Morgunblaðið - 17.11.1998, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 17.11.1998, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Morgunblaðið/Þorkell Lögreglustjóri til starfa á ný BÖÐVAR Bragason, liigreglu- stjóri í Reykjavík, mætti til starfa í gær eftir hálfs árs veikinda- leyfi. Starfsfólk embættisins tók á móti honum og færði honum blóm fyrsta vinnudaginn. Óskar Bjartmarz og Böðvar Bragason eru fremst á myndinni. Hönnun Tjörness- vegar langt komin HALLDÓR Blöndal samgöngu- ráðherra segir að ákvörðun um vegarlagningu fyrir Tjörnes hafi verið tekin fyrir löngu og hönnun vegarins sé langt komin. Hann tel- ur að önnur sjónarmið eigi að ráða lagningu vega en hugsanlegar virkjanir. I Morgunblaðinu sl. sunnudag kemur fram að Hreinn Hjartar- son, bæjarverkfræðingur á Húsa- vík, og fleiri Húsvíkingar hafí talað fyrir því að kannaðir yrðu kostir og gallar lagningar nýs vegar milli Öxarfjarðar og Húsavíkur um Rör fór inn um botn bfls LITLU mátti muna að mikið slys yrði þegar rör í rörahliði stakkst upp um botninn á bíl sem ók yfir hliðið skammt frá Hornafirði í gærkvöldi. Þrír voru í bflnum þegar slysið varð. Rörið stöðvaðist í miðjum síls bílsins en svo virðist sem suða í hliðinu hafi gefið sig. Að sögn lögreglu var þetta nýr bíll og er hann talsvert mikið skemmdur. Lögi-egla segir að slys hefði getað orðið á farþegum í bfln- um hefði rörið náð að stingast inn í farþegarými bílsins. Reykjaheiði í stað vegarins fyrir Tjörnes. Þeir kostir fylgi lagningu vegar um Reykjaheiði, að mati Hreins, að stytta leiðina austur í Öxarfjörð um 20 km og háhita- svæðið á Þeistareykjum yrði í þjóðleið. „Húsvíkingar hafa fram að þessu litið svo á að það væri ekki til hagræðis fyrir þá að umferðin til Norður-Þingeyjarsýslu lægi fram hjá bænum. Þessi hugmynd hefur komið upp einstaka sinnum en ég held að önnur sjónarmið eigi að ráða því hvar vegir liggja milli héraða og byggðarlaga en hugsan- legar virkjanir enda yrði kostnað- ur af vegarlagningu að Þeista- reykjum vegna virkjunarinnar hverfandi miðað við heildarvirkj- unarkostnað. Bæjarstjórn Húsavíkur getur tekið það mál upp við Vegagerðina og þingmenn að breyta áherslum í þessum efnum og fresta því að tengja Kelduhverfi og Húsavík um sinn. Ég tel víst að þingmenn hitt- ist vegna þess en ég á von á því að Norður-Þingeyingar og Húsvík- ingar séu sammála því að nauð- synlegt sé að hraða því eins og kostur er að tengja Kelduhverfi við Húsavík. Menn hafa verið sammála um það að fara um Tjör- nesið og ég er þeirrar skoðunar að það sé rétta leiðin,“ sagði sam- gönguráðherra. Gamla Hæstaréttarhúsið við Lindargötu Leyfí til niðurrifs bíður deiliskipulags VINNA stendur nú yfir við deiliskipulag stjórnarráðsreitsins svonefnda, þ.e. Amarhvál og ná- grenni. Áfonn ei'u uppi um að rífa gamla Hæstaréttarhúsið við Lind- argötu og að stjórnarráðið byggi þess í stað hús á milli Ai-narhváls og íþróttahúss Jóns Þorsteinsson- ar. Að kröfu bygginganefndar Reykjavíkur var niðurrifi Hæsta- réttarhússins frestað þar til deiliskipulag reitsins lægi fyrir. „Borgaryfirvöld hafa haft vissar efasemdii' um að það eigi að rífa þetta hús,“ sagði Magnús Sædal, byggingafullti-úi í Reykjavík, í samtali við Morgunblaðið. „Það myndar ákveðinn svip í götumynd- inni, klýfur sig út úr öðrum hlutum af Arnarhváli og er hluti af þeii-ri umgjörð sem var um þetta svæði þegar samkeppni fór fram um nýja Hæstaréttarbyggingu. Þó svo að það komi eitthvað í staðinn vilja menn fá að sjá hugmyndir um hvað það gæti verið,“ sagði Magnús. Húsið var tekið í notkun á seinni hluta fimmta áratugarins og Magn- ús sagði að þótt það væri ekki gam- alt og félli ekki undir friðunarlög hefðu menn skyldur til að stuðla að verndun húsa umfram það sem sett er í lög og reglugerðir. „Mönnum er ekki alveg sama um hvernig far- ið er með 20. aldar byggingar," sagði hann. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hafa m.a. Guðrún Agústsdóttir og Guðrún Jónsdótt- ir, íúlltrúar R-listans, lýst efa- semdum um það að húsið skuli rifið en þær eru báðar erlendis og náð- ist ekki tal af þeim í gær. Þórhallur Arason, skrifstofu- stjóri í fjármálaráðuneytinu, sagði við Morgunblaðið að talið væri dýr- ara að endurbæta húsið, svo að það yrði nothæft, en að rífa það og Morgunblaðið/Kristinn SEÐ austur eftir Lindargötu, fremst á vinstri hönd er Arnarhváll, þá gamla Hæstaréttarhúsið og íþróttahús Jóns Þorsteinssonar. byggja nýtt. Auk þess hve húsið er illa farið er einn af þröskuldunum í vegi þess að nýta húsið sá að pallar þess standaset ekki á við palla Ajrn- arhváls, sem þýðir að nýting verð- ur léleg, segir Þórhallur. Stjórnarráðsreitur skipulagður Steindór Guðmundsson, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins, sagði að deiliskipulagsvinnan væri langt komin. Hann sagði að sem eigandi hússins væri iTkissjóður í fullum rétti að rífa það, enda fellur það ekki undir lög um friðun. Hins veg- ar þurfí að leita leyfís til bygging- arnefndar um slíka hluti. Steindór kvaðst telja það sjálfsagða og eðli- lega ósk þygginganefndarinnar að sýnt verði fram á hvemig nánasta umhverfi hússins eigi að líta út í framtíðinni áður en sú heimild er gefin. Deiliskipulagsvinnan, sem nú stendur yfir, nær yfir það sem Óbyggðanefnd auglýsir eftir lögfræðingi FORSÆTISRAÐUNEYTIÐ hefur auglýst eftir lögfræðingi í fullt starf til að starfa fyrir óbyggðanefnd. Óbyggðanefnd er ætlað að leysa úr álitaefnum um eignar- og afnota- réttindi utan eignarlanda á svoköll- uðum þjóðlendum og er gert ráð fyrir að nefndin ljúki störfum fyrir árið 2007. Starfssvið lögfræðings nefndar- innar verður gagnaöflun og aðstoð við undirbúning að úrskurðum óbyggðanefndar auk ýmissa verk- efna fyrir ráðuneytið. Reynsla af dómsstörfum er talin æskileg ásamt sjálfstæði, frumkvæði og skipulagn- ingu í starfi. Jafnframt samstarfs- hæfni og að eiga auðvelt með að tjá sig í töluðu og rituðu máli og hæfi- leika til að vinna að fjölbreyttum verkefnum í kreijandi starfsum- hverfi. Ritstj óraskipti á DV ÖSSUR Skarphéðinsson alþingis- maður hefur hætt starfi sínu sem annar ritstjóra DV og hefur Óli Björn Kárason, ritstjóri Viðskipta- blaðsins, verið ráðinn ritstjóri í hans stað frá næstu áramótum. Össur segir að ákvörðunin helgist af því að honum finnist hann sjálfur vera orðinn hluti af atburðarás sem er fréttaefni, þ.e. átökum í Reykja- vík um framboð samfylkingar vinstri manna. Hann hafi í upphafí ekki ætlað að vera ritstjóri DV mik- ið lengur en fram í desember en tók ákvörðun um að hætta íyrr vegna framboðsmálanna. Fer með mikilli eftirsjá „Ég taldi ekki ólíklegt að þessi mál kynnu að verða mun rismeiri þegar nær dragi jólum. Það hefði getað bjagað fréttaskrif DV um þetta efni. Þess vegna ákvað ég að draga það ekki á langinn að hætta. Ég vildi í raun og veru vera hættur um miðjan síðasta mánuð en var beðinn um að vera lengur. Þegar ég kom úr sumarleyfi í ágústbyrjun skýrði ég mínum ágætu yfirmönn- um frá því að ég teldi að þetta yrði ekki framtíðarstarf mitt og ég hefði ákveðið að velja stjórnmálin. En