Morgunblaðið - 21.10.1998, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 21.10.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 43 kær. Ég veit, elsku Dóri minn, að nú ert þú laus við alla verkina. Þú sem gerðir aldrei neitt úr veikindum þín- um, þú varst svo duglegur, mættir alla daga til vinnu þrátt fyrir veik- indi þín. Núna ert þú kominn til ömmu, afa, Dóra sáluga og Jennýjar þar sem þér hefur verið tekið með opnum örmum. Ég sit núna og hugsa aftur í tímann, það er svo margt sem kemur upp í hugann. Allt sem þú gerðir fyrir mig og Jennýju mína, ég get ekki fullþakkað þér það allt enda veit ég að þú ætlaðist ekki til þakk- lætis. Þú hugsaðir alltaf um aðra, börnin sem þú elskaðir og þau elsk- uðu þig. Allt sem þú gerðir fyrir börnin sem sóttu öll til þín. Ég man þegar ég var barn tveggja þriggja ára og við áttum heima á Laugaveg- inum þá fékk ég að hanga með þér og strákunum frammi í herberginu þínu, þá strax varð ég eigingjörn á þig. Allar götur síðan höfum við ver- ið bestu vinir. Takk fyi-h’ það, elsku Dóri minn. Þegar ég átti Jennýju mína varst þú svo góður við hana. Þú gerðir allt fyrir okkur enda var það svo þegar við bjuggum á Rekagrand- anum þá komum við oftast til þín um helgar til að gista hjá þér og afa. Jenný mín vildi helst alltaf vera hjá þér. Þú varst svo mikill barnavinur, það var yndislegt að sjá hvað þú gast málað, föndrað, tekið upp á videó allskyns leikþætti sem þau sömdu sjáif. Allt þetta þótti þér nú aldeilis sjálfsagt. „Kobbaherbergið" var alltaf fullt af krökkum að mála og fondra. Það var sama hvað þú, Dóri minn, tókst þér fyrir hendur, þú gast allt, þú varst svo Iistrænn en fórst hljóðlega með það. Allt það sem þú rósamálaðir, allar myndirnar sem þú málaðir og allt það sem þú marmara- málaði, það var ekkert lítið. I fyrra sumar máluðuð þið Nonni húsið okk- ar að utan enda sjá allir að þar hafa snillingar verið að verki, þið Nonni voruð svo duglegir. Garðurinn okkar var alltaf svo fallegur hjá þér enda voruð þið bræðurnir komnir út strax á vorin með börnunum sem hjálpuðu til. Kirkjugarðurinn, leiðin hjá ömmu og afa voru alltaf svo falleg því þú hugsaðir svo vel um þau. Nú er tómlegt hjá okkur öllum ekki síst hjá okkur í Gnoðarvoginum. Þú varst svo hlýr, góður, svo glettinn og orðheppinn. Allar stundirnar sem við áttum í kaffi hjá Nonna fyrir kl. 7 á morgnana, þetta voru ómetanlegar stundir. Þar var hlegið og rabbað um hvað ætti að gera. Það var þér mikið kappsmál, elsku Dóri minn, að klára yfirbygginguna hjá mér og nú er henni lokið. Þú kláraðir að mála það núna í sumar. Takk fyrir allt og allt elsku Dóri minn, ég kveð þig með sálminum: Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Mai’gs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Mai'gs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Ég þakka þér fyrir allt, elsku Dóri minn, hvíl þú í friði. Unnur. Ég mun ekki kveðja þig, Dóri frændi minn, því ég veit að þú ferð aldrei frá okkur. Líkami þinn er far- inn en þú verður alltaf hjá okkur, í anda og í öllum í kringum mig. Þú snertir okkur öll og gafst okkur öll- um hluta af þér, sem við hver á sinn hátt, munum halda áfram með, eins lengi og við fáum að lifa. Þú kenndir mér svo margt, næstum allt sem ég kann. Við gátum setið