Morgunblaðið - 15.10.1998, Page 71
MORGUNB LAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1998 73f
DUjITAÍ
★ ★★
JHT Rás 2
THE MA.SK O F Z Q.a R Q
Frá lesksíjóra Goideneye
og framJeiðendum
Men In Black
www.vortex.is/stjornubio/
Hinn eini sanni
Howard Spi
•ame r
vnohv®
Sýnd kl. 5 og 6.50.
FRUMSYNING: VESAUNGARNIR
I.ÍAM MIRSON
CEOiMtfcY RI.SH ..UM* fHl.'RMXíí CEAJAi OAWi-
Sígild
saga um ^
samvisku,
sannfæringu
og hugprýði
LES MisÍrABLES
P j ó ð s ag a n ö ð la s t l íf
Nýjasta meistaraverk.ið frá danska leikstjóranum Bille August
(Hús Andanna. Lesiö í Snjóinn og Pelle Sigurvegari) með úrval-
sleikurum Liam Neeson (Scindler's List), Uma Thurman (Pulp
Fiction), Geoffrey Rush (Fékk óskarinn fyrir hlutverkid sitt í
Shine) og Claire Oanes (Romeo & Juliet).
Klassísk skáldsaga, klassísk kvikmynd.
Sýnd kl.4.30, 6.45, 9 og 11.25. b.í.ia.
HÆTXUtEG TSCUND II
http://www.blademovie.com
z UALJtiAríÁSZJ™™7* ALVÖRU BÍÚ! ™Dolby
—— zzr _ STAFRÆNT stærsta tjaloíð með
* .FF—ET EE = = HLJOÐKERFI í I lj yr
★ =—■== =—= ÖLLUM SÖLUM! -I--- . —
Æp' Það er annað lif..
...og nú er það komið til jarðar
Það er timi til að fjölga sér - aftur!
Frábær vísindahrollvekja með glæsilegustu geimveru ailra
tíma Natöshu Henstrige. Mynd sem fær hárin til að rísa
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
B.i. 16.
Frá leíkstjóra
Goídeneye og
framleiðendum
Men In fílack
ÓHT Rás 2
FJÓRÐA STÆRSTA
MYNDBREIAFRÁUPPHAr^
MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ’SJÁ
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
Vettvangur fólks i fasteignaleit
Ómengaðir
sveitamenn
Sveitasveitin Hundslappadrífa er ólík ung-
mennahljómsveitum í dag þar sem hún
flytur þjóðleg vísnalög. Hildur Loftsdóttir
heimsótti sveitina í hljóðver.
„EG ER mjög slæmur söngvari en
nelvíti góður sögumaður og lít á mig
sem slíkan,“ segir Keli söngvari og
forsprakki sveitasveitarinnar
Hundslappadrífu. Brynja harmon-
ikkuleikari tekur undir það síðar-
nefnda. tónleikum segir Keli
söguna á bakvið hvert lag og er svo
persónulegur að áheyrendur fara að
leggja til málanna. Mér finnst frá-
bært hversu góðu sambandi hann
nær við tónleikagesti."
Grípandi lög og kvæði
Hljómsveitin rekur rætur sínar
til Snæfellsness, er nánar tiltekið
úr föðurhúsum Kela og Þorra. Tón-
lístin eru þjóðleg þótt hún blandist
öðrum tónlistarstefnum, og ekki
nema von því bæði dreifbýlisbörn
og böm úr öðrum landshlutum hafa
bæst i hópinn; Inga söngkona á for-
Hð í pönkinu, Eyþór hefur verið
ti'úbador, Helgi bassaleikari er
rokkari og Brynja hefur spilað fyrir
fjölskylduna hingað til.
