Morgunblaðið - 21.10.1998, Síða 29

Morgunblaðið - 21.10.1998, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 29 LISTIR HÁSKÓLAÚTGÁFAN sendir í ár frá sér svipaðan fjölda bóka og und- anfarin ár eða milli 50 og 60 bækur. Hér á eftir fer listi yfir þær helstu. Kraftbirtingarhljómur guðdóms- ins, sem Sigurður Gylfi Magnússon ritstýrir. Hér eru í fyrsta skipti birt sýnishorn úr persónulegum gögnum Magnúsar Hj. Magnússonar - dag- bók hans, sjálfsævisögu og bréfum. Magnús var fyrirmynd Ólafs Kára- sonar Ljósvíkings í Heimsljósi Hall- dórs Kiljans Laxness, sjálfur ein- stakur maður sem átti ávallt á brattann að sækja. Þá sendir Sagnfræðistofnun frá sér nýtt rit í ritröðinni Sagnfræði- rannsóknir og er þetta fjörtánda ritið í röðinni. Það nefnist Mann- kynbætur. Hugmyndir um bætta kynstofna hérlendis og erlendis á 19. og 20. öld og er eftir Unni B. Karlsdóttur. „Nokkrir af áhrifa- mestu menntamönnum landsins á íyrri hluta 20. aldar boðuðu mann- kynbætur, og áhrif stefnunnar má greina í íslenskum lögum,“ segir í kynningu. Útgáfan sendir nú frá sér rit í samvinnu við Stærðfræðafélagið sem nefnist Leifur Ásgeirsson. Minningarrit. Aðalritstjóri verksins er Jón Ragnar Stefánsson dósent við Háskóla íslands. Ritið er gefið út til minningar um þann mann sem varð fystur íslenskra stærðfræðinga til að hljóta víðtæka alþjóðlega við- urkenningu íýrir rannsóknir sínar. Fjallað er um ævi og störf Leifs og birtar fræðilegar greinar hans sjálfs auk umfjöllunar annarra fræði- manna um störf hans. Háskólaútgáfan hefur nú um all- nokkurt skeið haft í undirbúningi viðamikið rit eftir Unnstein Stef- ánsson haffræðing sem nefnist Haf- ið. Rit þetta skýrir á einfaldan og aðgengilegan hátt þekkingu okkar á eðli og eiginleikum hafsins. Bókin er ríkulega myndskreytt. Fram- setning alls efnis er miðuð við al- menning og þá ekki hvað síst sjó- menn. Fyrr á árinu sendi útgáfan frá sér afmælisrit til heiður Sigurði A. Magnússyni sjötugum. Nefnist það í tíma og ótíma. í bókinni er að fmna ítarlega ritaskrá er spannar allan höfundarferil Sigurðar til dagsins í dag. Ástráður Eysteinsson ritar inngang að verkinu. I þungum þönkum Mikael M. Karisson prófessor sendir frá sér rit er hann nefnir Þungir þankar. Um vísindi, þekk- ingu og tilvist. Bókin geymir að- gengilegar ritgerðir um vísindi, þekkingu og tilvist, en fæstar þeirra hafa áður komið út á íslensku. Þar er fjallað um spurningar eins og: Hugsum við með heilanum? Hver Kraftbirtingarhlj óm- ur og ýmis fræði eru tengsl sálar og líkama? Eru félagsvísindi vísindi? Hinn landskunni læknir Sigurður Samúelsson sendir frá sér bók um efni sem hann hefur getið sér gott orð íyrir á seinni árum, en það eru athuganir hans sem læknis og áhugamanns um fornsögur, á sjúkdómum sögupersóna fornsagnanna. Bókina nefnir hann Sjúk- dómar og dauðamein ís- lenskra fornmanna. Þá hefur Háskólaútgáfan gefið út Islandsbók í sam- vinnu við Ring of Seasons. Iceland. It’s Culture and Hi- story eftir Terry G. Lacy. Á sl. vori gekkst Skál- holtsskóli fyi'ir ráðstefnu fjöl- margra