Morgunblaðið - 21.10.1998, Side 45

Morgunblaðið - 21.10.1998, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 45 fatlaðra sem hverja aðra mannrétt- indabaráttu, væri það sem helst væri til umræðu úti um allan heim árið 1997. Eitt af þeim málum sem Ásta bar mjög fyrir brjósti var þróunarað- stoð Islendinga hvað varðar málefni fatlaða. Hún taldi að ríkri þjóð eins og Islendingum bæri skylda til að styðja við bakið á fátækari þjóðum og staða fatlaðra sem undirmáls- hóps þessara samfélaga væri þannig, að gera þyrfti sérstakar ráðstafanh' þeim til handa. Ásta heimsótti sjálf Litháen og kynnti sér stöðu þroskaheftra þar í landi og hafði sú ferð djúp áhrif á hana. Hún gladdist því mjög þegar Landssamtökin Þroskahjálp sáu sér fært að styrkja systursamtök sín í Litháen með peningagjöf. Sú gjöf var afhent af forseta Islands, herra Ólafi Ragnari Grímssyni, og frú Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur hinn 15. júní síðastliðinn og var eitt af síðustu verkefnunum sem Guðrún Katrín Þorbergsdóttir leysti af hendi á erlendri grund. Landssamtökin Þroskahjálp óskuðu eftir því við Ástu að hún yrði viðstödd afhendinguna en vegna sjúkdómsins gat hún ekki orðið við þeirri ósk. Áður hafði Ásta beitt sér fyrir því að Þroskahjálp í samvinnu við systursamtök sín í Svíþjóð stæði að uppbyggingu dagheimilis í Rú- meníu fyrir atferlisskaðað þroska- heft fólk. Ásta B. Þorsteinsdóttir var þannig manngerð, að hún sá fyrst og fremst tækifærin í hverju máli, ekki erfiðleikana við framkvæmd- ina. Þessir eiginleikar hennar og ákafi við að ná árangri, hlutu að leiða til þess að hún var ekki óum- deild, enda verður það sjaldnast grafskrift mikilla hugsjónamanna. Það er hverjum manni hollt að velta fyrir sér hversu vænlegra væri hér í heimi ef fleiri einstaklingar eins og Ásta kæmust til áhrifa. Fólk sem kæfir ekki alla umræðu í vangavelt- um um erfiðleika við tæknilega út- færslu atriða, heldur hoi'fir fram á við með hugsjón og réttlæti að leið- arljósi. Þegar Ásta hætti sem formaður Þroskahjálpar fór hún að feta sig á vegi stjórnmálanna og náði undra skjótum frama á þeirri braut. Ásta var auðvitað pólitísk í störfum sín- um sem formaður Þroskahjálpar og hafði þar gildin þrjú frelsi, jafnrétti og bræðralag að leiðarljósi. Ásta hefði vafalítið orðið góður stjórn- málamaður, en hvort stjórnmál hefðu farið vel með hana er önnur saga, stjórnmál sem stöðugt virðast byggjast á málamiðlunum. Mála- miðlun um frelsi, jafnrétti og bræðralag var ekki hennar stíll. Síðasta samtal mitt við Ástu snerist meðal annars um þær fréttir sem þá höfðu borist um að öryrkjar hyggðu á framboð til þings til að ná fram auknu réttlæti. Ásta B. Þorsteins- dóttir taldi að hún væri til þess komin á þing. Þegar Ástu B. Þorsteinsdóttur er minnst koma einnig upp í hugann mai'gar ógleymanlegar gleðistundir. Ásta var glaðsinna og hafði einstaka hæfileika til að umgangast allt fólk af virðingu og sem jafningja. Marg- ir þroskaheftir einstaklingar á Is- landi nutu þessara mannkosta hennar og hafa því misst góða vin- konu og syrgja hana. Við sem eftir lifum og deildum hugsjónum með Ástu B. Þorsteinsdóttur finnum til mikillar ábyrgðar, en söknum vinar í stað, okkar er nú að halda fánan- um á lofti. Mestur er þó missir hennar nán- ustu, eiginmanns, barna, móður, systkina, tengdabarna og tengdamóður. Megi algóður Guð og minningin um mikla konu styrkja þau og styðja. Ég og fjölskylda mín þökkum samfylgdina. Friðrik Sigurðsson. Ásta B. Þorsteinsdóttir var flott kona. Hún