Morgunblaðið - 21.10.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Kjördæmisþing framsóknarmanna á Norðurlandi eystra
Skattleggja ber óeðlilegan
söluhagnað í sjávarútvegi
KJÖRDÆMISÞING framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra, sem haldið var um síðustu
helgi, telur að bætt afkoma sjávai’-
útvegsins hafi sannað gildi þess
stjómkerfis sem nú er unnið eftir,
auk þess sem það er með öðmm
þjóðum talið til fyrirmyndar bæði
hvað varðar efnahagslega upp-
byggingu og sjálfbæra nýtingu
auðlindarinnar.
I stjórnmálaályktun þingsins
kemur einnig fram að á hinn bóg-
inn sé nauðsynlegt að leita leiða til
að ná betri sátt um þetta fiskveiði-
stjómunarkerfi með þjóðinni.
Framsóknarflokkurinn telur að
beita eigi skattlagningu á óeðilegan
söluhagnað, þegar menn hætta
rekstri og hverfa úr greininni.
Framsóknarmenn mótmæla auð-
lindagjöldum á greinina sjálfa, sem
virkar sem skattur á landsbyggð-
ina.
Sporna þarf við byggðaröskun
Framsóknarmenn á Norðurlandi
eystra vilja leita allra leiða til að
spoma við stöðugri byggðaröskun
og fólksflótta frá landsbyggð til höf-
uðborgarsvæðisins og telja að já-
kvæð mismunun í þágu landsbyggð-
ar eigi fullan rétt á sér. Má þar
nefna eftirgjöf afborgana af náms-
lánum, sérstakan skattaafslátt sé
atvinna sótt um langan veg, skattí-
vilnanir til íyi'irtækja sem flytja að-
setur sitt út á landsbyggðina, auk-
inn stuðning vegna jöfnunar náms-
kostnaðar og nýtingu nýrrar tækni
til fjamáms og símenntunar.
Greiðar samgöngur eru ein mik-
ilvægasta forsenda þess að vel tak-
ist til við uppbyggingu þjónustu-
og atvinnusvæða á landsbyggðinni.
Því verður að halda áfram upp-
byggingu samgöngukerfis, sem
byggir á langtímaáætlunum og
hraða því eins og kostur er.
Orkufrekur iðnaður
á Austfjörðum
Framsóknarflokknum ber að
beita sér fyrir markvissri stefnu-
mótun þar sem sjónarmið orkunýt-
ingar og umhverfissjónarmiða
verða samræmd og m.a. tryggt að
ómetanlegum náttúruperlum verði
ekki fómað. Þá ber Islendingum að
eiga fmmkvæði í að þróa nýja um-
hverfisvæna orkugjafa sem byggja
á framorku landsins.
Kjördæmisþingið leggur áherslu
á að hugað verði að frekari nýtingu
orkulinda okkar landshluta og
bendir í því sambandi á öflug há-
hitasvæði sem geta verið undir-
staða nýsköpunar í orkuiðnaði sem
mundi falla vel að atvinnu og stað-
háttum kjördæmisins. Þá líta fram-
sóknarmenn á Norðurlandi eystra
á það sem sameiginlegt hagsmuna-
mál sitt með Austfirðingum að þar
byggist upp orkufrekur iðnaður.
Slík uppbygging yrði einn af horn-
steinum nýrrar sóknar í byggða-
málum.
Þrátt fyrir bætta afkomu í land-
búnaði vantar enn mikið á að tekj-
ur bænda séu viðunandi eða í sam-
ræmi við það sem er hjá viðmiðun-
arstéttum. Því þarf að mati fram-
sóknarmanna að leita leiða til að
styi-kja atvinnugreinina og treysta
búsetu í sveitum.
Kjördæmisþingið fagnar þeim
árangiá sem ríkisstjórn Framsókn-
arflokks og Sjálfstæðisflokks hefur
náð í efnahags- og atvinnumálum á
því kjörtímabili sem nú er að ljúka.
Tekist hefur að halda verðbólgu í
lágmarki, stöðugleika í efnahags-
málum og vextir fara lækkandi.
Matur og umhverfí
Mígrenisamtökin
halda fund
Viðbrögð við
langvarandi
verkjum
MÍGRENISAMTÖKIN halda
almennan félagsfund á Foss-
hótel KEA annað kvöld,
fimmtudagskvöldið 22. október
kl. 20.
Dr. Ólafur Þór Ævarsson
geðlæknir heldur erindi um
sálræn viðbrögð við langvar-
andi verkjum, t.d. mígreni, og
um tengsl mígrenis og þung-
lyndis.
