Morgunblaðið - 17.11.1998, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 1998 25
Schröder vill styrkja tengslin
við fleiri ráðamenn en Jeltsín
Moskvu. Reuters.
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands, hét því í gær að Þjóð-
verjar myndu aðstoða Rússa svo að
Alþjóðagjaldeyi-issjóðurinn, IMF,
féllist á efnahagsaðgerðir þeirra og
greiddi út lán sem Rússum hefur
verið heitið. Hins vegar væri sá tími
liðinn að Þjóðverjar veittu umfangs-
mikla efnahagsaðstoð. Schröder er í
opinbeiri heimsókn í Rússlandi og
mun í dag hitta Borís Jeltsín Rúss-
landsforseta ef heilsa þess síðar-
nefnda leyfír.
Schröder lagði í gær á það áherslu
að Þjóðverjar vildu styrkja tengslin
við fleiri rússneska ráðamenn en
Jeltsín, sem vai' afar vinveittur fyrr-
verandi Þýskalandskanslara, Helmut
Kohl. Hitti Schröder Jevgení Príma-
kov, forsætisráðherra Rússlands,
auk ýmissa fulltrúa stjórnarand-
stöðuflokka.
Schröder kvaðst í gær telja að
efnahagsaðgerðirnar, sem Prímakov
kynnti fyrr í mánuðinum, væru „góð
byrjun á starfi sem vinna verður
innan þess ramma sem IMF hefur
dregið upp“. Var þó á orðum hans að
skilja að þýska stjórnin teldi aðgerð-
irnar ekki fullnægjandi. Sagði
Schröder Þjóðverja reiðubúna að
aðstoða Rússa við einstök verkefni,
fremur en að veita almenna fjár-
hagsaðstoð.
Er fundurinn með Jeltsín barst í
tal, sagði Schröder að tengsl manna
yrðu að vera óháð stjórnmálum. „En
ég vil jafnframt leggja á það áherslu
að burtséð frá góðum persónulegum
tengslum, byggja samskipti Þýska-
lands og Rússland á afar, afar breið-
um grunni.“
Eftir fundinn með Pilmakov hitti
Schröder Gennadí Zjúgjanov, leið-
toga kommúnista, Grígorí Javlinskí,
leiðtoga Jabloko-flokksins, og Alex-
ander Lebed, sem hyggst bjóða sig
fram í forsetakosningunum árið 2000.
Báru Javlinskí og Zjúgjanov lof á
Schröder fyrir þann áhuga sem hann
sýndi öðrum stjórnmálaöflum en
þeim sem væru í stjórn.
-gjörðu svo vel
opið allan sólarhringinn
mbl.is
Þýzkaland
Deilt um
innflytj-
endur
Bonn. Reuters.
ÞÝZKIR græningjar gagmýndu í
gær harkalega samstarfsmenn sína
í ríkisstjórn, jafnaðarmenn, fyrir
að vilja setja hömlur við aðflutningi
fólks til Þýzkalands og fordæmdu
jafnframt nauð-
ungarflutning
fjölbrotaung-
lings frá Bæj-
aralandi til
Tyrklands.
Deilan í sam-
steypustjórn
Jafnaðarmanna-
flokksins SPD
og græningja
blossaði upp eft-
ir að innanríkisráðherrann Otto
Schily lét þau orð falla að Þýzka-
land hefði ekkert rúm fyrir fleiri
innflytjendur.
Talsmenn græningja sögðu um-
mæli Schilys óskiljanleg með tilliti
til þess að hin nýja stjórn ætti að
vera að vinna að því að aðlaga hinar
7,5 milljónir útlendinga, sem þegar
dvelja í landinu, að þýzku samfélagi.
„Það er ekkert vit í því að vera að
skvetta olíu á eldinn með því að
taka sér í munn orð eins og „yfir-
fullt“ og „báturinn er fullhlaðinn",
þegar við þurfum að eiga við leynda
og ljósa útlendingaandúð," sagði
Rezzo Schlauch, formaður þing-
flokks græningja, í útvarpsviðtali.
Schily hafði sagt að ef tekinn yrði
upp innflytjendakvóti í Þýzkalandi
yrði hann undir núverandi kringum-
stæðum að vera settur við núllið.
„Farið hefur verið fram úr mögu-
leikum Þýzkalands til að taka við
innflytjendum," hafði Berlínai’dag-
blaðið Der Tagesspiegel eftir Schily.
