Morgunblaðið - 21.10.1998, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Avöxtunarkrafa 17 ára spariskírteina í fyrsta sinn niður fyrir 4%
Hefur lækkað um 26
punkta á innan við viku
ÁVÖXTUNARKRAFA 17 ára
spariskírteina hefur nú lækkað um
26 punkta frá því fjármálaráðherra
heimilaði Lánasýslu ríkisins sl.
fímmtudag að nota allt að tveimur
milljörðum króna til þess að kaupa
á markaði og innleysa spariskír-
teini ríkissjóð til langs tíma, og er
nú í fyrsta sinn komin niður fyrir
4% markið en í upphafi árs var
ávöxtunarkrafan 4,90%.
Ríkið hefur iyrst og fremst í
hyggju að kaupa spariskírteini til
17 ára, en sá flokkur verður á loka-
gjalddaga stærsti flokkur útistand-
andi spariskírteina.
Eigendur spariskírteina
bíða enn frekari lækkunar
Ávöxtunarkrafan er nú 3,90% og
að sögn Rósants Torfasonar hjá
viðskiptastofu íslandsbanka er lík-
legt að hún haldi áfram að lækka,
enda halda eigendur spariskírteina
að sér höndum þegar ávöxtunar-
krafan er á niðurleið í þeii-ri von að
fá hærra verð fyrir bréfín.
„Það sem gerist í kjölfar þessar-
ar ákvörðunar fjármálaráðherra er
að ávöxtunarkrafa 17 ára bréfa
lækkar mjög hratt og þetta hefur
áhrif á önnur langtímabréf. Menn
eru að laga verðlagningu á mörg-
um bréfum á markaðnum að þessu
spariskírteinaferli. Það gerir það
t.d. að verkum að menn vilja kaupa
spariskírteini í öðrum flokkum,
enda var gefíð í skyn að ríkissjóður
myndi á næsta ári falast eftir öðr-
um flokkum spariskírteina og
kaupa þau, nánast hvað sem þau
kosta,“ sagði Rósant í samtali við
Morgunblaðið.
Gjalddagi 17 ára bréfa árið 2015
er mjög stór, eða tæpir 23,5 millj-
arðar króna. Eins og kom fram í
Morgunblaðinu í síðustu viku er
talið að með þessari ákvörðun um
innlausn spariskírteinanna vilji rík-
isstjórnin minnka þann vaxta-
kostnað sem fellur á komandi kyn-
slóðir.
600 milljóna velta
síðan 15. október
Veltan með 17 ára spariskírteini
á Verðbréfaþingi frá 15. okt sl. er
tæpar 600 milljónir að nafnvirði.
Lánasýslan hefur heimild fyrir
kaupum á sem nemur 2 milljörðum
og því er enn nokkuð í land. Margir
af þeim sem eiga bréfin era lang-
tímafjárfestar eins og lífeyrissjóðir
og ef þeir selja þurfa þeir að nota
peningana í annað.
Eina framboðið af langtímabréf-
um á markaðnum er 15 ára bréf
sem Landsvirkjun gaf út en ávöxt-
unarkrafa á þeim hefur líka lækkað
og húsbréfin líka.
Húsbréf álitleg
Húsbréf til 42 ára hafa verið á
ávöxtunarkröfunni 4,5%-4,6% en
húsnæðisbréf í 4,03% að sögn
Rósants. Hann segir að húsbréf
séu því álitlegur kostur, því þrátt
fýrir að þau hafí lækkað séu þau
samt sem áður 50 punktum ofar en
húsnæðisbréfín.
„Það sem er athyglisvert í þessu
er að ef horft er á verðbreytinguna
á 17 ára spariskírteinunum frá 15.
október og til dagsins í dag má
segja að ríkið sé í raun búið að
tapa þessum 25 punktum sem
ávöxtunarkrafan hefur lækkað um.
Miðað við litla veltu á Verðbréfa-
þingi með bréfin velta menn því
fyrir sér hversu lágt ríkissjóður
ætlar að fara með þessi bréf. Ætl-
ar hann sér að kaupa þessa 2 millj-
arða hvað sem það kostar? Ef svo
er þá lækkar ávöxtunarkrafan enn
frekar.
Það sem má líka velta fyrir sér
er hver hinn raunveralegi spamað-
ur er. Ef ríkið ætlar að kaupa
spariskírteinin á ávöxtunarkröfu
allt niður í 3,70% er verið að borga
það mikið fyrir bréfin að kannski
hefði verið betra að fara rólegar í
sakirnar. Núna vita menn af kaup-
anda og vilja því bíða og sjá. Ríkið
er að borga 70-80 milljónum meira
fyrir þessi bréf en það þyrfti ann-
ars að gera,“ segir Rósant.