geislaði af lífsorku og glæsileika. Hún féll í valinn á miðj- um starfsdegi. Það er sárara en tárum taki. Hún átti svo margt ógert á þinginu, ógert í málefnum fatlaðra, ógert á sviði mannréttinda og í menntunar- og heilbrigðismál- um. Samt hefur Ásta B. Þorsteins- dóttir komið meiru í verk á ævi sinni en flestir aðrir. Hún átti sér draum um betra líf fyrir allt fatlað fólk, draum um að það fengi aðgang að öllu mannlegu samfélagi og við- eigandi stuðning til að nýta sér gögn þess og gæði. Hún fór sjaldan troðna slóð og nýtti persónulega reynslu sína, sem og víðtæka þekk- ingu á málaflokknum, í baráttu fyr- ir réttindum og bættu lífi fatlaðs fólks hér og erlendis. Flestar mikil- vægar umbætur í lífi fatlaðra á Is- landi síðustu áratugi, bera þes merki að Ásta kom þar að verki, „bretti upp ermamar og potaði málinu eitthvað áleiðis". Hún vissi hvert stefna bar og kvikaði aldrei frá meginmarkmiðum sínum. Hún beitti sér óhikað fyrir vagninn í erf- iðum málum, svo sem ef fylgja þurfti eftir réttindum fatlaðs ein- stakling í skóla, hjá Tryggingar- stofnun eða á öðrum vettvangi. Þrátt fyrir margfalt starf heima og heiman hafði Ásta alltaf tíma til að hlusta, leggja á ráðin og mæta á fundi, ef vera kynni að slíkt bætti eitthvað líf fatlaðrar manneskju. Líklega hefur fatlað fólk á íslandi aldrei átt sér skeleggari liðsmann. Margs er að minnast. Við vissum hvor af annarri alla tíð, en það var ekki fyrr en við Ásta hittumst á fundi hjá „Samtökum foreldra barna með sérþarfir" 1982 eða 83, að örlaganomirnar spyrtu saman líf okkar og bama okkar. Unnur Hermannsdóttir var þá formaður samtakanna, en við Ásta sáum um útgáfu lítils bæklings, For- eldrapistilsins. Líklega var þetta fyrsta tilraun okkar beggja til að móta álit annarra til fatlaðra. Við lögðumst saman á árarnar, foreldr- arnir í „Litla félaginu" eins og við kölluðum það. Við deildum stund- um um leiðir en sjaldnast um mark- mið. Til þess var hin sameiginlega reynsla og gagnkvæmur skilningur of djúpstæður. Við vorum öll stolt af því þegar Ásta var kjörin til for- ystu Þroskahjálpar. í stjórnartíð hennar urðu Landssamtökin Þroskahjálp að öflugum og virtum þrýstihópi í íslensku samfélagi. Við unnum talsvert saman þann tíma sem ég var formaður menntamála- nefndar Þroskahjálpar og studdum við þá oft hvor við bakið á annarri. Árið 1989 vann ég að skemmti- legu verkefni með dr. Sigrúnu Stefánsdóttur fréttamanni. Við bjuggum til sex sjónvarpsþætti um líf fatlaðs fólks og nefndum þættina „Haltur ríður hrossi". Ásta lagði þáttunum það lið sem hún mátti. Bæði hún og Ásdís Jenna komu þar fram og lögðu með sér reynslu sína af því að búa með fötlun. Þetta var ómetanlegt og uppspretta vináttu okkar þriggja. Ásta lagði ríka áherslu á það að færa bestu þekkingu á málum fatl- aðra til Islands. Hápunktur þeirrar viðleitni er örugglega heimsþingið „Eitt samfélag fyrir alla“, sem haldið var í Háskólabíói í júní 1994. Það var samstarfsverkefni Samein- uðu þjóðanna, bandariski-a samtaka um málefni fatlaðra og íslensku félaganna Þroskahjálpar og Ör- yrkjabandalagsins. Nýjungar á sviði rannsókna og stuðnings við fatlað fólk voru yddaðar fram í Háskólabíói þessa björtu vordaga. Þarna voru „Staðlaðai' reglur“ Sameinuðu þjóðanna um rétt fatlaðra kynntar í fyrsta sinn, en það var merkilegur áfangi í rétt- indabaráttu fatlaðra í heiminum og heimsviðburður. Þarna deildu margir virtustu vísindamenn heims á þessu fræðasviði þekkingu sinni með þátttakendum og þarna lögðu íslenskir foreldrar og kennarar sitt af