Morgunblaðið - 25.10.1998, Page 50

Morgunblaðið - 25.10.1998, Page 50
í»0 SUNNUDAGUR 25. OKTÓBER 1998 I DAG MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Námskeið um vefja- gigt á Akureyri SIGRÚN Baldursdóttir, sjúkra- þjálfari, verður með námskeið um vefjagigt á Akureyri helgina 31. október og 1. nóvember. Laugardaginn 31. október kl. 14-16 verður fyrsti fundur og á þeim fundi verður rætt um vefja- gigt og leiðir til bættrar heilsu. Á þann fund er þátttakendum boðið að taka með sér einhvem nákom- inn, s.s. maka eða vin. Sunnudaginn 1. nóvember verður byrjað kl. 10. Á þeim fundi verður fjallað um mataræði, næringu, sjálfshjálp, vítamín, bætiefni og slökun. Námskeiðinu lýkur kl. 15 þann dag. Hámarksfjöldi á námskeiðinu eru 15 einstaklingar. Athugið, nám- skeiðið verður einungis haldið ef næg þátttaka fæst. PABBI Sængurgiafír fyrir mömmu oe bamið ÞUMALÍNA Pósthússtræti 13, sími 551 2136. www.mbl l.is Samkvæmisblússur og kjólar MISSTU EKKI A F EINSTÖKU TÆKIFÆRI!!! GRUNNNAMSKEIÐ I VOGA orka - jafnvægi - árangur Pétur Valgeirsson er reyndur yogakennari og er nýlega kominn frá einni þekktustu yogastöð Bandarikjanna, þar sem hann kenndi undirstöðuatriði í Hatha Yoga o.fl. Planet Pulse býður nú grunnnámskeið í yoga hjá einum hæfasta yogakennara á íslandi, Pétri Valgeirssyni Námskeiðið er haldið í fallegu og róandi umhverfi Planet Pulse á Hótel Esju og er öllum opið. Námsefnið er eftirfarandi: • Grunnstöður í Hatha yoga • Öndunaræfingar • Slökun • Hugleiðsla • Hugmyndafræði o.fl. Kennt er tvisvar í viku, 90 mínútur í senn í fjórar vikur. NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST 27. OKTÓBER. Einnig bjóðum við kennslumyndbönd í yoga. UPPLÝSINGAR OG INNRITUN í SÍMA 588 1700 Ágæt þátttaka var í myndagetraun sem birtist í aukablaði SÍBS — Sigur Irfsins — sem dreift var með Morgunblaðinu 27. september sl. Lausn gátunnar er. „Nú þarf Reykjalundur á þinni hjálp að halda. Stöndum saman um byggingu sundlaugar og íþróttahúss". 1. verðlaun. 5 ársmiða í happdrætti SÍBS hlaut: Erlineur Jónsson. Austurbergi 36, 111 Reykjavík. 2. verðlaun. 3 ársmiða í happdrætti SÍBS hlaut: Kristián V. Rúriksson. Gautlandi 11, 108 Reykjavík. 3. verðlaun. 2 ársmiða í happdrætti SÍBS hlaut: Sœrún Maenúsdóttir. Túngötu 44, 460 Tálknafirði. 4. —13. verðlaun. 1 ársmiða f happdrætti SÍBS hlutu eftirtaldir: Kristín Gísladóttir. Árholti 9, 400 fsafirði. Hallfríður Frímannsdóttir. Sólheimum 14, 104 Reykjavík. Georg Halldórsson. Hellulandi 13, 108 Reykjavík. Sif’urltna Eiríksdóttir. Smáragrund, Skagafirði, 566 Hofsósi. Eria H. Ásmundsdóttir. Kringlumýri 10, 600 Akureyri. Ástbiörq Öemundsdóttir. Lækjargötu 4, 530 Hvammstanga. Fríða Sigurðardóttir. Hafnargötu 24, 580 Siglufirði. Helei R. Einarsson. Leirutanga 31, 270 Mosfellsbæ. Marerét Erlinesdóttir. Rauðaeerði 12, 108 Reykjavík. Hrefna Þeneilsdóttir. Leirutanga 47, 270 Mosfellsbæ. Vinningshafarnir fá miðana heimsenda um miðjan desember. Þökkum þátttökuna. SIBS VELVAKAJVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Við Wema Centre-heimilið í Kenýa. Kæru Kenýa-farar! HINN 12. september sl. lagði 10 manna hópur upp í tæplega þriggja vikna ferð til Kenýa. Ferðin var farin vegna árlegs þings WOCO (World Council of Service Clubs) og fórum við sem fulltrúar frá Round Table- hreyfingunni á íslandi. Það er skemmst frá því að segja að ferðin var í alla staði frábær og vel heppn- uð og væri allt of langt mál að segja frá öllu ferðalag- inu hér og verður það gert á öðrum vettvangi. Round Table og Ladies’ Circle í Kenýa hafa verið að styrkja heimili fyrir götu- börn og þess vegna