Morgunblaðið - 17.11.1998, Side 37

Morgunblaðið - 17.11.1998, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 87 MENNTUN Eftirsóknarvert að vera saman FORELDRAR barna í 9. bekk í Ölduselsskóla í Breiðholti í Reykjavík ákváðu að láta hendur standa fram úr ermum í vetur eft- ir að hafa verið latir í foreldra- starfi í 8. bekk. Hættan er að leið- ir skilji með börnum og foreldrum á þessum árum og vildu foreldr- arnir ekki falla í þá gryfju og stofnuðu eins konar útivistarklúbb foreldra og barna. „Það er höfuð- nauðsyn að foreldrar og börn geri eitthvað skemmtilegt saman og öðlist góðar minningar," segir Oddur Sigurðsson, foreldri og jarðfræðingur, „nefnd sex for- eldra sá svo um að skipuleggja ævintýralega rútuferð á Reykja- nesið.“ Tæplega 40 manns sannfærðust um að það væri þessi virði að fara í ferðina. Hún spurðist hins vegar svo vel út að 60 manns mættu á dagskrá sem haldin var í skólanum í liðinni viku til að rifja upp ferðina með myndum, fara í ýmsa leiki og borða kökur og brauð. Þangað komu meðal annarra nemenda Hildur Sunna Pálmadóttir og Sig- fús Steingrímsson. „Þetta var mjög skemmtileg ferð þótt mörgum hafi litist illa á hana fyrirfram og sumir ekki viljað fara með. Sumum fannst asnalegt að vera að fara í ferðalag með foreldr- um sínum. En ég er alltaf með mömmu og það fara allir í svona ferðalög á sumrin. Þetta er svipað og að fara út á land,“ segir hún. „Við fengum ekki að vita fyrir- fram hvað ætti að gera í ferðinni," segir Sigfús, „og óttuðust margir að hún yrði bara leiðinleg göngu- ferð.“ Svo reyndist ekki vera, held- ur var hún mjög fjölbreytt. Hildur Sunna og Sigíús segja að þeir sem fóru ekki með hafi átt erfitt með að samþykkja að þau hafi misst af einhverju og sagt að þau hin segðu bara að hún hefði verið skemmtileg vegna þess að þau sæju eftir peningunum en ferðin kostaði 1.500 krónur. Þau benda líka á að fjöldinn á þessu skemmtikvöldi foreldra og nem- enda sanni að ef til vill teldu marg- ir að það hafi verið mistök að fara ekki. Guðrún Angantýsdóttir og Kol- brún Hjaltadóttir foreldrar fóru í ferðina. „Það er mjög eftirsóknar- vert að vera með þessum krökk- um,“ segir Guðrún og Kolbrún tel- ur að svona ferðir minnki líkurnar á því að tengslin við krakkana minnki. „Þetta er í raun óbeint for- varnarstai’f og sýnir þeim að þau þurfi ekki í framtíðinni að grípa til áfengis til að skemmta sér,“ segir hún. „Við munum skipuleggja aðraferð á næstu önn og fara þá eftir ábend- ingum nemenda um hvert þeh’ vilji fara,“ segir Oddur, „við gerðum skoðanakönnun í rútunni og höfðu þau áhuga á ýmsum góðum stöðum eins og Bláfjöllum, Akureyri og að fara í siglingu á Hvítá. Hitablásarar ÞÓR HF Reykjavík - Akurayrl Reykjavík: Armúla 11 - sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka - sfml 461-1070 Morgunblaðið/Halldór Kolbeins KOLBRÚN Hjaltadóttir, Sigfús Steingrímsson, Guðrún Angantýsdótt- ir, Hildur Sunna Pálmadóttir og Oddur Sigurðsson. Ferðin á Reykjanes var mjög vel skipulögð. Rrakkarnir rifja upp nokkur atvik; ratleik, get- raun, krossgátu, söng, bátsferð, karamelluveislu, pítsur og reipi- tog. Það var alltaf éitthvað að ger- ast. „Það er gaman að fara í svona ferð,“ segir Sigfús. „Það átti reyndar að fleygja þeim óvænt í sjóinn og láta björgunarsveitar- mennina veiða þau upp aftur,“ segir Oddur, „en það var því mið- ur of kalt.