Morgunblaðið - 21.10.1998, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVTKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 21
Útborið
barn fínnst
í Noregi
Ósló. Morgunblaðið.
RÉTT utan við íbúðarblokk nokkra í
Ósló fannst í gær nýfætt sveinbarn,
vafið inn í klæði og plast, og yfirgefið
í fjögurra gráða frosti.
Um klukkan sex í gærmorgun
urðu hjón sem bjuggu í blokkinni vör
við að einhver aðskotahlutur lá fyrir
utan útidyrnar. Það reyndist vera lít-
ill nýfæddur drengur, vandlega vaf-
inn inn í klæði og að sögn einnig
plastpoka. Lögreglan telur að hann
hafi ekki legið þarna lengi, en hann
mun hafa komið í heiminn aðeins
nokki'um klukkustundum áður en
hann fannst.
Hvers vegna hin óþekkta móðir
kaus að skiija bamið eftir þama er
með öllu óljóst. Ein af kenningum
lögreglunnar er að fæðingin hafi átt
sér stað í nágrenni fundarstaðarins
og því lýsti hún eftir vitnum að
mannaferðum við blokkina um nótt-
ina auk þess að yfirheyra alla íbúana.
Átak til
bættra
samskipta
STJÓRNVÖLD í nágranna-
ríkjunum Indlandi og Pakistan
hafa komið sér saman um að-
gerðir til að bæta gagnkvæmt
traust milli ríkjanna í því skyni
að minnka hættuna á að til
átaka komi. Indverskir
embættismenn greindu frá
þessu í gær. Þetta er árangui-
viðræðna háttsettra fulltrúa úr
utanríkisráðuneytum beggja
ríkja í Islamabad í Pakistan, en
með viðræðunum hefur með
táknrænum hætti verið tekinn
upp þráðurinn frá því allar slík-
ar viðræðui- milli ríkjanna rofn-
uðu fyrii- rúmu ári.
Póllandi ligg-
ur á í NATO
PÓLSKA ríkisstjórnin sam-
þykkti í gær drög að lagafrum-
varpi um aðild landsins að Atl-
antshafsbandalaginu, NATO.
Er frumvarp þetta verður að
lögum á ekkert annað að vera
eftir til að innsigla NATO-aðild
Póllands en staðfesting allra
núverandi sextán aðildarrikja
bandalagsins.
Nazarbayev
líklegur
NURSULTAN Nazarbayev,
forseti Kasakstans, tilkynnti í
gær að hann gæfi kost á sér til
endurkjörs í kosningunum sem
fram fara í landinu í janúar. Ut-
lit var fyiir að helzti keppinaut-
ur Nazarbayevs, Akezhan
Kazhegeldin, yrði jafnvel úti-
lokaður frá framboði með
dómsúrskurði. Líklegast þykir
að Nazarbayev sigri í kosning-
unum.
Hryðjuverka-
konur frjálsar
TVÆR konur, sem höfðu setið
af sér 15 ár af lífstíðardómi fyr-
ir þátttöku í sprengitilræði
írska lýðveldishersins, IRA, á
dansstað í norður-írska bænum
BallykeUy í desember 1982 til-
ræði sem varð 17 manns að ald-
urtila, voru í gær látnar lausar
úr fangelsi. Þær Anna Corry og
Pat McCool voru fyrstu kon-
umar sem hljóta frelsi í krafti
sakaruppgjafar sem samið var
um í norður-írska friðarsamn-
ingnum í vor.
_____________________ERLENT________________________________________
Massimo D’Alema, væntanlegur forsætisráðherra ftalíu, lengi staðið í eldlínunni
Dreymir um
„eðlilegt ríki“
Rdm. Reuters.
