Morgunblaðið - 21.10.1998, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUAUGLYSINGA
Nvtækí&erí
-nýstöcf!
-SffiRESFÓLK Ó5KAST-
Vegna fjölgunar verslana og aukinna umsvifa, viljum við gjarnan ráða fleiri starfsmenn.
Um er að ræða margvísleg störf við áfyllingar og önnur tilfallandi verslunarstörf,
sem kalla á ábyrgð, ótvíræðan dugnað, jákvætt viðmót og reglusemi.
Vaktavinna, dagvinna, kvöldvinna.
Við leitum að: Duglegu, reyklausu og lífsglöðu fólki á aldrinum 18-26 ára.
Við bjóðum: Góðan og kraftmikinn starfsanda og góð laun fyrir gott fólk.
Þeir sem áhuga hafa, eru vinsamlega beðnir að koma til viðtals í dag,
miðvikudag, kl. 16-18 og á morgun, fimmtudag kl. 14-15, á skrifstofur 10-11,
að Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin).
Athugið, fyrirspurnum er ekki svarað í síma,
en þeim gjarnan svarað í ofangreindum viðtölum.
Farið verður með allar upplýsingar sem algjört trúnaðarmál.
10-11 er ungt og framsækið fyrirtæki í örum vexti. Það rekur nú 11 verslanir
á höfuðborgarsvæðinu og mun þeim fjölga enn á næstunni.
Velgengni sína þakkar fyrirtækið m.a. starfsfólki sínu.
Áhersla er því ætíð lögð á, að gott fólk veljist til starfa.
Laus staða
héraðsdýralæknis
Staða héraðsdýralæknis í Austur-Húnaþings-
umdæmi ertímabundið laustil umsóknarfrá
1. nóvember nk. til 31. október 1999.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist landbúnaðarráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 7,150 Reykjavík, fyrir 1. nóvem-
ber 1998.
Landbúnaðarráðuneytið,
20. október 1998.
Skrifstofustarf
Vanur skrifstofumaður óskast. Þekking á bók-
haldi nauðsynleg.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Mbl. fyrir
þriðjudaginn 27. okt., merktar: „Bókhald á
hreinu - 2525".
Veiðarfæragerð
Starfsfólk óskast á netaverkstæði Hampiðjunn-
ar hf. við Grandagarð 16. Unnið er á tvískiptum
vöktum virka daga vikunnar ásamt tilfallandi
yfirvinnu.
Nánari upplýsingar veittar á staðnum.
Hampiðjan hf.
Rakarastofa Gríms
Grímsbæ
óskar eftir hársnyrti til starfa. Um er að ræða
50-100% starf.
Upplýsingar veitir Grímur í símum vs. 553 1222
og hs. 568 9127.
Lektor í bókasafns-
og upplýsingafræði
Við félagsvísindadeild Háskóla íslands er laust
til umsóknar starf lektors í bókasafns- og upp-
lýsingafræði. Meðal þeirra greina sem gert
er ráð fyrir að lektornum verði falið að kenna
eru skráning og flokkun, auk annarra greina
í samræmi við fyrirhugaða endurskoðun á
námi í bókasafns- og upplýsingafræði.
Umsókn þarf að fylgja greinargóð skýrsla um
vísindastörf umsækjanda, ritsmíðarog rann-
sóknir, svo og vottorð um námsferil og störf.
Með umsókn skulu send þrjú eintök af vísinda-
legum ritum og ritgerðum, birtum og óbirtum,
sem umsækjandi óskar eftir að tekin verði til
mats. Þegar höfundar eru fleiri en umsækjandi
skal hann gera grein fyrir hlutdeild sinni í rann-
sóknum sem lýst er í ritverkunum. Ef um er
að ræða mikinn fjölda ritverka er æskilegt að
innsending af hálfu umsækjanda og mat dóm-
nefndartakmarkist við 5—10 helstu fræðileg
ritverk sem varða hið auglýsta starfssvið. Enn-
fremur er óskað eftir greinargerð um þær rann-
sóknir sem umsækjandi vinnur að og hyggst
vinna að verði honum veitt starfið. Loks er ætl-
ast til þess að umsækjandi láti fylgja með um-
sagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín eftir
því sem við á.
Gert er ráð fyrir að ráðið verði í starfið frá og
með 1. janúar 1999 enda verði störfum dóm-
nefndar þá lokið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags há-
skólakennara og fjármálaráðherra og raðast
starf lektors í launaramma B samkvæmtfor-
sendum röðunar starfa í samkomulagi aðlög-
unarnefndar. Umsóknarfresturertil 18. nóv-
ember nk. og skal skriflegum umsóknum skilað
í þríriti til starfsmannasviðs Háskóla íslands,
Aðalbyggingu, við Suðurgötu, 101 Reykjavík.
Um veitingu starfsins gilda ákvæði 1,—4. mgr.
11.gr. laga um Háskóla íslands en nánar er
fjallað um meðferð máls í reglum nr. 366/1997
um veitingu starfa háskólakennara. Öllum um-
sóknum verður svarað og umsækjendum síðan
greintfrá því hvernig starfinu hafi verið ráð-
stafað þegar sú ákvörðun liggur fyrir.
Nánari upplýsingar gefa Ágústa Pálsdóttir,
skorarformaður í bókasafns- og upplýsinga-
fræði, sími 525 4507, tölvupóstfang agustap@-
hi.is, og Sigrún Valgarðsdóttir, deildarstjóri
á starfsmannasviði, sími 525 4577, tölvupóst-
fang sigvalg@hi.is.
^ Krabbameinsfélagið
Forritari
Leitarstöð Krabbameinsfélagsins leitar eftir
forritara til starfa.
Leitarstöðin notar Adabas-gagnagrunn og öll
forritun er í Natural. Unnið er í UNIX-umhverfi.
Dagleg vinna felst í viðhaldi á núverandi kerf-
um, greiningu á þörfum fyrir ný kerfi og smíði
þeirra.
Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun
eða reynslu af gagnagrunnsforritun en önnur
forritunarreynsla kann að vera nægjanleg.
Starfið getur verið 75 til 100% og æskilegt er
að viðkomandi geti hafið störf strax.
Góð laun í boði.
Skriflegar umsóknir, merktar: „Forritari", send-
ist til Krabbameinsfélags íslands, pósthólf
5420, 125 Reykjavík.
Upplýsingar um starfið veitir Rakel Kristjáns-
dóttir í síma 562 1414.