„Fyrir nokkrum árum fór litli
bróðir minn hann Þorri að glamra á
gítar og ég var að byrja að yrkja,“
segir KeH. „Helgi nági’anni okkar
fór að spila með okkur og þetta vatt
UPP á sig, því lögin okkar þóttu
grípandi og fólk hafði gaman af
þeim. Ég sem textana og lögin eru
samin við þá með viðeigandi
stemmningu í huga. Þorri á flest
lögin, en Eyþór og fleiri hafa líka
samið nokkur og það gefur
skemmtilega fjölbreytni. Reyndar
kunnum við ekki eitt einasta lag
eftir einhvern annan. Þótt upphaf-
lega hafi þetta meira verið gert í
gríni, þá fór mann að langa að
koma þessum „börnum" sínum á
framfæri. Og það er fyrst núna sem
yið erum að haga okkur eins og
hljómsveit og spilum annars staðar
en í heimahúsum.
Við höfum úr gífurlega miklu efni
að moða. Við erum með 26 lög á
tónleikaskrá og þau voru valin úr
meira efni. Okkar tónlist er öðru
vísi en það sem gengur og gerist
því hljóðfæraskipanin er sérstök.
Textamir eru líka stuðlaðir og ortir
undir gamaldags bragarháttum, og
frekar mikill bölmóður í þeim. Mér
finnst það verði að vera einhver
saga eða þema í hverju kvæði.
Þetta eru ekki ljóð, þetta eru
kvæði. Stundum er það pæling um
hvernig manni líður eða saga af at-
burði. Ég samdi texta um Axlar-
Björn sem var morðingi á Snæfells-
nesi 1596, og þannig fer þetta vítt
og breitt um sviðið. Ég reyni að
nálgast hlutina á þennan gamla
þjóðlega máta. Það væri auðvitað
hægt að spila þessa tónlist á nútíma
hljóðfæri, en þá yrði hún allt önnur.
Þetta er sérviska sem hefur þróast
með okkur bræðrum."
Sveitin mín er best
- Þið hafíð ekki veríð hræddir um
að vera álitnir sveitalegir að vera úr
sveit og spila gamaldags tónlist?
„Það eru tveir möguleikar í stöð-
unni. Það er að vera sveitamaður og
skammast sín íýrir það, eða vera
sveitamaður og vera stoltur af því,
og við tökum seinni kostinn. Maður
fær marga sneið fyrir að vera úr
sveit en samt ber fólk virðingu fyrir
jjví að maður haldi sínu stolti. Ég
hef ekki mikið álit á Reykjavík mið-
að við sveitina mína, og ég reyni að
vera ómengaður sveitamaður í öllu
sem ég tek mér fyrir hendui'."
- Þú ert í kúrekastígvélum, ertu í
þeim þegai-þú rekur beljurnar?
„Nei, ég á ekki beijur. Það er al-
gengur misskilningur hjá Reykvík-
ingum að við sveitamenn eigum allir
beljui-, vai’la útvarp í bílinn og fleira
, Morgunblaðið/Kristinn
EYÞOR, Biynja, Þorri, Keli og Inga skipa sveitasveitina Hundslappadrífu ásamt Helga bassaleikara sem
vantar á myndina.
þar fram eftir götunum, en reyndin
er allt önnur. Heima hjá mér er
stórt gistiheimili, ég rek golfvöll á
sumrin og víðast er búskapur á
fallanda fæti þótt sveitin mín gamla
sé búsældai’leg. Og við sem búum í
sveit eigum yfirleitt fátt annað sam-
eiginlegt en það að vilja búa í sveit.
Oft eni mikil vitleysa og ranghug-
myndh- á ferðinni þegai’ Reykvík-
ingar gera okkur upp viðhoif. Að
sama skapi getur hinn eðlilegi
sveitamaður ekki áttað sig á þeirri
áherslu sem hinn venjulegi
Reykvíkingur leggur á vita gagns-
lausa hluti.“
Það er ekki vitað hvenær fólki
gefst næst tækifæri á að sjá og
heyra Hundslappadrífu leika, út-
gáfutónleikar verða að sjálfsögðu
haldnir þegar þar að kemur. „Við
verðum bai’a að dansa með þessum
bransa. En við munum spila víða og
jafnvel á óvenjulegum stöðum. Og
ég á von á því að fólk fái alveg nóg
af okkur áður en yfir líkur,“ segir
Keli að lokum.
■: -Vú
riýfrT
drnrrffr
rrnrín