Morgunblaðið - 21.10.1998, Page 10

Morgunblaðið - 21.10.1998, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 MORGUNB LAÐIÐ FRÉTTIR Félagsdómur sýknar Granda hf. f fískverðsdeilu við sjómenn Samtök sjómanna hafa ekki umboð til að semja SJÓMÖNNUM er óheimilt að veita hagsmunasamtökum sínum umboð til að semja um fískverð við einstök útgerðarfélög. Þetta er niðurstaða Félagsdóms sem í gær sýknaði Granda hf. í máli sem samtök sjó- manna höfðuðu gegn fyrirtækinu vegna fiskverðsdeilu við áhöfn eins af skipum fyrirtækisins. Áhöfn Grandatogarans Ásbjörns RE veitti Sjómannasambandi Is- lands og Farmanna- og fískimanna- sambands íslands fyrr í sumar um- boð fyrir sína hönd til að semja við útgerðina um fískverð. Grandi hf. hafnaði hins vegar viðræðum við samtökin með vísan til þess að sam- kvæmt kjarasamningum eigi fyrir- tækið rétt á því að semja beint og milliliðalaust við áhafnir sínar. Mál- inu var því vísað til úrskurðarnefnd- ar sjávarútvegsins. Þar var málinu vísað frá að kröfu útgerðarmanna sem töldu það ekki vera í verkahring nefndarinnar að annast samnings- gerð fyrir áhafnir skipa og útgerðar- manna. Sjómannasamtökin höfðuðu því mál íyrir Félagsdómi til að fá samningsrétt sinn viðurkenndan. Félagsdómur sýknaði í gær Granda hf. af öllum kröfum, auk þess sem útgerðinni var dæmdur máls- kostnaður úr hendi sjómannasam- takanna. I niðurstöðu Félagsdóms segir m.a. að fulltrúum heildarsam- taka sjómanna sé ætlað mikilvægt hlutverk til að ná samkomulagi um fiskverð ef ekki náist samkomulag með áhöfn og útgerð. Á því stigi komi fulltrúar sjómanna og útvegs- manna að málum.’ I dómsniðurstöð- unni segir ennfremur: „Það er ósam- rýmanlegt því samningsferli sem kjarasamningarnir gera ráð fyrir að fulltrúar samtaka sjómanna hafí einnig með höndum samningsgerð fyrir áhöfn einstaks skips gagnvart útgerð þess.“ Niðurstaða dómsins er því að áhöfn Ásbjörns RE sé ekki heimilt að fela fulitrúum samtaka sjómanna að annast samninga fyrir sína hönd gagnvart útgerð skipsins. Dómurinn vonbrigði Sævar Gunnarsson, formaður Sjó- mannasambands Islands, segir nið- urstöðu Félagsdóms vissulega von- brigði. „Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að heildarsamtök sjó- manna geta ekki verið samningsaðil- ar um fiskverð fyrir sína umbjóðend- ur. Það er slæmt að mlnu mati því við erum í vinnu hjá þessum mönnum og eigum að geta samið um fiskverð fyr- ir þá eins og annað. Þetta er hinsveg- ar niðurstaða dómaranna og við deil- um ekki við þá,“ segir Sævar. Verslunin Blóm og grænmeti í Reykjavík hættir rekstri eftir 49 ár Kveðju- stund á Mokka EIGENDUR verslunarinnar Blóm og grænmeti á Skólavörðustíg 3a hættu rekstri verslunarinnar sl. laugardag, eftir tæplega 49 ára starf. Ibúar og aðrir verslunareig- endur við Skólavörðustíg þökkuðu fyrir áralangt samstarf og buðu þeim Ólafi Helgasyni og Sigríði Guðmundsdóttur eigendum versl- unarinnar á Mokka kaffí á mánu- dag. Hjónin Ólafur og Sigríður láta af störfum vegna aldurs en liyggj- ast halda áfram að þjónusta helstu viðskiptavini sína með heimaþjón- ustu. Ölafur sagði í samtali við Morgunblaðið að mikill og góður samgangur væri á milli fólks á Skólavörðustígnum og nokkur eft- irsjá fylgdi því að hætta verslunar- störfum þar. Á myndinni má sjá hjónin Ólaf og Sigríði í góðra vina hópi, en þau eru fyrir miðri mynd. Morgunblaðið/Golli Kirkjan hvetur til vímu- varna „NAUÐSYNLEGT er að efla endurmenntun allra kirkjunnar þjóna á þessu sviði svo þeir séu færir um að greina vímuefna- vanda hjá skjólstæðingum sín- um og kunni skil á þeim með- ferðarúrræðum, sem stofnanir í samfélaginu geta veitt,“ segir meðal annars í ályktun frá kirkjuþingi um vímuefnavarn- arstefnu kirkjunnar. I ályktuninni eni starfsmenn kirkjunnar ennfremur hvattir til að styðja áfram við bak þeirra sem vinna gegn vímu- efnaneyslu og sinna þeim vanda sem henni fylgir um leið og kirkjan tekst sjálf á við vand- ann með fræðslu, helgihaldi og kærleiksþjónustu. „Æskilegt er að efla unglingastarf í söfnuð- um landsins sem lið í barátt- unni gegn vímuefnum. Eðlilegt er að fræðslu- og þjónustudeild kirkjunnar sé í forsvari fyrir þennan málaflokk, samræmi störf hans og tryggi eðlilegt samstarf við alla aðila sem vinna að forvörnum og meðferð á Islandi,“ segir einnig í álykt- uninni. Bflvelta við Gljúfurá LÍTILL fólksbíll valt út af hringveginum rétt norðan við Gljúfurá. Ökumaðurinn var einn í bílnum og slasaðist hann mikið, og var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkm-. Mikil hálka var á veginum þegar