Morgunblaðið - 21.10.1998, Síða 25

Morgunblaðið - 21.10.1998, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 25 RÆTT VIÐ JOHANN AMUNDASON Fluguh UM LIF OG STARF A OLIUPALLI frístund alla daga ársins. Agúst Ingi Jónsson ræddi vió jýtingar eru meóal þess sem starfsmenn á olíupallinum Statljord C dunda viö í um. Tómstundirnar eru þó ekki ýkja margar því unnið er allan sólarhringinn Jóhann Ámundason, sem í 23 ár hefur unniö viö oiíuiðnaðinn í Noröursjónum. Vinalegt sa einkennir vin tækni og t r* M * r-i í mfélag nustað kifæra OLÍUPALLUR í Norður- sjónum og í hugann koma orð eins og ævintýri, ríf- andi tekjur, hættur í hverju homi, samfélag hörkukarla, sem áð- ur unnu gjarnan á flutningaskipum á heimshöfunum. Hvílíkur misskiln- ingur og alröng mynd. Jóhann Ámundason hefur frá árinu 1976 unnið við olíuiðnaðinn í Norður- sjónum og starfað á mörgum pöllum, hægur og yfirvegaður fjölskyldumað- ur, búsettur í Suður-Noregi. I fyrstu setningum sínum leiðréttir hann ranghugmyndir blaðamanns. „Við erum hér í tvær vikur, eigum frí í fjórai' vikur, síðan er tveggja vikna vinna og þriggja vikna frí. Þannig gengur þetta alla daga ársins, sama hvort jól eru eða virkur dagur. Um borð er unnið í 12 tíma og fyrir þá sem hafa með mannahald og stjómun að gera tekur þá við ýmiss konar skriffinnska, en aldrei meira en í 16 tíma á dag,“ segir Jóhann er við tyllum okkur niður í glæsilegu mötu- neytinu um borð í olíupallinum Statfjord C. Um borð nú eru um 300 manns, sem er reyndar óvenju mikill fjöldi. Venjulegast em um 200 manns á pallinum og geta þá flestir fengið eins manns herbergi. Til að halda vinnslunni í gangi þarf 185 manns, en hámarksfjöldi í gistingu em 400 manns. Allur aðbúnaður er góður og reyndar er hann enn betri á nýjustu pöllunum. Góð laun og hættu- lega góður matur „Vissulega eru góð laun í boði, en þau vom enn betri áður fyrr,“ segir Jóhann aðspurður. „Nú er hægt að hafa svipaðar tekjur fyrir vinnu í landi, en ég get ekki hugsað mér að fara að vinna frá klukkan 8-4 ein- hvers staðar. Eg er orðinn hluti af þessum hring, það á vel við mig og fjölskyldan þekkir ekki annað kerfi með kostum þess og göllum. Fyrir utan vinnu nota menn tím- ann mest til að sofa, en ýmisleg starfsemi er í gangi þessar frístund- ir. Við fáum blöðin reglulega, hér er sjónvarp, útvarp og myndbandstæki, heilsurækt með ágætum tækjum og það er líka eins gott því hér er hættulega mikill og góður matur á öllum tímum sólarhringsins. Um borð starfa alls konar klúbbar, t.d. bridsklúbbur og fluguhnýtinga- klúbbur með öllum tækjum og tólum sem til þess þarf. Eg hef aðeins próf- að að hnýta flugur og haft gaman af, en kann reyndar ósköp lítið í þessu enn þá. Menn tala mikið saman um lífsins gagn og nauðsynjar og hér þai'f engum að leiðast," segir Jóhann. Feðgar og tæknifræðingar Jóhann er sonur Amunda Jó- hannssonar frá Iðu, sem lengst af sinni starfsævi vann í Fálkanum í Reykjavík. Hann nam véltæknifræði í Svíþjóð skömmu eftir stríð og voru þeir Jóhann og Amundi fyrstu feðgarnir sem skráðir voru félagar í Tæknifræðingafélagi íslands. Móðir Jóhanns var Kristjana Sigmunds- dótth' frá Laugarási í Biskupstung- um. Ámundi og Kristjana eru bæði látin. Þau áttu fjögur börn og er Jó- hann næstelstur. Eiginkona Jóhanns er Auður Elís- dóttir úr Reykjavík. Þau eiga tvo syni; Elís er 28 ára rafeindatækni- fræðingur hjá Ericson og Arnundi er 24 ára. Báðir starfa þeir í Noregi enda hefur fjölskyldan dvalið þar frá árinu 1976. JÓHANN Ámundason við heimili sitt skammt frá Arendal í Suður Nor- egi. Honum líkar vel að vinna á olíupalli, en vinnutíminn er þannig að menn vinna á pallinum í tvær vikur, eiga frí í fjórar vikur, síðan er tveggja vikna vinna og þriggja vikna frí. Þannig gengur þetta alla daga ársins, sama hvort jól eru eða virkur dagur. Jóhann býr ásamt fjölskyldu sinni skammt frá Arendal og segist hafa nóg við að vera frívikumar í landi. „Eg á bát sem við notum mikið til að sigla í skerjagarðinum. Ég er líka að gera upp gamlan Citroen DS, hann verður flottur sá get ég sagt þér. Svo er að pakka öllu dótinu eftir sumarið sem aldrei kom hérna í Noregi. Það er alltaf nóg að gera og ég uni mér vel hvort sem ég er heima við eða úti á pallinum," segir Jóhann. Sér um viðhald á borpallinum Jóhann lauk námi í tæknifræði í Grimstad í Noregi og starfaði síðan í 4 ár sem tæknifræðingur heima á Is- landi. Þau hjónin langaði að prófá eitthvað nýtt og Jóhanni bauðst vinna hjá Aker Offshore Partner. Hann starfaði lengst af hjá