tókum við með okkur í hálftómúm ferðatöskum föt og leik- fóng sem bömin okkar eru hætt að nota. Við fórum síðan í heimsókn á heimili sem neftit er Wema Centre fyrir ungar stúlkur á aldr- inum 5-18 ára. Þessi heim- sókn hafði mikil áhrif á okkur þar sem við fengum tækifæri til að tala við stúlkumar og heyra sögu þeirra. Stofnandi heimilis- ins heitir Lucy W. Yinda og rekur hún, ásamt eigin- manni sínum, veitingastað í Mobasa. Hún tók svo nærri sér að horfa á öll þessi götuböm sem skipta þús- undum og ákvað að gera eitthvað til að hjálpa þeim og í dag hefur henni tekist með hjálp styrktaraðila að byggja þetta heimili sem hýsir 62 böm. Þama fá þau allt sem þau þarfnast, fæði, húsaskjól, menntun og mikla umhyggju. Ástæða þessa bréf er sú að við erum í sambandi við Lucy W. Yinda og ef ein- hver af ykkur sem emð að fara til Mombasa með Samvinnuferðum hinn 29. október nk. hafið áhuga á að taka með ykkur eitt- hvað fyrir heimilið, þá vit- um við að það væri vel þegið. Þeir sem vilja geta fengið að heimsækja heim- ilið og sjá hvað verið er að vinna merkilegt starf þar. Það sem vantar helst em notuð föt, skór, rúmföt, leikföng, stílabækur, penn- ar og blýantar. Með ósk um góða ferð og ánægjulegt frí. Nánari upplýsingar em veittar í símum 588 9991 (Hrafnhildur og Smári), 557 3186 (Hrafnhildur og Kristján) og 577 6959 (Jó- hanna og Birgir). Nýju strætisvagna- skýlin ekki góð ÁSTA hafði samband við Velvakanda og viidi hún koma því á framfæri að henni finnist nýju strætis- vagnaskýlin ekld góð. Seg- ir hún að í fyrsta lagi sé heilmikil rifa efst og þar rigni beint niður þó enginn vindur sé, stór rifa neðst þar sem einnig blæs og rignir inn, og svo sé skýlið alveg opið að framan þannig að ekki myndast neitt skjól, sé vindáttin þannig. Einnig séu bekkir blautir. Finnst henni skýl- in frekar vera fyrir þá sem aka framhjá og segir hún að gömlu skýlin hafi verið betri, þau veiti betra skjól. Tapað/fundið Gulur sundpoki týndist á Selljarnarnesi GULUR sundpoki með org- anelituðu handklæði með brúnu stóru R og sundbux- ur og sundgleraugu, týndist á samfélagsmótinu á Sel- tjamamesi 2.-4. okt. Skilvís finnandi hafi samband í síma 5611617. Dýrahald Læða í óskilum í Blönduhlíð GRÁB RÖNDÓTT læða, mjög ung, fannst í vikunni hjá Blönduhlíð 4. Upplýs- ingar í síma 562 2390. ORÐABÓKIN Hvernig hefurðu það? Þetta orðalag skilja allir og vita, við hvað er átt með þessari frómu spumingu, enda algengt í talmáli a.m.k. Á skóla- árum mínum fyrir margt löngu, eins og margir komast að orði nú á dög- um, bentu íslenzkukenn- arar mínir nemendum sínum á það, að þetta væri ekki góð íslenzka. Vissulega er það rétt, því að hér er um beina tökuþýðingu að ræða úr dönsku. Danir segja einmitt: Hvordan har du det? Að sjálfsögðu hefur þetta orðalag borizt fyrir löngu í mál okkar, ann- aðhvort með dönskum kaupmönnum og svein- um þeirra eða þá ís- lenzkum stúdentum, sem vora við nám í Kaupmannahöfn. Kenn- aramir bentu á íslenzkt orðalag, sem nær full- komlega því, sem í spumingunni felst. Ekki þarf annað en spyrja: Hvemig líður þér? Eg þykist vita, að margir komist líka þannig að orði. I ýmsum útvarps- og sjónvarpsþáttum, sem em á dagskrá undir vikulok, segja stjómend- ur oft, þegar þeir kveðja: Hafið eða hafiði (hér nota ég rithátt venjulegs talsmáls) það gott um helgina. Áð sjálfsögðu fer betur að segja: Líði ykkur vel um helgina. Eg held engum geti fundizt þetta orðalag of bókmálskennt. Hvemig hefur sjúklingurinn það? Hann hefur það nokkuð gott, gæti verið svarið. Olíkt fer betur að mínum dómi að spyrja: Hvemig líður sjúklingnum? og svara síðan: Honum líð- ur nokkuð vel. - J.A.J. MORGUNBLAÐEÐ birt- ir tílkynningar um af- mæli, brúðkaup, ættar- mót og fleira lesendum sínum að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, Sent í bréfeíma 569- 1329, sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavik. Víkverji skrifar... OKTÓBERMÁNUÐUR kemur töluvert við sögu íslenzkra dag- blaða. I þeim mánuði hófu tvö nafn- fræg íslenzk dagblöð göngu sína, sem settu svip á íslenzka fjölmiðlun um áratugaskeið. Alþýðublaðið, sem Alþýðuflokkur- inn gaf út, hóf göngu sína 29. dag októbermánaðar árið 1919; hefði orðið 90 ára um þetta leyti næsta ár, ef því hefði enzt aldur til. Þjóðviljinn hóf göngu sína fyrir 62 árum, 31. október árið 1936. Komm- únistaflokkur Islands [sem Steinn skáld Steinarr orti fræg eftirmæli um] gaf blaðið út fyrstu tvö árin, eða til 1938. Þá tók Sameiningarflokkur alþýðu - Sósíalistaflokkurinn við út- gáfimni til ársins 1968, þegar sá flokkur var lagður niður. Síðan tóku önnur útgáfufélög við unz blaðið gekk fyrir ættemisstapann. Flokksblöð sem þessi stóðust ekki tímans tönn, þ.e. harðnandi sam- keppni markaðarins. Því fór sem fór. xxx VAXTARBRODDUR höfuð- borgarsvæðisins, Kópavogur, skyggir um sumt á Reykjavík. Það staðfestir bezt sú skoðanakönnun sjálfs veruleikans, sem felst í bú- setuvali fólks í landinu. Tvöfalt fleiri þeirra, er sezt hafa að á höf- uðborgarsvæðinu síðustu misserin, kjósa Kópavog en Reykjavík til framtíðarbúsetu. Reykjavík, sem senn verður ein af „menningarborgum Evrópu“, státar þó af ýmsu. Víkverji fagnar sérstak- lega þeirri tillögu sem fram er kom- in í Menningarmálanefnd Reykja- víkur um minnisvarða um St. Jós- efssystur í Landakoti. Guðrún Jóns- dóttir, formaður nefndarinnar, legg- ur til að teknar verði upp viðræður við Kristnihátíðamefnd um þetta mál. St. Jósefssystur stóðu í hartnær heila öld að rekstri sjúkrahúss að Landakoti. Starf þeirra í þágu ís- lenzks samfélags var farsælt og mikið. Það er glæstur kapítuli í sögu höfuðborgarinnar. Minnisvarði um St. Jósefssystur er verðugt verkefni borgarinnar á þúsund ára kristni- tökuafmæli Islendinga. xxx EFNAHAGSLEGAR framfarir eru keppikefli flestra þjóða. Framfaravegurinn er hvarvetna varðaður menntun og rannsóknum, tækniþróun og uppgötvunum, sem rekja rætur til vísindalegra rann- sókna. Tækniframfarir, einkum framfarir í líf- og tölvutækni, hafa venr geysilega örar á líðandi áratug. Islendingar hafa löngum varið hlutfallslega minna fé til rannsókna en aðrar þjóðir. Einkum er hlutur atvinnulífsins rýr. í þjóðhagsáætlun fyrir árið 1999 má sjá að atvinnufyr- irtæki í Danmörku fjármögnuðu 50% rannsóknar- og þróunarstarfs þar í landi árið 1993, 57% í Finn- landi, 44% í Noregi og 64% í Sví- þjóð. Samsvarandi tala hér var 35% og hafði hækkað úr 14% fyrir 20 ár- um. Við eru sum sé á réttri leið. En betur má ef duga skal! xxx EITT HELZTA áhyggjuefni okkar er lítill þjóðhagslegur spamaður. Hann er stundum skil- greindur sem þjóðarframleiðsla að frádreginni einka- og samneyzlu. Vandamálið felst í því, ef Víkverji skilur málið rétt, að annaðhvort hef- ur fjárfesting verið lítil, sem leiðir til minni hagvaxtar í framtíðinni, eða fjárfesting hefur verið umfram spamað, sem þýðir erlenda skulda- söfnun - og skerðir framtíðameyzlu. Hvemig má úr bæta? I þjóðhags- áætlun komandi árs segir: „Lauslega áætlað þarf fjárfesting að nema um 20% af landsframleiðslu á ári til að standa undir 3% hag- vexti. Til að koma í veg fyrir erlenda skuldasöfnun þarf sparnaður að nema svipaðri upphæð.“ Þá vitum við það. Áfram Island!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.