MASSIMO D’Alema,
sem fengið hefur umboð
til að setja saman 56.
ríkisstjómina á Italíu
eftir stríð, hefur lengi
dreymt um að komast
til raunveralegra áhrifa
í landi sínu. Hann hefur
samt ekki sótt það mjög
fast að verða forsætis-
ráðherra. Það hefur
alltaf þótt fremur hverf-
ult embætti á Italíu og
jafnvel það eitt að taka
við stjómarmyndunar-
umboðinu getur dregið
dilk á eftir sér.
D’Alema gekk í
ítalska kommúnista-
flokkinn árið 1968 og fetaði þá í fót-
spor föður síns, Giuseppes, sem
barðist gegn fasistastjórn Mussolinis
og varð seinna þingmaður fyrir
kommúnistaflokkinn. Þegar gengi
flokksins var sem mest fyrir um 20
árum fékk hann um þriðjung at-
kvæða í kosningum en með falli
Berlínarmúrsins og hruni kommún-
ismans í Austur-Evrópu stóð flokk-
urinn uppi eins og hver önnur tíma-
skekkja.
Rauð rós jafnaðarmanna
Leiðtogai- flokksins sáu hvert
stefndi og beittu sér fyrh- umbótum
en með þeim afleiðingum, að flokk-
urinn klofnaði. Harðlínumennirnir
stofnuðu sinn eigin flokk en þorri
flokksmanna fylkti sér um
Lýðræðislega vinstriflokkinn, LV.
Hamrinum og sigðinni var ekki
flaggað jafnt ákaft og áður og til
varð nýtt flokksmerki, eikartréð.
Fyrr á þessu ári var síðan samþykkt
á flokksþingi að kasta hamrinum og
sigðinni fyrir róða og taka upp hina
rauðu rós evrópskra jafnaðarmanna
í von um, að það stuðlaði að samfylk-
ingu allra vinstrimanna á Italíu.
D’Alema var kjörinn
leiðtogi LV 1994 og hef-
ur síðan haft mjög gott
samband við leiðtoga
jafnaðarmanna í öðrum
Evrópuríkjum, til dæm-
is í Bretlandi, Frakk-
landi og Þýskalandi.
Að loknum kosning-
unum 1996 tók við völd-
um fyrsta ríkisstjórn á
Ítalíu undir forystu
vinstrimanna en D’Al-
ema vildi ekki taka við
ráðherraembætti. Kaus
hann heldur að gegna
áfram starfi sínu sem
áðalritari flokksins.
Ríkisstjórnin undir
forystu Romanos Prodis missti
meirihluta sinn þegar flestir
harðlínukommúnistanna hættu
stuðningi við hana og tilraunir Prod-
is til að mynda nýja stjórn báru ekki
árangur. Þegar D’Alema tók við um-
boðinu úr hendi Luigis Scalfaros for-
seta sl. mánudag kvaðst hann vera
búinn að tryggja nýrri stjórn nægan
stuðning og bjóst við, að hún gæti
tekið til starfa strax í þessari viku.
Sá stuðningur, sem ríkisstjórnar-
flokkunum hefur nú bæst, er flokk-
urinn, sem stofnaður var á rústum
Kristilega demókrataflokksins, hins
ráðandi flokks á Italíu um áratuga-
skeið og flokksins, sem hélt
kommúnistum utan stjórnar í hálfa
öld.
Verður Italía
„eðlilegt ríki“?
Þegar D’AIema vann að myndun
rfldsstjórnar Romanos Prodis eftir
kosningarnar 1996 fékk hann til liðs
við hana ýmsa menn, sem áður hefðu
verið taldir svarnir óvinir vinstri-
manna - fyrrverandi seðlabanka-
stjóra, kaþólska hagfræðinga og
frammámenn í atvinnulífinu. Er því
Massimo
D’Alema
Massimo D’Alama
Massimo D'Alema, fyrrverandi kommúnisti
og leiðtogi Lýðræðislega vinstriflokksins,
hefur fengið umboð til að mynda
56. ríkisstjórnina á ftalíu eftir stríð.