viðhalds- deild fyrirtækisins og fór þá á milli palla vegna margvíslegra verkefna. Reyndar tók hann einnig þátt í byggingu og uppsetningu þessara gríðarlegu mannvirkja. „Ég vann meðal annars við að smíða einingar í einn af fyrstu pöll- unum niðri á Italíu og hlutarnir í pallinn komu víðs vegar að úr heim- inum. Þetta átti síðan allt að setja saman úti á Norðursjónum og það hafðist en reyndist bæði dýrt og erfitt. Við þurftum að nota þyrlur, stóra skipskrana og báta, allt úti á rúmsjó. Þetta var aðeins gert fyrstu árin meðan menn vissu lítið hvað þeir voru að gera. Með aukinni reynslu og þekkingu var farið að smíða pallana í landi og draga þá síð- an út á svæðið,“ segir Jóhann. Frá árinu 1994 hefur Aker alfarið séð um viðhald á Statfjord C og Jó- hann verið einn þriggja stjórnenda fyrirtækisins um borð. Aðspurður um verkefnin segir hann að á þeirra verksviði sé viðhald á tönkum, rörum og leiðslum. Reynd- ar sjái Aker um allt sem gert sé úr stáli og um borð í mannvirki eins og olíupalli eru handtökin því óneitan- lega mörg og viðhaldsvinnan stöðug. Starfsmenn vinna saman sem ein heild, en tilheyra fjómm fyrirtækj- um; Aker sér um viðhald eins og áð- ur sagði, Smevik um allt sem lýtur að borunum og brunnum og SAS hefur séð um eldhúsið. Aðrir eru starfsmenn Statoil, þar á meðal þeir sem vinna í yfirstjórn og heilsu- gæslu, en um borð er sjúkravakt all- an sólarhringinn. Vinalegt samfélag og öryggi í hávegum „Þetta er vinalegt samfélag um borð, allir þekkja alla og nota for- nafn, sem er ekki sjálfsagt á norsk- um vinnustöðum. Menn vinna vel saman og mikið til eru þetta sömu mennirnir ár eftir ár. Vinnutíminn er hins vegar þannig skipulagður að þrír menn verða að vera um hverja stöðu og því þekkir maður best þá sem eru á sama róli. Mjög vel er fylgst með að allar ör- yggisreglur séu haldnar. Það er samt ekki þannig að menn séu alltaf að hugsa um hversu hættulegt þetta starf getur verið. Fyrir okkur er þetta bara eins og hver önnur vinna. Samt er starfsfólkið betur vakandi í öryggismálum en gengur og gerist. I hverju tveggja vikna úthaldi er einu sinni haldin björgunaræfing þar sem brugðist er við bruna um borð og farið er í gegnum reglur um hver á að fara í hvaða bát og þess háttar. Einu sinni á tveggja vikna fresti er fræðslufyrirlestur um öryggismál og loks má nefna að enginn fær að hefja störf á borpalli nema hann hafi áður farið á tveggja vikna námskeið til að fræðast um vinnubrögð og reglur. Allur ferðakostnaður greiddur Starfsmenn á borpöllunum búa víðs vegar í Noregi. Jafnvel á hinum Norðurlöndunum, einkum Dan- mörku og Svþjóð. Statoil eða viðkom- andi verktaki greiðir þá allan ferða- kostnað til og frá vinnu. í upphafi ol- íuævintýrisins gátu menn jafnvel bú- ið á Spáni og farið þaðan í vinnuna á kostnað launagreiðanda. í seinni tíð hefur verið tekið fyrir þetta og miðað við að nýir starfsmenn búi í grennd við þyrluvellina, sem þjóna pöllunum. Þeir sem til dæmis búa í Dan- mörku, Svíþjóð eða Norður-Noregi og hafa lengi unnið hjá fyrirtækinu njóta þó sömu kjara og áður. Ég þekki dæmi um Islendinga sem voru á þessum kjörum,“ segir Jóhann. Hann segir að nokkuð sé um Is- lendinga í vinnu hjá Statoil og úti á olíupöllunum enda sé mikið af ís- lendingum í Noregi. Áður fyrr, þeg- ar hann fór mikið á milli palla, hafi hann hitt marga íslendinga eða frétt af þeim. I mötuneytinu á Statfjord C er eðlilega mest af Norðmönnum. Olíu- iðnaðurinn er alþjóðlegur og fólkið kemur úr ólíkum áttum; Evrópu, As- íu, Ameríku. Karlar eru í miklum meirihluta, en einnig talsvert af kon- um. Iveruálman er eins og hótel og fólk kemur í mat og kaffi á öllum tímum sólarhrings því vinnutíminn er mismunandi. Heimur tækni og tækifæra Það er komið að því að kveðja Jó- hann Amundason og aðra starfs- menn á þessum sérkennilega vinnu- stað í miðjum Norðursjónum. Uti gnauðar vindurinn og það er rigning þennan dag. Við bauju skammt frá liggur flutningaskip sem flytur olíu til lands. Kannski fer olían sem verið er að dæla í tanka skipsins áleiðis til Islands að lokinni hreinsun í stöðinni í Mongstad skammt frá Bergen. Þennan dag sést ekki lengra en að olíuskipinu sakir dimmviðris, en á björtu kvöldi má sjá ljós og loga á um 20 norskum og enskum borpöll- um í nágenninu. Ohemju af olíu er dælt upp á hverjum degi og verð- mætið er gífurlegt. Fyrir starfs- mennina er þetta eins og hver önnur vinna, en fyrir aðkomumanninn ótrú- legur heimur tækni og tækifæra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.