Morgunblaðið - 15.10.1998, Page 52

Morgunblaðið - 15.10.1998, Page 52
"*t>2 FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 AÐSENDAR GREINAR SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ „Skuldir okkar allra n?“ PAÐ er sjálfsagt leiðigjarnt að menn séu sífellt að hræra í einhverri fortíð. Nú á dögum virðast líka margir þeirrar skoðun- ar að best sé að kasta syndum sínum aftur fyrir sig og láta þær gleymast. Samt skal hér enn litið til fortíð- --•*ir, ekki ýkja fjarlægr- ar. Frá árdögum sósíal- ískrar hreyfingar hafa menn og konur lagt sinn skerf af kröppum efnum til margvíslegra samtaka sem unnu að bættum hag alþýðu, fátæklinga og öryrkja. Pótt fólk greindi á um leiðir voru margir viljugir til að gefa fjár- muni úr naumum sjóði til hugsjóna sinna. Alþýðubandalagið naut lengi þessarar velvildar alþýðu manna, fékk framlög margra fórnfúsra ein- staklinga og byggði þar á eldri gi-unni. Hundruð og þúsundir _jpanna og kvenna lögðu sitt litla lóð á vogarskálar Alþýðubandalagsins með því að greiða félagsgjöldin, með því að kaupa kaffi og meðlæti fullu verði á félagsfundum, með því að læða klinki í bauk eða kopp eða láta flokkinn njóta sín á hvern þann hátt sem fjárhagurinn leyfði. Pað er líka vel því snöggtum þekkilegra er að efla starfsemi hugsjónasam- taka með peningum frá félags- mönnum en að betla pylsu og kók frá McDonalds, Vífilfelli eða Aðal- verktökum. Barátta vinstri hreyfínga hefur lengst af verið fjármögnuð með framlögum einstaklinga, flestra fá- tækra, nokkurra megandi og fá- einna auðugra. I annan stað fengu vinstrimenn auglýsingatekjur með- an Þjóðvilinn var við lýði. Þess utan hafa stjórnmálaflokkarnir þegið framlög af almannafé til starfsemi sinnar. Meginstyrkur vinstri sam- taka hefur þó jafnan komið frá fylg- ismönnum þeiira. www.mbl.is Það er ekkert laun- ungarmál að Alþýðu- bandalagið hefur lengi búið við bágan fjárhag. Samt hafa fjölmargir styrkt það með tals- verðum fjámunum, að minnsta kosti þegar miðað er við eyri ekkj- unnar. Pað má því segja að Alþýðubanda- lagið hafi verið rekið fyrir fjárframlög „okk- ar allra“. Pað getur vel verið að það sé nöldur í göml- um stuðningsmanni Al- þýðubandalagsins að æskja svara um það hvað varð um þá peninga sem hann og margir aðrir létu renna í flokks- sjóðinn. En kannski koma fjárreiður flokksins, þeir peningar sem runnu út úr blóðmjólkuðum sjóðum flokks- ins, almennum greiðendum tO flokksins ekki við. Það má kannski kalla það fortíðarhyggju að spyrja um peningamál eins stjórnmála- flokks svo sem fimm ár aftur í tím- ann, þó ekki sé lengra farið, t.d. að inna svara við því hvernig stóð á því að skuldir voru vantaldar um 18-20 milljónir árið 1995. Þegar þetta er ritað eru liðnir nærri tveir mánuðir frá því Ulfar Fékk umræddur fram- kvæmdastjóri, spyr Jón Torfason, margumrætt bréf um að greiða sinn skerf af „skuldum okkar allra“? Þormóðsson bryddaði á fjármálum Alþýðubandalagsins í Morgunblað- inu. Enn hefur ekkert svar borist frá flokksskrifstofunni. Úlfar ýjaði að því að bruðlað hefði verið með fjármuni flokksins og þeim jafnvel verið varið til einkaneyslu einstakra starfsmanna flokksins. Ekkert svar hefur komið við því. Þýðir það að ásakanir Úlfars séu réttmætar? Fyrir röskum mánuði spurði und- irritaður saklausrar spurningar í þessu sambandi, hvort fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþýðubanda- lagsins hefði fengið sams konar bréf og almennir flokksmenn nú í sumar um að greiða sinn skerf af „skuldum okkar allra.