Norðurlandsdeild Mígreni-
samtakanna var stofnuð 2. nóv-
ember 1996 og er Þorbjörg
Ingvadóttir formaður. í ljós
kom á stofnfundinum hversu
erfitt er fyi’ir marga úti á landi
að afla sér upplýsinga um
mígreni og hinar ýmsu leiðir til
lausna á vandanum. Fæstir
viðstaddra höfðu t.d. séð
fréttabréf samtakanna sem
inniheldur ýmiss konar fróð-
leik um einkenni, meðferð og
það hvernig læra má að forðast
mígreni. Samtökin í Reykjavík
eru með símatíma frá kí. 18 til
20 á mánudögum.
Fundurinn á Fosshótel KEA
er öllum opinn og aðgangur
ókeypis.
MATUR og umhverfi er yfirskrift
árlegs matvæladags sem Matvæla-
og næringarfræðingafélag íslands
efnir til á Fosshóteli KEA næst-
komandi laugardag, 24. október.
Dagurinn er helgaður umhverfis-
málum að þessu sinni, en mikilvægi
umhverfismála er sífellt að aukast,
ekki síður í matvælaiðnaði en öðr-
um greinum atvinnulífsins. Brýna
nauðsyn ber til að matvælafram-
leiðsla öll sé í sem bestri sátt við
umhverfið og náttúruna og er um-
ræða um umhverfismál í greininni
þvi tímabær.
Meðal þess sem um verður fjall-
að er mataræði á nýrri öld, um-
hverfisstjórnun í matvælaiðnaði,
umhverfismál hjá Mjólkursamlagi
KEA, lífrænar aðferðir í matvæla-
framleiðslu, umbúðir og umhverfi,
meðferð tveggja helstu tegunda
heimilissorps, umhverfisstaðlar og
matvælavinnsla og umhverfisvott-
un hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur.
Fjöreggið, viðurkenning fyrir
gott framtak á matvælasviði, er ár-
lega afhent á matvæladeginum og
svo verður einnig nú. Samtök iðn-
aðarins gefa Fjöreggið. Skráning á
Matvæladagana fer fram í Háskól-
anum á Akureyri og lýkur á morg-
un, fimmtudaginn 22. október.
— Jörð til sölu —
Jörðin Engihlíð á Árskógssandi er til sölu. Á jörðinni eru eftirtaldar byggingar:
íbúðarhús byggt 1934 og 1963, alls 192 m2 á tveimur hæðum, fjós byggt
1971, 28 básar, kálfahús byggt 1987, 30 m!, fjárhús byggt 1954 fyrir 100
kindur, skemma byggð 1986, 336 m2, hlöður byggðar 1949 og 1956, samtals
1065 m3, votheysturnar byggðir 1987, samtals 537 m3, geymsla (áður fjós)
byggð 1946, 98 m2. Ástand eigna gott.
Greiðslumark í mjólk er rúmlega 102.000 I.
Bústofn og vélar fylgja. Ræktun 45 ha.
Óskað er tilboða í eignina. Þeim skal skilað til Búnaðarsambands Eyjafjarðar,
Óseyri 2, Akureyri, þar sem gefnar eru nánari upplýsingar á skrifstofutíma í
síma 462-4477.
Tilboð skulu hafa borist fyrir 15. nóvember. Afhendingartími er samkomu-
lagsatriði.
/r mt •
uðin
i
Faber-Castell
Mvndlistarvörur
ammmm m
Föstudaginn
23. október
Kl: 13-18
5 ^í?Afsláttur af
Faber-Castell
Kynningardagana
Sara Vilbergsdóttir myndlistarkona
verður á staðnum og sýnir notkun
trélita, þurr pastels, kola, graphic-
blýanta og teiknikríta ásamt nýrra
pastel-blýanta og vatnslita.
A. B. B úði n • K a u p a n g i • A k u r e y r i * S í m i: 46 2 50 2 0
MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 15
Málið er...
... að barnaskór eiga að vera
þægiiegir, aðlagast fætinum
og tryggja rétt göngulag.
Sí:
S:
■
||
I
P
: :
■
-ro
tu
ö)
0/
U)
G)
V.
V)
c
'vi
c
Im
(Q
H-
3
■ö
#
§
C
C
3 03
Ol +-»
C jn
C ?
(1)
~ e
sOJ OJ
C «
c -2
■C '3
E 5
E
Q)
*o _
■r; CT)
> O
=6 g
z 2
w
U)>
O ra
xo £
42 QJ
^ C
-■i
<3 C
■— v_
*0 03
03 O
3«
»o •í-
U) 3
ai
'<0
íts cu
w E «3
<3 _ ro
<o S c
-o. s '2
»o > E
> 3 <N
4- 1 03
«T5 o)
-Q C C
.. *■- -—
io 03 QJ
C CQ g
• C.
03 03 03
0)+?
'O o 'O
H- s-
*0 '03 2
VI ° *o
E E ”
_ í: oi
•r; <1! p
•— jS »o
m 5 -o
5- i ®
í S _CL
I «■§
C _CL '03
70162
Leggðu bók við hælinn
70172
ecco