Morgunblaðið - 17.11.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 49
AÐSENDAR GREINAR
Bjargvættur fyrir-
tækja og stofnana?
I UMHVERFI þar
sem síaukinn hraði og
þróun á sér stað er
þörf fyrir nýjar stjórn-
unaraðferðir til að
bæta samkeppnisstöðu
fyrirtækja jafnt á
heimamarkaði sem
heimsmarkaði. Ein af
þeim nýju stjómunar-
aðferðum sem meðal
annars hafa verið ár-
angursiTkar í Ameríku
er Supply Chain
Management (SCM),
þar sem markmiðið er
að ná hámarkshagræð-
ingu í heildarbirgja-
keðjunni, allt frá hrá-
efni til fullunninnar vöru, í hendur
neytanda.
Þrjú verkfæri innan (SCM) sem
notuð em til að hámarka samvinnu
milli allra liða í keðjunni og þar
með ná settum markmiðum em:
verktaka (outsourcing), náin sam-
vinna (partnership) og besta við-
miðun (benchmarking).
Við verktöku er markmiðið að
hvert fyrirtæki einbeiti sér að sín-
um „kjarnaverkþáttum“, en láti
síðan verktaka sjá um aðra verk-
þætti fyrirtækisins. Einbeiting að
kjarnaverkþáttum gerir fyrirtæk-
inu kleift að losna við óþarfa fjár-
festingar vegna annarra verkþátta
og beina fjármunum sínum mark-
visst til uppbyggingar á „kjarna-
verkþáttunum".
Samvinnu við verktaka má
skipta í nána samvinnu og almenna
samvinnu. Við nána samvinnu ber
að líta á verktakann sem náinn
samstarfsaðila, með það sem mark-
mið að forystuhæfíleikar hans og
sérþekking nýtist til að lyfta „öðr-
um verkþáttum" fyrirtækisins upp
á plan kjarnaverkþáttanna. Við al-
menna samvinnu er átt við sam-
vinnu við verktaka eins og við
þekkjum hana í dag. Hvort sam-
vinna eigi að vera náin eða almenn
er matsatriði í hverju einstöku til-
felli. Þumalfíngurregla til að skilja
hér á milli er að það sem lagt er í
samvinnuna má aldrei vera meira
en það sem fæst út úr henni.
„Besta viðmiðun" er síðan verk-
færi sem notað er m.a. til að
tryggja að það samstarf sem búið
er að koma á sé í réttum farvegi.
Einnig er „besta viðmiðun“ gott
verkfæri til að þróa og bæta eigin
aðferðir og framleiðslu í gegnum
lærdóm og reynslusöfnun, t.d. frá
keppinautum.
Þörfín
Sá tími þar sem fyrirtæki hafa
sjálf staðið fyrir öllum verkþáttum
sem tengjast framleiðslu þeirra er
liðinn. í framtíðinni munu slík fyr-
irtæki vart finnast. Atvinnulíf
framtíðarinnar mun þess í stað
byggjast á náinni samvinnu iðnfyr-
irtækja í anda SCM.
Samkeppnin á heims-
mörkuðum verður
ekki beint milli ein-
stakra fyrirtækja
heldur milli birgja-
keðja sem saman-
standa af fleiri fyrir-
tækjum.
Til að íslensk fyrir-
tæki geti í framtíðinni
mætt síharðnandi
samkeppni er nauð-
synlegt að koma til
móts við þörfina á nýju
stjórnunarkerfi í at-
Kristinn J. vinnulífinu. Þörfm lýs-
Gíslason ir sér í mörgum þátt-
um:
• Meira óöryggi í eftirspurn af
hálfu neytenda, þar sem neyt-
endur eru ekki eins trúfastir
gagnvart ákveðnum vörum eða
framleiðendum og þeir voru áð-
ur.
Þörf er á nýjum stjórn-
unaraðferðum, segir
Kristinn J. Gíslason, í
umhverfí síaukins
hraða og stöðugrar
þróunar.
• Meiri krafa til gæðamála en
fyi-r, sem þýðir að fyrirtækin
verða að einblína á neytenda-
þjónustu sem afgerandi sam-
keppnisþátt.
• Mikill hraði tækniþróunar í ein-
stökum greinum veldur mun
styttri endingar- og ferlitíma
vönmnar. Þetta þýðir oft að fyr-
irtækin ná ekki að afskrifa þær
fjárfestingar sem tengjast „ekki
kjarnaverkþáttum“ meðan varan
er í gildi.
• I gegnum aukið upplýsingaflæði
og minnkandi viðskiptahömlur
hefur alþjóðleg iðnvæðing og
myndun birgjakeðja í anda SCM
aukist nú á seinni árum.
Supply Chain Management
Eins og fram kom hér fyrr er
markmiðið með SCM að mynda
birgjakeðju sem virkar sem ein
heild, nánar skilgreint: birgjakeðju
sem inniheldur „heimsmeistara" í
hverjum lið keðjunnar þannig að:
• Ætíð fáist skjót og rétt viðbrögð
keðjunnar við margbreytilegum
kröfum neytenda.
