Morgunblaðið - 21.10.1998, Side 64

Morgunblaðið - 21.10.1998, Side 64
Drögum næst 27. október happdræjti &Lf|f HÁSKÓLA ISLANDS MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 MIÐYIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Ávöxtunarkrafa 17 ára spariskírteina hefur lækkað hratt síðustu daga Fór í fyrsta sinn niður fyrir 4% ÁVÖXTUNARKRAFA 17 ára spariskírteina hefur nú í fyrsta sinn lækkað niður fyrir 4% og er nú 3,9%. Til samanburðar var ávöxtunarkrafan 4,90% í upphafí ársins. Ávöxtunarkrafa spariskírtein- anna hefur lækkað hratt síðan fjár- málaráðherra heimilaði Lánasýslu ríkisins sl. fimmtudag að nota allt að tveimur milljörðum króna til þess að kaupa á markaði og inn- leysa spariskírteini ríkissjóðs til langs tíma, eða um alls 28 punkta. Að sögn Rósants Torfasonar hjá viðskiptastofu íslandsbanka er lík- legt að ávöxtunarkrafan haldi áfram að lækka, enda halda eig- endur spariskírteina að sér hönd- um þegar ávöxtunarkrafan er á niðurleið í þeirri von að fá hærra verð fyrir bréfin. „Það sem gerist í kjölfar þessarar ákvörðunar fjármálaráðherra er að ávöxtunarkrafa 17 ára bréfa lækkar mjög hratt og þetta hefur áhrif á önnur langtímabréf. Menn eru að laga verðlagningu á öðrum bréfum á markaðnum að þessu breytta um- hverfí. Þetta hefur gert það að verkum að ávöxtunarkrafa á öðrum verðtryggðum langtímabréfum hef- ur lækkað, t.d. aðrir flokkar spari- skírteina, en ekki er ólíklegt að rík- issjóður hefji kaup á fleiri flokkum á næsta ári,“ sagði Rósant í samtali við Morgunblaðið. Að hans sögn er ríkið með þessum aðgerðum að borga 70-80 milljónum meira íyrir bréfín en það hefði þurft að gera ef ávöxtunarkrafan væri 28 punktum hærri. Veltan með 17 ára spariskírteini á Verðbréfaþingi frá 15. okt sl. er tæpar 600 milljónir að mark- aðsvirði. ■ Hefur lækkað /18 Búum fækkar og tekjur lækka HEILDARTEKJUR kúabænda og maka þeirra lækkuðu um rúmlega 9% á tímabilinu 1989 til 1996. HeUd- artekjur sauðfjárbænda og maka þeirra lækkuðu á sama tímabili um 4%. Á sama tíma hækkuðu tekjur annarra stétta í landinu. Þetta kem- ur fram í skýrslu sem nefnd á vegum landbúnaðarráðherra vann, en í henni eru lagðar fram tillögur um opinberan stuðning við bændur í hefðbundnum búskap. í skýrslunni kemur fram að heild- artekjur sauðfjárbænda og maka þeirra voru 1.348 þúsund krónur að meðaltali árið 1996 og þar af námu tekjur af búrekstrinum 770 þúsund krónum. Mælt á fóstu verðlagi höfðu heildartekjurnar lækkað um 55 þús- und krónur eða um nær 4%. Heildar- tekjur kúabænda og maka þeirra voru 1.528 þúsund krónur að meðal- tah árið 1996 og þar af námu tekjur af búrekstrinum 1.197 þúsund krón- um. Búum með framleiðslurétt hefur fækkað um 883 I skýi-slunni kemur fram að heild- artekjur bænda í hefðbundnum land- búnaði eru lágar í samanburði við tekjur annarra viðmiðunarstétta. Tekjur iðnaðarmanna voru hæstar, eða 178 þúsund krónur á mánuði árið 1996, og voru þær að meðaltali rúm- lega tvöfalt hærri en tekjur bænda, sem voru á bilinu 72-75 þúsund krónur. Búum með framleiðslurétt fækk- aði á tímabilinu 1989-1996 um 883, eða 22%, og samsvarar þessi fækkun því að eitt bú hafi hætt þriðja hvern dag ársins á þessu átta ára tímabili. Blönduðum búum hefur fækkað mest, eða um 34,8%, og hreinum sauðfjárbúum um nálægt 23,4%. ■ Viðskipti með/32 Ný brú yfir Öxará Morgunblaðið/Freysteinn G. Jónsson NÚ stendur yfir gerð brúar yfír Öxará á Þingvöllum og annast hana verktakafyrirtækið Feðgar ehf. Áætlað er að brúin verði tilbúin fyrir almenna umferð 15. nóvember næstkomandi. Var ekki amalegt að vinna við bníarsmíðina í blíðunni þótt kalt