Morgunblaðið - 21.10.1998, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 19
Rætt um óróa á fjármálamarkaði á fundi viðskipta- og hagfræðinga
Heimskreppa
ekki yfírvofandi
ALLT tal um heimskreppu er rugl
og víða um heim er bjart framundan
í efnahagsmálum. Ef litið er á þessa
hlutabréfamarkaði í sögulegu sam-
hengi sést að hækkanir og lækkanir
skiptast á, hækkunartímabilin eru
lengri en lækkunartímabilin og
hækkanir meiri en lækkanimar.
Eftir mikla hækkun hlutabréfa að
undanfórnu hlaut að koma að þeirri
leiðréttingu á verði hlutabréfa, sem
nú stendur yfir víða um heim, að
sögn Sigurðar B. Stefánssonar,
framkvæmdastjóra VÍB, á morgun-
verðarfundi Félags viðskiptafræð-
inga og hagfræðinga í gær.
Asía ofhitnaði
Á fundinum fjallaði Sigurður um
þann óróa á fjármálamarkaði, sem
vart hefur orðið að undanförnu, og
leitaðist við að svara þeirri spurn-
ingu hvort þessi órói væri fyrirboði
alþjóðlegrar fjármálakreppu. Hann
gerði að umtalsefni útbreiddar
áhyggjur vegna verðlækkunar
hlutabréfa, verðhækkunar skulda-
bréfa og mikillar verðlækkunar á
hrávörumarkaði. „Er heimskreppa
raunverulega að dynja á okkur? í
mínum huga er þetta tómt rugl og
engin heimskreppa er yfirvofandi,"
sagði Sigurður.
Hann sagði að menn yrðu að hafa
nokkur atriði í huga áður en of víð-
tækar ályktanir yrðu dregnar. Mik-
ill uppgangur hefði verið í Suðaust-
ur-Ásíu allan þennan áratug og
vestræn fyrirtæki hefðu keppst við
að fjárfesta í álfunni, mest þó árin
1994-97. Að því hefði síðan komið
að kerfin hefðu ofhitnað og það
hefði leitt til gengisfalls hlutabréfa.
„Batinn er byrjaður að koma í ljós
og margt bendir til að leiðrétting
hlutabréfaverðsins hafi þegar átt
sér stað. Hlutabréf í flestum ríkjum
Suðaustur-Asíu hafa hækkað veru-
lega síðan í ágúst en á sama tíma
hefur orðið lækkun í Evrópu. Ljóst
er að fjármálakerfi Suðaustur-Ásíu-
ríkjanna eru ekki eins þróuð og hér
á Vesturlöndum og það tekur ár
frekar en mánuði að laga þau svo
þau standist samkeppni við hinn
vestræna heim. Eg lít því á hinn
svokallaða Asíuvanda sem einangr-
að fyrirbæri."
Lækkanir eru mörk-
uðum eðlislægar
Töluverð lækkun hefur orðið á
hlutabréfum á Vesturlöndum og
segir Sigurður að þar sé um annað
tiltölulega einangrað vandamál að
ræða. „Á hlutabréfamarkaði í Evr-
ópu og Bandaríkjunum hafa skipst
á hækkanir og lækkanir. Hækkun-
artímabilin eru lengri en lækkunar-
tímabilin og hækkanir meiri en
lækkanimar. Eftir mikla hækkun
hlutabréfa að undanfömu hlaut að
koma að þeirri leiðréttingu á verði
hlutabréfa, sem nú stendur yfir víða
um heim.“
Sigurður fjallaði einnig um þær
áhyggjur að verðhjöðnun á fjár-
málamörkuðum muni leysa nýja
heimskreppu úr læðingi. Hann
benti á að þrátt fyrir verðlækkun á
hlutabréfamörkuðum væri engin
verðhjöðnun í þeim þjónustugrein-
um, sem efnahagslíf Vesturlanda
hvfldi að mestu leyti á. Sagði hann
engin þau teikn á lofti sambærileg
við þau, sem hefðu valdið
heimskreppunni fyrr á öldinni.
Morgunblaðið/Þorkell
„EFTIR mikla hækkun hlutabréfa að undanfömu hlaut að koma að
þeirri leiðréttingu á verði hlutabréfa, sem nú stendur yfir víða um
heim,“ sagði Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri VIB, á morg-
unverðarfundi Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga í gær.