mörkum. Þarna kom líka fram dóttir Ástu og Ástráðar, Ásdís Jenna og vakti almenna athyggli og aðdáun með framsögu sinni og framgöngu allri. Ásta Þorsteins- dóttir átti hugmyndina að þessum viðburði. Hún bar hita og þunga af því að hrinda hugmyndinni í fram- kvæmd. Árangurinn var lyginni líkastur eða ki-aftaverki. Við sem komum að þessu verki með Ástu getum verið sammála um að sjald- an hafi jafnfáir unnið jafnmikið starf við undirbúning þings eins og hér var, undir stífri og óbilandi stjóm fyrirliðans, Ástu B. Þor- steinsdóttur. Við kölluðum hana okkar á milli „Stórfrúna“, en í þeirri nafngift var blanda af aðdáun og sjálfsvörn. Sjálf vann Ásta að þessu verki mestallan sólarhring- inn í marga mánuði og hafði allt í hendi sér. Hún ruddi burt öllum hindrunum og neitaði að hugsa um það að verkefnið var í raun allt of stórt fyrir okkur. Þetta þing kom Islandi á kortið í sögu réttinda- baráttu fatlaðra og skipar líkan sess í þeirri sögu og Reykjavíkur- fundur þeirra Reagans og Gorbat- sjovs gerir í sögu kalda stríðsins. Þegar upp var staðið kom meira að segja í ljós að þingið stóð undir sér peningalega. Bestu minningarnar um Ástu tengjast samvinnu og samveru heima hjá þeim hjónum, Ástráði og Ástu, í góðum hópi. Bandarísku prófessorarnir Danne og Phil Ferguson og sonur þeirra Ian, sem oft hafa lagt menntamálum fatlaðra á íslandi lið, áttu þar góðar stundh' með okkur. Vænst þykir mér J)ó um minninguna um heimsókn Ástu á Landspítalann haustið 1988. Sonur minn lá þar meðvitundarlaus í nokkra daga eftir að hafa nær drukknað í baði. Ásta kom til mín með útbreiddan faðm og tvær flösk- ur. Af dönskum bjór. Hún skildi ótta minn og taldi í mig kjark. Ásta bjó við mikið lán í persónu- legu lífi. Ástráður, eiginmaður hennar, og synirnir tveir studdu hana á alla lund og sýndu henni ást og blíðu. Ásdís Jenna magnaði upp kraft hennar og hefur náð árangri sem fáa óraði fyrir. Ásdísi kippir í kynið. Hún er yndisleg og hæfileik- arík ung kona, og skáld gott eins og Jenna, amma hennar. Hún stundar nám við Háskóla Islands. Hún mun aldrei láta bugast, þrátt fyrir alvar- lega fötlun. Við Benedikt vottum Ástráði og fjölskyldunni allri samúð á þessum dimmu dögum. Við minn- umst Ástu með virðingu og þakklæti. Án framlags hennar væri líf sonar míns örðugra og fátæk- legra en það er. Dóra S. Bjarnason. Blessuð, margblessuð, ó blíða sól, blessaður margfalt þinn bestur skapari, fyrir gott allt, sem gjört þú hefur uppgöngu frá og að enda dags. Dreifðir þú, dagstjarna, dimmu nætur, glöð, af glóbreiðri götu þinni. Ljós fékkstu lýðum langar, á gangi, dagstundir dýrar, ó, dagstjama! Þessi erindi úr Sólsetursljóði Jónasar Hallgrímssonar finnast mér eiga vel við nú þegar ég minn- ist Ástu B. Þorsteinsdóttur vinkonu minnar og samherja. Ásta Bryndís minnir mig á sólskin. Það var bjart yfir henni og stafaði frá henni öryggi, hlýju og geislandi glaðværð. Hugmyndir hennar og hugsjónh' voru uppbyggilegar, framsýnar og oft á tíðum ögrandi. Hún vann ötul- lega að því að koma þeim í fram- kvæmd og varð vel ágengt á allt of stuttri lífsleið. Ég kynntist Ástu fyrst á vett- vangi Landssamtakanna Þroska- hjálpar. Er ég tók sæti í stjórn samtakanna, tilnefndur af mínu fagfélagi, var hún formaður. Við vorum bæði á þeirri skoðun að for- eldra- og hagsmunafélög og fag- félög ættu að vinna saman að þróun og breytingum eins og þeim sem nauðsynlegar væru í málaflokki fatlaðra. Ekki hvert í sínu lagi, eða á móti hvert öðru, eins og því miður hefur gerst sums staðar erlendis. Þykir