“ Ekki hef ég fengið svar við því enn. Því vil ég í lokin ítreka þessa litlu spurningu til flokks- kontórsins, fékk umræddur fram- kvæmdastjóri margumrætt bréf um að greiða sinn skerf af „skuldum okkar allra“ sem eru þá væntanlega hans skuldir líka? Höfundur cr íslenskufræðingur. Jón Torfason TIL HVERS ER FÉLAG ELDRI BORGARA? ÉG HLÝT að hafa misskilið stefnuskrá og tflgang Félags eldri borgara. Ég hélt eins og fleiri, að tflgangur félagsins væri að berj- ast með kjafti og klóm fyrir betri lífskjörum okkur eldri borguimm til handa. Mér finnst það í sannleika hart að í for- svari fyrir okkar mál- stað skuli vera fyrr- verandi stjómmála- maður, sem ætti að vera öllum hnútum kunnugur, en lætur sér nægja að skrifa nokkr- ar greinar í Moggann á ári til mála- mynda. Brotið gegn fjölda samninga Umræðuefni mitt er skerðing á gi-eiðslum, sem ég tel brot á lögum um almannatryggingar frá árinu 1935, en við þau lög miðuðust tryggingagreiðslur upphaflega. Auk þess er brotið gegn alþjóða- samningum um borgaraleg og stjómmálaleg réttindi fólks, sam- kvæmt alþjóðlegum samningum frá árinu 1966, sem Island er aðili að, með undirskrift. Að auki brýtur skerðingin gegn Mannréttindasátt- mála Evrópu og Stjórnarskrá Is- lands. Þess vil ég geta, að bætur hjóna em skertar um 50% ef annað hjóna „vinnur úti“. Þessi skerðing er ólögmæt samkvæmt stjórn- sýslulögum, samkvæmt jafnrétt- islögum og auk þess er bannað að mismuna fólki tekjulega, sam- kvæmt mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna frá árinu 1948. Alþingi Islendinga hefur fullgilt alla fyrmefnda samninga og al- þjóðasáttmála. Mér finnst skrýtið, að hvorki Páll Gíslason, formaður Félags eldri borgara, né Helgi Selj- an, formaður Öryrkjabandalags Is- lands, skuh minnast á þessi mann- réttindabrot og alþjóðasamþykktir, þrátt fyrir að annar hafi verið þing- maður og hinn borgarfulltrúi. Get- ur verið að þeir geri sér ekki grein fyrir að margir samlandar þeirra og jafnaldrar eigi ekki fyrir salti í grautinn? Getur það verið að ríkið borgi þeim svo rífleg eftirlaun, að þeir sjái sér ekki hag í því að berj- ast fyrir sanngjömum launum tfl handa samlöndum, sem ekkert hafa gert af sér annað en að fiska fyrir samfélagið? Getur það verið að þessir herramenn séu með þær tekjur á mánuði sem nægi til þess, að þeir gleymi að berjast fyrir þeim hópi fólks sem þeim er trúað fyrir? Þessir tveir herramenn, ann- ar fyrram borgarfull- trúi sjálfstæðismanna til margi-a ára og hinn forystumaður sósí- alista, sitja nú í hæg- indastólum og ráða ráðum eldri borgara, eða hvað? Mér finnst skrýtið að hvorki Páll Gísla- son, formaður Félags eldri borg- ara, eða Helgi Seljan, formaður Öryrkjabandalags Islands, skuli nefna þessi brýnustu málefni í ræðum