fræðimanna um Þórð Þor- láksson biskup í Skálholti. Háskóla- útgáfan gefur nú út fyrirlestrana sem þar voru fluttir undir heitinu Frumkvöðull vísinda og mennta. Þórður Þorláksson biskup í Skál- holti. Jón Pálsson er ritstjóri verks- ins. Sjálfstæði og þjóðtrú Sjálfstæðið er sívirk auðlind nefn- ist bók eftir alþingismanninn Ragn- ar Arnalds, en í þessu riti fjallar Ragnar um sjálfstæði Islands og þróun þess í fortíð og framtíð. A Piece of Horse Liver. Myth, Ritual and Folklore in Old Icelandic Sources er bók með safni greina eft- ir Jón Hnefil Aðalsteinsson. Hér eru á ferðinni enskar þýðingar á grein- um höfundarins sem er prófessor í þjóðfræði, endurskoðaðar og með nokkrum viðbótum. Greinarnar taka til fjölda viðfangsefna en þó einkum þjóðtrúar og fornra trúarsiða. Siðfræðistofnun stóð fyrir ráð- stefnu á sl. ári undir yfirskriftinni Fjölskyldan og réttlætið. Ritið er safn greina þar sem tekist er á við ýmsar knýjandi siðferðilegar spm-n- ingar um gerð fjölskyldunnar, stöðu og aðbúnað í samfélagi nútímans. Ritstjóri er Jón Á. Kalmansson og fi. Erla Hulda Halldórsdóttir og Sig- urður Gylfi Magnússon ritstýra greinasafni sem nefnist Einsagan - ólíkar leiðir. Átta ritgerðir og eitt myndlistarverk. Höfundar leitast við að tileinka sér aðferðir einsög- unnar eða „microhistory" með ein- um eða öðrum hætti. Fjögur rit um bókmenntir Bókmenntafræðistofnun sendir fjögur rit frá sér að þessu sinni. Fyrst er þar að nefna ritið Þor- steinn Valdimarsson. Ljóð. Eysteinn Þorvaldsson annast útgáfuna. Þor- steinn Valdimarsson var „mikill braglistamaður þótt hljótt færi um hann,“ segir í kynningu. Hér er úr- val úr öllum ljóðabókum Þorsteins og þýðingum en hann var einnig af- kastamikill ljóðaþýðandi. Eysteinn Þoi’valdsson gerir grein fyrir kveð- skap Þorsteins og ræðir um hann í ljósi íslenskrar bókmenntasögu tutt- ugustu aldar. Bókin er XII. bindið í ritröðinni íslensk rit. Ritstjórar eru Ásdís Egilsdóttir og Helga Kress. Gefðu mér veröldina aftur. Um sjálfsævisöguleg skrif íslendinga á átjándu og nítjándu öld með hliðsjón af hugmyndum Michels Foucault, nefnist nýtt rit eftir Eirík Guð- múndsson. Höfundur ræðir um þá breytingu sem verður á sjálfsmynd í sjálfsævisögulegum skrifum á þessu tímabili og tekur sem dæmi höfunda eins og Jón Steingrímsson, Gísla Brynjúlfsson og Konráð Gíslason. Bókin er 55. bindi í ritröðinni Studia Islandica. Ritstjóri er Vésteinn Ola- son. Útisetur. Samband geðlækninga, bókmennta og siðmenningar. Matth- ías Viðar Sæmundsson ritstýrir. Hér birtist ritdeila frönsku heim- spekinganna Michels Foucaults og Jacques Deirida um sturlunarhug- takið, merkingu þess og birtingar- myndir í menningu og skrifum. Eru hér þýddir kaflar úr bók Foucaults, Histoire de la folie, ásamt gagnrýni Derrida, „Cogito og saga sturlunar". Jafnframt er hér svar Foucaults, „Líkami minn, þetta blað, þessi eld- ur“, svo og grein Soshana Felman um deiluna. I ítar- legum eftirmála gerir rit- stjóri grein fyrir tildrögum og afleiðingum þessarar merku ritdeilu. Þýðendur eru Olöf Pétursdóttir og