mér þetta lýsandi dæmi um víðsýni Ástu og samstarfsvilja. í minningunni líða fram í hugann fjölmörg landsþing og fulltrúafund- ir sem við sátum saman. For- mennska fyrir stórum landssam- tökum er ekki samfelldur dans á rósum og ekki alltaf einhugur um öll mál. Því var það mikilvægt að hafa á bak við sig góðan hóp af dyggum stuðningsmönnum. Ásta var tilfinningarík baráttukona og átti létt með að fylkja fólki til liðs við stefnu sína. En hún fékk, eins og aðrir sterkir leiðtogar, sinn skerf af mótlæti og tók því sem að höndum bar í því efni. Á þessum fundum samtakanna hefur það svo verið til siðs að koma saman að loknu dagsverki og syngja og gleðj- ast saman. Var Ásta jafnan hrókur alls fagnaðar á þessum hátíðar- stundum. Við Ásta vorum einnig samherjar í stjórnmálum. Ég átti þess kost að vinna náið með henni fyrir síðustu Alþingiskosningar og er það óg- leymanlegur tími. Þar sýndi Ásta enn einu sinni, hvílík hamhleypa hún var til verka, og hversu fjölhæf hún var. Lögð var nótt við dag og hún gerði miklar kröfur til sjálfrar sín eins og jafnan, en einnig til þeirra sem unnu með henni. Ég held að það hafi hjálpað til að við höfðum dálítið sama vinnulag, best undir álagi. Frami Ástu í stjórn- málum var skjótur, en fyllilega verðskuldaður. Manneskja með hennar bakgnmn og hæfileika átti sannarlega erindi á Alþingi Islend- inga og við hana voru bundnar miklar vonir. Þar naut hennar við í allt of skamman tíma. Það er ekki síst fyrir góða vináttu sem ég minnist Ástu með miklum hlýhug. Hún átti svo gott með að gleðjast með fólki og það virtist sama hversu önnum kafin hún var, alltaf fann hún tóm til að samgleðjast vinum sínum. Þess naut ég í tengslum við merkis- viðburði hjá mér og fjölskyldu minni. Ásta stóð aldeilis ekki ein í öllu því sem hún áorkaði. Fjöl- skylda hennar var í senn hennar griðland og uppspretta. Við hlið hennar stóð ávallt Ástráður eigin- maður hennar og studdi konu sína í blíðu og stríðu. Það er áreiðanlega vandfundinn annar eins öndvegis- maður og Ástráður er. Ásta er okk- ur öllum sem kynntumst henni harmdauði. Það eru of fáir eldhug- arnir á meðal okkar og því mikill missir er þeir falla frá langt um ald- ur fram. Mestur er missir eigin- manns, barna þeirra, móður hennar og annarra ástvina. Færi ég þeim öllum innilegar samúðarkveðjur mínar og konu minnar. Vaktir þú fugla og fógur blóm vaktir, söng þér að syngja og sætan ilm færa. Hníg nú hóglega, hægt og blíðlega, vegþreytir vindsala, ó, vegstjama! Ásta vakti okkur samherja sína með lífskrafti sínum og mun verða okkur vegstjarna um ókomna tíð. Blessuð sé minning Ástu Bryndísar Þorsteinsdóttur. Kristján Sigurmundsson. Okkur er mikill harmur í huga er við kveðjum Ástu Binnu frænku okkar. Hún hefur skipað sérstakan sess í hjarta okkar allt frá því er hún dvaldist sumarlangt á heimili fjölskyldu okkar í Danmörku, þá nýfermd. Þá vorum við enn litlar stelpur, en við skynjuðum þá strax að þessi frænka okkar frá Islandi var mjög sérstök. Okkur er enn minnisstætt að strákarnir í götunni lögðu sig í framkróka við að ná at- hygli hennar með því að hjóla hring eftir hring fram hjá húsinu okkar og hrópa nafnið hennar. En fegurð hennar var ekki aðeins á ytra borðinu því strax á þessum árum voru mannkostir hennar orðnir ljósir. Við höfum ávallt litið upp til frænku okkar og verið stoltar af verkum hennar, enda hafa þau ver- ið þess eðlis að um hefur munað. Ásta hefur verið óeigingjörn í öllu sínu starfi, en notað ómælda krafta sína í að bæta líf annarra. Verk