„Heimskreppan 1929-33 var allt
annað fyrirbæri en sá samdráttur,
sem menn glíma við nú. Þá nam
verðhjöðnun meira en 30%, fram-
leiðsla dróst saman um 1/3 og at-
vinnuleysi var hrikalegt. Það ástand
er engan veginn sambærilegt við
það ástand, sem ríkir nú. Að tala
um að við séum á barmi
heimskreppu er því hreint mgl.“
Bjart framundan á íslandi
Sigurður ræddi einnig um að-
stæður á Islandi og um hina miklu
hækkun hlutabréfa, sem varð hér-
lendis á árunum 1994-97. „Ég lít
svo á að lækkun hlutabréfa frá
miðju ári 1997 sé leiðrétting en hins
vegar kemur það á óvart að hún
skuli taka eins langan tíma og raun
ber vitni. Reyndar er líklegt að ný-
leg lækkun á gengi hlutabréfanna
sé vegna erlendra áhrifa og mikillar
umfjöllunar fjölmiðla um yfirvof-
andi kreppu.
Síðastliðin þrjú ár hefur árlegur
hagvöxtur numið um 5% hérlendis.
Þjóðhagsstofnun spáir 4,5% hag-
vexti á næsta ári en um leið minnk-
andi arðsemi fyrirtækja. Sigurður
sagðist telja það undarlegt en það
kynni jafnframt að skýra ástandið á
verðbréfamarkaðnum. „Ég tel að
bjart sé framundan í efnahagslífi Is-
lendinga. Ég býst við að við
komumst brátt yfir bakslagið og þá
tekur vöxtur og uppgangur við,“
sagði Sigurður.
En d urskip uhigningu
Alpan hf. lokið
JÓN BÚI Guðlaugsson, fram-
kvæmdastjóri Alpan hf. á Eyrar-
bakka, mun fljótlega fara úr stól
framkvæmdastjóra íyrirtækisins.
Auglýst var eftir nýjum fram-
kvæmdastjóra í Morgunblaðinu ný-
lega.
Jón Búi segir ástæðuna fyrir
brotthvarfi sínu þá að endurskipu-
lagningu á fjármálum fyrirtækisins
sé lokið en Jón var ráðinn tíma-
bundið til iyrirtækisins í mars til að
vinna að endurskipulagningunni.
Tap á rekstri Álpan á síðasta ári
var um 60 milljónir króna, en að
sögn Jóns Búa er útlitið fyrir árið í
ár mun betra.
Fyrstu sex mánuði ársins var tap
af reglulegri starfsemi tæpar 13
m.kr. en að sögn Jóns Búa er seinni
árshelmingur yfirleitt betri hjá fyr-
irtækinu en sá fyrri.
Jón Búi segir að þegar búið verði
að ráða nýja framkvæmdastjóra
muni hann snúa aftur til fyrri starfa
á Verkfræðistofu sinni, Verkfræði-
stofu Jóns Búa Guðlaugssonar.
Tölvunám
Almennt um tölvur,
Windows, Word, Excel,
og Internetið frá A-Ö
Kennt er þrisvar í viku í fiórar vikur.
Samtals 48 klukkustundit Nsstu
námskeið byrja 26. og 27. október.
Vönduð námsgögn og bækur fylgja
öllum námskeiðum
Nýi tölvu- &
viðskipt askólinn
$------------------------------------------
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Simi: 555 4980 - Fax: 555 4981
Tölvupóstfang: skoli@ntv.is - Heimasíða: www.ntv.is
v_____________________________________________/
Klæddu þig rétt!
að að^era, goðum fatnaði yst sem
fnrist er nauðsynlegt til þess að wtuíul
útivistin verði bæði auðveldari
skemmtilegri. 5
1 .Klæddu! Notaðu helst nærfatnað úr
tæknilegum efnum sem flytja svita og
raka frá Iíkamanum t.d. efni eins og
Dacron. Bómullarföt halda rakanum og
kæla líkamann. Þegar líkaminn er þurr,
þá virkar hitakerfi líkamans betur og þú
svitnar minna. Og þess minna sem þú
svitnar og skilar frá þér raka.þeim mun
lengur endist orkan.
2. Þig! Lag númer tvö fer eftir árstíö og
hitastigi úti. Ef ekki er mjög kalt fer
maður í þunna flíspeysu eða jafnvel
vesti. Ef kalt er, þá fer maður íþykka
flíspeysu. Ftisefnið er án efa eitt besta
efnið þegar maður klæðir sig með „iag
ofan á lag" aðferðinni, því flísefnið heldur
vel hita og flytur raka frá líkamanum hratt
og öruggiega.
3. Rétt! Ysta lagiö þarf að þola vel
ísienska veöráttu og vera sterkt og
létt. Það þarf að þola bæði vætu og
vinda, en samt að geta andað til þess
að rakinn komist frá Ifkamanum. Þetta
er sérstaklega mikilvægt ef fólk á í
miklum átökum og hreyfingu.
Eins er auðveidara að athafna sig í
iéttum útivistarfatnaði.
VINTERSPORT
ÞÍN FRÍSTUND - OKKAR FAG
BfLDSHÖFÐA - Bíldshöfða 20 - Sími: 510 8020