Enn mörg tækifæri á inn-
lendum skuldabréfamarkaði
Rósant segir að ef horft er á
vaxtastigið hér á Islandi í saman-
burði við til dæmis gengi verð-
tryggðra skuldabréfa á Bretlandi
þá hafi verið talað um það í upphafi
árs að langtímavextir gætu lækkað
á Islandi vegna þess að vaxtastigið
væri hæira en erlendis. „Málið er
hins vegar að vextir erlendis hafa
lækkað líka, þannig að þá eiga þau
sömu rök einnig við í dag því lang-
tímavextir í Bandaríkjunum hafa
lækkað mjög mikið.“
Rósant segir að enn séu mörg
tækifæri á innlendum skuldabréfa-
markaði því vextir á markaðnum
séu enn háir miðað við langtíma-
vexti erlendis. „Það sem hefur ver-
ið að gerast úti er að þegar menn
sáu að hlutabréfaverðið féll mjög
hratt vegna erfiðleika á fjármála-
mörkuðum víða um heim þá varð
flótti úr hlutabréfum í skuldabréf,
þannig að þessi vaxtalækkun hér
er ekki neitt óeðlileg samanborið
við erlendis."
Burðarás hf.
Kaupir
14,5% í
Þróunarfé-
laginu
Burðarás hf., fjárfestingarfélag
Eimskips, keypti á mánudag 14,5%
eignarhlut Nýsköpunarsjóðs í Þró-
unarfélagi Islands fyrfr 160 milljón-
ir króna að nafnverði. Gengi bréf-
anna er 1,91 og söluverðmæti
þeirra því tæplega 306 milljónir
króna. Fyi-ir átti Burðarás 1% í fyr-
irtækinu og nemur eignaraðild þess
í Þróunarfélagi Islands nú 15,5%.
Heildarviðskipti á hlutabréfa-
markaði í gær námu 27 m.kr. Þar af
var verslað með bréf Þróunarfé-
lagsins fyrir 1,5 m.kr. og hækkaði
gengi bréfa í félaginu um 7,2%.
-------------
Breytingar
hjá ÍSAL
NOKKRAR breytingar hafa verið
gerðar á starfsmannaskipulagi hjá
Islenska álfélaginu hf.
Að sögn Einars Guðmundssonar
deildarstjóra er um að ræða niður-
fellingu á einu stjórnunariagi í því
formi að mannaforráð 10-15 milli-
stjórnenda færast á hendur deild-
arstjóra. Einar segir breytingarn-
ar miða að því að einfalda stjómun-
arkerfi innan félagsins og auka
hagræði.
Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn
aðili að nýju hlutafélagi
Athuga kísil-
duftfram-
leiðslu á Islandi
Atvinnuleysi í júlí, ágúst og september 1998
Hlutfall atvinnulausra
af heildan/innuafli ......
Á höfuðborgarsvæðinu standa V
2.011 atvinnulausir á bak X <\ \
við töluna 2,5% í sept. 29%
oghafðifækkaðum179 T~lá™ r4 2.3‘
frá því í ágúst. Alls voru - , FIRÐIR I I 2,0%'-
2.788 atvinnulausir J Á S
á landinu öllu (2,0%)
í sept. og hafði
fækkað um 311 I—1 ■ ■ NORÐUR-\ J Á S
fráþvííágúst. \ \1 J A s ÍÍstra
' 1 ■ VESTURLAND ”71 / \i
Atvinnulaus-
um fækkar
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Al-
þýðubankinn hf. og bandaríska fyr-
irtækið Allied Resource Cor-
poration hafa stofnað nýtt hlutafé-
lag undir nafninu Allied Efa hf.
Hlutafé er 70 milijónir króna og á
Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn
40% hlutafjár og Allied Resouree
Corp. 60%. Stjóm félagsins skipa
Gylfi Ambjömsson formaður, John
Fenger og Jonathan Costello. Fram-
kvæmdastjóri er Hákon Bjömsson.
Tilgangur félagsins er að veita
þjónustu og ráðgjöf, auk þess að
fjárfesta í framleiðslufyrirtækjum á
sviði orkufreks iðnaðar, efnaiðnaðar
og endurvinnsluiðnaðar, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Fyrsta verkefni Allied Efa hf. eru
Hagnaður
Philip Morris
eykst
New York. Reuters.
PHILIP Morris Cos. Inc., stærsta
tóbaksfyrirtæki heims, hermir að
hagnaður þess á þriðja ársfjórðungi
hafi aukizt um 10% í 2,1 milljarð
dollara, heldur meira en spáð hafði
verið í Wall Street.