Garðar Baldvinsson. Útiset- ur er 10. bindi í röðinni Fræðirit. Ritstjórar eru Ást- ráður Eysteinsson og Matth- ías Viðar Sæmundsson. Fjórða ritið frá Bók- menntafræðistofnun er Fjósakona fór út í heim. Sjálfsmynd, skáldskapur og raunveruleiki í ferðasögum Önnu frá Moldnúpi eftir Sigþrúði Gunnars- dóttur. Þessi bók fjallar um ferða- sögur alþýðukonunnar Önnu frá Moldnúpi (1902-1979) með sérstakri áherslu á hugmyndir ferðalangsins um sjálfan sig. Rýnt er í þá sjálfs- mynd sem birtist í bókunum og hug- leitt hvernig hún er tjáð og hvað hefur áhrif á þá tjáningu. Bókin er 2. bindi í ritröðinni Ung fræði. Stjórnmál og hugvísindi The Ally Who Came in from the Cold heittir nýtt rit frá Þór Whitehead sagnfræðingi. Hér er lýst í stuttu og hnitmiðuðu máli helstu atburðum í utanríkissögu ís- lensku þjóðarinnar á kaldastríðsár- unum: aðdraganda Keflavíkursamn- ings 1946, inngöngu í Atlantshafs- bandalagið 1949, gerð varnarsamn- ings við Bandaríkin 1951 og áform- um og endalokum vinstristjórnar Hermanns Jónassonar um endur- skoðun varnarsamningsins 1956. Þá sér Háskólaútgáfan um dreif- ingu á nýju leikriti Ragnars Amalds, sem hann nefnh' Solveig. Leikrit Ragnars Amalds um ástir og örlög séra Odds og Solveigar frá Miklabæ á bók ásamt myndum úr sýningu Þjóðleikhússins og ýmsum upplýs- ingum um bakgrunn verksins. Milli himins og jarðar er rit með fyrirlestrum af samnefndri ráð- stefnu sem Guðfræðideild og Heim- sekideild HÍ gengust fyrir á sl. ári. Hér er fengist við höfuðeinkenni hugvísinda, sem er að fást við það hvernig maðurinn ljær tilveru sinni merkingu með hugarstarfi sínu. Erfðaréttur heitir ný bók eftir Pál Sigurðsson. Líkt og ólíkt heitir samnorrænt rit sem fjallar um mismun kynjanna í skólum. Viðfangsefnið er hvað er líkt og hvað ólíkt milli drengja og stúlkna og hvernig á að taka á þeim málum þannig að bæði kynin fái að njóta sín. Félagsvísindastofnun _ hefur nú endurútgefið bækumar íslensk þjóð- félagsþróun, sem Guðmundur Hálf- danarson og Svanur Kristjánsson rit> stýra, og Hugarfar og hagvöxtur eft- ir Stefán Ólafsson. Fyrr á árinu kom út nýtt greina- safn eftir Harald Ólafsson er hann nefnh- Af mannanna bömum. Meðal viðfangsefna hans em greinar um innviðahyggju (structuralisma) upp- mna mannsins, þróun samfélags- gerðar og menningar. Þá er sagt frá rannsóknum mannfræðinga á sögu og menningu Islendinga auk hugleið- inga Haraldar um nokkur atriði ís- lenskrar sögu. Stærðfræðiorðabók Nýlega kom út ritið Umdeildar fjölskyldur: Seinfærir/þroskaheftir foreldrar og börn þeirra eftir Rann- veigu Traustadóttur og Hönnu Björgu Sigurjónsdóttur. Ritið fjallar um fjölskyldur þar sem foreldrarnir, annað eða bæði, eru seinfærir eða þroskaheftir. Þá hefur Háskólaútgáfan í sam- vinnu við Islenska stærðfræðafélagið gefið út Ensk-íslenska stærðfræði- orðaskrá. Bókin er afrakstur 20 ára vinnu sem innt hefur verið af hendi af ritstjóm Orðaskrár íslenska stærðfræðafélagsins undir forystu Reynis Axelssonar, dósents í stærð- fræði við Háskóla Islands. Stjómskipunarréttur eftir Gunnar G. Schram