tímunum saman inni í „Kobbaherbergi" að teikna og rabba saman. Allir bíltúr- arnii’ sem við fórum, í Rauðhólana og Öskjuhlíðina, þar sem þú sagðir mér frá kanínunum sem búa þar og keyrðir um alla Öskjuhlíðina til að athuga hvort þú fyndir ekki eina til að sýna mér. Veturnir hafa alltaf verið minn uppáhaldstími því þá var svo gott að rölta á milli hæða í skólafríum og spjalla við ykkur systkinin. Setjast svo inn í „Kobba- herbergi" að teikna og föndra allskyns jóladót til að setja á jóla- tréð þitt. Ég man líka eftir því hvað okkur krökkunum fannst gaman þegar það kom vont veður, því ef það varð rafmagnslaust hlupum við beint til þín og fengum stóra vasa- ljósið þitt lánað og sátum svo hjá þér og létum eins og fífl. A meðan fullorðna fókið var að tala saman og sussaði á okkur krakkana fórum alltaf rakleiðis til þíri að kvarta yfir þessu „óréttlæti" í okkar garð og þá varst þú ekki lengi að finna uppá einhverju fyrir okkur að gera svo við gleymdum strax allri fýlu og átt- um enn eina gleðistundina með þér. Svo varð ég eldri en var nú samt alltaf litla stelpan þín. Ég fylgdist með þér og sá allt sem þú gerðir fyrir hin litlu börnin. Ég fæ vart með orðum líst, elsku Dóri, hversu góður þú varst, og það var alltaf svo yndislegt að heyra litlu börnin tala við þig og sjá þau horfa á þig með stjörnur í augunum, þú varst þeirra besti vinur. Það voru ekki bara börnin sem fengu að njóta góðs af tilveru þinni, heldur dýrin líka. Ég man þegar að við mamma „stál- umst“ til að fá okkur kettling og héldum að þið bræðurnir yrðuð ekk- ert of hrifnir af því, en svo þegar mamma kom með litla hnoðrann og lét hann í fangið á þér tókstu strax ástfóstri við hann. Hann varð eins og einn af börnunum, fór í heimsókn niður til þín og þú útbjóst alls kyns dót fyrir hann að leika með, veiddir flugu í krukku handa honum og tókst ótal videómyndir af honum. Smáfuglarnir voru heldur ekki skildir útundan, alltaf gafstu þeim þegar veðrið fór að versna. Var þá alltaf talað um að nú væri hann Aggi litli kominn aftur þegar fyrsti fuglinn kom á svalirnar hjá þér. Þá varð maður að labba hægt og læðast fram hjá stofuglugganum svo þeir yrðu nú ekki hræddir. Um síðustu jól sýndir þú enn og aftur hversu einlægur og umhyggjusamur þú varst. Þá var Begga vinkona mín ein heima yfir jól og áramót. Þú bauðst hana velkomna til okkar og gafst henni gjafir og komst fram við hana eins og eina af fjölskyldunni. Ó, Dóri minn, hvað gerum við nú? Enn eitt skarðið er höggvið í þessa ynd- islegu fjölskyldu sem ég á. Ég veit ekki hvað ég geri nú þegar ég fæ ekki að hitta þig lengur. Eg ólst upp hjá þér og þú sýndir mér heiminn. Þú varst alltaf svo glaður, jafnvel eftir að þú varðst veikur varstu alltaf kátur. Svo duglegar, málandi ganginn og vinnandi við svalirnar okkar. Hvernig verður húsið okkar án þín? Hver sest nú niður og teikn- ar með litlu börnunum, horfir á teiknimyndir, fer í bíltúra með þeim og tekur af þeim myndir. Það er með ólíkindum hversu snöggt þú fórst. Og eftir sitjum við hin, væng- brotin með brostin hjörtu. Við erum svo óskaplega lítil en saman komumst við í gegnum þetta J)ó svo skarð þitt verði aldrei fyllt. Eg veit að núna líður þér vel og þú munt vaka yfir okkur öllum. Kveðja, Jenný. Elsku Dóri. Við söknum þín. Okkur