Morgunblaðið - 21.10.1998, Side 16

Morgunblaðið - 21.10.1998, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Gamla sundlaugin komin í frí Þórshöfn - Það var fjörugur krakkahópur sem ærslaðist í gömlu útisundlauginni á Þórshöfn fyrir skömmu, klæddur eftir hentugleik- um því fatasund var leyft þennan síðasta dag sem laugin var opin. Þessi sundlaug á sér nokkra sögu og hafa margir Þórshafnarbúar taugar til hennar. Bygging laugarinnar þótti mikið framtak á sínum tíma en hún hófst um 1946 og var fjármögnuð að mestu af almenningi; dæmi voru um að foreldrar gæfu ákveðna upphæð fyrir hvert barn sitt og landeigandi lagði til landsvæðið undir laugina. Sundlaugin er því rúmlega fímmtug og í henni hafa Þórshafnarbúar lært að synda í gegnum tíðina - í um það bil hálfa öld. Aðstaða við sundlaugina hefur verið endurbætt með árunum og heitur pottur verið gerður. Fastur hópur, sem hefur mætt í sund eldsnemma á hverjum morgni, seg- ist sakna laugarinnar sárlega; hún hafi reynst sérlega vel og yfir henni sé viss „sjarmi". Sundlaugin hefur venjulega verið opin í 4-5 mánuði, opnuð með vorinu og henni lokað seint í september. Kostnaðarsamt hefði verið að lengja tímann sem hún er opin fram á haust því sundlaugin er olíukynt og alldýrt að halda hita á útisundlaug með því móti. Nýtt íþróttahús ásamt sundlaug er í byggingu í plássinu og verður væntanlega tilbúið í byrjun desem- ber. Nýja sundlaugin leysir þá gömlu af hólmi og er tilhlökkunar- efni að komast í sund allan ársins hring auk þess sem sundkennsla bama ætti að verða i lengri tíma en verið hefur. Kvennadeild UMFN fékk styrk Keflavík - Nýlega undirritaði Ferðaskrifstofan Urval Utsýn í Reykjanesbæ styrktar- og auglýs- ingasamning við körfuknattleiks- deild kvenna hjá Ungmennafélagi Njarðvíkur. Við þetta tækifæri sagði Kolbrún Garðarsdóttir sölustjóri Ui’vals Ut- sýnar að í framhaldi af niðurstöðum könnunar Rannsóknarstofnunar uppeldis- og menntamála sem Reykjanesbær lét gera m.a. á hög- um og viðhorfum stúlkna, hefðu spunnist miklar umræður í bæjarfé- laginu um brottfall stúlkna úr íþrótta - og tómstundastarfl. Ein aðalástæðan væri talin lítil hvatning og lítið fjármagn til kvennaíþrótta miðað við karla. Kolbrún sagði ennfremur að það væri því mikil ánægja fyrir Urval Útsýn að geta lagt kvennaíþróttum í Reykjanesbæ lið, því heilbrigð og ánægð æska væri lykilinn að öflugu menningar- og íþróttalífí.Samning- urinn kveður á um að_ UMFN verði með auglýsingu frá Úrval Útsýn á búningum kvennaliðsins auk þess að taka þátt í kynningarstarfi. Úr- val Útsýn mun greiða allan kostnað við auglýsingagerð á búningum auk peningagreiðslu. Morgunblaðið/Björn Blöndal SAMKOMULAGIÐ undirritað, frá vinstri til hægri eru Kolbrún Garð- arsdóttir sölustjóri Urvals títsýnar, Pálína Gunnarsdóttir fyrirliði meistaraflokks UMFN og Erla Hildur Jónsdóttir formaður kvennaráðs körfuknattleiksdeildar UMFN. Tönlistarskóli Húsavíkur Konsert- flygill vígður í TILEFNI af vígslu á nýju hús- næði Tónlistarskóla Húsavíkur fyrir rúmu ári var ákveðið að leita til félaga og fyrirtækja eftir stuðningi til kaupa á konsert- flygli fyrir skólann, en 10 ár voru síðastliðið haust frá því skólinn eignaðist sinn fyrsta flygil. Viðbrögð fyrirtækja og félaga á Húsavík fóru fram úr björtustu vonum og var því gengið frá pöntun á hljóðfærinu síðasta vor, en keypt var hljóðfæri af gerð- inni Kawai með 212 sentímetra langri hörpu og var kaupverðið 1.480 þúsund. Slíkt hljóðfæri þótti henta vel fyrir sal tónlistar- skólans. Hljóðfærið verður formlega vígt á Degi tónlistarinnar, laug- ardaginn 24. október kl. 14 í sal Borgarhólsskóla, en á tónleikum sem