Philip Morris er kunnastur fyrir
Marlboro-vindlinga, en framleiðir
einnig Kraft-matvöru og Miller-
bjór. Hagnaður fyrirtækisins hefur
aukizt þótt reykingar haldi áfram
að minnka og sterkur doliar hafi
neikvæð áhrif.
kaup á 50,8% hlut í norska fyrirtæk-
inu Promeks A.S. og var skrifað
undir kaupsamning í seinustu viku.
Fyrirtækið hefur unnið í nánu
samstarfi við norsk iðnfyrirtæki við
að þróa aðferð til framleiðslu á kísil-
dufti. Framleiðsluaðferðin byggist á
tækni til að vinna kísilduft úr alu-
minium silikötum, kvarsi og kísil-
ryki.
Að sögn Gylfa Arnbjörnssonar
verður fljótlega gengið frá staðar-
vali fyrir 500-1000 tonna tilrauna-
verksmiðju sem ætlað er að starf-
rækja í eitt ár áður en fyrsta verk-
smiðjan í fullri stærð verður reist:
„Tilraunaverksmiðjunni er ætlað að
sh'pa framleiðsluferlið endanlega
með það fyrir augum að tryggja há-
markshagkvæmni auk þess sem
okkur gefst kostur á að hefja mark-
aðssetningu á vörunni.“
Vinna úr 20 þúsund
tonnum á ári
Gylfi gerir ráð fyrir að hægt verði
að taka ákvörðun um næstu skref
um mitt næsta ár. Hann segir stað-
setningu á einni eða fleiri verk-
smiðjum á Islandi álitlegan kost í
samanburði við nágrannalöndin,
vegna hagstæðs verðs á gufu- og
raforku. Verksmiðja í fullri stærð
myndi vinna úr um 20 þúsund tonn-
um af hráefni á ári og áætlað er að
fjöldi starfsmanna verði um 40.
Hlutaféð í Promeks verður greitt
í áföngum á tímabilinu frá október
1998 til júní árið 2000 og verður
Allied Efa tryggður meirihluti í
stjórn Promeks frá fyrstu innborg-
un í félaginu.
Atvinnuleysi á landinu mældist 2%
af áætluðum mannafla á vinnu-
markaði í september og hefur at-
vinnulausum fækkað um 32,9% frá
sama mánuði í fyrra. Atvinnulaus-
um hefur fækkað í heild að meðal-
tali um 10% frá ágústmánuði 1998.
I septembermánuði síðastliðnum
voru skráðir ríflega 60 þúsund at-
vinnuleysisdagar á landinu öllu, ríf-
lega 21 þúsund dagar hjá körlum
og ríflega 39 þúsund dagar hjá kon-
um. Skráðum atvinnuleysisdögum
hefur fækkað um tæplega 8 þúsund
frá mánuðinum á undan og um tæp-
lega 30 þúsund frá september 1997,
að því er fram kemur í yfirliti
Vinnumálastofnunar yfir atvinnuá-
standið.
Atvinnuleyfisdagar í september
jafngilda því að 2.788 manns hafi að
meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í
mánuðinum. Þar af era 970 karlar
og 1.818 konur. Þetta jafngildir 2%
af áætluðum mannafla á vinnu-
markaði samkvæmt spá Þjóðhags-
stofnunar, eða 1,2% atvinnuleysi hjá
körlum og 3,1% hjá konum.
Atvinnuástandið hefur batnað
nokkuð frá því í ágúst á öllum at-
vinnusvæðum. Atvinnuleysið
minnkar hlutfallslega mest á Vest-
urlandi en atvinnulausum fækkar
mest á höfuðborgarsvæðinu. At-
vinnuleysi er nú hlutfallslega mest á
höfuðborgarsvæðinu en minnst á
Vestfjörðum.
í yfirliti Vinnumálastofnunar
kemur fram að búast megi við því
að atvinnuleysið breytist lítið á
landinu í október og geti orðið á bil-
inu 1,9% til 2,3%.
Sala á bréfum
ÚAíMHF
frágengin
GENGIð hefur verið endanlega frá
sölu alfra hlutabréfa Utgerðarfélags
Akureyringa hf. í Mecklenburger
Hochseefischerei GmbH (MHF).
Kaupandi bréfanna er hollenska
fyrirtækið Parlevliet & van der Plas
B.V.
I frétt frá UA kemur fram að
kaupverð verði ekki gefið upp að
svo stöddu að beiðni kaupanda bréf-
anna. Með sölunni er lokið afskipt-
um ÚA af rekstri MHF sem hófst
fyrir fimm árum.
Parlevliet & van der Plas B.V. er
stórt sjávarútvegsfyrirtæki sem
hefur sérhæft sig í veiðum og
vinnslu á uppsjávarfiski. í Þýska-
landi gerir fyrirtækið út fjögur stór
vinnsluskip fyrir uppsjávarfisk og
tvö slík skip eru gerð út frá
Hollandi, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu.