Morgunblaðið - 25.10.1998, Page 4
4 SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 18/10 - 24/10
►FIMM íslendingar náðu
tíndi Ama Dablam, 6856
m.y.sj' Himalajafjölluiri á
þriðjudag.
►VONSKUVEÐUR var á
Vestijðrðum og á Norður-
landi á fimmtudag og föstu-
dag. Mikinn snjó settí niður
og fjallvegir lokuðust flestir
á Vestijorðum. Ófært var um
Víkurskarð og vegir voru
meira eða minna ófærir f
Þingeyjarsýslum.
►KONUR hafa aukið áfengis-
neyslu sína á siðustu áratug-
um og drekka nú ekkert síð-
ur en piltar. Stúlkur í 10.
bekk reykja ennfremur meira
en strákar á sama aldri. Þetta
kom meðal annars fram í
skýrslu Fræðslumiðstöðvar í
fíkniefnavörnum.
►LAUN opinberra starfs-
manna og bankamanna hafa
að meðaitali hækkað nær
tvöfalt meira i ár en laun á
almennum vinnumarkaði
samkvæmt madingum launa-
vístölu Hagstofu Islands.
►FÁTÆKT er viðvarandi á
íslandi samkvæmt könnun
Félagsvísindastofnunar Há-
skólans. Hæst er hlutfall fá-
tækra i landbúnaði og fleiri
konur eru fátækarí en karl-
ar. Þetta kom meðal annars
fram á ráðstefnu á föstudag
um jaðarhópa i íslensku sam-
félagi.
►RANNSÓKNIR á mengandi
eiturefnum i islenskum fugl-
um hafa leitt i ljós að fálkar
reyndust mikið mengaðir af
þrávirkum klórkolefnum og
fannst svipað magn PCB-efna
í islenskum og norskum fálk-
um.
Útför frú Guðrúnar
Katrínar
ÚTFÖR frú Guðrúnar Katrínar Þor-
bergsdóttur forsetafrúar var gerð frá
Hallgrímskirkju á miðvikudag. Biskup
íslands, herra Karl Sigurbjömsson,
jarðsöng forsetafrúna að viðstöddum
öllum þjóðhöfðingjum Norðurlandanna
og um 900 öðrum gestum.
Þorsteinn Pálsson
hættir í stjórnmálum
ÞORSTEINN Pálsson, dóms- og
kirkjumálaráðherra hefur tekið þá
ákvörðun að hætta þátttöku í stjóm-
málum. Hann gefur ekki kost á sér til
framboðs í Suðurlandskjördæmi í al-
þingiskosningunum á næsta kjörtíma-
bili og lýkur þar með sextán ára stjóm-
málaferli Þorsteins.
Kona kosin í kirkjuráð
ÞRÍTUGASTA kirlguþingi lauk á mið-
vikudag. Nýtt kirkjuráð var kosið og
fékk kona, séra Dalla Þórðardóttir,
kosningu í ráðið í fyrsta skipti. Fimmt-
án nýjar starfsreglur voru settar á
þinginu, þar af reglur um kjör til
kirkjuþings og þingsköp, um val á
prestum og um skiptingu sókna, presta-
kalla og prófastsdæma.
Nýr landlæknir
skipaður
DOKTOR Sigurður Guðmundsson yfir-
læknir og sérfræðingur í lyflækningum
á Landspítalanum var skipaður í emb-
ætti landlæknis á fóstudag aí Ingi-
björgu Pálmadóttur heilbrigðisráð-
herra. Sigurður tekur við af dr. Ólafi
Ólafssyni, sem gegnt hefur embættinu
síðan 1972.
BILL Clinton og Yasser Arafat heils-
ast við athöfn í Hvíta húsinu þegar
samkomulag Israela og Palestí'nu-
manna var undirritað. Benjamin
Netanyahu stendur á milli þeirra.
Netanyahu og Arafat
ná samkomulagi
LEIÐTOGAR ísraela og Palestínu-
manna náðu á föstudag samkomulagi
um friðarsamning tíl bráðabirgða eftír
linnulitlar viðræður í Bandaríkjunum í
níu daga og var það undirritað við hátíð-
lega athöfri í Hvíta húsinu. Meginatriði
samningsins eru að ísraelar munu flytja
burt herlið sitt af 13% Vesturbakkans
tU viðbótar á næstu þremur mánuðum.
Gegn því heita Palestínumenn að skera
upp herör gegn hryðjuverkahópum og
handtaka þá, sem grunaðir eru um að
hafa staðið fyrir hermdarverkmn í ísra-
el. ísraelar féllu hins vegar frá þeirri
kröfu sinni að þeir yrðu framseldir. Þá
munu Palestínumenn fella burt úr
stjórnarskrá sinni ákvæði, sem kveður á
um upprætingu Israelsríkis.
Samkomulagið náðist eftír átta
stunda fund Benjamins Netanyahus,
forsætisráðherra Israels, og Yassers
Arafats, leiðtoga Palestínumanna, á
Wye Mills-plantekrunni í Maryland í
fyrrinótt. Bill Ciinton Bandaríkjaforseti
sat einnig fundinn og var sagður hafa
átt stóran þátt í því að samkomulagið
náðist
ísraelskur embættismaður sagði að
samkomulagið þýddi að lokaviðræður
ísraela og Palestínumanna gætu hafist
„bráðlega", en þær eiga m.a. að snúast
um framtíð Jerúsalemborgar og stöðu
sjálfetjómarsvæða Palestínumanna.
► MANNRÉTTINDASAMTÖK
hafa fagnað handtöku Augu-
stos Pinochets, fyrrverandi
einræðisherra í Chile, en
stjómvöld í heimalandi hans
hafa mótmælt henni harð-
lega. Pinochet var handtek-
inn í London sl. laugardag að
beiðni spænsks rannsóknar-
dómara, sem vill að einræðis-
herrann fyrrverandi verði
framseldur til Spánar vegna
ásakana um að hann beri
ábyrgð á morðum og pynt-
ingum á valdatúna sínum.
Spænsk dómnefnd ákveður í
vikunni hvort farið verður
formlega fram á framsal.
Spænska stjómin er í vand-
ræðalegri stöðu vegna máls-
ins, þar sem hún vill ekki
skaða tengslin við Chile, og
málið hefur valdið klofningi f
stjórn Chile og gæti orðið
henni að fallL
► MASSIMO D’Alema, fyrr-
verandi kommúnistí og nú-
verandi leiðtogi stærsta
vinstriflokksins á ítalska
þinginu, myndaði 56. ríkis-
stjóra ítaliu frá lokum síðari
heimsstyijaldar á miðviku-
dag. Þykir tíðindum sæta að
meðal ráðherra í stjóminni
em marxistar, í fyrsta sinn í
hálfa öld.
► SERBNESK stjómvöld
héldu því fram á fímmtudag
að þau hefðu dregið allt her-
Iið sitt frá Kosovo og nú
væm þar aðeins þeir her-
menn sem vom þar fyrir áð-
ur en deilan um héraðið
spratt upp. Fulltrúar Vestur-
veldanna drógu staðhæfingar
þessar í efa og töldu að Ser-
bar hefðu ekki staðið fylli-
lega við skilmála samkomu-
lagsins sem náðist við
Slobodan Milosevic Jú-
góslavíuforseta nýlega.
íslendingar hvattir til að
lögfesta sáttmála SÞ
MANNRÉTTINDANEFND Sa-
meinuðu þjóðanna hvetur Islend-
inga til að festa í lög sáttmáia Sa-
meinuðu þjóðanna frá 1966 um
borgaraleg og stjómmálaleg rétt-
indi. Kemur þetta fram í fréttatil-
kynningu nefndarinnar sem gefin
var út í vikunni í tilefni af umfjöllun
nefndarinnar um reglulega skýrslu
íslenska ríkisins um ástand mann-
réttíndamála hér á landi.
A fundi nefndarinnar í Genf í vik-
unni svaraði ijögurra manna ís-
lensk sendinefnd spumingum
nefndarmanna. Kom þar meðal
annars fram að íslensk stjómvöld
hefðu ekki ákveðið að afturkalla
fyrirvara við b-lið 2. mgr. 10. gr.
sáttmálans um að halda beri föng-
um á unglingsaldri aðskildum frá
eldri föngum. Þó væri verið að
kanna hvort vista mætti unga fanga
á stofnunum er lytu forræði bama-
vemdaryfirvalda. Um þessar
mundir væm einungis tveir ung-
lingar undir 18 ára aldri í fangels-
um landsins.
Réttlát málsmeðferð
Fram kom að afstaða íslenska
ríkisins væri óbreytt hvað snertir
fyrirvara við 7. mgr. 14. gr. sáttmál-
ans sem vemdar rétt manna tíl að
vera ekki saksóttir að nýju fyrir
brot sem þeir hafa verið sýknaðir
af. Fyrirvarinn er tíl kominn vegna
ákvæða í íslenskum lögum um með-
ferð opinberra mála þess efnis að
taka megi mál upp að nýju, þótt
sakbomingur hafi verið sýknaður,
ef fram komi ný sönnunargögn eða
verulegir annmarkar hafi verið á
málsmeðferð.
Þá barst réttarstaða samkyn-
hneigðra í tal. Kom fram hjá ís-
lensku sendinefndinni að ekki væri
stefnt að því að samkynhneigðir í
sambúð gætu ættleitt böm. Eins
væri ekki ráð fýrir því gert að böm
annars aðila í slíku sambandi gætu
lotíð forsjá hins.
Fyllri en MSE
Islensku nefndinni var þakkað
fyrir greinargóða skýrslu. Framfar-
ir hefðu orðið í mannréttindamálum
á Islandi. Aðaláhyggjuefni nefndar-
innar væri að sáttmálinn um borg-
araleg og stjómmálaleg réttindi
hefði ekki verið lögfestur á íslandi.
Sú aðstaða sem ríktí á íslandi að
innlendar réttarreglur gengju fram-
ar þjóðarréttí væri ekki í samræmi
við anda Vínarsáttmálans um al-
þjóðasamninga, en þess má geta að
Islendingar hafa ekki fullgilt hann.
Fram kom hjá nefndarmönnum að
þótt Mannréttindasáttmáli Evrópu,
sem var lögfestur á íslandi árið
1994, væri afbragðsgóður þá væri
sáttmálinn um borgaraleg og
stjómmálaleg réttindi fyllri.
Mest traust
til RÚV
RÍKISÚTVARPIÐ og Ríkissjón-
varpið era þeir fréttamiðlar sem
íbúar á Akureyrarsvæðinu bera
mest traust tiL Þetta kemur fram í
skoðanakönnun sem Ráðgarður hf.
gerði fyrir Morgunblaðið.
42,5% svarenda sögðust bera
mest traust til fréttaflutnings Ríkis-
útvarpsins, 31% tíl Ríkissjónvarps-
ins, 93% til Morgunblaðsins, 4,2%
nefiidu Stöð tvö, 2,7% Dag, 0,9%
Bylgjuna, 0,4% Vikudag og 1,1%
nefndu aðra miðla.
Einn
á kaffi-
húsi
KAFFIHÚS eru samkomustaðir
þar sem margir sækjast eftir
samræðum og mannlegum sam-
skiptum. Stundum ber ekki vel í
veiði. Á mannlausu kaffihúsi er
bót í máli að vera með farsún-
ann í vasanum og geta sigrast á
einmanaleikanum með því að
tala í símann.
Morgunblaðið/Golli
Jólavörur
komnar í
Holtagarða
JOLAVÖRUR era komnar í versl-
animar Holtagarða, IKEA, Bónus
og Rúmfatalagerinn. Þetta eru
fyrstu verslanimar með jólavörur í
ár. Þær vora einnig fyrstar tíl að
bjóða upp á jólavörur í fyrra. Vör-
urnar er heldur fyrr á ferðinni en í
fyrra. Um er að ræða jólavörur og
vörur sem tengjast undirbúningi
jólanna.
Forseti ASÍ um viðræður um lífeyrissamning
Enginn ágreiningur við
VSÍ um efnistök
GRÉTAR Þorsteinsson, forsetí Al-
þýðusambands Islands, segir að
enginn ágreiningur sé milli ASÍ og
Vinnuveitendasambands íslands
um efnistök vegna málefna lífeyris-
sjóða og samböndin muni væntan-
lega á allra næstu dögum setjast
sameiginlega yfir að skoða þau mál.
VSI hefur óskað eftir viðræðum
við ASÍ um endurskoðun á lífeyris-
samkomulagi samtakanna þar sem
meðal annars samskiptareglur líf-
eyrissjóðanna verði endurskoðaðar
svo að tryggt verði að menn hvorki
hagnist né tapi á flutningi milli
sjóða, þó að sjóðimir kunni að miða
við mismunandi reglur um réttínda-
ávinnslu.
Grétar sagði að í gegnum tíðina
eða allt frá því lífeyrissjóðakerfið
var sett á laggimar á almennum
markaði fyrir þremur áratugum
hefði verið gott samkomulag á milli
heildarsamtakanna í þessum efnum
og þau hefðu borið gæfu tíl þess að
vera nokkuð samstíga í áherslum.
„Þetta tilefni er auðvitað bara hluti
af því viðfangsefni að reyna að
halda sameiginlega á í þessum efn-
um,“ sagði Grétar.
Hann sagði aðspurður að það
væri alveg augljóst að það þyrftí að
setjast yfir þetta viðfangsefni og at-
huga hvemig hægt væri að mæta
þeirri þróun sem þama væri á ferð-
inni.