þótt svo vænt um þig. Það var alveg eins og þú værir afi okkar. Það vai’ alltaf svo spennandi að opna jólagjafirnai’ og afmælisgjafii’nar frá þér. Þú hélst alltaf upp á litlu jólin og þú bauðst öllum krökkunum. Það kom jóla- sveinn og allir fengu litla pakka og þú tókst allt upp á myndband. Það verður skrýtið að koma á Gnoðar- voginn og geta ekki hlaupið upp til þín. Við söknum þín og biðjum guð um að passa þig uppi í himnaríkinu. Sandra og Halldór. „Dóri stóri“ elsku besti frændi minn, núna ertu farinn frá mér. Ég var að hugsa með mömmu allt sem þú hefui’ gert með mér og fyrir mig. Þú varst besti vinur minn og frændi. Svo góður varst þú að ég hélt það að vera kallaður frændi væri að vera eins góður og skemmtilegur og þú og þegar ég var minni og vildi vera sér- staklega góður við mömmu þá kall- aði ég hana, „mamma frændi minn“. Allar stundirnar sem við áttum að teikna og lita, í bíltúrum að leita að kanínum og allar vídeómyndirnar sem þú tókst af mér þetta var allt svo gaman. Þú safnaðir líka alltaf teiknimyndum á vídeóspólur og sýndh’ mér þegar ég var í heimsókn í Gnoðarvoginum. Þá sast þú í stóln- um þínum við gluggann en ég færði ruggustólinn nær þér svo ég gæti haldið í hendina á þér á meðan við horfðum. Desember var líka alltaf svo skemmtilegur, þá kallaðir þú á okkur öll til þess að hjálpa þér að skreyta jólatréð. Við settum allt ski’aut sem til var á tréð, svo var happdrætti þar sem allir fengu vinn- ing. Mikið er orðið tómlegt hjá okkur núna. Þú varst alltaf svo góður við mig, elsku besti frændi minn, og ég trúi því ekki enn að ég eigi ekki eftir að koma til þín aftur. Mamma segir að Guð geymi þig núna og að þú finnir ekkert til. Ég segi því bless við þig, elsku „Dóri stóri“, en ég mun alltaf hugsa um þig og biðja Guð að geyma þig. Mamma kveður þig líka með þakklæti fyrir allt sem þú hefur gefið okkur og kennt. Þinn frændi Gísli. Sú sorgarfrétt að Dóri frændi væri látinn snerti okkur bræðurna gríðarlega mikið því hann hafði alltaf verið uppáhaldsfrændinn okk- ar. Við gleymum aldrei þeim fjöl- mörgu skemmtilegu stundum sem við áttum með honum er við vorum yngi’i. Það var svo gaman að fara í heimsókn til hans í Gnoðarvoginn og toppurinn var að fá að gista hjá honum yfir nótt. Hann átti svo mik- ið af skrítnum tækjum sem fönguðu athygli lítilla stráka. Hann sýndi okkur hvernig þessir hlutir virkuðu og leyfði okkur að prófa þá. Við horfðum á teiknimyndir og fengum gos og nammi með og ávallt gaf hann sér tíma fyrir okkur. Hann svaraði öllum okkar spurningum og sagði okkur skrítnar sögur og voru þær samræður afar fræðandi og gefandi, eitthvað sem við búum að enn í dag. Dóri frændi var alltaf til taks ef einhver þurfti á hjálp að halda, enda leitaði fjölskyldan ávallt fyrst til hans, því hann var einn af þessum einstaklingum sem gátu gefið góð ráð um flesta hluti. Segja má að hann verið miðpunktur fjölskyld- unnar eða sá sem hélt henni saman. Allir vissu það og komu þar af leið- andi oft í heimsókn til hans, bæði til að hitta hann og aðra fjölskyldumeð- limi. Jól og áramót voru lýsandi dæmi um slíkar samkomur og þá var hann gjarnan með upptökuvélina á lofti til að mynda næstu kynslóðir. Hann átti einstakt safn af ljósmynd- um og myndbandsupptökum sem hann þreyttist seint á að