haldnir verða af því tilefni koma fram þau Gerrit Schuil sem valdi hljóðfærið úti í Þýskalandi og Ingveldur Ýr Jónsdóttir söng- kona. Gerrit mun flytja nokkur pí- anóverk en uppistaðan í tónleik- unum verður dagskrá sem þau fluttu saman í Iðnó í sumar og kölluðu „Söngleiki". Dagskráin inniheldur m.a. lög úr sívinsæl- um söngleikjum s.s Söngvaseið, Show Boat, My Fair Lady, Galdrakarlinum í Oz, Chorus Line og fleirum ásamt lögum eft- ir George Gershwin og Kurt Weill. Einnig flylja þau lög úr ís- lenskum leikritum og kvikmynd- um, en efnisskráin hentar jafnt ungum sem öldnum og eru bæj- arbúar því hvattir til að fjöl- menna á tónleikana og fagna með því merkum áfanga í starfl Tónlistarskóla Húsavíkur. Skól- inn verður til sýnis að tónleikum loknum og heitt verður á könn- unni. 40 ára starfsafmæli Litlulaugaskóla í Reykjadal Nemendur færðu skólanum peningagjöf Á ÞESSU ári eru 40 ár síðan barna- skólakennsla fékk fastan samastað í Reykdælahreppi í S-Þingeyjarsýslu. Litlulaugaskóli í Reykjadal fagnar því 40 ára starfsafmæli um þessar mundir. Fyrsti skólastjóri skólans var Dagur Sigurjónsson en núverandi skólastjóri er Angantýr Einarsson. í tilefni þessara tímamóta ákváðu nemendur 7.-10. bekkjar, sem eru 16, að safna peningum til að gefa skólan- um í afmælisgjöf. Nemendumir stóðu fyrir knattspymumaraþoni og söfn- uðu áheitum meðal sveitunga sinna. Krakkamir fengu afnot af íþróttahús- inu á Laugum og hófst maraþonið kl. 22 sl. fóstudagskvöld en því lauk kl. 16 á laugardag. Foreldrai' barnanna og kennarar skiptu með sér vöktum og fylgdust með þeim allan tímann, auk þess sem skólahjúkrunarkona leit eftir börnun- um af og til. Foreldrar vom að vonum ánægðir með þetta framtak nemend- anna og frammistöðu þeirra en þegar yfir lauk höfðu safnast liðlega 80 þús- und krónur sem að öllum líkindum munu renna til tölvukaupa fyrir skól- ann. Nemendur 7.-10. bekkjar stilltu sér upp fyrir myndatöku fyrir síðustu lotuna á laugardag. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason UNNIÐ hefur verið við að leggja ljósleiðara á milli Grundarfjarðar og Stykkishólms. Á myndinni er verið að leggja lokahönd á verkið með því koma strengnum í hús Landssímans við Áðalgötuna í Stykkishólmi. Ljósleiðari lagður til Stykkishólms Stykkishólmi - í sumar hefur verið unnið að lagningu ljósleiðara frá Grundarfirði til Stykkishólms. Verktaki er Vinnuvélar Pálma frá BÖRNIN sem tóku þátt í knattspyrnumaraþoninu. Morgunblaðið/Hólmfríður Haraldsdóttir Sauðárkróki sem tók að sér plægja fyrir leiðslunni á milli staðanna, en starfsmenn Landssímans í Stykkis- hólmi hafa séð um innanbæjarlagnir á báðum stöðum. Verkinu er að ljúka og á dögun- um þurfti að grafa í sundur Aðal- götuna í Stykkishólmi til’ að koma ljósleiðaranum í hús. í viðtali við Jón H. Jónsson verkstjóra hjá Landssímanum í Stykkishólmi er ætlunin að tengja þéttbýlisstaði á norðanverðu Snæfellsnesi með ijós- leiðara og verður því verki lokið þegar nýr vegur verður lagður um Búlandshöfða. Hólmarar hafa öflugt stafrænt örbylgjusamband við Búð- ardal, en þangað var ljósleiðari lagður fyrir nokkrum árum. Með ljósleiðara í jörðu eykst mjög öryggi í fjarskiptum. Næsta sumar er áætlað að leggja breið- band innanbæjar í Stykkishólmi og verður sú framkvæmd boðin út samhliða lagningu hitaveitu. Hjá Landssímanum hf í Stykkis- hólmi starfa 5 menn. Þeir þjóna stóru svæði sem er Reykhólasveit, Dalasýsla og norðanvert Snæfells- nes. Verkefni þeirra er að annast viðgerðir og eftirlit á þessu svæði. Hjá þessum flokki hefur verið nóg að gera og mun svo verða á næstu mánuðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.