slysið varð um klukkan 14.20 í gær og skemmdist bíllinn mik- ið að sögn lögreglunnar á Blönduósi. Tillaga frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni Einokun verði afnumin á smá- sölu áfengis MYND af baksíðu bæklingsins um þjóðkirkju í þúsund ár. Bæklingur um þjóð- kirkju í þúsund ár GUÐLAUGUR Þór Þórðarson, fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðis- flokksins á Vesturlandi, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsálykt- unar um afnám einokunar ríkisins á smásölu áfengis. Er þetta jafnframt fyrsta þingmálið sem Guðlaugur Þór leggur fram á Alþingi en hann tók sæti á Alþingi í vikunni í fjar- veru Sturlu Böðvarssonar næstu tvær vikumar. Meginefni tillögunnar er að Al- þingi álykti að fela fjármálaráð- herra að koma á breyttri skipan smásölu áfengis í landinu. „I stað núverandi fyrirkomulags verði sveitarstjórnum heimilt að veita að- ilum leyfi til að stunda slíka sölu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Skilyrðin miði að því að áfengis- verslun verði með svipuðum hætti og nú er en í stað þess að ríkisfyrir- tæki hafi einkarétt á smásölu verði hún í höndum kaupmanna," segir í tillögunni. í greinargerð sem Guðlaugur rit- ar með tillögunni segir m.a. að á undanförnum árum og áratugum hafi hið opinbera verið að draga sig út úr atvinnurekstri á mörgum svið- um og að nú heyri það til algerrar undantekningar ef ríki eða sveitar- félög standa í verslunarrekstri. „Ein þeirra undantekninga er sala á áfengum drykkjum til einstaklinga en ATVR hefur enn sem komið er einkaleyfi á því að selja almenningi áfengi í smásöluverslun." í greinargerð segir ennfremur að erfitt sé að finna rök fyrir því að ríkið standi að rekstri áfengisversl- ana. Hins vegar mæli fjölmörg rök gegn þvi „í fyrsta lagi hafa einka- aðilar séð um rekstur slíkra versl- ana með góðum árangri. í öðru lagi er aðilum eins og verslunarmið- stöðvum og byggðarlögum mismun: að eftir staðsetningu útibúa. I þriðja lagi má nefna kostnaðinn af versluninni," segir í greinargerðinni og jafnframt bent á að ólíklegt megi telja að ríkisfyrirtæki reki þessar verslanir með hagkvæmari hætti en einkaaðilar myndu gera. Jóhanna Signrðardóttir Fleiri fyrir- spurnir um laxveiði- kostnað JÓHANNA Sigurðardóttir, þing- flokki jafnaðarmanna, hefur lagt fram á Alþingi tvær skriflegar fyrii-- spurnir til samgönguráðherra um rekstrarkostnað Flugmálastjómar annars vegar og rekstrarkostnað Pósts og síma hins vegar. Þingmaðurinn spyr m.a. að því hvort farið hafi verið í laxveiðiferðir á vegum stofnananna og ef svo er hvernig kostnaði hafi verið skipt milli laxveiðileyfa og annarra út- gjalda vegna férðanna á árunum 1993-1996. Fyrirspurnirnar eru í sex liðum og nánast samhljóða tveimur fyrirspurnum sem Jóhanna lagði fram á Alþingi fyrr í mánuðinum og varða rekstrarkostnað Vegagerðar- innar og Rafmagnsveitu ríkisins. í fyrirspurnunum spyr hún einnig um hve margar laxveiðiferðir hafi verið farnar á ári hverju, hvert hafi verið farið, hverjir hafi verið þátt- takendur og hvert tilefni þeirra ferða hafi verið. Þá spyr hún m.a. um laun og starfskjör stjórnenda, ferðakostnað erlendis árlega á árun- um 1993-1996 og hvaða reglur gildi um bifreiðahlunnindi. ÞJÓÐKIRKJA í þúsund ár er nafn á bæklingi sem biskup Islands, Karl Sigurbjörnsson, hefur ritað og gef- inn er út af biskupsstofu og Skál- holtsútgáfunni. Þar er að finna ýms- ar staðreyndir um starf þjóðkirkj- unnar, rakin er saga hennar og fjall- að um nýja stöðu með nýjum lögum. í upphafi bæklingsins bendir biskup á að meirihluti Islendinga til- heyri þjóðkirkjunni eða um 90% og að um 12% sæki kirkju að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Minnst er á helga menn og bækur, siðbótina, endurreisn og nýja stöðu með ákvæðum um trúfrelsi árið 1874. Lokaorðin í bæklingnum eru þessi: „Þjóðkirkjan horfist í augu við það að hún hefur ekki einokunarað- stöðu í samfélaginu, fjölhyggja er staðreynd nútímaþjóðfélags og að vaxandi fjöldi fólks játar önnur trú- arbrögð. Þjóðkirkjan vill hlusta á það og viðurkenna rétt þess og frelsi í þjóðfélaginu um leið og þjóðkirkjan er trú þeim grundvelli sem lagður er að lífi hennar í boðun, Jesú Kristi og kærleiksboðskap hans. Þjóðkirkjan vill taka undir með öllu góðviljuðu fólki í viðleitni þess að stuðla að réttlæti og friði í samskiptum manna og þjóða og lotningu fyrir líf- inu á jörðu. Það er mikilvægur þátt- ur sáttmálans sem gerður var árið 1000 og varðar gæfuveg þjóðar til framtíðar."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.