hennar í þágu fatlaðra hafa vakið þjóðarathygli þó ekki væru þau unnin í þeim tilgangi. Hún var hug- sjóna- og baráttukona sem átti mik- ið erindi á þing og þar var hún þeg- ar farin að láta að sér kveða. Ásta var alltaf ræktarsöm við sitt fólk, stóra jafnt sem smáa. Þau eru ófá skiptin sem fjölskylda okkar hefur notið gestrisni þeirra Ástráðs, bæði meðan þau voru bú- sett í Danmörku og hin síðari ár á fallegu heimili þeirra á Seltjarnar- nesinu. Þessi ræktarsemi Ástu birt- ist einnig í því að hún hefur verið driffjöðrin í að kalla saman stórfjöl- skylduna af Smyrilsvegi 28 til ætt- armóta. Hún skipulagði, deildi út verkefnum og hélt utan um allt verkið. Ásta var einmitt byrjuð að undirbúa næsta ættarmót sem halda átti síðasta sumar þegar hún greindist með þann sjúkdóm sem nú hefur dregið hana til dauða. Fyrir okkur systurnar eru nöfnin Ásta og Benni eitt hugtak, samhent hjón sem áunnu sér virðingu og ást samferðafólks síns. Nú er Ásta horfin allt of snemma og við mun- um sakna hennar sárt. Elsku Ástráður, Arnar, Ásdís Jenna og Þorsteinn Hreiðar, Adda, Hafdís og Víglundur. Ykkur viljum við votta okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Ástu Binnu. Elísabet, Kristín, Margrét og Anna María Valtýsdætur. Fas hennar og framkoma dró að sér athygli hvar sem hún kom og hvert sem hún fór. Lífleg, falleg, heillandi og um leið sköruleg og rökföst gat hún látið fjöll færast úr stað, með óþrjótandi elju og sann- færingarkrafti þess sem skilur og veit. Asta Bryndís Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur og alþingis- maður var ávallt heil í því sem hún tók sér fyrir hendur, hún setti markið hátt og aldrei var um hálf- kák að ræða. Kynni tókust með okkur Ástu þegar ég tók að mér formennsku fyrir nýju sameinuðu félagi hjúkr- unarfræðinga í janúar 1994. Ásta var þá formaður Þroskahjálpar, sem hefur höfuðstöðvar sínar á 1. hæð á Suðurlandsbraut 22, en skrifstofa Félags íslenskra hjúkr- unarfræðinga er á 3. hæð í sama húsi. Oft hittumst við á hlaupum í anddyrinu, eða litum við þegar við vissum af hvor annarri í húsinu. Síðar áttum við nánara samstarf um stjórnmál og heilbrigðismál. Ætíð geislaði af henni hreystin, hressileikinn og krafturinn. Hún var að vinna að málefnum sem stóðu hjarta hennar nær og sem hún barðist fyrir af alhug. Síðar fór hún á Alþingi, var varaþingmaður. Þegar hún settist á þingmanna- bekkinn, var hún komin til að láta að sér kveða. Hennar meginmark- mið var að berjast fyrir bættum hag þeirra sem minna máttu sín, hún þekkti aðstæður þeirra af eigin raun, bæði í leik og starfi. Málefnin voru brýn og það mátti engan tíma missa. Á Alþingi var hún komin í aðstöðu til að hafa raunveruleg áhrif á stöðu sjúkra, þroskaheftra og annarra sem eiga undir högg að sækja, og var mikils af henni að vænta sem málsvari þeirra. Tíminn sem henni var gefinn var hins veg- ar allt of stuttur. Hjúkrunarsamfélagið sér nú eftir einum sínum mætasta félaga. Ásta Bryndís Þorsteinsdóttir var stolt af því að vera hjúkrunarfræðingur og átti farsælan feril að baki við hjúkr- unarstörf og stjórnun á heilbrigðis- stofnunum. Hún var sterkur málsvari hjúkrunar og hjúkrunar- fræðinga. Hjúkrunarfræðingar voru einnig stoltir af félaga sínum og fylgdust af áhuga með störfum hennar og frama í félags- og stjórn- málum. Hjúkrunarsamfélagið kveð- ur félaga sinn með harm í huga. Guð blessi minningu Ástu B. Þor- steinsdóttur og styrki fjölskyldu hennar í djúpri sorg. Ásta Möller, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.