væri. Guðrún Katrín jarðsungin í dag ÚTFÖR Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur forsetafrúar verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag kl. 11 f.h. Hr. Karl Sigur- bjömsson, biskup Islands, jarð- syngur, og er 500 gestum boðið sérstaklega til útfararinnar. Meðal þeirra eru þjóðhöfð- ingjar allra Norðurlandanna. Martti Ahtisaari, forseti Finn- lands, og kona hans, frú Eeva Ahtisaari, komu til landsins í gærkvöldi. Aðrir þjóðhöfðingjar koma til landsins í dag. Flestai- opinberar stofnanir, þar á meðal skólar, verða lokaðar til kl. 13 í dag. Lögreglan í Reykjavík verð- ur með mikinn viðbúnað vegna útfararinnar og verða um 100 lögreglumenn að störfum við umferðarstjórn og öryggis- gæslu vegna komu norrænu þj óðhöfðingj anna. ■ Útfór/4 Eignir lífeyrissjóðanna námu tæpum 353 milljörðum króna um síðustu áramót Verðbréfaeign erlendis næstum þrefaldaðist ERLEND verðbréfaeign lífeyris- sjóðakerfísins í landinu nær þre- faldaðist á árinu 1997 samanborið við íyrra ár og nam 25,6 milljörðum króna um síðustu áramót eða 7,3% af heildareignum. Mest áttu lífeyr- issjóðirnir í erlendum verðbréfa- sjóðum eða 9,6 milljarða króna, í hlutabréfasjóðum 7,5 milljarða króna, í hlutabréfum 7,1 milljarð króna og í skuldabréfum 1,4 millj- arða króna. Þá jókst einnig innlend hluta- bréfaeign lífeyrissjóðanna verulega á síðasta ári og nam 6,4% af heildar- eignum þeirra í árslok eða rúmum 22 milljörðum króna og eru þá eign- ir þeiira í innlendum og erlendum hlutabréfasjóðum upp á rúma 8 milljarða króna ekki meðtaldar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu bankaeftirlits Seðla- banka íslands um starfsemi lífeyris- sjóðanna á árinu 1997. Um síðustu áramót töldust eignir sjóðanna sam- anlagt nema tæpum 353 milljörðum króna og höfðu vaxið að raungildi um 12,8% miðað við hækkun neysluverðsvísitölu. Ráðstöfunarfé á árinu nam rúmum 82 milljörðum króna og óx um 29,1% frá árinu áð- ur. Raunávöxtun eigna allra sjóð- anna var 8,1% á síðasta ári, en 7,9% þegar kostnaður við rekstur þeirra hefur verið tekinn frá, en rekstrar- kostnaður á árinu nam samanlagt rúmum 800 milljónum króna. Ef litið er til ráðstöfunar fjár- magns lífeyrissjóðanna á árinu 1997 kemur í ljós að þeir keyptu skulda- bréf ríkissjóðs og ríkisstofnana fyr- ir 7,3 milljarða króna og bæjar- og sveitarfélaga fyrir 4,5 milljarða. Þá voru keypt skuldabréf fjárfesting- Lífeyrissjóðir 1997 Ráðstöfun fjármagns til útlána og skuldabréfakaupa í milljörðum kr. Fjárfestingarlánasjóðir 18,6 þ.a. húsbréf 10,9 þ.a. húsnæðisbréf 3,6 Verðbréfasjóðir 11,0 þ.a. erlendir 5,1 Hlutabréf 11,0 Bankar og sparisjóðir 8,6 Fyrirtæki 7,6 | Ríkissjóður og rikisstofnanir 7,3 | Hlutabréfasjóðir 4,7 Bæjar- og sveitarfélög 4,5 Einstaklingar (sjóðfélaqar) 4,2 Eignarleigur 2,7 Erlend skuldabréf 0,9 arlánasjóða, þ.m.t. húsbréf, íyrir 18,6 milljarða og bréf banka og sparisjóða fyrir 8,6 milljarða. I verðbréfasjóðum voru keypt bréf fyrir 11 milljarða, þar af 5,1 millj- arður í erlendum verðbréfasjóðum. Hlutabréf voru keypt fyrir 11 millj- arða króna og lán til sjóðfélaga námu 4,2 milljörðum króna. 66 lífeyrissjóðir starfandi Um síðustu áramót voru starfandi 66 lífeyrissjóðir og þar af tóku níu ekki lengur við iðgjöldum, þannig að 57 sjóðir teljast þá fullstarfandi. Þetta er óbreyttur fjöldi lífeyrissjóða frá árinu áður, en lífeyrissjóðum hef- ur fækkað um 22 frá því í ársbyrjun 1992. 36 sjóðir töldust vera sameign- arsjóðir án ábyrgðar launagreið- anda, 19 sameignarsjóðir með ábyrgð annarra og 11 séreignasjóðir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.