ég fer með mikilli eftirsjá því þetta var virkilega gott samfélag sem ég var þarna í. Ég er og verð sennilega alltaf blaðafikill enda búinn að vera ritstjóri á þremur dagblöðum," sagði Össur. Að sögn Eyjólfs Sveinssonar, framkvæmdastjóra Frjálsrar fjöl- miðlunar hf. sem gefur út DV, lá það ljóst fyrir í fyrrahaust þegar hann og Sveinn R. Eyjólfsson, stjórnarformaður Frjálsrar fjöl- miðlunar, ræddu við Össur um ráðningu hans sem ritstjóra að þeir teldu það ekki ganga að ritstjóri DV væri samhliða í framboði til kosn- inga af augljósum ástæðum. „Strax þá var ákveðið að fyrir nóvember yrði Össur að velja á milli áhugamála sinna í blaðamennsku og pólitík. Síðla sumars eða snemma hausts settumst við síðan niður og hann kynnti okkur þá niðurstöðu að hann ætlaði að halda áfram í póli- tík,“ sagði Eyjólfur. Óljóst með ritstjóra Viðskiptablaðsins Óli Bjöm sagði í samtali við Morgunblaðið að ráðning hans hefði ekki átt sér langan aðdraganda og Óli Björn Kárason Össur Skarphéðinsson aðspurður sagði hann að koma yrði í ljós hvort honum myndu fylgja ein- hverjar áherslubreytingar hjá DV. „Eg á bara eftir að setjast þarna inn á nýju ári og kynnast nýju starfsumhverfí og nýjum samstarfs- mönnum og við verðum bara að sjá til með það. Ég ætla ekki að vera með neinar slíkar yfirlýsingar,“ sagði hann. Oli Björn sagði það ekki liggja al- veg fyrir hver tæki við ritstjórn Við- skiptablaðsins af honum, en það myndi koma í ljós á næstu dögum eða vikum. Steindór nefndi Stjórnarráðsreit en það er svæðið sem afmarkast af Lindargötu í suðri, Skúlagötu í norðri, Klapparstíg í austri og Ing- ólfsstræti í vestri. Hann sagði að auk þess að rífa Hæstaréttarhúsið og byggja nýtt fyrir þarfir stjórnarráðsins séu uppi áform um að byggja á lóðinni Skúlagötu 6, austan við Sjávarút- vegshúsið. Þar segir Steindór að gert sé ráð fyrir að koma fyrir hús- næði vegna þarfa Hafrannsókna- stofnunar, auk þess sem talið er æskilegt að flytja sem flest ráðu- neyti á þennan reit, en umhverfís- ráðuneyti, samgönguráðuneyti, fé- lagsmálaráðuneyti og utanríkis- ráðuneyti eru m.a. utan hans. ---------------------- Risna Pósts og síma Tæpar 40 milljónir á fjórum árum RISNUKOSTNAÐUR Pósts og síma var tæplega 40 milljónir króna á árunum 1993 til 1996 að báðum árum meðtöldum. Þetta kemur fram í skriflegu svari Hall- dórs Blöndals samgönguráðheri'a við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðar- dóttir, þingmanns jafnaðarmanna, en svarinu var dreift á Alþingi í gær. Fram kemur að risna hafi á þessum árum verið veitt til nor- ræns og alþjóðlegs samstarfs, við- skiptaaðila, funda innan stofnunar- innar, afmælis póstreksturs, síma- reksturs og starfsmannafélaga og að lokum til kaffiboða starfsmanna í tilefni af sumarkomu og veitinga fyrii' póstmenn við störf á háanna- tíma í desember. Þá segir í svarinu að risnukostnaðurinn hafi verið um 6,5 millj. árið 1993, rúmar 8 millj. árið 1994, um 8,5 millj. árið 1995 og 16,8 millj. árið 1996. Alþingi Dagskrá ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 13 í dag. Eftir atkvæðagreiðsiu verða eftirfarandi þingmál á dagskrá: 1. Hækkun kvóta íslendinga hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. 3. umr. 2. Viðauki við stofnskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 3. umr. 3. Framleiðsla og sala á búvörum. 3. umr. 4. Skýrsla forsætisráðherra um Byggðastofnun 1997. Ein umr. 5. Stefna í byggðamálum fyrir árin 1998-2001. Fyrri umr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.