Morgunblaðið - 21.10.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 17
Handsal Úr milliuppgjöri 1998 hl F-
Jan.-júní Jan.-júní
Rekstrarreikningur 1998 1997 Breyting
Heildartekjur Milljónir króna 90,9 102,4 -11%
Hreinar rekstrartekjur 69,9 73,0 -4%
Rekstrargjöld 62,5 58,4 +7%
Hagnaður án annarra gjalda 7,4 14,7 -50%
Önnur gjöld (8,4) (7,6) +11%
Hagnaður (tap) tímabilsins (1,0) 7,1 —
Efnahagsreikningur 30/6 ‘98 31/12 '97 Breyting
| Eipnír: \
Verðbref Milljónir króna 332,2 403,4 -18%
Kröfur 253,3 256,3 -1%
Aðrar eignir 71,0 73,0 -3%
Fyrirframgr. kostn. og áfalinar tekjur 8,9 4,9 +82%
Eignir samtals 665,4 737,6 -10%
I Skuidir on eigið fé: \
Eigið fé 116,4 28,5 +308%
Skuldbindingar og víkjandi lán 75,5 41,5 +82%
Aðrar skuldir 461,9 643,6 -28%
Áfallinn kostnaður 11,7 24,0 -51%
Skuldir og eigið fé samtals 665,4 737,6 -10%
Kennitölur 1998 1997
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 14,6 21,2 -31%
Handbært fé frá rekstri 2,6 12,4 -79%
Arshlutauppgjör Handsals hf.
Tekjutap upp
á 1 milljón kr.
TAP verðbréfafyrirtækisins Hand-
sals hf. nam einni milljón króna á
fyrstu sex mánuðum ársins saman-
borið við 7 milljóna króna hagnað á
sama tíma í fyrra. Hreinar rekstr-
artekjur félagsins á fyrri árshelm-
ingi námu 70 milljónum en voru 73
m.kr. við árshlutauppgjör 1997.
Eigið fé Handsals hækkaði nokkuð
eftir hlutafjáraukningu á árinu og
er nú 116 milljónir en var 29 millj-
ónir á sama tíma í fyrra.
Að sögn Þorsteins Ólafs, fráfar-
andi framkvæmdastjóra félagsins,
stendur reksturinn nú styrkari fót-
um eftir víkjandi lántöku og hluta-
fjáraukningu að upphæð 170 millj-
ónir króna: „Segja má að framtíð
fyrirtækisins hafi verið nokkuð
óljós framan af árinu vegna slakrar
eiginfjárstöðu. Nú hefur hlutafé
hins vegar verið aukið og hjólin tek-
in að snúast á ný. Við sjáum þegar
batamerki frá fjögurra mánaða
uppgjörinu og því fullt tilefni til að
gera ráð fyrir batnandi rekstraraf-
komu.“ Þorsteinn bendir á að stór
hluti vandans felist í þeim almenna
samdrætti sem orðið hefur á sölu-
þóknunum á þessum markaði en
rekstrarliðurinn lækkaði úr 45 í 23
milljónir króna á milli ára.
Eins og komið hefur fram mun
Þorsteinn brátt hætta störfum hjá
félaginu. Að sögn Einars Baldvins-
sonar, stjórnarmanns, er verið að
ganga frá ráðningu nýs fram-
kvæmdastjóra um þessar mundir
sem greint verður nánar frá á
næstu dögum.
Slátursamlag Skagfirðinga
skuldar 55 milljónir króna
Reyna samninga
við kröfuhafa
HLUTHAFAR í Slátursamlagi
Skagfh-ðinga hf. samþykktu að fela
stjóm félagsins að athuga möguleika
á „frjálsum nauðasamningum11 við
kröfuhafa.
Slátursamlagið skuldar um 55
milljónir kr. og er Búnaðarbankinn á
Sauðárkróki stærsti kröfuhafínn.
Félagið gekk í gegn um nauðasamn-
inga fyrir fáum ái’um en hefur ekki
getað staðið við greiðslur samkvæmt
þeim. Meginhluti skuldanna er frá
gömlu nauðasamningunum.
Hluthafamir felldu sem kunnugt
er tOlögu stjómar um úreldingu slát-
ursamlagsins og uppgjör skulda með
sölu eigna og samningum við Búnað-
arbankann og Kaupfélag Skagfírð-
inga. Ný stjórn hefur verið að at-
huga málin en hefur ekki fundið
möguleika til að reka félagið áfram.
A hluthafafundi sem nýlega var
haldinn kom fram vilji bænda til að
halda rekstri áfram, að sögn Smára
Borgarssonar framkvæmdastjóra,
og var samþykkt tillaga um að skora
á stjórnina að athuga möguleika á
samningum við kröfuhafa um lækk-
un skulda, svokölluðum „frjálsum
nauðasamningum". Gert er ráð fyrir
hlutafjáraukningu til að standa við
samninga sem kunna að nást við
kröfuhafa.
Slátursamlagið tekur ekki þátt í
almennri sauðfjárslátrun í haust en
slátrar einu sinni í viku stórgripum
og lömbum til heimtöku og er það
gert í verktöku fyrir bændur. Á ár-
inu hefur verið slátrað hátt í 1.000
lömbum. Talið er að um 4.000 fjár
hafi verið send til slátrunar á
Blönduósi og víðar utan héraðs og að
um helmingur þess fjár sem slátrað
var í Slátursamlaginu á síðasta ári
hafí farið til Kaupfélags Skagfirð-
inga.
2f§&su
Eztu með
Ericsson
628 eða 688?
Tilboð á uppfærslu fyrir
Ericsson GSM síma!
Ef þú kemur með Ericsson 628 eða 688 símann þinn
miðvikudaginn 21. okt., geturðu látið uppfæra hann
og stórauka hljómgæðin þér að kostnaðarlausu.
Eftir 21. okt. kostar þessi þjónusta 700 kr. Með því
að setja í símann EFR (Enhanced Full Rate) tæknina,
sem stendur fýrir bætt stafrænt hljóð, gerum við
hljómgæðin sambærileg hljómgæðum hefð-
bundinna heimihssíma og uppfærum símann fyrir
nýjustu möguleikana í farsímakerfi Símans. Komdu
með Ericsson símann þinn í Símann Intemet,
Grensásvegi 3, í dag.
S í MIN N i nternet'' SÍMINN
Viðgerðarverkstæði Símans er
eitt best útbúna símaverkstæði
landsins, með 3. stigs vottun
frá Ericsson.