D'Alema, sem nú er genginn í raðir evrópskra
jafnaðarmanna, mun að líkindum taka við af
Romano Prodi sem forsætisráðherra.
ÞINGSTYRKUR FLOKKANNA Á ÍTALÍUÞINGI
Endurreisnartlokkur 11
Alþýðuflokkur________3J_
Ýmsirhópar 23
Lyðræðisleqi vinstrifl. 101
Græningjar í£
Kommúnistar 11
ÖLDUNGADEILD
Norðursambandið 24
Lyðræðissambandið 18
] Kristilegir demókr. 11
Áframítalfa 40
Þjóðarbandalagiö 41
NEÐRI DEILD
Ýmsirhópar 60
Lýðræðislegi vinstrifl. 170
Kommúnistar 21
Áframítalia 111
Þjóðarbandalagiö 91
Endurreisnarfiokkur 24 [
Alþýðuflokkur 67
Lýðræðissambandið 31
Norðursambandið 55
STJÓRNARMYNDUNARLEIÐIN
spáð, að hann muni halda áfram á
þessari braut og taka drauminn um
samfylkingu ítalski’a vinstrimanna
fram yfir þrönga hagsmuni síns eigin
flokks.
D’Alema á sér líka annan draum
og hann er sá að gera Ítalíu að „eðli-
legu ríki“. Var það einmitt titillinn á
bók, sem hann skrifaði og fjallar
meðal annars um „skyldu minnar
kynslóðar til að leiða vinstrimenn til
valda á Italíu“.
D’Alema var áður ritstjóri
flokksmálgagnsins L’Unita en vinir
hans lýsa honum sem fremur feimn-
um manni. Hann hætti í heimspek-
inámi til að helga sig stjórnmálum en
hann á ýmis áhugamál önnur, til
dæmis siglingar, og hann er mikill
aðdáandi Woody AUen-mynda. Hann
er kvæntur og á tvö börn.
Ertu búinn að
Niðurstöður úr fyrri umferð þingkosninga í Makedóníu
skipta um loftsíu?
Hægriflokkar í
Skopje. Reuters.
HÆGRIFLOKKARNIR í Make-
dóníu, sem undanfarið kjörtímabil
hafa verið í stjórnarandstöðu í þessu
fyrrverandi lýðveldi gömlu Júgósla-
víu, náðu góðri forystu í fyrri umferð
þingkosninga sem fram fóru þar um
helgina, samkvæmt fyrstu opinbem
tölum sem kjörstjómin birti í gær.
Samkvæmt þessum tölum fékk
bandalag hægriflokkanna, VMRO
DPME - Lýðræðislegi valkostminn
- samtals 37,69% atkvæða, en jafnað-
armenn (SDAM) og sósíalistar, sem
verið hafa í stjórnarsamstarfi, fengu
aðeins 27,94% fylgi. Seinni umferð
kosninganna fer fram 1. nóvember.
I fyrstu umferðinni var kosið um
35 af 120 sætum á þingi landsins.
Kjósendur kjósa bæði flokka og á
milli einstaklinga, sem keppa um
fáein þingsæti. Af einstaklingsfram-
bjóðendum hlutu samtals 10 fulltrú-
forystu
ar tveggja flokka albanska minni-
hlutans kosningu, sex úr bandalagi
stjórnarandstöðuflokkanna og einn
fulltrúi SDAM.
Hvemig þau 35 þingsæti sem nú
var kosið um á milli flokkanna myndu
deilast á þá var í gær enn óljóst, en í
dag var gert ráð fyrir að búið myndi
að telja öll atkvæðin úr fyrri um-
ferðinni og að tilkynnt yrði hve mörg
þingsæti féllu í hlut hvers flokks.
Komdu í skoðun
TOYOTA Nýbýlavegi 4-8
rnaaima s. 563 aaoo
jpe/u'/^yoU óetuo