og skrifum sínum. Ég hefí farið fram á gjafsókn, segir Einar Grétar Björnsson, varðandi málshöfðun á hendur Trygginga- stofnun ríkisins vegna skerðingar sem ég tel brot á lögum. Getur það verið að sumum mönnum sé sama um hag náung- ans, ef þeir hafa sjálfir sæmilega til hnífs og skeiðar? Fannst ekki mikið til um Er það ekki sárt að horfa á tvo fyrrum „verkalýðsleiðtoga" leiða félaga sína til vansæmdar hvað varðar lífskjör? Það er kannski mál til komið að ýmsir karlar verði teknir í gegn. Tökum sem dæmi tvo fyrrverandi verkalýðsleiðtoga. Horfum á Karl Steinar, forstjóra Tryggingastofn- unar ríkisins, sem ráðinn var í starfið eftir pólitískum forskrift- um. Hinn verkalýðsforinginn fyrr- verandi er núverandi fram- kvæmdastjóri Landssambands ellilífeyrisþega, Benedikt Davíðs- son, íýrrum forseti Alþýðusam- bands Islands. Ég skrifaði Karli Steinari, for- stjóra, bréf og benti honum á fyrr- greindar skerðingar og mannrétt- indabrot gagnvart ellilífeyrisþeg- um. Karli Steinari fannst nú ekki mikið til um ábendingar mínar. Þessir greifar hafa nú ekki mikið að segja við svoddan ábendingum, enda fyrram alþingismenn og málsvarar lítilmagnans í þjóðfélag- inu. Þessir ágætu menn virðast hafa sofið, eða „láta sem svo“, sam- anber: „Ég læt sem ég sofi“. Þeir virðast ekki vita undir hvað þeir hafa skrifað. Ég hefi lengi barist fyrir því að umrædd skerðingarmál séu tekin fyrir á ýmsum vettvangi. Ég skrifaði á sínum tíma háttvirtum umboðsmanni alþingis og _ fékk svar átta mánuðum seinna. Ég fór á fund Ragnars Jörundssonar, framkvæmdastjóra Félags eldri borgara, og Páls Gíslasonar, for- manns sama félags. Þeir félagar létu mjög líklega varðandi erindi mitt og ástæða væri til málshöfð- unar. Þeir spurðu hvort skrifa mætti mig fyrir málinu og sam- þykkti ég það að sjálfsögðu. Áður hafði ég fengið Páli alla mína pappíra. Fjórum mánuðum eftir að ég lét þá hafa gögnin var ég boðaður á fund hjá Félagi eldri borgara til að ræða nánari að- gerðir. Sá fundur stóð í tíu mínút- ur. Páll þurfti að sinna nokkrum eldri borgurum og sýna þeim Heiðmörk og Vatnsveituna eins og þeir hefðu aldrei séð það áður, en Ragnar þurfti að fara á áríð- andi fund. Á þeim tíu mínútum sem ég fékk til fundar við þessa ágætu menn spurðu þeir mig hvort ég hefði hreint sakavottorð. Ég sagði sem satt er, að svo væri. Þá virtist þeim öllum lokið og slitu fundi. Ég var satt að segja nokkuð vonsvikinn og miður mín yfír mót- tökunum hjá þessum „forsvars- mönnum“ mínum og annarra eldri borgara. Það var því ekki fyrr en rúmum mánuði seinna að ég tók í mig kjark og hringdi í Ragnar Jör- undsson og spurði nánar út í erindi mín. Ragnari vafðist tunga um tönn, en sagði loks: „Einar Grétar, þú átt ekkert erindi í Félag eldri borgara. Þú ert hjartasjúklingur og átt að vera í félagi öryrkja.“ Síðan ympraði Ragnar á einhverri nefnd sem stofnuð hefði verið varðandi þau málefni sem ég hefi borið fyrir brjósti. Það sem mér þótti skuggalegast var, að þessi aðgerðarnefnd, sem stofnuð var fyrir nokkrum misserum, skuh ekkert hafa gert. Einar Grétar Björnsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.