Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Þórarinn Eldjárn hlýtur verðlaun Jónasar Hallgrímssonar ÞORARINN Eldjárn er löngu landskunnur af skáldskap sínum og rit- störfum. Verk hans eru af- ar fjölbreytt og óhætt að segja að hann skrifí fyrir alla þjóðina. Fyrir þá sem eru að feta sig óstyrkum fótum í heim ritmálsins hefur hann skrifað stafrófsbók, hann hefur skrifað smásögur og skáldsögur sem hafa orðið vinsælar og mikið lesnar, ekki síst af nemendum, ljóð hans eru sungin og lesin og í öllum þessum verkum er litrófið breitt og blæbrigðaríkt. Þá skulum við ekki gleyma þýðingum Þórarins á verk- um merkra erlendra höfunda og þeim hefur hann skilað í hendur okkar á góðu íslensku máli,“ segir í umsögn framkvæmdastjórnar dags íslenskrar tungu, sem formaðurinn, Þorgeir Ólafsson, gerði grein fyrir. Þar segir ennfremur: „Hann skrif- ar á kjarnyrtu, frumlegu og skemmtilegu máli, lesendur fínna sterklega fyrir ást hans og um- hyggju fyrir því og hann hefur ort og skrifað um skrýtna og undarlega hluti sem engum hefur tekist að koma í orð fyrr.“ Björn Bjarnason menntamálaráð- herra afhenti Þórarni verðlaunin, 500 þúsund krónur og heildarútgáfu Máls og menningar á verkum Jónas- ar Hallgrímssonar í skinnbandi, en Menningarsjóður Islandsbanka lagði til verðlaunin. Ráðherrann fagnaði því sérstaklega hve margir kennarar og nemendur, einkum í grunnskólum og leikskólum, tóku vel þeirri hvatningu sem felst í degi íslenskrar tungu, en hann var nú í fyrsta skipti haldinn hátíðlegur á skóladegi. Hákúra verri en lágkúra Þórarinn sagði í ávarpi sínu eftir að hann hafði veitt verðlaununum viðtöku að við það tækifæri hefði kannski verið eðlilegast að hann setti á langar tölur um hve óverð- skuldaður honum þætti heiðurinn, „um það til hversu mikillar lotning- ar ég fyndi gagnvart íslenskri tungu, sem ég að sjálfsögðu kunni nokkurn veginn ekkert í og muni aldrei ná valdi á“. Þessu kvaðst hann hins vegar ætla að sleppa. „Enda væri slík hógværð hvort sem er ekkert annað en uppgerð, trú- legast sett fram í von um enn meiri lofsemd. Ég segi í staðinn að all- nokkur leikni í meðferð málsins ætti varla að teljast til tíðinda hjá svona þokkalega meðalgreindum og fjölómenntuðum manni eins og mér, sem er búinn að eyða lungan- um úr ævinni í að reyna að banga eitthvað saman á þessu tungumáli. Ég er alveg prýðilegur í íslensku og við erum það flest,“ sagði Þórarinn, sem telur að stundum sé of mikið gert af því að innræta ungu fólki að það sé alveg óheyrilega erfitt að tala og skrifa íslenskt mál. „Oft er látið að því liggja að slíkt sé varla á færi nokkurs manns sem ekki er annaðhvort með Hómilíu- bókina á náttborðinu eða hefur ver- ið mikið heima í sveit á nítjándu öld. En munum að Jónas Hall- grímsson sagði „Orð áttu enn eins og forðum", þau orð hans forðum eru enn í fullu gildi. Það er sjálfsagt að standa vel á verði gegn allri lág- kúru en gætum okkar einnig á því að lenda ekki í hákúru, hún er enn verri. Munum að málið er fyrst og fremst skemmtilegt og óendanlega fjölbreytt, ástkært og yl- hýrt í gleði og sorg.“ Þórarinn lauk máli sínu á því að vitna í Tabúlarasa, bók Sigurðar Guðmunds- sonar um ástarsamband hans og íslenskrar tungu, og dró af henni eftirfarandi ályktun: „íslensk tunga er til í allt nema ástleysi.