Umdeild brottvísun
afbrotaunglings
Ummæli Schilys féllu er hin
íhaldssömu stjórnvöld Bæjaralands
sendu úr landi 14 ára ungling af
tyrknesku foreldri efth' að hann
hafði verið margdæmdur íyrir
glæpi. Unglingurinn, Muhlis Aris að
nafni, var settur um borð í flugvél
sem flutti hann til Istanbúl á laug-
ardag, eftir að stjórnlagadómstóll
Þýzkalands hafði úrskurðað að
brottvísunin væri lögleg. Stjórnvöld
í Bæjarlandi hugðust einnig vísa
foreldrum afbrotaunglingsins úr
landi fyrir að hafa enga stjórn á
honum, en dómstóllinn leyfði þetta
ekki.
Cem Özdemir, þingmaður græn-
ingja á Sambandsþinginu, sagði í
gær að Aris væri „afurð Þýzka-
lands“ og ætti að taka út sína refs-
ingu þar en ekki í Tyrklandi.
vhömbl.is
_A.LLTAf= eiTTH\SA£.7 NÝTT
Ráðstefna á vegum Hagfræóistofnunar
Háskóla Islands og sjávarútvegsráðuneytisins
á Hótel Loftleibum, föstudaginn 20. nóvember 1998.
12.00-13.20___________________________________
Hádegisverðarfundur í Víkingasal
Stjórnandi Jóhannes Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóri
og formaður Auðlindanefndar.
12.00-12.05 Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra býður
ráðstefnugesti velkomna.
12.05-12.45 Sjávarréttahlaðborð að hætti hússins.
15.10- 16.30_____________________________________
Reynslan af kvótakerfinu
Stjómandi Þráinn Eggertsson, prófessor við Háskóla íslands.
15.10- 15.30 Phil Major, fyrrverandi ráðuneytisstjóri sjávar
útvegsráðuneytis Nýja Sjálands: Kvótakerfið á Nýja Sjálandi.
15.30-15.50 Birgir Þór Runólfsson, dósent við Háskóla
íslands: Kvótakerfið á íslandi.
13.00-13.20 Anthony Scott, prófessor emeritus við
University of British Columbia, flytur erindi og svarar
fyrirspurnum.
13.30- 14.50_________________________________
Forsendur kvótakerfisins í Þingsal 5
Stjórnandi Guðmundur Magnússon, prófessor við Háskóla
Islands.
13.30- 13.50 LeeAnderson, prófessor við University of
Delaware: Hugmyndin um framseljanlega aflakvóta.
15.50-16.10 Michael DeAlessi, Centerfor Private
Conservation, Washington DC: Ný tækni og myndun
afnotaréttinda af sjávargæðum.
16.10-16.30 Julian Morris, Institute of Economic Affairs,
London: Umhverfisverndarstefna hins frjálsa markaðar.
Umræður og fyrirspurnir á eftir hverjum fyrirlestri.
16.30-17.30___________________________________
Hringborðsumræður
13.50-14.10 Ronald Johnson, prófessor við Montana State
University: Renta, veiðigjald og kvótakerfi.
14.10-14.30 Ragnar Árnason, prófessor: Framfarir í
fiskveiðistjórn með hjálp kvótakerfis.
14.30-14.50 Þórólfur Matthíasson, dósent við Háskóla
(slands: Rök og sjónarmið í deilunni um kvótakerfi og
veiðigjald.
Stjórnandi Hannes H. Gissurarson. Þátttakendur: Anthony
Scott, LeeAnderson, Phil Major, Ronald Johnson, Ragnar
Árnason, Roger Bate (Institute of EconomicAffairs) og
Markús Möller (Seðlabanki Islands).
Móttaka á Hótel Loftleiðum í boði sjávarútvegsráðuneytisins.
Ræður á ensku verða túlkaðar.
17.30-19.00
Umræður og fyrirspurnir á eftir hverjum fyrirlestri.
14.50-15.10 Kaffihlé.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku til
sjávarútvegsráðuneytisins í síma 560 9670
eða með tölvupósti (sjavar@hafro.is).
Síðasti skráningardagur er
miðvikudaginn 18. nóvember.
Takmarkaður þátttakendafjöldi.
Þátttökugjald er 4.500 kr.