverk þingmanna að fara með skipulags- mál. Fyrrverandi hreppsnefnd Reykholtsdalshrepps samþykkti tillögu að skipulagi vegarins frá Flóku að Kleppjárnsreykjum. Nú- verandi nýkjörin hreppsnefnd „Borgarfjarðarhrepps“ hefur ekki svo ég viti til afgreitt skipulagið af svæðinu og hefur ákveðið að hefja skipulagsvinnu að nýju, sem að mínu mati er eðlilegt miðað við Sturla Böðvarsson stöðu mála. Þingmenn eiga því ekki annarra kosta völ en að samþykkja tillögu Vegagerðarinnar um að end- urbyggja gamla veginn með nauð- synlegum lagfæringum. Akvörðun um röð framkvæmda við vegagerð er verkefni þing- manna. Það er á vissan hátt skylda þingmanna og ráðherra að gæta þess að ríkisstofnanir gangi ekki á rétt einstaklinga þegar fram- kvæmdir eru ákveðnar. Stundum verður samt að gera það og koma þá bætur fyrir. Eg tel að í þessu Borgarfjarðar- brautai-máli megi segja að Vega- gerðin hafí lent óvenjulega erfíðu máli. Því var eðlilegt að sá aðili sem ber ábyrgð á störfum hennar, sem er samgönguráðherra, leitaði leiða til sátta. Þá tilraun gerði umhverf- isráðherrann að engu þrátt fyrir að skipulagsstjórn hefði samþykkt það skipulag sem hreppsnefnd Reyk- holtsdalshrepps hafði samþykkt. Um framgöngu einstakra manna í þessu vandræðamáli er best að hafa sem fæst orð. Niðurstaða er fengin sem gefur færi á því að menn slíðri sverðin og leggi til hliðar hin beittu og breiðu spjót. Með þeirri lausn sem fengin er fæst fernt: 1. Akvörðun er tekin um fram- kvæmdir og þeim flýtt svo vega- bætur komist í gagnið sem fyrst, íbúum til hagsbóta. 2. Óvissu bænda sem við veginn búa er eytt. 3. Flókadalur er tengdur vega- kerfínu með viðunandi hætti. 4. Hreppsnefnd gefst næði til að vinna við framtíðarskipulag af svæðinu án þeirrar miklu pressu sem hefur fylgt málinu. Þannig fæst nægur tími til þess að ákveða framtíðarstaðsetningu mikilvægrar umferðaræðar um kjördæmið, inn- an marka nýsameinaðs sveitarfé- lags. Með þeirri lausn sem fengin er hefur verið höggvið á hnút sem óleysanlegur var. Til slíkra aðgerða þarf kjark, styrk og yfirsýn góðra manna sem velja fremur leið friðar og sátta en leið ófriðar. Með þeirri tillögu sem samþykkt hefur verið af þingmönnum, Vegagerðinni og hreppsnefnd hafa vegamálastjóri og umdæmisverkfræðingur sýnt mikilvægt frumkvæði og vilja til þess að leita viðunandi lausnar svo langt sem hún nær. Það er von mín að sveitarstjórnin í hinu nýja sveitarfélagi fái næði frá þvílíkum deilumálum og þau verði ekki vakin upp á ný. Höfundur er alþingismaður. www.mbl.is Volvo V70 Cross Country gerir þér kleift að komast lengra án þess að fóma öryggi eða þægindum. Bíllinn hefur góða veghæð og sjálfvirka hleðslujöfnun, en jafhframt lágan þyngdarpunkt. Öflug vél með forþjöppu og millikæli skilar miklum togkrafti á lágu snúningssviði. Aldrifsbúnaður, sem dreifir vélaraflinu sjálfkrafa á milli allra hjólanna, sérhannaður fjölliðaöxull með fullri driflæsingu, háþróuð spólvöm og læsivarðir hemlar tryggja einstaka rásfestu og svörun við misjafnar aðstæður. aldrifinn o g albúinn VOLVO V70 XC AWD CROSS COUNTRY o 2 cí: C£ 2 BRIMBORG Faxafeni 8 • Sfmi 515 7010 Upplifðu hann í reynsluakstri Brimborg-Þórshamar Tryggvabtaut 5 • Akureyri Simi 462 2700 Bilasala Keflavlkur Hafnaigötu 90 • Reykjanesbæ Sfmi 421 4444 Blley Búðareyri 33 • Reyðarfirði Sími 474 1453 Betri bilasalan Hrísmýri 2a • Selfossi Sími 482 3100 Tvisturinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.