“ Stétt sem leggur verk sín daglega í dóm almennings Sérstakar viðurkenningar fyrir ómetanlegt framlag til viðgangs ís- lenskrar tungu hlutu Blaðamanna- félag Islands og Félag íslenskra leikskólakennara og voni formönn- SIGURVEGARARNIR í upplestrarkeppni grunnskólanna, Panney Skarphéðinsdóttir úr Hafnarfirði, Trausti Viktor Gunnlaugsson, Kópavogi, og Osp Viðarsdóttir, Suðurlandi, lásu ljóð eftir Jónas Hallgríms- son, Davíð Stefánsson, Tómas Guðmundsson og Þórarin Eldjárn, við mikinn fógnuð viðstaddra. „Islensk tnnga er til í allt nema ástleysi“ Ort og skrifað um skrýtna og undarlega hluti Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur víða um land í gær, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, og er það í þriðja sinn sem haldið er upp á daginn á þennan hátt. Margrét Sveinbjörnsdóttir var í Hafnarborg og fylgdist með þegar verðlaun kennd við skáldið voru afhent Þórarni Eldjárn rithöfundi og Blaða- - mannafélag Islands og Félag íslenskra leik- skólakennara hlutu sér- stakar viðurkenningar. um þeirra afhentar höggmyndir eftir myndlistarkonuna Bryndísi Jónsdóttur. „I samfélagi okkar gegna fjölmiðlar sífellt stærra hlutverki og áhrif þeirra á þróun tungumálsins eru mjög mikil. Islenskir blaða- menn hafa frá upphafí fjölmiðlunar á íslandi verið sér meðvitaðir um þetta og óvíða er meira rætt um móðurmálið en á vinnustöðum þeirra. Það má því með vissu halda því fram að ís- lenskt fjölmiðlafólk sé að jafnaði öflugustu framverðir íslenskrar tungu og ekki er annað að sjá en að íslensk málstefna sé þar í hávegum höfð. Það er þó ætíð þarft að minna Morgunblaðið/Árni Sæberg ÞÓRARINN Eldjárn tekur við verðlaununum og hamingjuóskum Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra. Að baki Þórarni er Þor- geir Ólafsson, formaður framkvæmdasljórnar dags íslenskrar tungu. á skyldur og ábyrgð þeirra sem miðla málinu til almennings og ekki síst til komandi kynslóða," segir í umsögn framkvæmdastjórnarinn- ar. Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélags íslands, sagði það mikið gleðiefni að taka á móti slíkri viðurkenningu fyrir hönd blaða- og fréttamanna. „Það ber sjaldan við að okkur blaðamönnum sé veitt viðurkenning og oftar en ekki er okkur legið á hálsi fyrir meðferð móðurmálsins. Og þó mis- tök eigi sér vissulega stað vill það samt gleymast að það er verið að gagnrýna stétt sem á sjaldnast kost á því að endurskrifa né að velja við- fangsefnið og leggur verk sín dag- lega í dóm almennings," sagði Hjálmar. Hann minnti á að meðferð tungunnar hefði alla tíð verið blaða- mönnum hjai-tans mál, enda væri skörp hugsun harla lítils virði ef búningur orð- anna hæfði henni ekki. „Til vitnis um það er vert að benda á að það voru blaðaritstjórar, sem urðu fyrstir til þess að taka upp samræmda stafsetningu í upphafi aldarinnar. Mikill glundroði ríkti þá í þeim efn- um og talið að ekki færri en sjö ólíkir stafsetningarhættir væru tíðkaðir. Yar stafsetningin sam- þykkt mótatkvæðalaust í Blaða- mannafélaginu og þrátt fyrir mikl- ar deilur sem gusu upp í kjölfarið í þjóðfélaginu var blaðamannastaf- setningin svokallaða tekin upp víð- Ég er alveg prýðilegur í ís- lensku og við erum það flest ast hvar og mæltist vel fyrir,“ sagði Hjálmar ennfremur. Mikil ábyrgð lögð á herðar starfsfólki leikskólanna í umsögn vegna viðurkenningar til Félags íslenskra