“ Ólíklegt er að það þurfi að suða í krökkunum til að fara aðra ferð. En það getur verið erfitt að koma foreldrum í fei’ð. Ahugann getur líka skort þeim megin. „Eg held að þegar unglingsárin hefjist verði foreldrar og börn oft hrædd hvert við annað,“ segi Oddur, „og því er brýnt að gera eitthvað saman til að sambandið slitni ekki á milli þeirra. Svona ferðir eru kjörnar til þess.“ Kolbrún segir að hugmyndin að þessu starfí hafi kviknað eftir að foreldrar og börn í Breiðholtsskóla lögðu í ferð í fyrra sem gafst vel. Ráðstefna um símenntun á vinnumarkaði DAGANA 19. og 20. nóvember nk. standa Miðstöð símenntun- ar á Suðurnesjum og Nordens Folkliga Akademi (NFA) í Gautaborg fyrir norrænni ráð- stefnu á Flughóteli í Keflavík. Umræðuefnið er símenntun á vinnumarkaði og auk íslenskra fyrirlesara munu norrænir gestir flytja erindi um það sem er að gerast í símenntun á vinnumarkaði hinna Norður- landanna. Hvernig verður vinnumarkaður 21. aldarinnar og hvernig getum við best búið okkur undir hann? Hvaða leiða hafa frændur okkar á Norður- löndunum leitað? Geta hefð- bundnar aðferðir fullorðins- fræðslunnar nýst vinnumark- aðnum? I áliti nefndar á vegum menntamálaráðuneytisins um símenntun (maí 1998) er stung- ið upp á sérstöku fímm ára átaki til að efla símenntun. Fulltrúar frá menntamála- og félagsmálaráðuneyti munu flytja erindi um símenntun sem afl á nýrri öld. Hansína B. Ein- arsdóttir ráðgjafi fjallar um vinnumarkað framtíðarinnar og hvernig hún telur að við getum best búið okkur undir hann. Miðstöð símenntunar á Suður- nesjum mun kynna verkefni sem unnið er að í samstarfí við Hitaveitu Suðurnesja og nefnist Markviss uppbygging starfs- manna. Einnig verður sagt frá Leonardo verkefninu Across sem fjallar um menntun fræðslustjóra fyrirtækja og stofnana. A hinum Norðurlöndunum er löng og sterk hefð fyrir fullorð- insfræðslu. Sú áhersla sem nú er alls staðar lögð á símenntun kallar á nýjar aðferðir og nýjar hugmyndir. Kunskabslyftet er afar metnaðarfullt og víðfeðmt verkefni sem sænska ríkistjórn- in hrinti af stað haustið 1997 til að gefa fullorðnum annað tæki- færi til að hefja nám að nýju og bæta við fyrri menntun. Carina Abréu Farby, sænskur lektor við NFA, mun segja frá verk- efninu, kostum þess og göllum. Fyrir norska Stórþinginu liggur tillaga um víðfeðmt átak í sí- menntun. Jan Sörlie, norskur lektor við NFA, mun gera grein fyrir hinu svokallaða Buer udvalget sem sker sig frá sænska Kunskabslyftet að ýmsu leyti. Finnskur lektor við NFA, Stina Tiainen, mun fjalla um hvernig hugmyndir og verklag fullorðinsfræðslunnar geta nýst vinnumarkaðnum. Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu Miðstöðvar sí- menntunar á Suðurnesjum í síma 421 7500. RTU TIL I VETRARAKSTURINN SÍÐUSTU EINTÖKIN BALENO £^^4X41 ÁLFELGUR - VETRARDEKK - FJARSTÝRÐ SAMLÆSING - GEISLASPILARI vökva/veltistýri • upphituð framsæti • 2 loftpúðar rafmagn í rúðum og speglum • aflmikil 16 ventla vél • vindkljúfur með hemlaljósi • styrktarbitar í hurðum samlitaðir stuðarar • hæðarstillanleg kippibelti ^^SKvrD0B^NFVR,RVETt;i!^, BAI.ENO EXCLUSIVE 4X4 A. t 1.595.000kr. V $ SUZUKI SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slml 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, síml 462 63 00. Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf., Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Isafjörður: Bílagarður ehf.,Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00. Hvammstanga: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17. SUZUKIBÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. Heimasíða: www.suzukibilar.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.