er almennt fræðslurit um Stjórnarskrána sem fjallar um og skýrir öll ákvæði hennar. I upphafi er rætt um meginatriði íslenskrar stjómskipunar og hvemig þau end- urspeglast í stjórnarskránni. Sagt er frá hvernig unnt er að breyta stjórn- arskránni en það er viðamikið verk. Þá er fjallað um land og þjóð. ítarieg grein er gerð fyrir þeim mannrétt- indum sem Islendingar njóta og á hvem hátt þau veita þeim skjól og vernd gegn ágangi ríkisvaldsins. Loks er fjallað um nýju starfs- mannalögin og þau skýrð. Loks er að nefna nýtt rit frá rekt- or Háskóla íslands, Páli Skúlasyni, sem hann nefnir Umhverfing. Hér er að finna fyrirlestra um siðfræði nátt- úru og umhverfis. Páll fjallar m.a. um greinarmun á umhverfisvemd og náttúmvemd og leitast við að skýra þann hugsunarhátt og þau öfl sem standa vernd náttúm og umhverfis fyrir þrifum. Auk fyrirlestranna birtist hér samræða Páls og Björns Þorsteinssonar um þessi efni. Kosningabardagi og baktjaldamakk KVIKMYIVPIR Háskólabfó, B f ð h ö 11 i n PRIMARY COLORS*-*"*1/!! Leikstjóri Mike Nicliols. Handrits- höfundur Elaine May, byggð á bók Joe Klein. Tónsmiðir Ry Cooder og Carly Simon . Kvikmyndatökusljóri Michael Ballhaus. Aðalleikendur John Travolta, Emma Thompson, Billy Bob Thornton, Adrian Lest- er,Maura Tierney, Larry Hagman, Diane Lane, Kathy Bates. 140 mín. Bandarísk. Universal 1998. FORSETAEFNIÐ Jack Staunt- on (John Travolta), er þungamiðja atburðanna í Prímary Colors, myndin er byggð á frægri, sam- nefndri metsölubók sem kom út fyrir tveimur árum. Höfundurinn skrifaði bókina undir dulnefni (reyndist síðar vera Joe Klein, blaðamaður Newsweek), og veltu menn því mikið fyrir sér hver hann væri. Það var greinilegt að penninn sá var öllum hnútum kunnugur í herbúðum Bills Clinton. Bókin fjallar ítarlega um framboðsslag ríkisstjóra ónefnds Suðurríkis að verða valinn forsetaframbjóðandi demókrata. Það dylst engum að hér er átt við sitjandi forseta, allt frá nafni frambjóðandans til lit- ríkra kvennamála aðalpersónunn- ar. Kvikmyndagerðarmennirnir leggja sitt lóð á vogarskálina, Tra- volta er látinn herma fas og málfar Clintons og förðunar- og búninga- meistarar fullkomna verkið. Ái'angurinn er ótrúlegur. Travolta er nánast Clinton og vinnur sinn stærsta leiksigur sem þessi heill- andi, orðheppni en lausgirti stjórn- málamaður og allir afgreiða hann á þann veg að áhorfandinn hefur irekar samúð með persónunni þeg- ar upp er staðið. Enda trúverðugt og fyndið handrit Elaine May á þeim nótunum. May lætur þó Staunton ekki vera um of í sviðs- Ijósinu og hlifír okkur einsog hægt er við innbyrðisátökum hjónanna. Travolta er hinsvegar svo öflugur að maður finnur jafnan fyi'ir nær- veru persónu frambjóðandans þótt hann sé ekki í mynd, Prímary Colors fylgir söguþræði og frásagnarhætti bókarinnar. Sögumaðurinn er Henry Burton (Adrian Lester), ungur og efnileg- ur maður, barnabarn landsfrægs, þeldökks mannréttindaleiðtoga. Hann er nánast „sjanghæaður" inní innsta hring aðstoðarmanna forsetaefnisins á harðvítugri kosn- ingaherferð hans um Bandaríkin