leikskólakenn- ara segir að gninnurinn að móður- máli barna sé lagður á fyrstu árum þeirra og á síðustu áratugum hafi sú breyting orðið í þjóðfélaginu að það sé ekki einungis á heimilunum sem sá gnmnur sé lagður heldur einnig á leikskólum. „Þangað fara börn í mörgurn tilvikum ársgömul og eru fram til þess að skólaganga hefst í grunnskóla. Foreldrar leggja því mikla ábyrgð á herðar stai-fsfólks leikskólanna og það er samdóma álit okkar að þar sé unnið markvisst og skipulega að því að kenna bömunum gott mál og örva málþroska þeÚTa. Leikskólakennarar leggja í stai'fi sínu mikla rækt við móðurmálið og þeim er ljós ábyrgð sín við að koma því áfram til komandi kynslóða. Það er ekki síst núna á tímum tölvuleikja og fjölmiðlaefnis á erlendum tungu- málum að þörf er á að hvetja alla uppalendur til að standa vörð um móðurmálið." Björg Bjarnadóttir, formaður Fé- lags íslenskra leikskólakennara, veitti viðurkenningunni viðtöku fyrir hönd félagsins. Hún sagði viður- kenninguna mikinn heiður og að með henni væri leikskólakennurum sýnd virðing um leið og áhersla væri lögð á að starf þeirra væri afar mik- ilvægt hvað varðaði viðgang og varðveislu íslenski-ai- tungu. „Það er mikilvægt að vandað sé til móður- málskennslu bama, allt frá upphafi. Þar gegna leikskólamir miklu hlut- verki, sem þeir verða að sinna af þekkingu og alúð í samvinnu við for- eldra barnanna. Málörvun er veiga- mikill hiuti af uppeldi og menntun barna í leikskólum,“ sagði Björg og bætti við að málörvun í leikskóla færi ekki fram í afmörkuðum tímum innan leikskólans eða á ákveðnum tímum dagsins heldur fléttaðist hún inn í allt starf leikskólans. „I sam- skiptum barna og leikskólakennara í þroskandi umhveifi þróa bömin málvitund og málskilning og bæta stöðugt við orðaforðann. í leikskól- um er lögð rækt við að kenna börn- unum þulur, rímur og kvæði og að lesa gömul ævintýri og sögur. Með þessum hætti gefst tækifæi'i til að viðhalda menningararfinum. Ein- hverjum kann að þykja það gamal- dags og óþarfi, auk þess sem böm eigi erfitt með að læra að skilja gamlar þulur og vísur, en það er ekki rétt, því yfirleitt vanmetum við getu og hæfileika barna frekar en hitt og þau koma manni stöðugt á óvart,“ sagði Björg. Við athöfnina lásu sigurvegarar í upplestrarkeppni grunnskólanna, þau Fanney Skarphéðinsdóttir, Trausti Viktor Gunnlaugsson og Ösp Viðarsdóttir, ljóð eftir Jónas Hallgrímsson, Davíð Stefánsson, Tómas Guðmundsson og Þórarin Eldjárn. Þá söng Signý Sæmunds- dóttir við píanóundirleik Önnu Guð- nýjar Guðmundsdóttur þrjú lög, og var eitt þeirra fmmflutningur á þýðingu Páls Bergþórssonar á ljóð- inu Komið hér blessuð börnin við lag Sveinbjöms Sveinbjörnssonar. I framkvæmdastjórn dags ís- lenskrar tungu sitja, auk fonnanns- ins, Þorgeirs Ólafssonar, deildar- sérfræðings í menntamálaráðu- neytinu, Kristján Arna- son prófessor, Vilborg Dagbjartsdóttir, skáld og kennari, Ólafur Odds- son menntaskólakennari og Sigmundur Emir Rúnarsson, skáld og fréttamaður. Verkefnis- stjóri er Jónmundur Guðmarsson. I reglum menntamálaráðuneytis- ins um verðlaunin segir m.a. að þeim beri að veita „einstaklingum er hafa með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu og riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu henn- ar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.