skoða sjálf- ur eða sýna öðrum meðlimum fjöl- skyldunnar. Sérstaklega barngóður, hjálpsam- ur og með afbrigðum skemmtilegur eru þau þrjú lýsingarorð sem koma fyrst upp í hugann og lýsa honum best, þó svo einlægni, heiðarleiki og hógværð séu ekki langt undan. Hvert einasta barn sem kynntist honum elskaði hann út af lífinu enda með afbrigðum einstakur pei’sónu- leiki. Hann var líka mikill og góður listamaður og fékk fjölskyldan að njóta þess. Hann málaði fyrir ánægj- una og gaf myndir sínai’ fyrir ánægj- una. Við vissum að hann hafði verið veikur í mörg ár, en aldrei kvartaði hann. Hann sat í stólnum sínum og vildi vita hvernig öðrum liði í stað þess að tala um sig og sín veikindi. Þrátt fyi’ir hetjulega baráttu undan- farin ár þá tókst honum því miður ekki að sigrast á erfiðum sjúkdómi. Erfiðleikar til margra ára eru skyndilega að baki, en það er mjög skrýtið að vita til þess að gamli, trausti Dóri sé ekki á sínum stað lengur og missh’inn er mikill. Um leið og við kveðjum Dóra frænda með miklum söknuði þá vitum við að þær minningar sem við eigum um hann munu fylgja okkur alla tíð og við trúum því að Guð ætli honum verðugt verkefni á öðrum stað. Hallsteinn og Valur. Lokað vegna jarðarfarar Skrifstofur og afgreiðslustaðir Islandspósts hf. um allt land hafa lokað í dag. miðvikudaginn 21. október frá kl. 10.00 til 13.00. vegna jarðarfarar Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur. <sjpx fslandspóstur hf HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR verður lokuð fyrir hádegi og til kl. 13.00 miðvikudaginn 21. okt. vegna útfarar forsetafrúarinnar, Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur. Heilsugæslan í Reykjavík Lokað Vegna jarðarfarar frú GUÐRÚNAR KATRÍNAR ÞORBERGS- DÓTTUR, forsetafrúar, verða skrifstofur okkar og vörugeymslur lokaðar í dag frá kl. 09.00 til kl. 13.00. Rolf Johansen & Co ehf. Lokað Vegna útfararfrú GUÐRÚNAR KATRÍNAR ÞORBERGSDÓTTUR, forsetafrúar, verður Héraðsdömur Reykjavíkur lokaður í dag, miðvikudag, til kl. 13.00. Héraðsdómur Reykjavíkur. Lokað Vegna útfarar frú GUÐRÚNAR KATRÍNAR ÞORBERGSDÓTTUR, forsetafrúar, verða skrifstofur embættisins lokaðar fyrir hádegi og til kl. 13.00 í dag, miðvikudaginn 21. október. Embætti ríkissaksóknara. Lokað Skrifstofa sýslumannsembættisins í Kópavogi verður lokuð til kl. 13.00 í dag, miðvikudaginn 21. október, vegna jarðarfarar GUÐRÚNAR KATRÍNAR ÞORBERGSDÓTTUR forsetafrúar. Sýslumaðurinn í Kópavogi. Lokað Vegna útfarar frú GUÐRÚNAR KATRÍNAR ÞORBERGSDÓTTUR, verður skrifstofa okkar lokuð til kl. 13 í dag, 21. október. Kennarasamband íslands Lokað Vegna útfarar frú GUÐRÚNAR KATRÍNAR ÞORBERGSDÓTTUR, forsetafrúar, verða skrifstofur Landsvirkjunar í Reykjavík og á Akureyri lokaðar í dag, miðvikudag 21. október, til kl. 13.00. Lokað Skrifstofa Hæstaréttar íslands verður lokuð til kl. 13.00 í dag, mið- vikudaginn 21. október 1998, vegna útfarar forsetafrúarinnar, GUÐRUNAR KATRÍNAR ÞORBERGSDÓTTUR. Lokað Vegna útfarar GUÐRÚNAR KATRÍNAR ÞORBERGSDÓTTUR verður Rikisendurskoðun lokuð fyrir hádegi, í dag, 21. október. Lokað Vegna útfarar GUÐRÚNAR KATRÍNAR ÞORBERGSDÓTTUR verður lokað til kl 13.00 í dag, miðvikudaginn 21. október. Heyrnar- og talmeinastöð íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.