• Þróun sambands milli liða í keðj-
unni sé á þann veg, að keðjan
framleiði jafnharðan bestu
lausnir fyrir neytendur.
• Öll fyrirtæki í keðjunni hafi
sameiginleg markmið og þekki
alla helstu árangursvalda og
gæðakerfi sem þurfa að vera fyr-
ir hendi til að ná þessum mark-
miðum.
Til að ná árangri með SCM þarf
hugarfarsbreytingu hjá mörgum
fyrirtækjum og stofnunum, frá því
að líta á neytendur og verk-
taka/birgja sem „keppinauta" þar
sem verðstríð er samningsgrund-
völlurinn, til þess að líta á við-
skiptavini sína sem nána sam-
starfsaðila og mikilvægan hlekk í
sameiginlegri keðju.
Þegar fyrirtæki hefur gengið í
gegnum þær breytingar sem SCM
krefst hafa breytingar á stjórn-
skipulagi þess lagt grundvöll fyrir
ytri sameiningu við aðra hlekki í
SCM-keðjunni. Með þessum breyt-
ingum skapast grundvöllur fyrir
aukið traust sem um leið þýðir
aukið og mai'kvissara upplýsinga-
flæði milli liða í keðjunni, þar sem
„opnar bækur“ er lykilorðið.
Mikilvægir árangursþættir
Ai-ið 1997 tók greinarhöfundur
þátt í rannsókn sem varpa átti ljósi
á hvar dönsk framleiðslufyrirtæki
standa með tilliti til náins sam-
starfs í anda SCM. Einnig tók
greinarhöfundur þátt í reynslu-
söfnun frá dönskum framleiðslu-
fyi-irtækjum sem voru að stíga sín
fyrstu skref í átt að SCM, og rann-
sókn á kenningum SCM-stjórnun-
arfræðinnar þar sem leitast var við
að finna mikilvæga árangursþætti.
Hægt var út frá rannsóknum
þessum að kortleggja eftirtalda
mikilvæga árangursvalda:
• Traust
• Þróun upplýsingaflæðis
• Sameining og samhæfing stjórn-
skipulags
• Stefnumótun og markmið
• Stjórnun
• Skoðun á og hæfileiki til nýsköp-
unar
• Náin samvinna
Ekki verður hér farið út í að
fjalla nánar um árangursvalda
þessa hvern fyrir sig, aðeins bent á
mikilvægi samspils og jafnvægis
milli þeirra.
Að lokum skal stuttlega sagt frá
reynslu þess fyrirtækis sem komið
er einna lengst danskra fyrirtækja
í að nýta sér SCM. Fyrirtækið er
Bang & Olufsen A/S, sem á árun-
um ‘91-’92 steig sín fyrstu skref í
átt að SCM, sem síðan hefur þróast
til afgerandi velgengni, sjá mynd 1.
I erindi Hennings Vestergárd, for-
stjóra Bang & Olufsen-sam-
steypunnar, á ráðstefnu um verk-
töku þakkar hann meðal annars
verktöku í anda SCM þann góða
árangur sem náðst hefur hjá B&O^'
á síðustu árum.
Greinarhöfundur telm- engan
vafa leika á, að íslensk fyrirtæki og
stofnanir geti með svipuðum hætti
og Danir nýtt sér SCM til að færa
rekstur sinn tU betri vegar. Til að
ná árangri með SCM hérlendis er
full þörf á að laga aðferðir SCM að
viðskiptaumhverfi okkar. Ef það
tekst getur SCM orðið bjargvætt-
ur margra fyrirtækja og stofnana,
bæði í einka- og ríkisrekstri.
Höfundur er rekstrar-
verkfræðingur.
4 SÖLUKENNSLA GUNNARS ANDRA
-4r Einkaþjálfun • Námskeið • Ráðgjöf • Fyrirlostrar
Vift höfum sameiginlegt markmií •
aft þér gangi vel!
Upplýsingar í síma 561 3530 og 897 3167
Æ
T-holir
Tk* *efjiir
Fleece peysur
Stuttfauxur
Útpur
Skór
UTILIF
m\ m
Glæsihæ - Sími 581 2922
r~
20,24%:
NordurlíimlasjóduHnn
Carnegie All Nordk
Frá síðustu áramótum til 13. nóvember var bein hœkkun bréfa hjá Carnegie
Nordic Markets 20,24%*, en sá sjóður er rekinn á sömu forsendum og
Norðurlandasjóðurinn.
s Carnegie, sem er eitt virtasta verðbréfafyrirtæki á Norðurlöndum,
! hefur falið Verðbréfastofunni hf. að annast ráðgjöf og milligöngu
í um málefni Norðurlandasjóðsins á íslandi.
*
* *Dœmi um árangursríkar fjárfestingar Carnegie-sjóðanna.