þver og endilöng. Þar starfar hann með skrautlegum hópi útsmoginna gáfumanna og klækjarefa. Þar fara fremst Richard Jemmons (Billy Bob Thornton), kaldhæðinn Suður- íikjamaður, arkítekt herferðarinn- ar, og Libby Holden (Kathy Bates). Ófyrirleitin baráttukona sem hefur átt við andlega vanheilsu að stríða, en er gamall og tryggur aðdáandi forsetans, orðhvöss og aðsópsmikil er hún sjálfkjörin í skítverkin. Paul Guilfoyle gerir annan meðreiðarsvein, Howard Ferguson, að kænum reddara og málamiðlara. Með þessum mann- skap endasendist Henry Burton, og er ekki alltaf jafnviss um hvort tilgangurinn helgi meðölin, sem geta orðið lútsterk, ef því er að skipta. Yfir hópnum vakir svo for- setafrúin, Susan (Emma Thomp- son), viljasterk og dugandi kona sem reynir að sjá í gegnum fingur sér hvað snertir lauslæti bónda síns en þolir ekki lygar hans og ábyrgðarleysi. Slök dómgreind og siðferðis- brestir eru þeir þættir sem þjaka aðalpersónuna, hann er semsagt ósköp mannlegur, einsog við hin. Hér er líka dregin upp ógeðfelld mynd af þeirri nornaleit sem fram fer að tilstuðlan frambjóðenda og stjórnmálamanna, sá hráskinna- leikur er ekki geðslegur. Sérfræð- ingar kafa ofaní hverja ruslatunn- una á eftir annairi og una sér best þar sem ódaunninn er verstur. Vont er þein’a ranglæti en verra er þeirra réttlæti, einsog þar stendur. Menn hika ekki við að slá undir beltisstað og eyðileggja líf annarra ef það hentar. Þessu lævi blandna andrúmslofti koma kvikmyndargerðarmennirnir svo trúverðuglega, en jafnframt skoplega til skila, að Prímary Colors verður bæði fróðleg og bráðskemmtileg mynd, söguleg með ótrúlegt afþreyingargildi. Ekki hefði maður trúað því að Tra- volta ætti eftir að verða slíkur skapgerðarleikari sem hann sýnir hér. Blæbrigðaríkur, fylginn sér og mögnuð hermikráka. I hans hönd- um er Stanton bæði viðsjárverður en ekki síður drengur góður. Thompson kemur síður á óvart, hún er rafmögnuð leikkona sem klónar Hillary þannig að báðar geta vel við unað. Thornton er frá- bær að vanda, en Kathy Bates stel- ur hverri einustu senu sem hún sést í sem hin gustmikla, eitilharða, þó sanntrúaða hugsjónakona sem varpar sér útí baráttuna fyrir gamla goðið sitt. Með sína samkyn- hneigð og geðrænu vandamál á herðunum. Hún hlýtur að vinna Óskarinn, og tilnefningarnar verða fjölmargar. May, Nichols og mynd- in, aðalverðlaunin koma öll til greina. Helsti gallinn er sviplítill leikur Adrians Lester í hlutverki Burtons, það er einnig hvað síst úr garði gert af hálfu May. Tónlist Ry Cooderser óvenju stillt, engu að síður vel viðeigandi. Willy Nelson kemur talsvert við á hljóðrásinni, líkt og í hinni mun síðri Wag the Dog. Enda Clinton mikill Nelson- aðdáandi, líkt og flestir Suðurríkja- menn. Primary Colors sýnir að menn verða ekki síður forsetar vegna ágalla annarra en eigin ágætis, að kosningabarátta felst jafnmikið í ódrengskap sem heilindum. Það mæðir mikið á Clinton þessa dag- ana. Ætli að hann sé nokkuð betri eða verri en aðrir? Sæbjörn Valdimarsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.