Morgunblaðið - 21.10.1998, Qupperneq 50
V 50 MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
JOH SAGC>1 /VIBKAÐ >
oveeeA mier ekki i'p^g j
f SKILOIZÐU EWCI AP és'
v/wíAPHieewsr/JPbéR l
ofseintí >e<3/»le as
ER KO/MIMN iA eULLA FEieE>
EK OA*Ö<SULEST AE>
5TOPPA
Ferdinand
Góðan daginn
fýlupoki...
Viltu fúl-
mennsku?
Þarna hefurðu
það!
Þetta var gaman,
þú ert fýlupokalega
skrýtin, Magga...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Heilagur
Davíð
frá Pétrí Vilhjálmssyni
ÞAÐ er svolítið sérstakt til þess að
hugsa hvað fjölmiðlafólk nútímans
starfar ólíkt því sem tíðkast hefur í
veröldinni í gegnum tíðina. það
„fjölmiðladekur" sem Ingibjörg
Sólrún fékk í vor og forsætisráð-
herrann fáraðist
yfir hefur nú
snúist upp í and-
hverfu sína og
fjölmiðlarnir
sækjast eftir áliti
hans á málefna-
samningi félags-
hyggjuflokkanna
og sjónvarpa við-
talinu. Hvílík
vinnubrögð! Mál-
efnasamninginn
kallar hann bull og vitleysu og
heldur þeirri firru fram að hann
kosti ríldssjóð 40-60 milljarða á ári
umfram núverandi fjárlög. Ef það
gengur eftir og kostnaðurinn er
slíkur sýnist mér allt stefna í að
Nostradamus hafi enn einu sinni
rétt fyrir sér og heimsendir verði
1999.
Af þessum ummælum forsætis-
ráðherrans að dæma voru bygging
Perlunnar og Ráðhússins í hans
borgarstjóratíð einungis bemsku-
brek! Eða jafnvel samþykkt í öl-
æði. Hvert er hugsanlegt söluand-
virði þess kvóta sem núverandi
ríkisstjórn rétti upp í hendurnar á
mjög fámennum og takmörkuðum
hópi íslendinga á síðasta ári? 30
milljarðar, eða kannski 40? Seint
myndi ég standa fyrir framan
myndavélar fjölmiðlanna með slík-
ar yfirlýsingar sem hafa dunið yfir
þjóðina úr munni forsætisráðherr-
ans á síðustu misserum. Að
minnsta kosti ekki ef ég hefði sjálf-
ur framkvæmt hluti sem best er að
lýsa sem bulli og vitleysu!
Heilvita stjórnmálamönnum
dytti aldrei í hug að eigna sjálfum
sér heiðurinn af því hve hugbúnað-
argerð er farin að skila miklu í
gjaldeyristekjur. A.m.k. ekki á
meðan háskólinn fær ekki það fjár-
magn sem til þarf svo hægt sé að
kenna fólki viðeigandi greinar, þ.e.
hugbúnaðargerð!
En hvað er það sem felst í þess-
um „óstjórnlega kostnaðarsömu"
tillögum og stefnumálum félags-
hyggjuafianna? Getur verið að
mannréttindi, samúð, velvild og
jafnvel tilfinningar séu þar á bak-
við? Gleymdist kannski að útskýra
sum grundvallarhugtök mannlegra
samskipta fyrir forsætisráðherr-
anum á sínum tíma? Það er engu
líkara! Annars sýnist mér að bless-
aður karlinn sé bara orðinn gamall
og farinn að gleyma. Honum og
hans tindátum er það þó til vor-
kunnar að vera bara vesalingar og
grey sem engum heilvita manni
dytti í hug að vera vondur við. Sem
betur fer fær stór hluti lands-
manna „óbragð í munninn" við að
hlusta á yfirlýsingar forsætisráð-
herrans og litlu púkanna á öxlum
hans! Og vissulega á ég þar við þá
mætu menn Hannes Hólmstein og
Jón Steinar.
Davíð veit að innan Framsókn-
arflokksins er mikil óánægja með
stjórnarsamstarfið. Hann veit líka
að hans pólitíski ferill er á enda ef
hann heldur ekki völdum eftir
næstu kosningar. Davíð er nefni-
lega ekki vitlaus maður. Og þeir
sem ekki eru vitlausir geta vel lært
og ég veit fyrir víst að út um allan
heim eru skólar sem bjóða upp á
sérsniðin kurteisisnámskeið fyrir
byrjendur og glaður skyldi ég
borga eitt fyrir Davíð!
Forsætisráðherrann okkar er
hræddur. Og hræðslan brýst út í
hroka og yfirgangi gagnvart
minnimáttar. Spurningin er bara
hversu lengi þjóðin sættir sig við
lítilsvirðinguna sem óneitanlega
fylgir störfum Davíðs Oddssonar.
Enn og aftur hefur hann sýnt sitt
rétta eðli. Eðlið sem forseti vor
lýsti svo vandlega úr ræðustóli á
hinu háa Alþingi fyrir nokkrum ár-
um. Eg neita að trúa því að t.d.
læknar þessa lands séu tilbúnir að
fyrirgefa þá lítilsvirðingu sem þeir
hafa orðið fyrir á síðustu vikum.
Það er ekki raunhæft að ætla að
nokkur einasti almennur ríkis-
starfsmaður kjósi áframhaldandi
ástand. Hvað þá íslenskir náms-
menn!
I Morgunblaðinu hinn 4. októ-
ber sl. birtust niðurstöður könnun-
ar Félagsvísindastofnunar HI þar
sem fram kemur að 80% fólks á
aldrinum 18-24 ára hyggjast kjósa
stjórnarflokkana í vor. Mín spurn-
ing til þessa hóps er ósköp einföld:
Hvað hafa núverandi stjórnar-
ílokkar gert ykkur til hagsbóta á
kjörtímabilinu? Eru það hin
„óstjórnlega háu“ námslán eða
jafn réttur allra til náms á fram-
halds- og háskólastigi? Er það sú
gífurlega upphæð sem ríkissjóður
lætur framhaldsskólanemum utan
af landi í té undir heitinu dreifbýl-
isstyrkur? Er eðlilegt að allir
framhaldsskólanemar úr dreifbýl-
inu og flestir háskólanemar þurfi
að vinna samhliða skólanum á vet-
urna? Eru það kannski kennararn-
ir sem gætu ekki verið betri?
Kannski eru þær aðstæður sem
ríkisstjórnin hefur skapað ungu
fólki í barneignum sem eru svona
„lokkandi!“ Barneignafríið langa,
langa og hið óbrigðula heilbrigðis-
kerfi? Hvert stefnir ungt fólk á Is-
landi? Til framtíðar eða oní skúffu
hjá heilögum Davíð?
En huggum okkur við þá stað-
reynd að allt endar þetta áður en
langt um líður. Ég hef ekki nokkra
trú á að Davíð geti starfað í stjórn-
arandstöðu - og í þá stöðu skal
Sjálfstæðisflokkurinn á næsta
kjörtímabili. Of stór hluti þjóðar-
innar hefur lifað við ósanngjörn
kjör síðastliðin sjö ár. Nú er mál
að linni.
PÉTUR VILHJÁLMSSON,
nemi í Fjölbraut við Ánnúla
Pétur
Vilhjálmsson
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.